Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
Bolungarvik:
Skortur á kennur-
um í sérgreinarnar
Hafist handa við fyrsta áfanga viðbyggingar skólans
Bolungarvík.
ENN er óráðið í nokkrar kenn-
arastöður í Bolungarvík og illa
hefur gengið að ráða kennara til
starfa í sérgreinarnar, að sögn
Einars K. Guðfinnssonar for-
manns skólanefndar á staðnum.
Einar tjáði fréttaritara Morgun-
blaðsins á fimmtudaginn að
ástandið gæti lagast áður en
skólahald hefst upp úr næstu
Þrjú umferðar-
óhöpp um helgina
ÞRJÚ umferðaróhöpp urðu í ná_-
grenni Akureyrar um helgina. Á
laugardag fór bíll á hvolf við Sól-
garð, þá valt bill í Oxnadai og
aðfaranótt sunnudags lenti bíll á
handriði brúarinnar yfir Hörgá.
Tvennt var i bílnum sem fór á
hvolf við Sólgarð. Farþegi var flutt-
ur á slysadeild en meiðsli voru ekki
alvarleg. Ökumaður bílsins sem
valt i Óxnadal var einn i farartæk-
inu. Hann var einnig fluttur á
slysadeild en meiðsli reyndust ekki
v alvarleg. Bfllinn var aftur á móti
talinn ónýtur.
Þeir sem voru um borð í bílnum
sem lenti á brúarhandriðinu við
Hörgá meiddust einnig aðeins lítil-
lega.
Organleikur
á Reykhólum
Midhúsum, Reykhólasveit.
VIÐ messu hjá Braga Benedikts-
syni, sóknarporesti, voru góðir
gestir við guðsþjóðnustu á Reyk-
hólum á sunnudag. Hjónin
Marteinn Hunger Friðriksson,
dómorganisti og kona hans Þór-
unn Björnsdóttir tónmennta-
kennari, ásamt Ingimar
Sveinbjörnssyni flugstjóra og
konu hans, Helgu Zoéga.
Þeir Marteinn og Ingimar sáu
um organleik og vantaði aðeins það
á að kirkjan þyrfti að eiga betra
orgel. Við sem vorum í kirkju á
sunnudag þökkum þeim hjónum
fyrir komuna.
— Sveinn.
mánaðamótum, því mikið var
auglýst eftir kennurum um
siðustu helgi og gæti það skilað
nokkrum árangri.
„Það hefur valdið okkur von-
brigðum hve illa hefur gengið að
ráða kennara í sérgreinamar svo-
kölluðu, heimilisfræði, tónmennt,
myndmennt og íþróttir. Einkum
erum við leiðir vegna íþróttanna,
því hér í Bolungarvík er sennilega
ein albesta aðstaða til íþróttaiðkun-
ar sem þekkist á landinu. Við eigum
glæsilegt íþróttahús og mjög góða
og vel búna sundlaug," sagði Einar.
Einar sagði að Bolvíkingar hefðu
á undanfömum ámm getað státað
af góðum og vel menntuðum kenn-
umm í sérgreinunum, sem væri
ekki algengt um skóla á lands-
byggðinni, og því væri þessi skortur
nú enn tilfínnanlegri. „Við teljum
það hafa verið eina stærstu rósina
í hnappagati skólans hingað til að
geta boðið upp á þessa kennslu, auk
þess að hafa á að skipa góðum
kjama vel menntaðra og reyndra
kennara. Enda hefur þessi þessi
skóli komið mjög vel út í samræmd-
um prófum, bæði miðað við aðra
skóla á Vestfjörðum og landið í
heild," sagði Einar.
Einar sagði að hann hefði sem
formaður fræðsluráðs Vestijarða
haft tækifæri til að fylgjast með
kennararáðningum undanfarin ár:
„Staðan í ár er öðmvísi en oft áð-
ur. Ymsir skólar, sem aldrei hafa
þurft að hafa áhyggjur af kennara-
skorti, standa nú frammi fyrir þessu
vandamáli, en betur hefur gengið
að ráða kennara til starfa í öðmm
skólum þar sem kennaraskortur
hefur verið viðvarandi," sagði hann.
I sumar var hafist handa um
stækkun gmnnskólans í Bolung-
arvík og var fyrsti áfangi þess verks
boðinn út fyrir nokkm. Tilboði
byggingarþjónustu Jóns Friðgeirs
Einarssonar var tekið. Miðað er við
að ljúka við gerð sökkla og gmnn-
plötu nú í haust. Þessi stækkun
skólans er upp á 1.400 fermetra
og var áætlaður byggingarkostnað-
ur í apnl 1986 52,5 milljónir.
Áætlað er að Ijúka verkinu á næstu
5 ámm, eða að viðbyggingin verði
tekin í notkun árið 1990.
— Gunnar.
Deildarstjórar og framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga t.f.v.: Hreinn Bergsveinsson, deildarstjóri bif-
reiðadeildar, Hrafnkell Björnsson, deildarstjóri skýrsluvéladeildar, Benedikt Sigurðsson, deildarstjóri
fjármáladeildar, Hallgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga, Gunnar Sigurðsson,
deildarstjóri endurtryggingadeildar, Héðinn Emilsson, deildarstjóri brunadeildar, og Bragi Lárusson,
deildarstjóri sjódeildar, ábyrgðar- og slysadeildar og líftryggingafélagsins Andvöku.
Samvinnutryggingar 40 ára
STJÓRNENDUR og viðskipta-
vinir Samvinnutrygginga g.t.
héldu í gær upp á 40 ára afmæli
félagsins, en Samvinnutrygging-
ar voru stofnaðar 1. september
1946.
Stórafmælinu var fagnað á
viðeigandi hátt með lúðraþyt og
kaffidrykkju og var viðskipta-
vinum einnig boðið að smakka á
afmælistertu og öðru meðlæti í
anddyri skrifstofuhúsnæðis Sam-
vinnutrygginga í Ármúla.
Á fundi sem stjómendur trygg-
ingafélagsins áttu með fréttamönn-
um { gær, kom fram að félagið
varð stærst sinnar tegundar á Is-
landi rúmum átta árum eftir
stofnun þess og hefur haldið því
sæti síðan. í upphafi var félaginu
mikill styrkur af viðskiptum við
samvinnuhreyfinguna, en nú, 40
árum síðar, eru einungis 20% af
iðgjöldum Samvinnutrygginga
fengin frá samvinnufélögunum.
Önnur 20% koma frá öðrum fyrir-
tækjum og um 60% koma frá
einstaklingum, bæði í þéttbýli sem
dreifbýli.
Fyrstu tegundir trygginga, sem
Samvinnutryggingar buðu upp á,
voru bruna- og sjótryggingar, en
ári eftir stofnun félagsins voru
teknar upp bifreiðatryggingar. Þá
bryddaði félagið upp á þeirri nýjung
að bjóða viðskiptavinum afslátt, ef
þeir valda ekki tjóni og 1952 voru
fyrst veitt viðurkenningarmerki fyr-
ir 5 ára öruggan akstur. Tæpum
áratug síðar, eða árið 1961, veitti
félagið viðurkenningu fyrir 10 ára
öruggan akstur og fengu þeir öku-
menn einnig ellefta iðgjaldaárið
frítt.
Árið 1957 auglýstu Samvinnu-
tryggingar fyrst heimilistryggingar
til sölu og 1965 var fyrst boðin
ökumanns- og farþegatrygging í
bifreiðum. Fyrsti klúbburinn „Ör-
uggur akstur" var stofnaður 1965,
en þeir eru nú orðnir 33 talsins.
Hlutur Samvinnutrygginga á
íslenska tryggingamarkaðinum árið
1985 var 23,4% og er hlutur þeirra
af bifreiðatryggingum einna
stærstur. Að sögn Hreins Berg-
sveinssonar, deildarstjóra bifreiða-
deildar, er þriðja hvert skráð
ökutæki tryggt hjá Samvinnutrygg-
ingum, en talið sé að hlutur
Samvinnutrygginga sé jafnvel
meiri, þar sem mörg ökutæki séu
á skrá hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins,
þótt ekki séu greidd af þeim trygg-
ingaiðgjöld. Alls eru 33.500 bflar
tryggðir hjá félaginu, en alls eru
116.000 bílar á skrá hjá Bifreiðaeft-
irlitinu. Hreinn sagði að fjöldi bfla,
sem væru í notkun og tryggðir,
væri í kringum 96.000.
Umboð Samvinnutrygginga g.t.
og líftryggingafélagsins Andvöku,
sem stofnað var af samvinnumönn-
um árið 1949, eru nú-61 talsins og
eru þau í öllum landsljórðungum.
Fjórir menn hafa gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra Samvinnutrygginga
g.t., og var Erlendur Einarsson sá
fyrsti. Við starfí hans tók Jón Ólafs-
son og á eftir honum Ásgeir
Magnússon. Núverandi fram-
kvæmdastjóri er Hallgrímur Sig-
urðsson.
Vinningshafinn Emilía Samúelsdóttir tekur við Nissan-bifreiðinni.
Vinningnr Hlaðvarpans afhentur
— Salan hafin í öðrum flokki
VINNINGUR í „Lukkupotti
Hlaðvarpans, bifreið af gerðinni
Nissan Sunny Coupé, var af-
hentur föstudaginn 29. ágúst
síðastliðinn. Vinningshafi var
Emilía Samúelsdóttir.
Sala er nú hafin á næsta flokki
í „Lukkupottinum" og verður hann
með sama sniði og sá fyrri, en gefn-
ir verða út 1.000 miðar á 1.000
krónur hver miði. Vinningurinn í
þessum flokki verður bifreið af
gerðinni Nissan Sunny Wagon ’87
að verðmæti 450 þúsund krónur.
Stefnt er að þv{ að draga í seinni
flokknum þann 1. október næst-
komandi, eða fyrr, ef allir miðar
verða þá seldir.
Suðurnes;
Ráðstefna um at-
vinnumál kvenna
RÁÐSTEFNA um atvinnumál á
Suðurnesjum með sérstöku tilliti
til kvenna verður haldin laugar-
daginn 6. september næstkom-
andi.
Tilefni ráðstefnunnar eru þær
breytingar sem eru að verða í at-
vinnulífi á Suðurnesjum og tilgang-
urinn er að vekja umræðu um
hvernig unnt sé að mæta sam-
drætti, einkum í fiskvinnslu, sem
fyrst og fremst bitnar á konum.
Það eru kvennalistakonur í
Reykjaneskjördæmi, sem unnið
hafa að undirbúningi ráðstefnunn-
ar, og er dagskráin í aðalatriðum
eftirfarandi:
Kristín Halldórsdóttir alþingis-
maður setur ráðstefnuna, sem hefst
kl. 10. Dr. Alda Möller matvæla-
fræðingur hefur framsögu um nýjar
leiðir í fiskvinnslu, Sara Harðar-
dóttir kennari ræðir um fískeldi á
Reykjanesi, Jón Unndórsson iðn-
ráðgjafi fjallar um iðnað á Suður-
nesjum og Þórunn Friðriksdóttir
kennari upplýsir um þá möguleika,
sem framundan eru í svonefndum
hefðbundnum kvennastörfum.
Guðrún Eyjólfsdóttir leiðsögu-
maður ræðir um ferðaþjónustu á
Suðumesjum, Albert Álbertsson
verkfræðingur talar um þá framtíð-
arkosti, sem fólgnir eru í orkunni
í Svartsengi, Valdís Tómasdóttir
kennari hefur framsögu um störf
kvenna á Keflavíkurflugvelli og þær
breytingar sem tilkoma nýju flug-
stöðvarinnar hefur í för með sér,
Helga Sigurjónsdóttir kerfisfræð-
ingur ræðir um konur og hugbúnað
og Ulla Magnússon framkvæmda-
stjóri varpar ljósi á það sem mætir
konum sem vilja stofna fyrirtæki.
Færi gefst til fyrirspurna og
fijálsra umræðna milli framsöguer-
inda.
Ráðstefnan verður haldin á Glóð-
inni í Keflavík. Þátttakendum gefst
kostur á léttri máltíð í hádeginu,
en ætlunin er að ljúka ráðstefnunni
um kl. 17.
Ráðstefnustjórar verða Guðný
Guðmundsdóttir og Ragnhildur
Eggertsdóttir.
(Fréttatilkynning)