Morgunblaðið - 02.09.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
^Minning:
Lára Pálsdóttir
Fædd 13. mars 1912
^ Dáin 24. ágúst 1986
Lára fæddist á Akureyri og átti
þar heima alla sína ævi. Hún var
dóttir Fanneyjar Jósefsdóttur og
Páls Gíslasonar Vatnsdal. Hún ólst
upp hjá foreldrum sínum ásamt
stórum bamahópi, eða meðal sjö
systkina, sem upp komust. Nú eru
aðeins tvö þeirra á lífi: Axel, sem
býr á Akureyri, og Hulda í
Reykjavík.
Lára bytjaði á hjúkrunamámi í
heimabyggð sinni, en hætti því þeg-
ar hún giftist eftirlifandi manni
'*sínum, Leó Sigurðssyni útgerðar-
manni, sem einnig er innfæddur
Akureyringur. Það var 19. maí
1934.
Lára var glæsileg kona og sómdi
sér vel í fjölmenni og mannfagn-
aði. En heimilið var fyrst og síðast
hennar heimur. Meðan bömin voru
í bemsku og æsku með öllum sínum
ys og þys komst fram sá hægláti
og ljúfi myndugleiki, sem hún bjó
yfir alla ævi.
Eftir að bömin vom öll farin og
hljóðnaði á heimilinu skorti Lám
ekki áhugamál, því að hún lifði sig
inní viðfangsefni og umsvif bónda
síns af lífi og sál. Hryggðist með
honum og gladdist. Og það er gott
til þess að hugsa að oftast gat hún
glaðst því að hann hefir verið far-
sæll í störfum sínum.
Sambúð þeirra hjón í hálfa öld
var með þeim hætti að sjaldan eða
aldrei bar skugga á. Og sá rausnar-
t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARI BJÖRNSSON, Ferjubakka 16, lést í Borgarspítalanum 31. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Sigríður Jónsdóttir, Erna Aradóttir, Sævar Ö. Kristbjörnsson, Örn Arason, Hulda Böðvarsdóttir og barnabörn.
■ V
t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ARNHEIÐUR BERGSTEINSDÓTTIR, Hæðargarði 34, lést í Landspítalanum að kvöldi föstudagsins 29. ágúst. Jarðarför- in auglýst síðar. Ragnar B. Henrysson, Sigriður Jónsdóttir, Kristján K. Pálsson, Kristín J. Guðlaugsdóttir, Ragnheiður Kr. Pálsdóttir, Guðbjartur Ágústsson, Bergsteinn Pálsson, Hrönn Árnadóttir, Brynhildur Erla Pálsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Þórunn S. Pálsdóttir og barnabörn.
t GUÐBJÖRG A. FANNBERG lést í Landspítalanum 19. ágúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í þyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón J. Fannberg, Ámi J. Fannberg, Sigrfður J. Fannberg, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn.
J + Bróðir okkar og mágur, EYJÓLFUR HALLDÓRSSON verkstjóri, andaðist á Hrafnistu 29. ágúst. Sigríður Halldórsdóttir, Magnea Halldórsdóttir, Frímann Guðjónsson.
t Eiginmaður minn, INGIBERGUR VILMUNDARSON, Stigahlíö 36, lést í Landspítalanum að morgni 29. ágúst. Margrét Tómasdóttir
K
t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, KARL EYJÓLFUR JÓNSSON, Berugötu 9, Borgarnesi, lést 30. ágúst. Áslaug G. Bachmann, börn og tengdabörn.
«1 t Bróðir okkar, RAFN BJARNASON, bóndi aö Þorkelsgerði f Selvogi, lést í Landspítalanum að morgni sunnudagsins 31. ágúst. Systkini hins látna.
%
Minning:
Helga Hjördís
Hjartardóttir
skapur sem ávallt fylgdi heimili
hennar, mun seint gleymast.
Eg vil, Leó vinur minn og svili,
votta þér, bömum og bamabömum
samúð okkar Huldu.
Karl Jónsson
Hinsta kveðja frá börnum
og tengdabörnum
Fædd 29.júní 1915
Dáin 24. ágúst 1986
Okkur setti hljóð þegar kallið
kom, en huggum okkur við að nú
líður henni vel og þökkum guði fyr-
ir að hafa átt þessa konu fyrir
móður.
Hún hvarf frá okkur sólbjartan
sunnudagsmorgun í ágúst þegar
sólin hellti geislum sínum yfir líf
jarðar og yljaði hveiju smáblómi
jafnt og þeim sem meira mega sín.
t
Bróðir minn, mágur okkar og fraendi,
EINARJ. EIRÍKSSON,
verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni í Reykjavík þriöjudaginn
2. september kl. 15.00.
Björgvin Kristófersson,
Ragnheiður S. Jónsdóttir,
Hólmfríður Þórhallsdóttir,
Guðmundur Sigurðsson
og systkinabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og lang-
amma,
HELGA HJÖRDÍS HJARTARDÓTTIR,
Hamraborg 30,
Kópavogi,
sem lést þann 24. þ.m., verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
þriöjudaginn 2. september kl. 13.30.
Sigurður Siggeirsson,
Jónas Guðmundsson, Jóhanna Sigurðardóttir,
Rúnar Guðmundsson, Hjördís Davfðsdóttir,
Hjördis Guðmundsdóttir, Hilmar Guðbjörnsson,
Kristfn H. Guðmundsdóttir, Herluf Grúber,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð
og vináttu vegna fráfalls og útfarar
MARGRÉTAR HALLDÓRU HARÐARDÓTTUR,
Fjólugötu 2,
Akureyri.
Sérstakar þakkir flytjum við séra Þórhalli Höskuldssyni sem veitti
fjölskyldunni ómetanlega aöstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Magnús Halldórsson og börn,
Sóley Halldórsdóttir
og aðrir vandamenn.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför
mannsins míns,
ÓLAFS JÓNSSONAR
siglingafræðings,
Kópavogsbraut 45.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigrfður Gísladóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SIGFÚSÍNU ÓLAFSDÓTTUR.
Auður Brynjólfsdóttir, Ingiber Ólafsson,
Nikulás Brynjólfsson, Þórarna Hansdóttir
og barnabörn.
Legsteinar
ýmsar gerdir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Lund hennar var ekki ólík þess-
um fagra morgni.
Lífínu hefur verið líkt við siglingu
yfír hafið, oft er það úfíð, stundum
stillt, áföllin stór en alltaf birtir á
ný og sólin yljar öllu sem guð gaf líf.
Stefna móður okkar yfir hafíð
var rétt, hún komst heil í höfn.
Kærleikur og lotning fyrir lífínu og
samúð með þeim sem minna mátti
sín var hennar vöggugjöf. Þeir eru
margir sem eiga henni mikið að
þakka og sumir allt.
Móðir okkar fæddist í Efri
Rauðsdal á Barðaströnd, og var hún
þriðja í röðinni af tíu systkinum.
Ólst hún upp við ástríki foreldra
sinna til nítján ára aldurs, en þá lá
leiðin til Reykjavíkur þar sem hún
stundaði ýmis störf.
Árið 1942 steig hún stórt gæfu-
spor þegar hún giftist föður okkar,
Guðmundi Kr. Falk Guðmundssyni,
sjómanni frá Isafírði, og stofnaði
með honum heimili á Vesturgötu
25 í Reykjavík. Þar fæddust fímm
af sex bömum þeirra.
Árið 1954 fluttust þau í nýtt hús
sem þau byggðu á Kársnesbraut
131 í Kópavogi og þar fæddist
yngsta bamið. Þetta var hamingju-
söm fjölskylda og minningamar
margar og fagrar.
25. ágúst 1965 kom reiðarslagið
þegar hafíð tók manninn hennar
og yngsta soninn aðeins 15 ára
gamlan frá henni. Sást þá best hve
sterk hún var.
En Guð gerir vel við börnin sín
og gaf henni annan mann sem var
henni mikil stoð og hjálpaði henni
í raunum hennar.
Móðir okkar giftist seinni manni
sínum, Sigurði Siggeirssyni frá
Baugsstöðum, árið 1971 og gátum
við börnin hennar ekki verið ham-
ingjusamari hennar vegna.
Þau tóku að sér einn sonarson
hennar og ólu hann upp sem sinn
eigin.
Sigurði viljum við þakka fyrir
allt sem hann gerði fyrir móður
okkar og biðjum guð að gefa honum
styrk á þessari erfíðu stund.
Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð
en ekkert um þig ó, móðir góð?
upp þú minn hjartans óður.
Því hvað er ástar og hróðrar dís
og hvað er engill úr paradís
hjá góðri og göfugri móður?
(Matthías Jochumss.)
Jónas, Jóhanna,
Hjördís, Hilmar,
Rúnar, Hjördís,
Kristín Hrönn og Herluf.
Kveðja frá barnabörnum
Við kveðjum kæru ömmu okkar
og þökkum guði fyrir hana, kær-
leikur og blessun hennar voru það
besta fyrir okkur, guð blessi hana
og minningu hennar.
Far þú i friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér r.ú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)