Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
49
Ekkí fyrirhugað að
takmarka fjölda smá-
báta undir 10 tonnum
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ áætlar að afli fiskibáta undir tíu
tonnum að stærð verði 25-30 þúsund tonn á þessu ári. Á síðasta ári
var aflinn rúmlega 20 þúsund tonn. Bátum af þessari stærð hefur
ekki fjölgað verulega það sem af er þessu ári og eru ekki á döfinni
neinar áætlanir um að takmarka fjölda þeirra.
í desember 1985 var stofnað
Landssamband smábátaeigenda
(trillukarla) og síðan í júní hefur
það haft fastan starfsmann, Örn
Pálsson.
Öm sagði blm. Morgunblaðsins
að hann væri nú að tölvuskrá félaga
sambandsins, en allir sem eiga báta
af ofangreindri stærð eru sjálfkrafa
félagar. Alls hafa um 1.100 bátar
undir tíu tonnum landað afla síðustu
mánuði. Tekjustofn sambandsins
samkvæmt lögum frá apríl síðast-
liðnum er hálft prósent af aflaverð-
mæti bátanna upp úr sjó.
Aflaverðmæti smábáta síðustu þijá
mánuði hefði verið rúmar 200 millj-
ónir.
Öm sagði helstu baráttumál
sambandsins vera þau að smábátar
yrðu undanþegnir tímabundnum
veiðistöðvunum og dragnótaveiðar
á gmnnmiðum bannaðar.
Varðandi veiðistöðvanir teldu
smábátaeigendur að taka yrði tillit
til þess hve stuttan tíma á ári hægt
væri að stunda trilluveiðar. Þeir
væm mun háðari gæftum en aðrir
vegna smæðar bátanna og tak-
markanir gætu valdið því að menn
tefldu um of í tvísýnu þegar brælur
væm langvinnar.
Öm sagði dragnótaveiðar hafa
færst sífellt í aukana, en vegna lé-
legra aflabragða handfærabáta á
Húsavík í sumar hefði sambandinu
þó tekist að fá sjávarútvegsráðu-
neytið til að fresta dragnótaveiðum
í botni Skjálfandaflóa um tvær vik-
ur til 1. september. Þar með fengju
trillukarlar á svæðinu möguleika á
að bæta sér upp lélega þorskveiði
með því að fiska ýsu sem þama
hefði verið nokkuð um að undan-
förnu. Reynsla trillukarla væri sú
að skark dragnótabáta á gmnnslóð
fældi fiskinn burt af miðunum á
nokkmm dögum.
í mars á þessu ári tók Jakob
Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, undir með trillukörlum
og sagði að fiskur fældist oft drag-
nótamið um lengri eða skemmri
tíma þegar botnveiðarfæri yllu
miklu gmggi í sjónum.
Annars Sagði Öm að aflabrögð
handfærabáta í heild virtust hafa
verið misjöfn eftir landshlutum í
sumar, skást á Austfjörðum og
Breiðafirði.
Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu, taldi
fullvíst að dragnótafiskur væri
meiri gæðafiskur en handfærafisk-
ur, sem víða væri fullur af selormi
og auk þess oft mjög smár. Hann
benti á að mörg frystihús neituðu
að taka við færafiski t.d. í Vest-
mannaeyjum og á Isafirði.
Er Jón var spurður hvers vegna
færeyskir fiskkaupendur greiddu
um tíu krónum meira fyrir kflóið
af krókveiddum þorski (línu- og
handfærafiski) en öðmm þorski
sagðist hann ekki kunna skýringu
á því, en hugsanlega væri þar um
gamla handfærarómantík að ræða
hjá fiskkaupendunum. Einnig
mætti nefna að selormur væri ekk-
ert vandamál í færeyskum fiski.
Suðurnes:
Stofnfundur nýrr-
ar SÍBS-deildar
SAMBAND íslenskra berkla- og
brjóstholssjúldinga og Samtök
gegn astma og ofnæmi, munu
halda stofnfund nýrrar SÍBS-
deildar á Suðurnesjum þriðju-
daginn 2. september nk. Fundur-
inn verður haldinn í Glóðinni í
Keflavík og hefst kl. 20.30.
Bjami Magnússon sérfræðingur
í lungnasjúkdómum mun halda fyr-
irlestur á fundinum um lungna-
teppu. Kaffí og meðlæti er í boði
SIBS og er þess vænst að eldri sem
og nýir félagar sjái sér fært að
koma á fundinn. Aðrir sem óska
að gerast félagar geta snúið sér til
skrifstofu SÍBS, Suðurgötu 10 í
Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
plí>r0i!wlrWiit>
« Gódan daginn!
Hjá okkur fæst landsins mesta úrval
af fjarstýrðum bílum af öllum gerð-
um í öllum veröflokkum. Til dæmis
Range Rover 4x4 og Toyota Hilux
4x4 með rafdrifnu spili.
Góð aðkeyrsla — næg bílastæði.
^Bóstsendum um land allt.
TÓmSTLinDfíHÚSID
Laugavegi 164-Reykjavík-S: 21901
KawMcc
Fellagördum — Breiðholti III
(í Dansskóla Heiðars)
Almenn námskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstööu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburð
Karon skólinn leiðbeinir ykkur um
• andlits- og handsnyrtingu
• hárgreiðslu
• fataval
• mataræði
• hina ýmsu borðsiði og alla almenna fram-
komu o.fl.
Model námskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstöðu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburð
• sviðsframkómu
• að vinna með Ijósmyndara
• látbragð og annað sem tilheyrir sýningar-
störfum
Öll kennsla í höndum færustu sér-
fræðinga.
Allir tímar óþvingaðir og frjálslegir.
Ekkert kynslóðabil fyrirfinnst í Karon
skólanum.
Innritun og upplýslngar f sfma 38126
kl. 16—20.
Kennsla hefst mánudaginn 16. sept-
ember.
Hanna Frímannsdóttir
Sjón
Lfttu á gripinn
ríkari
sogu
því
hún
fœst
viöa
AUÐVELD í IMOTKUN OG ÞÆGILEG AÐ ÞRÍFA
1. Hraðsuðukanna sem slekkur þegar sýður.
2. Einnig má stilla hana þannig að hún haldi hvaða hitastigi sem er frá
25° C og upp í suðu 100° C.
Útsölustaðir í helstu raftækjaverslunum og kaupfélögum
inlrirj=}=t=|n|
HEILDSOLUDREIFING
JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
Sundaborg 13 «104 Reykjavík• Sími 688588