Morgunblaðið - 02.09.1986, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
Bingó — Bingó
Nú mæta ajtir í bingó í Glæsibæ í kvöld
kl. 19.30.
Hæsti vinningur að verðmæti
kr. 80.000.-
Vinnincjjar og verð á spjöldum í öðrum
7 umferðum óbreytt.
Mætum stundvíslega.
Blaðburöarfólk
óskast!
VESTURBÆR SKEUAGRANDI
Nesvegur 40-82
JftttgmiÞIafrifr
og stærri flata, jafnt innanhúss sem utan.
MEARIN frárennslirennur eru framleiddar úr
niðsterku frost- oghitaþolnu plastií 50 og 100 sentimetra
löngum einingum sem sérlega auðvelt og fljótlegt er að
leggja.
MEARIN rennurnar þola m.a. sýrur, salt, olíur,
bensín ofl., þær henta því mjög vel til notkunar í
MEARIN rennunum erlokað að ofan
eftirtalda staði:
HEIMKEYRSLUR
GÖNGUGÖTUR
GANGSTÍGA
BÍLASTÆÐI
BÍLSKÚRA
SVALIR
VERKSMIÐJUR
með málmristum sem þola m.a. að bifreið
sé ekið yfir þær.
verkprýöi hf
SíðumúlalO Síml 688460
SJönvarp
Arnaldur Indriðason
Nóbelsverðlaunahafinn frá
1978, Isaac Basevis Singer, er
einn fárra (og án efa frægast-
ur) rithöfunda sem skrifa á
hinu „deyjandi" tungumáli,
jiddísku. Heimur Singers er
heimur gyðingsins og okkur
var boðið að líta þangað inn i
stuttan tíma bæði í sjónvarps-
leikritinu Skyndibitastaðurinn
(The Cafeteria), sem gert er
eftir einni af smásögum Sing-
ers, og heimildarmyndinni um
hann sem sýnd var að leikritinu
loknu í gærkvöldi.
Leikritið sagði frá rithöfundin-
um Aaron (Bob Dishy) og kynni
hans af nokkuð undarlegri konu
að nafni Ester (Zohra Lampert).
Þau hittast á skyndibitastaðnum,
sem Aaron sækir reglulega á milli
þess sem hann ferðast um og
heldur fyrirlestra því hann er held-
ur vinsæll rithöfundur.
Aaron er ósköp hljóður og ró-
legur og indæll maður og hann
hlustar á kunningja sína á skjmdi-
bitastaðnum kvarta við hann um
allt milli himins og jarðar. Einum
gagnrýnanda finnst sögur Aarons
um kynlíf og dulhyggju ganga of
langt. Þær gætu orðið tæki í bar-
áttu gegn gyðingum. „Kannski
ertu tímaskekkja," segir gagn-
rýnandinn. „Erum við ekki öll
tímaskekkja," svarar Aaron hljóð-
ur.
Einn daginn kemur Ester á
skyndibitastaðinn og þau Aaron
taka tal saman. Ester vinnur í
fataverksmiðju og er einsog úr
takt við raunveruleikann. Hún er
Dishy og Lampert í hlutverkum sínum í myndinni Skyndibitastað-
urinn.
Á ferð með Singer
fómarlamb gyðingaofsókna Hitl-
ers og geðheilsu hennar fer jafht
og þétt hrakandi. Tveimur árum
eftir þeirra fyrsta fund, en í
millitíðinni heftir skindibitastað-
urinn brunnið, kemur hún til hans
og trúir honum fyrir því að hún
hafi séð Hitler á skyndibitastaðn-
um kvöldið sem bmninn varð.
„Klikkuð," hugsar Aaron með
sjálfum sér en við Ester segir
hann: „Þú sást sýnir." „Ég vissi
að þú mundir svara mér með ein-
hverri dulspeki," segir hún.
En áður en langt um líður hef-
ur Aaron sjálfur upplifað ofsjónir
og endurskoðar hug sinn til Ester-
ar. „Ester hefur séð hluta af
raunveruleikanum, sem hin guð-
dómlega ritskoðun hefur fyrir
reglu að banna," segir hann.
Handrit Emest Kinoy eftir sögu
Singers er vel skrifað og leikstjóm
Amram Nowaks var einkar lipur.
Zohra Lampert var sannfærandi
í hlutverki Esterar, sem hrærist
í fortíðinni og lifír á mörkum
draums og vemleika og Bob Dish
Isaac Basevis Singer
lýsti vel stóískri ró Aarons, vantrú
hans á sýn Esterar og loks undmn
þegar hann verður fyrir því sama.
Aaron í leikritinu er sjálfsagt
að mörgu leyti líkur skapara
sínum Singer. í merkilegri heim-
ildarmynd um Singer sem sýnd
var að leikritinu loknu sagði Sing-
er að minningamar væm rit-
höfundinum mikilvægastar og að
sögur sínar væm að hluta til
sjálfsævisögulegar og að hluta til
skáldskapur. Skyndibitastaðurinn
er mitt annað heimili, sagði Sing-
er. Þar hittir hann flóttamenn frá
Póllandi (þaðan sem hann er sjálf-
ur) og Rússlandi, „heilbrigt fóik,
hálf heilbrigt fólk og mglað fólk.“
Heimildarmyndin var tekin á
þriggja ára tímabili og er gerð
af sömu aðilum og gerðu leikritið.
Hún státar sér af því að vera
fyrsta heimildarmyndin um rit-
höfundinn í fullri lengd. Það kom
í ljós að Singer er elskulegasti
maður, fyndinn og sérlega orð-
heppinn og hann tekur hlutina
ekki of alvarlega hvorki sem rit-
höfundur eða gyðingur. Hann
hefur gaman af að segja sögur
um sjálfan sig og aðra við hvaða
tækifæri sem er en gyðingar í
gleði og harmi em hans bók-
menntalega „gullnáma".
Emil og Anna
Sigga í
Hlaðvarpanum
Emil og Anna Sigga halda
söngskemmtun í Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, þriðjudaginn 2.
september klukkan 20.30.
Boðið verður upp á snilldarlegar
útsetningar á sívinsælum lögum og
Djúsbarinn sér um léttar veitingar.
Húsið verður opnað klukkan 20.00.
(Fréttatilkynniní?
Kvartettinn Emil og Anna Sigga í klúbbi Listahátíðar í vor.