Morgunblaðið - 02.09.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
25
Af sem áður var:
Norðmenn safna
miklum skuldum
Osló, AP.
LÆGRA olíuverð, minni útflutningur og meiri innflutningur hafa
leitt til þess, að greiðslujöfnuður Norðmanna við útlönd var óhag-
stæður »m 11,6 milljarða n.kr. (um 64 milljarða isl. kr.) fyrstu fimm
mánuði þessa árs. Skýrði hagstofa Noregs frá þessu í gser. A sama
timabili í fyrra var greiðslujöfnuðurinn hagstæður um 15,8 milljarða
n.kr. (tæpl. 87 milljarða isl.)
Samkvæmt hagtolum, sem hag-
stofan lét frá sér fara í júlí sl., var
greiðslujöfnuðurinn við útlönd
fyrstu þijá mánuði þessa árs þó
ekki neikvæður um meira en 1,3
milljarða n.kr. Á sama tíma í fyrra
var hann jákvæður um 9,5 milljarða
n.kr. Á tímabilinu janúar - maí í
ár var greiðslujöfnuðurinn óhag-
stæður um 5,9 milljarða n.kr., að
því er snerti útflutning og innflutn-
ing á vörum og þjónustu. Á sama
tímabili í fyrra var hann hagstæður
um 22 milljarða n.kr.
Hvað snertir vaxtagreiðslur og
ijármagnsflutninga var greiðslu-
jöfnuðurinn fyrst og fremst nei-
kvæður nú sökum lækkandi
olíuverðs. Á tímabilinu jan. - maí í
ár minnkaði verðmæti útflutttrar
olíu og gass og varð 23,9 miiljarðar
n.kr., en var 37,4 milljarðar á sama
tíma í fyrra. Þessi samdráttur nem-
ur 36,1%.
Innflutningur varð hins vegar
13,3% meiri nú en fyrstu fímm
mánuði ársins 1985. Samkvæmt
tölum norsku hagstofunnar júkust
nettóskuldir Norðmanna um 8,2
milljarða n.kr. (um 45 milljarða ísl.
kr.) á tímbilinu jan.- maí, en þær
minnkuðu um 16,6 milljarða á sama
tímabili í fyrra.
Sprenging’ar
í Portúgral
Faro, Portúcral, AP. ^ J
SPRENGINGAR urðu i þremur ferðamannabæjum í Portúgal
snemma í gærmorgun. Talsverðar skemmdir urðu á mannvirkjum,
en ekki er vitað um slys á fólki. Ein sprengingin varð í grennd við
sumarbústað Marios Soares foreta, en hann hafði farið þaðan burt
daginn áður. Lögreglan telur, að sprengingunni hafi ekki verið beint
gegn forsetanum sérstaklega.
Sprengingamar, sem voru íjórar
alls, urðu skömmu eftir að maður
nokkur sem kvaðst vera talsmaður
aðskilnaðarhreyfíngar baska á
Spáni og vinstri sinnaðra skæruliða
í Portúgal, hafði hótað „svörtum
sepember" með sprengingum um
suðurhluta PorúgaJs og Spánar.
Haft var eftir portúgölsku lög-
reglunni, að sprengjumar hefðu
allar sprungið á einum stundar-
fjórðungi á þremur ferðamanna-
stöðum á suðurhluta Algarve-
strandarinnar. í tveimur
sprengingunum brotnuðu gluggar
og hurðir eyðilögðust í móttökusal
I Aldeia do Golfe í Vilamoura og í
þriðju sprengingunni, sem varð við
í Vale do Lobo, urðu skemmdir á
inngangi og móttökusal á íbúða-
blokk, þar sem ferðamenn búa.
Kínverskir leiðtogar
hafðir að skotspæni
DENG TSCHAO-PENG, leiðtogi
Kína, og Hu Yaobang, leiðtogi
kínverska Kommúnistaflokksins,
voru nýverið hafðir að skotspæni á
gamansíðum hins útbreidda blaðs
Jiefang Ribao. Deng spilar brids
af ástríðu og á myndinni sýnir hann
trompið sitt með áletruninni „leið
Kínverja". Hu stendur í jakkafötum
að hætti vesturlandabúa og stjómar
ósýnilegri hljómsveit. í myndatexta
krefst hann þess af hljómsveitinni
að hún leiki ný lög. Árið 1949 var
bannað að teikna og birta skop-
myndir af leiðtogum í kínverskum
syómmálum og er blaðinu því snú-
ið við með þessum myndum.
Flokkurinn leyfði reyndar að skop-
myndir væru notaðar sem vopn „í
baráttunni gegn ytri og innri fénd-
um“ og áttu lesendur Jiefang Ribao
því í erfíðleikum með að kyngja
þessari stefnubreytingu. Ritstjóm
blaðsins sá sig nauðbeygða til að
Deng Xiao-Peng
svara „miklum viðbrögðum les-
enda“ með nokkmm orðum: „Auk
lofs barst fyöldi mótmæla við því
að kínverskt dagblað skyldi gera
leiðtoga landsins að trúðum."
Úlpnr s-m-1 kr. 2.400, til 2.990,-
Jogging-gallar kr. 890,- og 950,- margir litir
Háskólabolir stærðir 2—14 kr. 550,-
Gammósíur stærðir 0—16 frá kr. 190,-
Barnapeysur frá kr. 290,-
Stuttermabolir með mynd, stærðir s-m-1 kr. 740,-
Skólatöskur kr. 255,-
Ennfremur
Gallabuxur stærðir 30—36 kr.
995,-
Kvenbuxur stærðir 25—32 kr.
1.050,-
íþróttasokkar kr. 69,-
Þunnir kvenjakkar kr. 595,-
Vinnuskyrtur stærðir 38—44 kr.
535,-
Peysur í miklu úrvali s-m-1990,-
Þykkir herra-mittisjakkar kr.
2.400,- og 2.990,-
Handklæði kr. 145,- til 238,-
Sængurverasett með myndum kr
840,-
Lakaléreft 240 cm á breidd kr.
222,- pr. m
Lakaléreft 140 cm á breidd kr.
140,- pr. m
Sængurveraléreft 140 cm á breidd
kr. 155,-
Viskustykki kr. 155,-
Opið frá 10.00-18.00
Föstudaga 10.00-19.00
Laugardaga 10.00-14.00
Vöruloftið
SIGTÚNI 3, SÍMI 83075.
Hu Yaobang