Morgunblaðið - 02.09.1986, Side 41
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2, BÉPtÉMBER lðfe6
41
Reynir Pálsson bóndi á Stórubrekku í Fljótum og framkvæmdastjóri Miklalax hf. í baksýn sést
það sem risið er af seiðastöð fyrirtækisins á Lambanesreykjum.
einbeita sér að framleiðslu göngu-
seiða og er stefnt að framleiðslu
400 þúsund laxaseiða í upphafi
og stækkun síðar ef aðstæður
leyfa. Stefnt er að sölu göngu-
seiða til írlands og Noregs, enda
útflutningsverðið gott um þessar
mundir, hvað sem síðar verður.
Reynir sagði að búast mætti við
lækkuðu seiðaverði á næstu árum,
ef til vill eftir 3-5 ár, en það
væri svo gott nú að stöðvarnar
þyldu töluverða lækkun án þess
að reksturinn færi úr skorðum.
„Annars held ég að við íslending-
ar höfum aðstöðu til að sérhæfa
okkur í seiðaframleiðslu og selja
til annarra landa, það er að segja
ef við getum haldið áfram að
framleiða heilbrigð og góð seiði,
sem eru góð í eldi. En ekki þarf
nema einn sýktan farm til að eyði-
leggja markaðinn," sagði Reynir.
„Neðansjávar-
hitaveita“
Síðar er ætlun forráðamanna
Miklalax hf. að nýta seiðin til
framhaldseldis, og kemur Mikla-
vatn þar sterklega til greina, að
Bændur í Fljótum stofna fiskeldisstöð:
„Eigum ekki aðra betri vaxtar-
möguleika fyrir sveitarfélagið“
- segir Reynir Pálsson framkvæmdastjóri Miklalax hf,
BÆNDURI Fljótum hafa stofn-
að hlutafélag um byggingu og
rekstur fiskeldisstöðvar í sam-
vinnu við Siglfirðinga og fleiri
aðila. Félagið heitir Miklilax
hf. og hefur það nú hafið bygg-
ingu seiðastöðvar á Lambanes-
reykjum í Holtshreppi. Nær
allir bændur í Holtshreppi eru
hluthafar auk sveitarfélagsins
sjálfs og bænda í Haganes-
hreppi, og eiga þessir aðilar
65-70% hlutafjár. Rafveita
Siglufjarðar og einstaklingar á
Siglufirði eiga það sem eftir
er ásamt Byggðasjóði sem á
10% hlutafjár.
Góðar aðstæður til
fiskeldis
Reynir Pálsson bóndi á Stóru-
brekku er framkvæmdastjóri
Miklalax hf. í samtali við blaða-
mann sagði hann að góðar
aðstæður til fiskeldis hefðu ýtt
undir stofnun félagsins. Þama
væri heitt vatn og nóg af köldu
vatni. Þá hefðu þeir Miklavatn
sem væri góður og fijósamur sjór.
„Við eigum ekki aðra betri vaxtar-
möguleika fyrir sveitarfélagið en
þennan, og því var ráðist í stofnun
félagsins," sagði Reynir. Hann
sagði að mikil samstaða hefði
verið f sveitinni um þessa fram-
kvæmd, enda væri það forsenda
þess að þetta hefði verið fram-
kvæmanlegt.
Reynir sagði að byrjað hefði
verið að ræða um stofnun fískeld-
isstöðvarinnar um síðustu áramót
og hlutafélagið stofnað í apríl.
Framkvæmdir við seiðaeldishús
hófust síðan í sumar. Unnið verð-
ur við það í vetur og það tekið í
notkun eftir því sem þörf er á.
Fyrstu hrognin verða tekin í haust
og fyrstu gönguseiðin verða því
væntaniega seld vorið 1988.
Stefnt á „seiðagnllið“
í fyrstu ætla Miklalaxmenn að
sögn Reynis. Sagði hann að fyrstu
niðurstöður rannsókna á vatninu
sýndu að það væri kjðrstaður fyr-
ir framhaldseldi, þar sem undir
ferskvatnslaginu væri hlýr sjór,
nokkurs konar „neðansjávarhita-
veita". Hugmyndin væri að dæla
Unnið Við byggingu seiðahússins. Morgunblaðia/HeUn Bjamason
sjónum í ker eða tjamir á landi
og vera með framhaldseldi þar.
Einnig væm uppi hugmyndir um
að reyna hafbeit í Reykjaá, en
ekki væri þó grundvöllur fyrir
henni með því seiðaverði sem nú
gilti. Þá sagði Reynir að ætlunin
væri að athuga einnig möguleika
á eldi annarra físktegunda, til
dæmis rækju, humars og fleiri
tegunda sem þyrftu mikið af heitu
vatni.
„Viljum eiga þetta
sjálfir“
Aðalráðgjafi Miklalax hf. er
skoska ráðgjafarfyrirtækið Fish
Farming Development Ltd. „Við
leituðum til þeirra vegna þess að
þar áttum við von á að fá bestu
hugsanlegu þjónustuna, og höfum
ekki orðið fyrir vonbrigðum. Þeir
eru okkar ráðgjafar og aðstoða
okkur auk þess við söluna. Menn
frá þeim verða hér í þrjú ár til
að leiðbeina okkur með eldið.
Þjónustan er greidd í formi hagn-
aðarhlutdeildar, þeir fá 10% af
hagnaði stöðvarinnar. Þetta verð-
ur til þess að þeir leggja sig alla
fram við eldi og sölu, því ef illa
gengur fá þeir ekkert fyrir sína
vinnu," sagði Reynir.
„Peningamenn" úr Reykjavík
og erlendir aðilar em með í flest-
um nýjum fiskeldisstöðvum nú um
stundir, en ekki Miklalaxi. „Við
vildum eiga þetta sjálfir, en það
hefur ekki gengið átakalaust,“
sagði Reynir. Hann sagði að þó
eigendurnir legðu fram mikið
hlutafé í byijun hefði reynst erfitt
að fá lánsfjármagn til viðbótar
og að komast í bankaviðskipti.
„Við höfum rekið okkur á ýmsa
veggi. Þó stjórnvöld hafi verið að
hvetja menn til að fara út í fisk-
eldi virðast ansi margir hlutir
hanga enn í lausu lofti," sagði
hann.
Kröfuharður
búskapur
í Holtshreppi em 95 íbúar og
hafa allir sem vettlingi geta vald-
ið getað fengið vinnu við bygg-
ingu stöðvarinnar. Síðan munu
5-7 fastir starfsmenn verða við
stöðina þegar hún kemst í rekst-
ur. Sagði Reynir að ef þessi stöð
gengi væri með henni búið að
treysta mjög byggðina í Fljótun-
um.
Vegna samdráttar í hinum
hefðbundnu búgreinum hefur
bændum töluvert verið beint í
flskeldi. Aðspurður um möguleika
bænda sagði Reynir: „Ég tel að
þeir séu hverfandi nema það sé
gert eins og hér, að samstaða
náist í heilum byggðarlögum um
stærri framkvæmdir. Það kostar
svo mikið að koma svona stöðvum
upp að það er ekki á færi ein-
stakra bænda. Menn ættu fyrst
og fremst að afla sér þekkingar,
vaða ekki út í þetta, því of mörg
slys hafa orðið hjá okkur á undan-
fömum árum. Fiskeldi er erfiður
búskapur, kröfuharðari en flest
annað,“ sagði Reynir Pálsson.
-HBj.
10—25°/o
ÁFSLATTUR
Bókabúð
.MÁLS & MENNINGAR.
LAUGAVEGI 18 SÍMI 24242
»*erl.orðabökum