Morgunblaðið - 02.09.1986, Qupperneq 52
Um 1.100 starfsmenn IBM í Þýzkalandi hafa setið á ráðstefnu
hérlendis nndanfarið og hafa þeir komið i þremur hópum. Auk
fundahalda hafa þeir farið í ferðir út um land og brugðu þeir sér
m.a. á hestbak í Miðdal nú nýlega. Ferðaskrifstofan Utsýn hefur
annast alla fyrirgreiðslu hérlendis. Ragnar Axelsson tók þessa
mynd af einum hópnum á reið skammt fyrir austan Laugarvatn á
dögunum. í dag mun þriðji hópurinn fara í slíkan útreiðartúr.
IBM-MENN Á HESTBAKI
Launakönnun Kjararannsóknanefndar:
Svörun innan við 50% —
-Könnunin á eftir áætlun
Á að vera grundvöllur nýs launaflokkakerfis er taki gildi með næstu heildarsamningum ASÍ og VSÍ/VMS
MUN færri svör hafa borist úr
launakönnun Kjararannsókna-
nefndar en gert var ráð fyrir og
því hefur úrvinnsla úr svörum
tekið mun lengri tíma en ætlað
var i upphafi. Launakönnunin á
að verða grundvöilur nýs launa-
flokkakerfis, sem á að taka gildi
við gerð næstu heiidarsamninga
Alþýðusambands Islands og sam-
taka vinnuveitenda. Um það er
sérstakt ákvæði I febrúarsamn-
ingum þessara aðila og var þar
einnig samið um að niðurstöður
úr könnuninni ættu að liggja fyr-
ir eigi síðar en 1. ágúst sl.
Kjararannsóknanefnd, sem var
falið að annast könnunina, sendi
snemma í vor út 8000 spuminga-
lista til launþega innan ASÍ og aðra
8000 lista til fyrirtækja innan
Vinnuveitendasambands Islands og
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna. Ari Skúlason, hagfræðing-
ur hjá Kjararannsóknanefnd, sagði
í samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær að nú væri gert ráð fyrir að
nefndin myndi fá alls um 7000 svör,
2000 frá launþegum og 5000 frá
fyrirtækjum. „Það var líklega of
mikil bjartsýni í upphafi að reikna
með að það væri hægt að gera
svona viðamikla könnun á svo stutt-
um tíma og svo dróst nokkuð að
spumingalistamir væm sendir út,“
sagði hann. „Við emm búnir að fá
T *
"^Fiskmjölsframleiðendur segja upp loðnuverðinu:
„Getum ekki gert hluti
sem ganga ekki upp“
— segir Jón Reynir Magnússon, formaður
Félags íslenskra fiskmjölsframíeiðenda
FÉLAG íslenskra fiskmjöisfram-
leiðenda hefur sagt upp núgild-
andi hráefnisverði á loðnu.
Ákvörðun verðlagsráðs gildir til
næstu mánaðamóta en aðilar
geta sagt verðinu upp frá og með
15. september, með viku fyrir-
vara. Verðlagsráð fundar um
loðnuverðið nk. mánudag.
Að sögn Jóns Reynis Magnússon-
ar, formanns félagsins, hefur ekki
verið boðað til sérstaks fundar físk-
mjölsframleiðenda um loðnuverðið.
„Við ætlum að hlusta mótaðilana á
mánudaginn og sjá hvemig útlitið
er,“ sagði Jón. Aðspurður hvort
afstaða félagsmanna til fijálsrar
verðlagningar væri enn óbreytt
sagði hann að það væri ekki vitað.
Hann væri enn á þeirri skoðun að
allt væri skárra en núgildandi verð-
lagning. „Það er ljóst að verksmiðj-
urnar hafa verið reknar með miklu
tapi. Við getum ekki haldið áfram
að gera hluti som ganga ekki upp.
Okkur vantar peninga til að halda
verksmiðjunum gangandi," sagði
Jón.
um 3000 svör en við vitum af mörg-
um stórum fyrirtækjum, sem eru
að vinna sín svör þessa dagana,
mér sýnist að við verðum með um
7000 svör þegar upp verður staðið.
Niðurstöðumar munu því væntan-
lega liggja fyrir um næstu mánaða-
mót, þegar vinna á að hefjast við
endurskoðun gildandi launaflokka-
kerfis Alþýðusambandsfélaganna."
Hann kvaðst ekki treysta sér til
að giska á hver væri ástæða tregðu
launþega til að svara þeim spum-
ingum varðandi kaup og kjör, sem
Kjararannsóknanefnd hefði beint til
þeirra. „Það má þó vera að fólki
hafi þótt þetta of persónulegt og
svo getur maður ímyndað sér, að
þeir svari síður, sem eru yfirborgað-
ir á einn eða annan hátt,“ sagði
hann. „Ég er þó nokkuð viss um
að niðurstöður könnunarinnar
munu gefa sæmilega mynd af raun-
vemlegum kjörum í landinu þótt
það verði vitaskuld eitthvað
misjafnlega marktækt eftir hóp-
um.“
I febrúarsamningnum segir að
markmið hins nýja launakerfis skuli
vera að færa kauptaxta að greiddu
kaupi, auka hlut fastra launa í
heildartekjum og stuðla að auknu
jafnvægi á vinnumarkaði og leið-
rét.tingu milli starfshópa og starfs-
stétta, m.a. vegna launaskriðs er
valdið hafí misgengi.
ÍŒSmW
VEÍtt) í LAUSASÖLU 50 KR.
Útsala í dag hjá ÁTVR:
Afsláttur
áléttum
vínum frá
10-30%
ÁFENGIS og tóbaksverzlun rik-
isins gengst í dag öðru sinni fyrir
útsölu á ákveðnum kampavins-
og léttvínstegundum, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Verður útsalan í áfengissölunni
við Lindargötu hér í Reykjavík,
svo og í öllum útibúum ATVR
úti um land, nema í útibúinu á
Akureyri. Verður afslátturinn á
bilinu 10 til 30%.
Það má því búast við örtröð í
útibúi ÁTVR við Lindargötu og
þeim átta útsölustöðum verzlunar-
innar úti um landið, þar sem útsalan
verður í dag. Hér er um talsvert
magn að ræða, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins. í útibúi ÁTVR
við Lindargötu verða um 3000
flöskur seldar á útsöluverði, og í
hveiju útibúi úti á landi 600 til
1000 flöskur. Hér er um að ræða
talsvert magn af kampavíni, rauð-
víni, hvítvíni, rósavíni og smávegis
magn af freyðivíni. Afsláttur sá sem
veittur verður af víninu er mismun-
andi, en mestur mun hann verða
af kampavíninu, þar sem t.d. ákveð-
in kampavínstegund, sem kostað
hefur 810 krónur flaskan verður
seld á 500 krónur.
Afsláttur af öðrum tegundum
verður mismunandi, eða frá 10%
upp í 30%. Hér er um að ræða
víntegundir sem ÁTVR hyggst
hætta sölu á, og ætlar því að losa
sig við þær birgðir sem eru á lager
af þessum víntegundum.
Okurdómi
áfrýjað
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
ákveðið að áfrýja til Hæsta-
réttar dómi sem nýlega féll í
Sakadómi Reykjavíkur yfir
manni sem var sekur fundinn
um okurlánastarfsem i. Var
áfrýjunarstefna gefin út sl.
föstudag.
Maðurinn var dæmdur til
greiðslu sektar að upphæð 1,4
milljónir króna. Af sektinni var
ein milljón króna skilorðsbundin
í þijú ár. Maðurinnn var sekur
fundinn um að hafa tekið um
350 þúsund krónur í oftekna
vexti af lánum. Hann var þó
sýknaður af vaxtaáskilnaði við
fjórar lánveitingar þar eð há-
marksvextir í skilningi okurlaga
höfðu ekki verið auglýstir af
Seðlabanka íslands með réttum
hætti um tíma. Forsendur þess
að 1 milljón króna af sektinni
var skilorðsbundið var sú að
maðurinn hafði undir höndum
ávísanir frá Hermanni Gunnari
Björgvinssyni, sem dómara þótti
ólíklegt að hann fengi greiddar.
Hermann Gunnar hefur verið
ákærður fyrir okurlánastarfsemi
og er mál hans flutt fyrir Saka-
dómi Kópavogs.