Morgunblaðið - 25.09.1986, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
53
Siegfried Held:
íslenska liðið
lék mjög vel
Ásgeir Sigurvinsson:
Mjög
góð
úrslit
„ÞETTA voru mjög góö úrslit fyr-
ir okkur. Við áttum þó betri fœri
en þeir og hefðum alveg eins átt
að geta unnið leikinn," sagði Ás-
geir Sigurvinsson sem átti mjög
góðan leik í gœr eins og allt
íslenska liðið.
„Þó aðstæður hafi ekki verið
upp á það besta er það engin af-
sökun fyrir Sovétmenn. Þeir þekkja
þessar aðstæður eins og við. Mér
fannst sóknarleikur Sovétmanna
ekki góður og komust þeir lítið
áleiðis gegn sterkri vörn okkar,“
sagði Ásgeir Sigurvinsson.
Stefán varð
pabbi í gær
STEFÁN Jóhannsson, varamark-
vörður íslenska landsliðsins, og
unnusta hans, Sólrún Viðars-
dóttir, eignuðust son í gær. Af
þeim sökum var Stefán ekki vara-
markvörður í leiknum gegn
Sovétmönnum. Friðrik Friðriks-
son tók stöðu hans í hópnum sem
varamarkvörður.
„Maður verður ekki pabbi í
fyrsta sinn nema einu sinni. Tók
það framyfir leikinn að vera við-
staddur fæðinguna," sagði Stefán
sem var í sjöunda himni eins og
gefur að skilja.
Pétur í
leikbann
PÉTUR Pétursson verður illa
fjarri góðu gamni i nœsta leik
íslenska landsliðsins gegn Aust-
ur-Þjóðverjum í október. Hann
verður þá í leikbanni þar sem
hann fékk áminningu í leiknum í
gær. Pétur hafði einnig fengið
áminningu í leiknum gegn Frökk-
um og fær því eins leiks bann.
Sævar Jónsson:
Lögðum
okkur
100 prósent
íleikinn
„ÞAÐ lögðu sig allir 100 prósent
í þennan leik og síðustu 15 mínút-
urnar var ótrúleg barátta í liðinu,11
sagði Sævar Jónsson.
„Leikaðferð Sovétmanna kom
mér nokkuð á óvart. Þeir reyndu
mikið háar fyrirgjafir sem báru
ekki átangur. Þeir reyndu lítið að
spila upp miðjuna eins og þeir eru
vanir. Við byggðum á hættulegum
skyndisóknum sem heppnuðust
oft vel. Þetta var betri leikur að
okkar hálfu en gegn Frökkum. Við
þurfum ekki að kvíða framtíðinni
og þessi ieikaðferð passar okkur
greinilega vel,“ sagði Sævar.
Gunnar Gíslason:
„Völlurinn
ekki afsökun
fyrir þá“
„ÞESSI leikur var mun erfiðari
en Frakkaleikurinn. Það var mun
meiri hraði í þessum,“ sagði
Gunnar Gíslason.
„Það var leiðinlegt að fá þetta
mark á okkur á þessum tíma. Bolt-
inn fór í mig og breytti þannig um
stefnu, Bjarni var kominn í hitt
hornið og átti því ekki möguleika
á að verja þetta fasta skot. Völlur-
inn og aðstæður er ekki afsökun
fyrir þá. Við erum líka með atvinnu-
menn eins og þeir sem eru vanir
að leika á breiðari völlum," sagði
Gunnar Gíslason.
Gunnar hvaðst ekkert finna til í
fætinum, „maður finnur aldrei til
eftir svona leik, ég fann aðeins
fyrir þessu í byrjun," sagði Gunnar
og lét sér fátt um finnast.
Atli Eðvaldsson:
Sekúndu-
brotum
frá sigri
„ÉG ER mjög ánægður með þessi
úrslit. Það var slæmt að fá þetta
mark á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Það má segja að við höfum verið
sekúndubrotum frá sigri,“ sagði
Atli Eðvaldsson, fyrirliði islenska
landsliðsins, eftir leikinn í gær-
kvöldi.
„Þeir reyndu ekki einu sinni að
spila í gegn, sáu að það bar ekki
árangur gegn sterkri vörn okkar.
Við lékum mjög skynsamlega og
fannst mér leikurinn ekki erfiður.
Þetta er ánægjuleg byrjun hjá okk-
ur í Evrópukeppninni og vonandi
að framhald verði á,“ sagði Atli
Eðvaldsson sem lék sinn 41.
landsleik í gær.
Assenmacher dómari:
„Ekki
hendi"
„LÍNUVÖRÐURINN var í mjög
góðri aðstöðu. Hann sagði, að
knötturinn hefði farið í brjóst-
kassa leikmannsins og þvi var
þetta löglega skorað mark,“
sagði Karl-Josef Assenmach-
er, dómari, við Morgunblaðið
eftir leikinn.
„Annars var þetta erfiður
leikur, mikil barátta og harka,
og það var ekki fyrr en ég hafði
sýnt þremur leikmönnum gula
spjaldið að leikurinn róaðist.
Leikurinn var opinn, en úrsiitin
voru sanngjörn,“ sagði dómar-
inn.
„ÍSLENSKA liðið lék mjög vel í
þessum leik. Allir leikmenn gáfu
sig í leikinn að fullu. Ég er ánægð-
ur með leikinn að frádreginni
einni mínútu í fyrri hálfleik, þegar
við fengum á okkur markið,"
sagði Siegfried Held, landsliðs-
Eiður
sannspár
EINUM vegfaranda sem blaða-
maður Morgunblaðisns talaði við
daginn fyrir leikinn tókst að spá
rétt til um úrslit leiksins í gær-
kvöldi. Það var enginn annar en
faðir Arnórs Guðjohnsen, Eiður,
sem spáði jafntefli, 1:1.
Eiður Guðjohnsen er getspakur
maður því hann hefur margsinnis
unnið í íslenskum getraunum og
fékk meðal annars einn hæsta
vinninginn á síðasta ári.
„ÞAÐ ER stórkostlegt að skora í
svona leik," sagði Arnór Guð-
johnsen sem skoraði mark ís-
lands í gærkvöldi.
„Það er ekki hægt annað en var
ánægður með leikinn. Þetta eru
góð úrslit á móti svona sterkri
knattspyrnuþjóð. Kannski að völl-
urinn hafi eitthvað haft að segja
en það er engin afsökun fyrir þá,"
sagði Arnór.
þjálfari, eftir leikinn f gærkvöldi.
„Seinni hálfleikur var mun betri
en sá fyrri af okkar hálfu. Það er
varla hægt að segja að Sovétmenn
hafi fengið meira en tvö hættuleg
marktækifæri i leiknum, það sem
þeir skoruðu úr með heppni og svo
þegar Bjarni varði glæsilega. En
það er alltaf erfitt að skora gegn
svona liði. Það var fyrst og fremst
liðsheildin sem skóp þennan
árangur í kvöld, allir léku eins vel
og þeir gera best," sagði Held.
— Nú er næsti leikur gegn
Austur-Þjóðverjum í október.
Verður sama liðið þá og hefur
þú séð til austur-þýska iiðsins?
„Ég reikna með að það verði
sami kjarninn þá. En því miður er
Pétur Pétursson í leikbanni og ég
þarf að finna leikmann í hans stað
og er erfitt að fylla það skarð. Ég
hef ekki séð Austur-Þjóðverja leika
nýlega en ég mun fá leik Áustur-
Þjóðverja og Noregs á myndbandi
og fæ góðan tíma til að skoða
hann fyrir leikinn," sagði Siegfried
Held.
— Sovétmenn vildu meina að
þú hafir notað hendina til að laga
knöttinn fyrir þig áður en þú skor-
aðir, er það rétt?
„Við skulum segja að hönd guðs
hafi lítillega komið við sögu. Ég var
ákveðinn að skora þegar ég komst
þarna í gegn og mér brást ekki
bogalistin, sem betur fer," sagði
Amór.
Arnór Guðjohnsen:
„Hönd guðs
kom við sögu“
f -
m
Strada (leður)
Denmark (leður)
Leisure 2000 (leður)
Singapore (nælon-rússkinn) # Canvas (strigi)
' VIÐ BJÓÐUM NÚ FIMM
VANDAÐAR SKÓTEGUNDIR
FRÁ HUMMEL.
I Erobikk-skór.
Stærðir: 36-41. Verð: 2.473.
Litir: Svart/hvítt
/ Handboltaskórinn i ár.
' Stærðir: 36-47. Verð: 2.390.
Litur: Hvitt
I Skokk- og gönguskór.
Stærðir: 36-46. Verð: 2.499.-
Litir: svart/dökkgrár/beige.
/ Leikfimisskör.
/ Stærðir: 30-39. Verð: 845.
Stærðir: 40-46. Verð: 94S.
Litur: Hvítt
/ Alhliða iþrottaskor.
'Stærðir: 34-47. Verð: 1.330.
Litur: Hvitt
»hummePif
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40 REYKJAVÍK S:835 55