Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 37
Nýttjóla-
kort frá Ás-
grímssafni
JÓLAKORT Asgrímssafns 1986
er komið út. Það er prentað eft-
ir vatnslitamyndinni „Haust á
Þingvöllum". Myndin sem var
máluð um 1949 er nú til sýnis á
haustsýningu safnsins.
Kortið er í sömu stærð og fyrri
listaverkakort safnsins (16x22 sm)
og er með íslenskum, dönskum og
enskum texta á bakhlið. Grafík hf.
offsetprentaði. Listaverkakortið er
til sölu í Ásgrímssafni, Bergstaða-
straeti 74, á opnunartíma þess,
sunnudögum, þriðrjudögum og
fimmtudögum kl. 13.30-16.00 og í
Rammagerðinni, Hafnarstræti 19.
Vandræði
með mynd-
lykilinn
HEIMILISTÆKI HF. hafa beðið
Morgunblaðið að birta eftirfar-
andi fréttatilkynningu:
„Þar sem komið hefur í ljós að
margir eigendur myndlykla hafa
átt í vandræðum með að ná inn
ótruflaðri mynd vill Heimilistæki
hf. taka fram eftirfarandi: Hér er
um að ræða smávægilegt tækni-
vandamál sem nú hefur verið leyst.
Komið hefúr í ljós að flatkapall fyr-
ir myndlykil getur valdið truflunum
og erfiðleikum við að ná ótruflaðri
mjmd.
Þeir sem hafa átt í erfiðleikum
eru vinsamlegast beðnir um að
koma með flatkapalinn f verslun
Heimilistækja, Sætúni 8, og fá þar
nýja kapal.
Við viljum taka fram að tækni-
erfiðleikar þessir eru algjörlega
óháðir útsendingum Stöðvar 2. Við-
skiptavinir okkar eru beðnir velvirð-
ingar á þeim óþægindum sem þeir
hafa orðið fyrir vegna þessa máls."
Ljóðatón-
leikar í
Jónshúsi
MARGRÉT Bóasdóttir, sópran-
söngkona og Margrét Gunnars-
dóttir, píanóleikari, efna til
ljóðatónleika í Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn miðvikudaginn 22.
október kl. 20.30.
Á efnisskránni eru lög eftir
íslenska og erlenda höfunda, þeir
eru: Páll ísólfsson, Kerstin Jeppson,
Þorkell Sigurbjömsson, Edvard Grieg,
Franz Schubert, Hugo Wolf og
Gabriel Fauré.
Margrét Bóasdóttir og Margrét
Gunnarsdóttir hafa áður haldið
saman tónleika erlendis og auk
þess starfað saman að tónleikahaldi
hér á landi. Að þessu sinni munu
þær halda Ijóðatónleika í Hróar-
skeldu og í Jönköbing í Svíþjóð, auk
tónleikanna í Jónshúsi.
(Fréttatilkynning)
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986
37
Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum:
Jólakort Ásgrimssafns 1986.
Vilja tvo fulltrúa í
varnarmálanefnd
Vogum, Vatnsleysuströnd.
STJÓRN Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum (SSS)
samþykkti nýlega að beina þeim
tilmælum til utanríkisráðherra
að hann beiti sér fyrir því að
framvegis eigi sveitarfélögin á
Suðurnesjum tvo fulltrúa í vam-
armálanefnd. Þeir verði kosnir
árlega á aðalfundi SSS.
Guðfinnur Sigurvinsson nýkjör-
inn formaður sambandsins sagði í
samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins um ástæðuna fyrir þessum
tilmælum að heimamenn hefðu ekki
haft eðlilegan aðgang að vamar-
málanefnd. Það væri því til bóta
að Suðumesjabyggð fengi tvo
fastafulltrúa í nefndina og að þeir
væru kosnir árlega á aðalfundi SSS
til að tryggja það að viðkomandi
menn væru ávallt í góðum tengslum
við fólkið á svæðinu.
EG
VIÐ STYÐJUM STÓRBÓNDANN
OG A THAFNAMANNINN
á Laxamýri í öruggt sæti í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Norður-
landskjördæmi eystra 18. október.
STUÐNINGSMEIMN
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF