Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 61
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBKR 1986
Þessir hringdu
Góð þjónusta
hjá KRON í
Furugrund
Ein utan af landi hafði sam-
band við Velvakanda:
Ég kem oft í bæinn og bý þá
hjá dóttur minni. Fyrir nokkru fór
ég að versla og lá þá leið mín í
Kron við Furugrun. Þar var ungur
maður í kjötafgreiðslunni og
fannst mér ffamkoma hans mjög
til fyrirmyndar. Langar mig til
að koma á framfæri þökkum fyr-
ir lipra og góða afgreiðslu þama.
Drögfum úr
hraðanum í
umferðinni
Tómas hringdi:
Nú þegar haustar að og dimmt
er orðið síðla dags ættu ökumenn
að gæta þess að hraðinn sé ekki
of mikill. Það hefur því miður
sýnt sig undanfarin ár að slysum
fjölgar mjög á haustmánuðum og
stundum er talað um slysaöldur í
því sambandi. Það hefur einnig
sýnt sig að of mikill hraði miðað
við aðstæður er orsök flestra
slysa. Ef ökumenn fengjust al-
mennt til að draga úr ökuhraða
núna þegar aðstæður fara versn-
andi mætti hugsanlega koma í veg
fyrir mörg slýs. Þess vegna vil
ég koma því á framfæri til allra
ökumanna að hugleiða nú þessi
mál - draga úr ökuhraðanum og
sýna meiri gætni í umferðinni eft-
ir því sem aðstæður verða verri.
Casio úr
Svart Casio tölvuúr (með verk-
smiðjunúmerinu NRN 415/595K)
tapaðist í Sundhöllinni eða á leið-
inni þaðan upp í Bólstaðahlíð.
Finnadi er beðinn að hafa sam-
band við Guðjón í síma 3 94 39.
Græn kápa
Græn kápa var tekin í mis-
gripum fyrir aðra á Hótel holti
laugardaginn 27. september sl. í
vasa kápunar voru svartir hansk-
ar. Er sá sem kápuna tók vinsam-
legast beðinn að hringja í Þórdísi
í síma 1 39 89.
Trúlofunar-
hringur fannst
Trúlofunarhringur með áletrun
fannst fyrir skömmu í Brautar-
holti. Upplýsingar í síma 62 13 70.
Stöð tvö ætti
að semja við
íbúa fjöl-
býlishúsa
PP hringdi:
Mig langar til að koma því á
framfæri við þá sem standa fyrir
Stöð 2 að þeir geri íbúum flölbýlis-
húsa fært að semja um samnot á
einum „afruglara". Ástæðulaust
er að ailar fjölskyldumar sem búa
t.d. við einn stigagang séu að
kaupa hver sitt tæki, og áreiðan-
lega hagstæðara fyrir báða aðila
ef samið yrði um afnot á einu
tæki. Þannig myndi Stöð 2 fá
fleiri áskrifendur en ella.
Hvað um innkaupsverð á „af-
mglurunum" og hversu há er
álagningin? Ég hef heyrt að
álagningin á þessum tækjum sé
nokkuð há og sjálfur ætla ég að
bíða með að kaupa þetta tæki og
sjá hvort það lækkar ekki í verði.
Allt í plati
Elín Guðjónsdóttir skrifar:
Ekki gat ég heyrt betur en for-
maður Ferðamálaráðs segði í
sjónvarpsviðtali nýlega, að heimilin
sem hefðu tekið pantanir á her-
bergjum frá ferðaskrifstofum í
sambandi við leiðtogafundinn, bæm
skaðan ef þeir sem pantað hefði
verið fyrir hafí ekki látið sjá sig.
Ég hef alltaf staðið í þeirri trú,
að skrifleg og staðfest pöntun milli
ferðaskrifstofu og gistisala væri
bindandi af beggja hálfu, og að það
þyrfti að segja þessum samningi
upp með minnst sólarhrings fyrir-
vara. Líka hef ég staðið í þeirri trú
að ferðaskrifstofur séu skyldugar
til þess að greiða eina gistinótt af
hverri skriflegri staðfestri pöntun,
þótt fólkið sem pantað var fyrir
hafi ekki komið.
Mér þætti vænt um ef þetta mál
væri kannað, svo að hið sanna komi
í ljós.
Áskriftarsiminn er83033
SJÁLFSTÆÐISMENN REYKJAVIK!
RIÍIMAR Á ÞING
Kosningaskrifstofa, Klapparstíg 26e.h. s. 28843.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu mér
vinarhug á 90 ára afmœli mínu.
GuÖ blessi ykkur öll.
Valdimar Stefánsson.
Mercedes Benz 230 E
Til sölu Mercedes Benz 230 E árg. 1981, ekinn
80 þús. km. Blár, metallic, leðuráklæði, sjálfskipt-
ing, centrallæsingar, ABS-hemlakerfi, útv./kass-
ettut., rafm.loftnet o.fl. Sérlega góður bfll. Verð
700 þús. Upplýsingar í síma 43714 (Hjörtur).
Fyrir viðskiptavin okkar auglýsum við til sölu
Mercedes Benz 300D árg. 1985
Ekinn 120 þús. km. Svartur, sjálfskipting, jafnvægisbúnaður,
litað gler, centrallæsingar, útv./kassettut. Ný snjódekk. Verð
950 þús. Upplýsingar í síma 43714 (Hjörtur).
INNVAL
Þjónusta í þína þágu
Við bjóðum vandaðar
eldhúsinnréttingar
á hagstæðu verði
Opið í dag frá kl. 10—16
Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033