Morgunblaðið - 27.11.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Reykjavík:
150 ár frá fyrsta
bæj arráðsfundi
Tímamótanna minnst með útgáfu tveggja bóka
í GÆR voru 150 ár liðin frá því
fyrsta bæjarstjóm Reykajvíkur
kom saman til fundar þann 26.
nóvember 1836. Til að minnast
þessara tímamóta og um leið 200
ára afmælis borgarinnar hefur
Reykjavíkurborg gefið út tvær
bækur, „Reykjavík - Byggðar-
stjóm í þúsund ár“, eftir Pál
Líndal og „Reykjavík - Bæjar-
og borgarfulltrúatal 1836 -
1986“, sem Páll Líndal og Torfi
Jónsson hafa tekið saman.
„Það má segja að ég hafi byijað
að skrifa fyrri bókina, sem ég vil
kalla sýnisbók um sögu bæjar- og
borgarstjómar, fyrir 30 árum þegar
ég byijaði að skrá hjá mér minnisat-
riði varðandi fundi bæjarstjómar,"
sagði Páll Líndal höfundur bókar-
innar „Reykjavík - Byggðarstjóm í
þúsund ár“. Hann sagði að fyrstu
gerðarbækumar hefðu verið skrif-
aðar á dönsku allt fram til ársins
1843 þegar farið var að skrifa þær
á íslensku. í formála segir að bók-
inni sé ætlað að gefa yfírlit um
þróun sveitarstjómarmála og er
henni skipt niður í tímabil allt frá
þjóðveldisöld fram til ársins 1970.
Páll sagði að reynt hefði verið að
höfða til nútímans og væri þar að
fínna ýmsan fróðleik um starfs-
hætti og hlutverk bæjar- og
borgarstjómar fyrr og nú. Sem
dæmi mætti taka að starfandi var
nefnd sem sá um að útvega mjólk
til bæjarbúa, öðmm nefndum var
ætlað að sjá um að næg kol feng-
just og að útvega kálgarða. Þá er
getið um stysta fund bæjarstjómar
sem stóð í 1 mínútu og lengsta
fund sem haldinn hefur verið og
stóð samfellt í 22 klukkustundir.
I Bæjar- og borgarfulltrúatali
1836 - 1986, í samantekt þeirra
Páls Líndal og Torfa Jónssonar em
æviskrár rúmlega 400 bæjar- og
borgarfulltrúa í Reykjavík frá upp-
hafí fram til ársins 1986. Árið 1942
komu varafulltrúar til sögunnar og
er þeirra getið sem setið_ hafa einn
fund en öðmm sleppt. í ritinu er
fyrst og fremst miðað við árslok
1985 en þó teknir með þeir sem
tóku sæti í borgarsstjóm sem aðal-
Torfi Jónsson og Páll Líndal höfundar bókanna „Reykjavík - Bæjar-
og borgarfulltrúatal 1836 - 1986“ og „Reykjavík - Byggðarstjóm í
þúsund ár“.
menn árið 1986. í bókarlok er skrá
yfír þá 11 borgarstjóra sem setið
hafa frá árinu 1908. Þar em og
æviágrip þeirra Páls Einarssonar,
sem fyrstur gengdi embætti borgar-
stjóra og Egils Skúla Ingibergsson-
ar en þeir vom ráðnir til starfa af
pólitískum fulltrúum í bæjar- og
borgarstjóm.
Utgefandi bókanna er Reykjavík-
urborg. Setning og umbrot sá
Teiknistofa Kristjáns Svanssonar
um og ísafoldarprentsmiðja sá um
prentun og bókband. Sögufélagið
sér um dreifíngu bókanna.
VEÐUR
r
r
r r
r r
r r r
r r
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR ! DAG:
YFIRLIT á hádegi f g*r: 500 km suðsuðaustur af Hvarfi er 973
millibara djúp lægð sem fer austnorðaustur. Yfir norðanverðu
Grænlandi er 1018 millibara hæö.
SPÁ: Austan- og síðan norðaustanátt og víða strekkingsvindur.
Skýjað um mest allt land og slydda eöa rigning á austur- og suð-
austurlandi en lítilsháttar slyddu- eða snjóél á annesjum fyrir
norðan. Hiti nálægt frostmarki nema við austur- og suðaustur-
ströndina en þar verður 2 til 5 stiga hiti.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Norðlæg átt og frost um allt
land. Snjókoma eða él norðanlands en úrkomulaust að mestu syðra.
TÁKN:
O
Heiðskírt
Léttskýjað
•a Hálfskýjað
*
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig: 0° Hltastig:
' Vindörin sýnir vind- 10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. * V Él
/ / / / / / Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
* / * i Súld
* / * Slydda / * / oo Mistur
* # * 4 Skafrenningur
* * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
hlti ve&ur
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavík -2 skýjað
Bergen 6 skýjað
Helsinki 9 þokumóða
Jan Mayen 0 snjóél
Kaupmannah. 10 alskýjað
Narssarssuaq -4 skýjað
Nuuk -11 renningur
Osló 7 rigning
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 11 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 11 skýjað
Chicago S rigning
Glasgow 6 skúr
Feneyjar 12 léttskýjað
Frankfurt 10 skýjað
Hamborg 18 skýjað
Las Palmas 21 alskýjað
London 9 léttskýjað
Los Angeles 12 helðskírt
Lúxemborg 8 súld
Madrld 11 mistur
Malaga 18 skýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Miami 24 léttskýjað
Montreal 2 þokumóða
Nlce 16 léttskýjað
NewYork 6 rigning
Paris 10 lóttskýjað
Róm 17 þokumóða
Vln 6 þokumóða
Washington vantar
Kelloggstyrkur
til matvælaráð-
stefnu, sem haldin
verður hér á landi
Kelloggstofnunin í Banda-
ríkjunum hefur veitt Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins styrk til
að standa fyrir alþjóðlegri ráð-
stefnu í matvælafræði í sam-
vinnu við Háskóla íslands,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins og Samtök evrópskra
matvælaf ræðinga.
Ráðstefnan verður haldin dagana
9.-11. september 1987 og mun
fjalla um „Áhrif vinnslu á næringar-
gildi matvæla". Ráðstefnuna sækja
helstu sérfræðingar á sviði næring-
ar- og matvælafræði frá Evrópu og
Bandaríkjunum. Ráðstefnustjóri
verður dr. Jón Óttar Ragnarsson.
Kelloggstofnunin hefur á und-
anfömum árum veitt styrki til
uppbyggingar fæðurannsókna í
landbúnaði og til eflingar samvinnu
um uppbyggingu á matvælafræði-
námi við Háskóla Islands. Þessir
styrkir hafa stuðlað að aukinni
menntun á sviði matvælafræði í
landinu og breytt allri aðstöðu við
rannsóknir og aðra þekkingaröflun
í næringarfræði og matvælavinnslu
í landbúnaði, segir í frétt frá RALA.
Fleiri aðilar svo sem Framleiðsluráð
landbúnaðarins og Framleiðnisjóð-
ur landbúnaðarins hafa einnig tekið
þátt í þessari uppbyggingu með
styrkveitingum til fæðudeildar
RALA.
Bifreið valt i hörðum árekstri á mótum Stekkjarbakka og Álfabakka
í gær. Algengt er að árekstrar verði á þessum gatnamótum.
Valt á hliðina
eftir árekstur
TVEIR árekstrar urðu á mótum
Stekkjarbakka og Álfabakka í
gær.
Fyrri áreksturinn varð fyrir há-
degi. Þá skullu tveir bílar svo
harkalega saman að annar þeirra
valt á hliðina og varð að draga
hann af vettvangi. Engin meiðsli
urðu á fólki. Um kvöldmatarleytið
varð aftur árekstur á sömu gatna-
mótum, en aftur slapp fólkið með
skrekkinn og án meiðsla.
Mjög algengt er að árekstrar
verði á þessum gatnamótum, en
stöðvunarskylda er á þá ökumenn
sem aka eftir Stekkjarbakka. Á
sunnudagskvöld varð einhver mis-
brestur á því að ökumaður virti þá
skyldu og skullu þá tveir bílar sam-
an. Þeir skemmdust báðir mikið,
en meiðsli á fólki voru lítil.