Morgunblaðið - 02.09.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEjMBER ,1986
47
aSaSSSSmia
Þessir hringdu . . .
Kannast einhver
við þessar þulur?
Helga Guðtnundsdóttir hríngdi
og vildi vita hvort einhver kynni
þulur sem hún lærði í æsku en man
nú ekki nema brot úr. Sú fyrri nefn-
ist Þómaldarþula og hefst á þessa
leið:
Hlýði menn mínum fræðum
meðan ég bind sök mína við sleða
Sagt var að maður hefði dáleitt
þingheim með þuiunni og þannig
komið í veg fyrir að annar maður
yrði líflátinn. Endaði þulan á orðun-
um: „og horfinn er fanginn".
Seinni þulan nefnist Þorkels-
dætraþula og hefst á þessum
orðum: „Þorkell átti dætur
tvær...“
Helga sagðist hafa heyrt brot úr
þeirri þulu flutt nýlega í tengslum
við 200 ára afmæli Reykjavíkur-
borgar og þá með viðlagi.
Gunna í beijamó
Kristín Sigfúsdóttir hringdi
og sagðist kannast við kvæðið
Gunna í beijamó.
„Kvæðið er eftir Kristínu Sig-
fúsdóttur skáldkonu. Það birtist í
heilu lagi í bókinni „Ungi litli" sem
Steingrímur Arason gaf út 1931
og mun það vera einar 4 bls. að
lengd."
Drengnr týndi
peysunni sinni
Þórdís hringdi:
„Sonur minn, 4 ára, týndi peys-
unni sinni í miðbænum eða á
Amarhóli á afmælisdegi Reylq’a-
víkurborgar, 18. ágúst. Peysan
er blá með grænlensku mynstri
og hvítu stroffí í hálsinn. Ef ein-
hver hefur fundið peysuna er hann
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 82147.“
Hvað er að ger-
ast á Sólheimum?
Karl Stefánsson hringdi:
„Hvað er að gerast á Sólheim-
um í Grímsnesi? Það hlýtur að
vera eitthvað að þegar forstöðu-
maður heimilisins er í sífelldu
hnútukasti, bæði við fyrrverandi
og núverandi starfsfólk.
Væri ekki rétt að það ráðu-
neyti sem hefur með mál Sólheima
að gera, og þá sérstaklega fjár-
mál, reyndi að komast að því í
hveiju sá misskilningur sem upp
hefur komið liggur?
Að mínu mati væri æskilegast
að setja flármál heimilisins í ríkis-
endurskoðun í stað þess að for-
stöðumaðurinn þurfi að karpa um
þau í blöðum."
Drengnr týndi
peningabuddu
Margrét Svavarsdóttir
hringdi:
„Lítill drengur sem er gestur
hjá mér tapaði peningabuddunni
sinni einhvers staðar á Strandgötu
í Hafnarfirði á fimmtudaginn, 28.
ágúst.
Buddan er búin til úr rauðum
perlum og er í laginu eins og jarð-
arber. Honum er sárt um þessa
buddu því í henni voru vasapen-
ingar sem hann hafði fengið frá
föður sínum til að nota meðan
hann er í heimsókn hér á íslandi.
Ef einhver hefur fundið budd-
una getur hann komið henni til
skila með því að hringja í síma
53965.“
Óbleiktur
salernispappír
Starfsmaður hjá G. Hinriksson
hf. hringdi vegna fyrirspuma frá
Sumarbústaðareiganda um
óbleiktan salemispappír. Sagði
hann að þeir hjá G. Hinriksson
hefðu haft til sölu óbleiktan sal-
emispappír í 25 ár undir vöm-
merkinu Union og væri hægt að
kaupa beint frá þeim 64 rúllur í
poka.
Hægt að spara kaup á loftneti
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
skrifar.
„Ég hef velt því svolítið fyrir
mér hvers vegna þessi loftneta-
skógur sjónvarpstækjaeigenda
þrífst svo lengi sem raun ber vitni.
Loftnetin lýta allt yfírbragð
borgarinnar og auðvitað annars
staðar og eru auk þess óþörf að
mínu mati.
Af tilviljun komst ég að því að
loftnet er óþarft við mitt tæki. Ég
komst að þessu vegna síendurtek-
inna truflana sem ég skildi ekki
hvaðan komu. Nú er semsagt kom-
Eyfirðingar
athugið
Athygli Eyfirðinga, skal vakin
á því, að ritstjómarskrifstofa
Morgunblaðsins, Hafnarstræti 85,
Akureyri, tekur við bréfum og
fyrirspumum (Velvakanda.
ið í ljós að ekki þurfti nema eins
metra langan bút af fínum raf-
magnsþræði fyrir loftnet og
myndin á Sharp-litsjónvarpstæk-
inu mínu varð skýrari en nokkm
sinni fyrr. Það verður samt ekki
komist hjá því að hafa loftnet og
þræðimir mega ekki liggja nærri
hver öðmm nema næst tækinu.
Kannski geta einhveijir sparað
sér peninga sem annars hefðu far-
ið í kaup á loftneti?"
Vísa vikunnar
„Verið þið sýnilegir“l
— segir Hi
SÍS, í
Pétursson, blaðafuUtrúi 1**t-íí" -„z -----
.. „ . . vWtatiddxu OfUrt Rokkaim. H«r «r tekið otut fyrir
n Vlð aiþmgismenn mónnum rin* «* Jóni KriHjin.-
Framsóknarflokksins í grcin i Sýn
Helgi lýsir fauskum fornum,
flokkinn varla nokkur kýs;
ber hann æ á báðum hornum
brennimarkið gamla, SÍS.
Hákur
ALLT í RÖÐ OC REGLU!
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- kaffistofa
í hverjum krók!
FAIMIMIR HF
Bíldshöfða 14, sími 672511
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiðunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.