Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986
— „Var þér kalt?“ spurði ég.
— „Konunni, sem var gift
manninum sem málaði Guemica,
verður ekki kalt,“ svaraði Jacque-
line og brosti stríðnislega, síðan
tók hún í hönd mína og sagði:
„Þessi opnun var yndisleg, þetta
er dagur Pablo, þegar ég er við-
stödd opnun á sýningu eftir Pablo,
eða get orðið til þess að minningu
hans er sýndur sómi, fínnst mér
eins og Pablo sé hjá mér aftur
og ég er alsæl."
Þetta litla atvik með Jacqueline
Picasso við opnun Listahátíðar
1986 kemur aftur upp f huga
minn núna þegar hún er látin.
Trygglyndi hennar við minningu
„töframannsins í málverkinu", og
sú hlýja sem lýsti úr dökkum aug-
unum sem virtust hafa séð allt,
og skilið, og skildu jafnvel ótöluð
orð, eins og hún sæi beint inn í
hugskot manns, er sú minning
sem ég varðveiti um þessa sterku
konu.
Ung að ámm hafði Jacqueline
kynnst Pablo, fyrst sem fyrirsæta,
síðan sem eiginkona. Hún var
honum í senn yrkisefni og sálufé-
lagi. „Hann gerði mig að drottn-
ingu þegar honum sýndist," sagði
hún einu sinni á góðri stund og
bætti síðan við: „Sú sem hefur
verið leidd til hásætis af slíkum
manni, fínnst aðrir menn heldur
litlausir á eftir.“ Svo hló hún eins
og ástfangin skólastelpa.
Ég gæti skrifað langt mál um
kynni mín af Jacqueline, þótt stutt
væru, slík áhrif hafði hún á mig.
Að hafa fengið tækifæri til að
kynnast slíkri konu eru forrétt-
indi. Og ég er óumræðiiega
þakklátur fyrir þær stuttu stundir
sem ég eyddi með henni, þegar
hún dvaldi hér á landi í tvígang
sem gestur Listahátíðar 1986.
Ég veit að ég tala fyrir hönd
okkar allra sem stóðum að Lista-
hátíð 1986, þegar ég færi vinum
hennar og ættingjum okkar
dýpstu samúðarkveðjur. Höfð-
ingsskapur hennar og örlæti,
þegar hún færði forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur, myndina
góðu, sem gjöf til allrar íslensku
þjóðarinnar, sýnir best hvflíkan
hug hún bar til okkar. Megi starf
hennar og minning verða öðrum
leiðarljós í heimi eftiishyggju og
trúleysis.
Hrafn Gunnlaugsson
Höfundur var formaður fram-
kvæmdastjómar Listahátíðar
1986.
Jacqueline Picasso tekur við skærunum, sem hún klippti á borðann með, þegar hún opnaði sýninguna
á verkum manns síns á Listahátíð 1986.
Keflavík:
Agætur afli hjá togurunum
Keflavfk.
AFLI togaranna var ágætur í
september. Þeir lönduðu 1227
tonnum í sextán sjóferðum. Tog-
aramir eru sex. Bergvík KE var
aflahæst, með 327 tonn í þrem
sjóferðum, Aðalvik KE var með
300 tonn i þrem sjóferðum og
Gautur GK var með 244 tonn í
fjórum sjóferðum.
Tveir stórir bátar eru gerðir út
á úthafsrækju og frysta þeir aflann
um borð. Jöfur KE landaði 92,9
tonnum í tveim sjóferðum og Gunn-
jón GK landaði 68,2 tonnum í einni
sjóferð.
Aðeins einn bátur landaði loðnu
í september, það var Harpa RE sem
landaði tvívegis samtals 926 tonn-
um. Afli smærri bátanna var 593,7
tonn í 134 sjóferðum.
Ágúst Guðmundsson GK er far-
inn á sfldveiðimiðin fyrir austan og
von er á að þeir Albert Guðmunds-
son KE og Stafnes KE haldi á miðin
næstu daga.
B.B.
^lgSausteuSríShaustlaukareni nú ástóriaekku5u
verði. Notiðtækifærið.
Dæmiumverð: ásut nú
10stk. lágvaxnirTúlípanar... 4-iq"_
10 stk. margblómaTúlípanar. «q"_
10skt.fylltirTúlípanar.
LandsbyggðarÞjónusta
Sendum í póstkröfu hvert a land sem er
100 stk. laukar í kassa
7 mism. tegundir......905’- 499*“
100stk. laukarífötu
5 mism. tegundir......S05.-
Blómum
vidaverold
Nýtið svalakassann fyrir
haustlaukana
GSðurtíúsinu við Sigtún: Slmar36770-686340
Pennavinir
Nitján ára Austurríkispiltur með
mikinn áhuga á landi voru og fólki:
Peter Knögler,
Honauertr. 39,
A-4020 Linz/Donau,
Austria.
Frá Ghana skrifar 21 árs stúlka
með áhuga átónlist, dansi, íþróttum
o.fl.:
Marian Mould,
P.O.Box 455,
Cape Coast,
Ghana.
Frá Vestur-Þýzkalandi skrifar
stúlka, líklega á aldrinum 15-20
ára. Hún á íslenzkan hest, hund og
kött. Skrifar á ensku, þýzku eða
frönsku:
Anne Hahn,
Weidenstrasse 24,
D-4100 Duisburg 74,
W-Germany.
Jacqueline Picasso
In memoriam