Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986
Segir sig úr Fram-
sóknarfl okknum-
vegna óánægju
BIRNIR Bjarnason dýralæknir á Hornafirði hefur sagt sig úr Fram-
sóknarflokknum vegna óánægju með að vera settur út af framboðs-
lista flokksins eftir að hafa tekið þátt í prófkjöri fyrir næstu
alþingiskosningar og hafnað í tíunda sæti. Annar var settur í hana
stað en sá hafði neitað að taka þátt í prófkjöri sem fram fór í kjör-
dæminu.
„Það er ekki vegna skoðana-
ágreinings, sem ég segi mig úr
flokknum," sagði Bimir, sem hefur
setið í hreppsnefnd Hafnarhrepps í
tvö kjörtímabil fyrir flokkinn, þar
Okurmálið:
Hermann
gjaldþrota
BÆJARFÓGETINN í Kópavogi
kvað í gær upp þann úrskurð að
bú Hermanns Gunnars Björg-
vinssonar skyldi tekið til gjald-
þrotaskipta að ósk hans.
Hermann Gunnar bíður nú dóms
fyrir Sakadómi Kópavogs vegna
okurlánastarfsemi. Þeir sem telja
sig eiga fé hjá Hermanni verða nú
að lýsa kröfum í búið. Nokkrir
munu þó hafa fengið fé sitt til baka
þar eð lögfræðingur þeirra tók
Qámám í verðmætum sem bæjar-
fógeti hafði í vörslu og lagt var
hald á við húsleit hjá Hermanni við
upphaf málsins.
af eitt sem oddviti og er að auki
formaður stjómar Kaupfélags A-
Skaftafellssýslu. í óbundinni
skoðanakönnun Framsóknarfélag-
anna á Austurlandi hafnaði Bimir
í þrettánda sæti, efstur Homflrð-
inga á eftir Halldóri Ásgrímssyni
sjávarútvegsráðherra. Honum var
þá boðin þátttaka í prófkjöri sem
hann þáði og lýsti þá yflr við for-
mann kjörstjómar að hann vildi
halda því sæti sem hann lenti í.
„Það fór þannig að ég hafnaði í
tíunda sæti og var ekkert óánægður
með það,“ sagði Bimir. „Síðan upp-
götva ég, að ég er settur út af
listanum í staðinn fyrir mann sem
hefði neitað að taka þátt í prófkjör-
inu. Það veldur mér reiði, þetta
héraðs- eða miðsvæðisveldi. Eg er
búinn að vera í þessari pólítík í
bráðum tvo áratugi og þetta er í
fyrsta skipti sem Austur-Skaftfell-
ingar hafa einungis einn mann á
listanum. Pólitísk sannfæring mín
hefur ekkert breyst ég er bara ekki
tilbúinn til að láta fara svona með
mig. Að hlaupa í annan flokk er
ekki á dagskrá."
Benedikt Sigxir
jónsson látinn
BENEDIKT Siguijónsson, fyrr-
verandi hæstaréttardómari, lést
í Reykjavík á fimmtudagskvöld,
sjötugur að aldri. Hann lætur
eftir sig eiginkonu, Fanneyju
Stefánsdóttur og þijá syni,
Stefán, Guðmund og Siguijón.
Benedikt fæddist í Hólakoti á
Reykjaströnd í Skagafírði 24. apríl
árið 1916. Foreldrar hans voru Sig-
uijón Jónasson, bóndi, og kona
hans Margrét Stefánsdóttir. Að
loknu námi í Menntaskólanum á
Akureyri hélt hann til Reykjavíkur
og lauk lögfræðinámi árið 1940.
Hann starfaði hjá borgardómaran-
um í Reykjavík um skeið, og rak
einnig málaflutningsskrifstofu með
öðrum. Benedikt var skipaður
hæstaréttardómari í ársbyijun
Nafn mannsins
MAÐURINN sem fannst látinn í
hlíðum Vífilsfells á fimmtudag
hét Ásgeir Ásgrímsson, tii heim-
ilis að Hraunbraut 36 i Kópavogi.
Hann var 55 ára gamaU.
Ásgeir heitinn hafði farið á
rjúpnaveiðar snemma á miðviku-
dagsmorgun. Þegar hann var ekki
kominn til byggða síðdegis sama
dag var hafín leit og fannst hann
um fjögurleytið á fimmtudagl Talið
er að hann hafí orðið bráðkvaddur.
Hinn látni lætur eftir sig eigin-
konu, Guðbjörgu Gísladóttur og
Qórar dætur. Hann var flugvirki
og starfaði hjá Flugleiðum.
Benedikt Siguijónsson
1966, og gegndi því embætti til
ársloka 1981. Af öðrum störfum
hans má nefna setu í Skaðabóta-
nefnd, Bifreiða- og umferðarlaga-
nefnd, Kjaradómi óg ritstjóm
Norræns dómasafns. Benedikt var
fyrsti formaður Tölvunefndar og lét
a.f því starfí um síðustu áramót.
-V f
Slösuðu sjómennimir fluttir frá borði þyrlunnar á áttunda ttmannm f gærkveldi. MorgunbiaÆð/Ámi sæbers
Tveir norskir sjómenn sóttir 100 mílur á haf út:
Þyrlan 7 klukku-
stundir á lofti
ÞYRLA frá varnarliðinu lenti við
Borgarspítalann á áttunda
tímanum í gærkveldi með tvo
alvarlega slasaða norska sjó-
menn. Mennirnir eru til aðhlynn-
ingar á Borgaspítalanum og eru
ekki í lífshættu.
Tilkynning barst til Slysavamar-
félags íslands í fyrrinótt um tvo
alvarlega slasaða sjómenn um borð
í norska skipinu Tinnes, sem er
sjálfhleðsluskip um 8 þúsund rúm-
lestir að stærð. Slysið varð er skipið
fékk á sig hnút um 200 mflur suð-
ur af landinu. Mennimir voru í
brúnni og köstuðust til með þeim
afleiðingum að þeir slösuðust illa á
baki, brotnuðu og mörðust. Varð
að búa um annan þeirra í brúnni,
þar sem ekki var talið þorandi að
hreyfa hann.
Engin tök voru á að senda þyrlu
til móts við skipið fyrr en eftir að
birti, þar sem 10 vindstig voru af
suðri á svæðinu. Skipið tók stefnuna
á Vestmannaeyjar og þyrla frá
Vamarliðinu hóf sig á loft klukkan
12.30 í gær. Henni til aðstoðar var
P-3 kafbátáleitarvél, þar sem
Hercules vél, sem sér þyrlunni fyrir
eldsneyti meðan hún er á lofti, var
stödd á Bretlandseyjum. Þyrlan var
yfír skipinu um þrjú leytið og var
það þá um 100 sjómflur suðsuðaust-
ur af Vestmannaeyjum. Voru tveir
sjúkraliðar settir um borð, en síðan
hélt þyrlan til móts við Hercules
vélina til þess að taka eldsneyti-
Mjög erfíð flugskilyrði vom á svseð-
inu, 7-8 vindstig af vestri og þurfti
þyrlan að fá eldsneyti einu sinni til
viðbótar áður en lent var við Borg-
arspítalann. Mjög vandasamt var
að búa slösuðu mennina til flutn-
ings. Tók það um tvær klukku-
stundir og erfíðlega gekk að hífa
þá um borð í þyrluna við þessar
aðstæður.
Tinnes var á vesturleið og hélt
það áfram för sinni eftir að mönn-
unum hafði verið bjargað frá borði.
Síldarverð lækkað um
20-37% frá síðustu vertíð
Raunveruleg kjaraskerðing síldarsjó-
manna 42%, segir Óskar Vigfússon
YFIRNEFND verðlagsráðs
sjávarútvegsins ákvað í gær
20% og 37% verðlækkun á síld
til frystingar og söltunar frá
gildandi verði á siðustu
vertíð. Verðflokkar verða
tveir, 6 krónur fást fyrir síld
í stærri flokknum og 3 krónur
fyrir minni flokkinn. Óskar
Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands,
segir að með þessu og almenn-
um launahækkunum skerðist
kjör síldarsjómanna um 42%
milli ára.
Verðið var ákeðið með atkvæð-
um oddamanns, Bolla Bollasonar,
Ásgeir Ásgrímsson, flugvirki.
Sjallinn boðinn upp:
Iðnaðarbankinn bauð
hæst 35 milljónir króna
Landsbankinn og Samvinnutryggingar buðu einnig
Akureyri.
IDNAJÐARBANKINN hf. átti
hæsta tilboð i eignarhluta Ak-
urs hf. í húsinu Glerárgata 7
er annað og síðasta nauðungar-
uppboð fór fram á eigninni i
gær. Steingrímur Eiríksson,
hdl., lögfræðingur Iðnaðar-
bankans bauð 35 milljónir
króna fyrir hönd bankans.
Gunnar Sólnes byrjaði á því að
bjóða 21 milljón fyrir hönd Lands-
bankans og Benedikt H. Ólafsson
bauð 31 milljón króna fyrir hönd
Samvinnutrygginga en síðan bauð
Steingrímur Eiríksson eins og
áður sagði 35 milljónir og krafðist
útlagningar sem ófullnægður veð-
hafí í 19. veðrétti.
Uppboðið fór fram eftir kröfu
Ólafs Gústafssonar hdl., Iðnaðar-
banka íslands hf., Verzlunar-
banka íslands, innheimtumanns
ríkissjóðs, Ásgeirs Thoroddsen
hdl. og Ingólfs Friðjónssonar hdl.
Elfas I. Elíasson, bæjarfógeti
og uppboðshaldari, tók sér
tveggja vikna frest til að meta
tilboðin. Þar til hann ákveður sig
verður Sjallinn opinn - þessa helgi
og þá næstu.
Kröfur Iðnaðarbankans í eign-
ina eru um 60 milljónir króna en
í þeirri tölu eru innifaldar ábyrgð-
ir gagnvart ferðamálasjóði upp á
14 milljónir króna. Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins á fyrsta
veðrétt f eigninni.
Þess má geta að Iðnaðarbank-
inn hefur veðrétt í meginhluta
lausaflár Akurs hf.
og kaupenda, Áma Benediktsson-
ar og Hermanns Hanssonar, gegn
atkvæðum kaupenda, Óskars Vig-
fússonar og Sveins Hjartar
Hjartarsonar. Verðið er uppsegj-
anlegt með þriggja daga fyrirvara
frá og með 1. nóvember næstkom-
andi.
Óskar Vigfússon mótmælti
verðinu. Hann sagði að miðað við
aflamagn á úthaldsdag síldveiði-
báta á sfðustu vertíð þýddi þessi
verðlagning að útilokað væri að
sfldveiðisjómenn næðu hlut úr afla
sínum. Þá benti hann á það, að á
sama tíma og sjómönnum væri
gert, með þessari verðákvörðun,
að lækka hráefni sitt um 37% til
söltunar og 20% til frystingar frá
síðustu vertíð, hefðu almenn laun
í landinu hækkað um 21%-
Síldveiðisjómenn stæðu því
frammi fyrir 42% skerðingu lg'ara
miðað við síðasta ár.
Óskar sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að Sjómannasambandið
hefði beint því til sjómanna að
snúa sér til stéttarfélaga sinna til
að fá upplýsingar um það með
vissu, hve mikið þeir geti borið
út býtum og ákveða að því loknu,
hvort þeir haldi til veiða eða ekki.
„Menn hafa verið tilbúnir til að
helja veiðar í 14 daga og það
getur því miður verið erfitt fyrir
þá að hverfa frá fyrirhuguðum
veiðum. Bátamir eru í mörgum
eða flestum tilfellum búnir með
kvóta á öðrum tegundum og hafa
því ekki á önnur mið að róa. Útlit-
ið er þvf vægast sagt óglæsilegt,"
sagði Óskar Vigfússon.