Morgunblaðið - 02.09.1986, Qupperneq 50
50
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 2. SEPTBMBER '1986
Morgunblaðið/Einar Faiur
Norrænu landslagsarkitektarnir sem dvöldu hér á landi dagana 4.—19. ágúst í námsferð. Hluta hópsins
vantar á myndina.
Norrænir landslagsarkitektar:
Heitt vatn og hesta-
íþróttin athuguð
27 MANNA HÓPUR nemenda og kennara í landslagsarkitektúr frá
Norðuriöndunum dvaldi hér á landi dagana 4.-19. ágúst í námsferð.
Tilgangur ferðarinnár var að
kynnast landi, þjóð og sérkennum
Islands auk þess að skapa tengsl
milli landslagsarkitekta á Norður-
löndunum. Allir íslenskir landslags-
arkitektar eru menntaðir erlendis
og þvi talið æskilegt að erlendir
kennarar kynnist staðháttum hér á
Iandi.
Fyrstu dagana var hópurinn í
umsjón Félags íslenskra landslags-
arkitekta. Voru meðal annars
famar skoðunarferðir um höfuð-
borgarsvæðið og Suðurland auk
þess sem haldnir voru fyrirlestrar.
Fyrirlesarar voru frá Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur, Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins og
garðyrkjustjóri Reykjavíkur.
Að þessu loknu var hópnum skipt
upp í fimm vinnuhópa, sem unnu
að sérverkefnum víðsvegar um
landið og var einn fulltrúi frá hverju
Norðurlandanna í öllum vinnuhóp-
unum. Hópamir unnu að eftirtöld-
um verkefnum:
Landeyðing. Landeyðing, or-
sök, afleiðing og úrbætur. Vinnu-
hópurinn kynntist og vann að þessu
á Gunnarsholti í umsjón Sveins
Runólfssonar, landgræðslustjóra.
íslensk náttúruefni. Notkun
íslenskra náttúruefna og möguleik-
ar, m.a. við landmótun og mann-
virkjagerð. Umsjónarmaður var
Guðmundur Sigurðsson, landslags-
arkitekt.
Heitt vatn. Notkun og möguleik-
ar heits vatns. Vinnuhópurinn
skoðaði hverasvæðin á Suður- og
Forsætisráðherra:
Ekkí í framboð í Reykja-
vík eða á Reykjanesi
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra, hyggst ekki bjóða
sig fram í Reykjavík eða á Reykjanesi í næstu alþingiskosningum,
en hann er nú þingmaður Vestfirðinga.
Steingrímur lýsti þessu yfír á
þingi Sambands ungra framsóknar-
manna um helgina, eftir að Helgi
Pétursson, blaðafulltrúi SÍS og íyrr-
um ritstjóri Tímans, hafði hvatt til
þess að forsætisráðherra og Halldór
Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra,
tækju sæti á framboðslistum Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík og á
Reykjanesi í næstu kosningum.
Helgi Pétursson taldi að slíkt
framboð myndi styrkja flokkinn
mjög á Suðvesturlandi, þar sem
hann ætti nú undir högg að sækja.
Kvaðst hann ætla að flytja sérstaka
tillögu þessa efnis á þinginu, en hún
kom ekki fram.
Norðurlandi. Umsjónarmaður var
Mette Eggen, landslagsarkitekt.
Hestar í þéttbýli. Hestaíþróttin
er mjög útbreidd á íslandi og kynnt-
ist hópurinn m.a. hestasvseðum,
reiðleiðum og skipulagsmálum í
kringum hestaíþróttina. Umsjónar-
maður hópsins var Reynir Vil-
hjálmsson, landslagsarkitekt.
Trjárækt i og við Akureyri.
Hópurinn kynnti sér tijáræktar-
stefnu Akureyringa innan byggðar
og utan, m.a. áform um að planta
skógi frá Kjamaskógi og norðvestur
fyrir byggð. Umsjónarmaður var
Ami Jóhannsson, garðyrkjustjóri
Akureyrar.
Vinnuhóparnir störfuðu í fimm
daga við verkefni sín og sameinuð-
ust síðan hópamir á Akureyri; Frá
Akureyri var haldið í Jökulsárgljúf-
ur og gist á Mývatni. Eftir dagsdvöl
þar var haldið á Hallormsstað og
skoðaður árangur tijáræktar, en
það var jafnframt lokapunktur ferð-
arinnar.
Að sögn íslensku aðstandend-
anna var hópurinn sammála um að
ferðin hefði tekist frábærlega og
vildu þátttakendur koma fram
þakklæti til þeirra er gerðu þeim
kleift að koma til íslands ásamt
þeim sem veittu þeim leiðsögn og
hjálp á meðan á ferðinni stóð.
Aðalfararstjóri ferðarinnar var
Mette Eggen frá Landbúnaðar-
háskóla Noregs. Til þessarar ferðar
fékkst styrkur frá Norræna menn-
ingarmálasjóðnum. í hópnum var
fólk frá öllum Norðurlöndunum,
átta frá Noregi, fimm frá Finn-
landi, sex frá Danmörku, sex frá
Svíþjóð og tveir Islendingar sem eru
í námi í Noregi.
Ungir framsóknarmenn:
Vilja endurskoða sam-
skiptin við Bandaríkin
Gissur Pétursson kjörinn formaður SUF
Á ÞINGI Sambands ungra framsóknarmanna í Eyjafirði um síðustu
helgi var samþykkt ályktun um utanríkismál, þar sem þess er kraf-
ist að ríkisstjórnin framfylgi lögum um innflutning kjöts frá 1928
og setji strax lög er banni einokun bandarískra skipafélaga á flutn-
ingum til vamarliðsins.
Þá segir, að „vegna yfirgangs
Bandaríkjamanna í þessum málum“
kreljist SUF þess „að ríkisstjórn
íslands taki samskipti þjóðanna
þegar til gagngerrar endurskoðun-
ar“.
I stjómmálaályktun þingsins seg-
ir, að nú standi íslenskt þjóðfélag
við dyr mun bjartari framtíðar en
við upphaf stjómarsamstarfsins
fyrir rúmum þremur árum. í álykt-
uninni em settar fram ýmsar kröfur
á hendur ríkisstjóminni og Fram-
sóknarfiokknum. Þar á meðal, að
ríkisstjómin hefli þegar í stað við-
ræður við aðila vinnumarkaðarins
með það markmið í huga að kjör
launafólks verði bætt og kjör
kvenna á vinnumarkaði verði í raun
þau sömu og karla.
Bent er á, að þrátt fyrir mikinn
liðsstyrk Sjálfstæðisflokksins hafi
Framsóknarflokknum tekist að
koma í veg fyrir að leiftursóknar-
hugmyndum og niðurrifsstarfi á
sviði þess mannúðarkerfís, sem hér
hafi verið byggt upp, yrði hmndið
í framkvæmd. Ungir framsóknar-
menn leggi áherslu á, að fram-
kvæmdir og rekstur heilbrigðis- og
menntakerfisins þurfi sífelldrar
endurskoðunar við en tryggja verði
rétt hins sjúka og smáa og jafnan
rétt til náms.
Orðrétt segir í ályktuninni:
„SUF-þingið telur að Framsóknar-
flokkurinn eigi að verða afl nýrra
tíma í íslenskum stjómmálum. Til
að svo megi verða þarf flokkurinn
að endumýja að hluta þinglið sitt
og kalla fram ungt og baráttuglatt
fólk til þeirrar kosningabaráttu sem
framundan er. Framsóknarstefnan
er skýrt mörkuð manngildisstefna.
Henni ber að fylgja. Flokksstarfið
ber að efla, áróðurstækni og ný
markmið em forsendur þess að
flokknum takist að styrkja sig í
sessi."
Á þinginu var samþykkt sérstök
ályktun um umhverfismál, þar sem
segir að SUF muni leggja aukna
áherslu á mikilvægi umhverfismála
í framtíðinni, sem mikilvægan þátt
í alhliða velferð þjóðarinnar. Þá er
hvatt til þess að sett verði lög um
samræmda heildarstjóm umhverf-
ismála, sem feli í sér mengunar-
vamir, skipulagsmál og náttúm-
vemdarmál verði á vegum sama
ráðuneytis í Stjómarráði íslands.
í lok þingsins var Gissur Péturs-
son kjörinn formaður SUF til næstu
fjögurra ára. Með honum í stjóm
sambandsins vom kosin Þorsteinn
Húnbogason, Sveinn Bemódusson,
Guðrún Sighvatsdóttir, Sigurður
Jónsson, Bragi Bergmann, Hjörtur
B. Jónsson, Guðbjörg Sigurgeirs-
dóttir, Þómnn Guðmundsdóttir,
Guðmundur Gylfi Guðmundsson,
Hallur Magnússon, Láras_ Finn-
bogason og Þórður Ægir Óskars-
son. Þingið, sem haldið var í
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði, sóttu
um 130-140 manns og er það eitt
hið fjölmennasta sem SUF hefur
efnt-til um árabil.
Steingrímur Hermannsson snuprar
Pál Pétursson á SUF-þingi:
„Kannski er ekki tek-
ið allt of mikið
mark á orðum Páls“
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, snupraði Pál Pétursson, formann þingflokks
framsóknarmanna, vegna ummæla hans um samstarf við aðra flokka
á þingi Sambands ungra framsóknarmanna í Hrafnagilsskóla í Eyja-
firði um helgina.
Eins og fram kom hér í blaðinu
á laugardag kvaðst Páll Pétursson
vera orðinn þreyttur á stjómarsam-
starfinu við sjálfstæðismenn, en
lýsti því jafnframt yfír að samstarf
við Alþýðuflokkinn kæmi ekki til
greina meðan Jón Baldvin Hannib-
alsson væri formaður flokksins.
Steingrímur sagði í ræðu á þing-
inu á laugardag, að þessi ummæli
væm óviðeigandi bæði hvað varðaði
Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk.
Benti hann á, að framsóknarmenn
kynnu að komast í vanda eftir kosn-
ingar ef mark væri tekið á slíkum
yfirlýsingum. „Ég vildi ekki hafa
sagt þessi orð,“ sagði Steingrímur,
„en kannski er ekki tekið allt of
mikið mark á orðum Páls Péturs-
sonar“. Taldi forsætisráðherra að
skoðanir þingmanna af þessu tagi
mættu liggja í láginni, enda kæmu
þeir neikvætt út fyrir flokkinn í fjöl-
míðlum.
fftngmi&Iftfeife
» Góðandaginn!
BORNIN VEUA
pkiymobll
rpíp%
Iðnaðarhúsinu Hattveigarstíg 1 Sími 26010