Morgunblaðið - 02.09.1986, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
fclk f
fréttum
Þrátt fyrir að leikarinn Roger Moore sé nú kominn á eftirlaun, eftir að hafa leikið hinn útsjónarsama
James Bond í fjölda ára, nýtur kappinn enn sömu kvenhyilinnar. Fyrir skömmu var hann valinn maður
ársins í Bandaríkjunum.
Roger Moore maður ársins
Að skoða
heiminn frá
öðrum sjónarhóli
egar maður er ekki nema rétt
rúmlega þriggja ára virðist
veröldin ofboðslega stór og spenn-
andi. Forvitnin og fróðleiksfýsnin
eru sterkir þættir í eðli manns og
lærdómsgleðin óþtjótandi. Áhyggj-
ur manns einskorðast við bangsana
og pússluspilin, brauðstrit og púl
nokkuð sem maður ekki þekkir.
Alla ævina hefur maður verið alinn
upp í vemduðu umhverfi, hefur sitt
ömgga skjól, sem er fangið á for-
eldrunum. Þessir forráðamenn hafa
líka vakandi auga með hverju fót-
máli unga sinna, og eru fljótir að
grípa inn í atburðarásina, sjái þeir
fram á einhveija yfirvofandi hættu.
Þegar það bregst, hinir fullorðnu
sofna á verðinum, má oft litlu muna
að illa fari. Þetta gerðist t.d. um
daginn í Austurríki. Móðirinn Mon-
ika Tschina hafði verið heima við í
eina þijá daga með son sinn Patrick,
sem var eitthvað slappur. Á flórða
degi var orðið heldur lítið um mat-
væli í húsinu og þar sem dreng-
hnokkinn var enn með hita, brá
Monika á það ráð að skilja hann
eftir, meðan hún hentist út í búð
og keytpi brauð og mjólk. Verslun-
in var á næsta horni og því hélt
hún að þetta hlyti að vera óhætt.
Þegar hún hinsvegar kom til baka
eftir fáeinna mínútna fjarveru var
fjöldi manns samankominn við hús
hennar og horfðu allir upp á þak.
Hjarta móðurinnar sleppti úr einu
slagi, er henni varð litið upp því
þar sá hún hvar einkennisklæddur
maður fíkraði sig eftir þakbrúninni
í átt að glugganum með þriggja ára
son hennar í fanginu. Málsatvik
voru þau að um leið og móðirin
hafði horfið af vettvangi, farið af
vaktinni, hafði snáðinn séð sér leik
á borði, ákveðið að kanna hvað
væri fyrir utan gluggann. Hann
komst einhvem veginn upp í
gluggakistuna, skreið út um ris-
gluggann og út á þak. Dágóða
stund þrammaði hann þar fram og
aftur, þar til skelfingu lostnir ná-
grannarnir veittu honum eftirtekt.
Einn þeirra, Ludwig Gugerbauer,
brást skjótt við, braut upp útidyra-
hurðina og hentist upp á loft um
leið og hann bað bænir sínar í hljóði,
vonaði að hann kæmist til drengsins
í tæka tíð. Þegar hann leit svo út
um gluggann sá hann hvar dreng-
urinn sat í mestu makindum,
rólegur og afslappaður og naut hins
óvenjulega útsýnis. Nú var að duga
eða drepast. Hann varð að gæta
þess að gera drengnum ekki hverft
við, svo hann missti ekki jafnvægið.
Prátt fyrir að leikarinn Roger Moore hafi nú sest
í helgan stein, sé kominn á eftirlaun, sem hinn
útsjónarsami spæjari James Bond, virðist kvenhylli
kappans síst fara dvínandi. Því til sönnunar má nefna
að fyrir skömmu var hann kosinn maður ársins í Banda-
ríkjunum. Roger Moore, sem nú er orðinn 58 ára
gamall, hefur þó aðeins verið orðaður við eina konu
síðasta aldaríjórðunginn, eiginkonu sína, hina ítölsku
Luisu. Þau hjónin eiga saman þijú böm, þau Deborah,
22ja ára, Geoffrey, sem er tvítugur að aldri og örverpið
í hópnum er Christian, sem aðeins er 12 ára. Að sögn
kunnugra er fjölskyidan líka afskaplega náin, er saman
nær öllum stundum og fara eldri böm þeirra tvö yfir-
leitt alltaf með foreldrum sínum á allar opinberar
skemmtanir og sýningar, sem þeim er boðið á. „Kyn-
slóðabil er hugtak sem við þekkjum ekki á okkar
heimili," segir sonurinn Geoffrey. „Samband okkar
krakkanna við foreldra okkar hefur ávallt verið mjög
sterkt, við skemmtum okkur saman og ræðum opin-
skátt öll þau vandamál, sem upp kunna að koma.
Vanlíðan eða vandamál eins fjölskyldumeðlims er
áhyggjuefni allrar ættarinnar." Bæði hyggjast þau
Geoffrey og Deborah feta í fótspor föður síns, leggja
leiklistina fyrir sig. Ekki treysta þau þó alfarið á að
frægð pabba gamla komi til með að tryggja þeim vel-
Patrick í hinum margumrædda glugga, en í þetta sinn er haJdið um
fætur hans, enda margar mannhæðir niður á götu.
Bækur og greinar um
Rock Hudson
streyma á markað
Eftir að leikarinn Rock Hudson
lést úr ónæmistæringu í
fyrra, hefur fjöldi fólks rokið upp
til handa og fóta, lýst sig reiðu-
búið til að ljóstra upp alls kyns
leyndarmálum sem Hudson er
sagður hafa átt. Þær hvatir sem
að baki þessari ákefð liggja eru
fæstar sérlega geðþekkar eða
góðmennskulegar, en því miður
virðist almenningur ætla að
gleypa við yfírlýsingum þessum,
kaupa þær óþverrabækur sem nú
streyma á markaðinn erlendis.
Að gera sér lát einhvers og ógæfu
og féþúfu hefur aldrei þótt göfug-
mannlegt og er ekki annað að sjá
en að andagiftin skyndilega sé af
þeim toganum. Meðal þeirra sem
sest hafa að skrifum er fyrrver-
andi eiginkona Hudsons, Phyllis.
Ekki hefur hún þó sent frá sér
heilt ritverk um eiginmanninn
fyrrverandi, heldur látið sér nægja
greinar, þar sem Rock er lýst sem
lítið geðslegum manni, tillitslaus-
um glaumgosa og ofbeldisfullum
kynvillingi. „Rock elskaði mig
aldrei, heldur var ég plötuð inn í
þetta hjónaband," segir Phyllis.
„Eg var skjól hans, sönnun þess
að ekkert væri athugavert við
kynhneigðina. Sambúð okkar var
hreinasta martröð, hann kvaldi
mig andlega, var þunglyndur og
geðvondur, eiginlega algert ill-
menni," segir hún — og almenn-
ingur gleypir við sögunum, hverri
á fætur annarri — frúin rakar inn
seðlunum. Við ríghöldum þó í eig-
in dómgreind, skellum sögunum
undir sannleiks-smásjána og leyf-
um okkur að deila í með 2, ef
ekki 10 . . .
Rock Hudson þótti með
myndariegri mönnum hér á
árum áður. Hér sést hann í
hlutverki sínu í myndinni
„Pillow Talk“, þar sem hann
lék á móti náinni vinkonu
sinni, Doris Day.
Rock Hudson og Phyllis,
„meðan allt lék í lyndi“.
„Hann elskaði mig aldrei,"
segir frúin, sem nú hefur
ritað nokkrar greinar um
illmennsku fyrrum eigin-
manns síns.
gengni, gera sér fulla grein fyrir hversu hörð samkeppn-
in er. Til að undirbúa sig sem best undir átökin hefur
Deborah undanfarin ár verið við nám í leiklistarskóla
á Italíu og hefur hún nú lokið við að leika í sinni
fyrstu kvikmynd, „Lionheart". Geoffrey hefur hinsveg-
ar aðallega verið hinumegin við vélina til þessa, unnið
sem aðstoðarmaður framleiðanda Bond-myndanna.
Einnig þykir drengurinn hafa ágæta rödd og hefur
hann nýlokið við að syngja inn á sína fyrstu hljóm-
plötu. Eins og venja er um afkvæmi hinna frægu og
framgjömu þá hafa böm Rogers fengið sinn skammt
af umfjöllun í Qölmiðlum. Meðal annars hafa slúður-
dálkahöfundamir fylgst æði grannt með ástamálum
systkinanna og orðið bara þó nokkurs vísari. Til að
mynda var ástarævintýri því sem Deborah lenti í irieð
Albert Mónakóprinsi fyrir tveimur ámm gerð ítarleg
skil á síðum dagblaða og tímarita víða um heim, en
upp á síðkastið hefur hún hinsvegar æ oftar sést í
fylgd með syni Seans Connery, Jason. Ástalíf Geof-
freys hefur þó verið öll skrautlegra, því hann hefur
verið orðaður við hveija fegurðardísina á fætur ann-
arri, þar á meðal þær Catherine Oxenburg og Stefaníu
Mónakóprinsessu, sem hann segir þó aðeins vera mjög
góða vinkonu sína.