Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986 63
• Ásgeir Sigurvinsson er bjartsýnn fyrir leikinn f dag. Stuttgart og
Kaiserslautern eru með jafn mörg stig f deildinni.
Vestur-—þyska knattspyrnan:
Stuttgart mætir
Kaiserslautern
Fri Jóhanni Inga Qunnaraayni, fróttarttara Morgunbiaðaina ( V-Þýakalandi.
í DAG fœr Stuttgart Kaiserslaut-
em f heimsókn í Bundesligunni f
knattspyrnu, en liöin hafa jafn-
mörg stig.
Stuttgart byrjaði vel í haust og
skoruðu leikmennirnir 11 mörk í
þremur fyrstu leikjunum, en hafa
aðeins skorað átta mörk í síðustu
sjö leikjum. „Það er rétt, sóknar-
menn okkar standa frammi fyrir
þessum vanda að finna ekki réttu
leiðina í markið, en við látum það
ekki rugla okkur í ríminu" sagði
Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði
Stuttgart, I samtali við Kicker.
„Klinsmann, Merkle og Bunk hafa
ekki gleymt, hvernig á að skora
mörk, en árangurinn hefur látið á
sér standa" sagði Ásgeir.
Leikurinn í dag leggst vel í fyrir-
liða Stuttgart og telur hann að
auðveldara sé að leika á móti
sterkum liðum, en liðum sem talin
eru veikari. Kicker segir að það
lofi góðu fyrir næstu leiki, því
Stuttgart leikur gegn sterkum lið-
um næstu vikur. í fyrra vann
Stuttgart Kaiserslautern 2:0, en
Lothar Mattháus spáir 3:1 fyrir
Stuttgart í dag.
Atli Eðvaldsson og félagar í
Uerdingen leika gegn Mönc-
hengladbach og segir Feldkamp,
þjálfari Uerdingen, að tími sé kom-
inn til að framherjarnir sýni, hvað
í þeim búi, en Heynckes, þjálfari
Gladbach, vonast til að ná jafn-
tefli, en liðin gerðu 1:1 jafntefli í
fyrra.
Góður leikur en
tap gegn Svíum'
ÍSLAND tapaði fyrir Svíþjóð 21:25
f fyrsta leiknum á Noröurianda-
móti pilta 20 ára og yngri, sem
hófst í Asker f Noregi f gær.
„Leikurinn var mjög góður. Vörn
íslenska liðsins stóð sig vel, en
sóknarleikurinn gekk ekki upp og
það varð liöinu að falli" sagði Ólaf-
ur Haraldsson, dómari, í samtali
við Morgunblaðið, en Ólafur og
Stefán Arnaldsson dæmdu tvo
leiki á mótinu í gær.
Leikurinn var mjög jafn í fyrri
hálfleik og munaði aldrei meira en
einu marki, en staðan í hálfleik var
10:10. í seinni hálfleik skriðu
Svíarnir fram úr og náðu mest fjög-
urra marka forystu í lokin.
Markverðir beggja liða stóðu sig
vel. Guðmundur A. Jónsson lék í
íslenska markinu allan leikinn, en
hjá Svíum var það Tomas Svens-
son, sem vakti mikla athygli. Hann
er 18 ára, en hefur leikið í sænsku
1. deildinni í þrjú ár. Sigurjón Sig-
urðsson skoraði 5 mörk, Þórður
Sigurðsson 4, Bjarki Sigurðsson
3, Frosti Guðlaugsson, Pétur Pet-
ersen og Hálfdán Þórðarson 2
mörk hver, og Árni Friðleifsson,
Jón Kristjánsson og Gunnar Bein-
teinsson eitt mark hver.
Danmörk vann Finnland 22:21
og Svíar burstuðu síðan Finna
46:14. í dag leikur (sland gegn
Danmörku og Noregi, en gegn
Finnlandi á morgun.
• Guömundur A. Jónsson,
markvörður, stóö sig best
íslensku piltana en þaö dugöi
ekki til sigurs.
Islandsmótið íkörfuknattleik:
Tveir leikir í .
úrvalsdeildinni
Miklir
peningar
söfnuðust
íAfríku-
hlaupinu
ALLS söfnuöust um 32 millj-
ónir punda í Afrfkuhlaupinu,
sem Sport Aid stóð fyrir f maí
og haldið var í 277 borgum.
Bob Geldof, forsvarsmaður
söfnunarinnar, greindi frá
þessu í gær og sagði að þessi
undraháa upphæð væri margf-
alt hærri, en hann hefði dreymt
um. Þegar hann fór af stað með
hlaupið til að hjálpa bágstödd-
um í Afríku og til styrktar
barnasjóði Sameinuðu þjóð-
anna, gerði hann ráð fyrir að
safna í mesta lagi 5 milljón
pundum en árangurinn varð
rúmlega sexfaldur.
TVEIR leikir veröa f úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik um helgina.
í dag leika Haukar og KR f Hafnar-
firöi og á morgun leika Valur og
Njarðvík f íþróttahúsi Seljaskóla.
Leikur Hauka og KR hefst kl.
14.00 í íþróttahúsinu við Strand-
götu. Haukar unnu Fram í fyrstu
umferð en töpuðu fyrir Njarðvík
um síðustu helgi. KR-ingar hafa
tapað tveimur fyrstu leikjum sínum
í deildinni. Það má því bútas við
að KR-ingar reyni að vinna sinn
fyrsta sigur en Haukar gefa örugg-
lega lítið eftir.
Leikur Vals og Njarðvík verður
í Seljaskóla kl. 20.00 á morgun og
er hann einn af úrslitaleikjum
mótsins.
í dag leika Haukar og ÍR í 1.
deild kvenna kl. 15.30 í Hafnarfirði
og ÍS og Þór leika í 1. deild karla
í Hagskóla kl. 14.00.
Hoía
íhöggi
EINN AF hinum ungu kyifingum
Golfklúbbs Ness gerði sér Iftið
fyrir á dögunum og fór holu f
höggi. Það var Gfsli Hall, sem
vann þetta afrek á sjöttu braut
vallarins og notaðl 6-jám f högg-
ið. Kylfingar á Nesinu hafa verið
iðnir við koiann að undanfömu
og hvergi látið deigan sfga þótt
komið sá fram á haust, enda tfð
verið góð.
1. deild kvenna í körfuknattleik:
KR sigraði Keflavfk
íslands- og bikarmeistarar
KR í 1. deild kvenna í körfu-
knattleik sigruðu iið ÍBK í
Keflavík á fimmtudagskvöld-
ið. Lokatölurnar urðu 47:50
eftir að staðan í hálfleik hafði
Létt hjá
stúdínum
verið 21:29 fyrir KR.
ÍBK-stúlkurnar byrjuðu vel í
leiknum og höfðu frumkvæðið
framanaf, en slæmur leikkafli í
lok fyrri hálfleiks reyndist þeim
örlagaríkur. Þá náðu KR-stúlk-
urnar að jafna og komast síðan
átta stigum yfir að loknum fyrri
hálfleik. Sá munur hélst svo allt
þar til á lokamínútunum að ÍBK-
stúlkurnar voru mjög nálægt að
jafna metin. KR-stúlkurnar voru
mun hreyfanlegri í leiknum, en
það sem réði eftilvill úrslitum var
hversu slakar ÍBK-stúlkurnar
voru í sóknarfráköstum.
Flest stig KR skoruðu þær
Linda Jónsdóttir 24 og Kristjana
Hrafnkelsdóttir 9. Hjá ÍBK voru
þær Björg Hafsteinsdóttir 12,
Guðlaug Sveinsdóttir 10 og
Anna María Sveinsdóttir 8 stiga-
hæstar.
B.B.
Öskjuhlíðar-
hlaup á morgun
Stúdínur gerðu góða ferð til
Grindavíkur í fyrrakvöld, þegar
þær unnu UMFG 50:34 í 1. deild
kvenna í körfuknattleik eftir að
staðan hafði verið 26:14 íhátfleik.
Lið UMFG, sem tekur nú í 1.
skipti þátt í 1. deild kvenna, var
auðveld bráð fyrir ÍS-stúlkurnar,
sem tóku forystu strax í byrjun og
voru með 12 stiga forystu í hálfleik.
[ seinni hálfleik áttu Grindavíkur-
stúlkurnar góða spretti af og til
og tókst að halda í við stúdínurn-
ar, en í lokin skildu 16 stig á milli.
Stigahæstar í liði ÍS voru Anna
Björk Bjarnadóttir með 15 stig,
Hafdís Helgadóttir skoraöi 12 stig
og Kolbrún Leifsdóttir 11 stig. Hjá
UMFG skoruðu Marta Guðmunds-
dóttir, Stefanía Jónsdóttir og
Svana Káradóttir 10 stig hver.
— Kr. Ben.
Hið árlega Öskjuhlíðarhlaup ÍR
verður haldið á morgun, sunnu-
dag og er það tíunda árið f röð,
sem hlaupið er háð. Hefst það
og lýkur við Loftieiðahótelið.
Alls hlaupa karlar 8 kílómetra,
eða tvo hringi um hlíðina, og konur
og sveinar 4 kílómetra. Jafnframt
hlaupa skemmtiskokkarar 4 kíló-
metra.
Keppnin hefst klukkan 14 viö
Loftleiðahótelið. Veittir verða
verðlaunapeningar fyrstu í hverj-
um flokki. Jafnframt verða veitt
aukaverðlaun ýmiss konar, sem
dregið verður um úr keppnisnúm-
erum, og standa allir keppendur
jafnt að vígi til þeirra. Hlaupið er
hið fyrsta í keðju götu- og víða-
vangshlaupa í vetur. Að hlaupi
loknu verða verðlaun afhent á sal
Loftleiðahótelsins.
• Pressukeppnin f kellu fór fram f keilusalnum f öskjuhlfð f gær-
kvöldi. 25 fulltrúar frá fjölmiðlunum mættu til keppni. Á myndlnni eru
verðlaunahafar ásamt Guðnýu Guðjónsdóttur, mótsstóra. Frá vinstrí:
Guðný, Bjami Eiríksson, Morgunblaðinu (nr.3), Valur Jónatansson,
Morgunblaðinu (nr.1), Rúnar Gunnarsson, Sjónvarpinu (nr.2) og
Hjördfs Árnadóttir, Tfmanum sem vann í kvennaflokki.
HANDKNATTLEIKSÞJÁLFARI
HSi óskar eftir að ráða þjálfara fyrir landslið
drengja fædda 1970—71. Með umsókn skal fylgja
hugmynd umsækjanda hvemig standa skuli að
þjálfuninni. Upplýsingar um starfið veitir formað-
ur unglingalandsliðsnefndar Friðrik Guðmunds-
son. Umsóknum skal skilað fyrir 23. október nk.
Handknattleikssamband íslands