Morgunblaðið - 27.11.1986, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Gmnnskólinn á Kópaskeri:
Tilraun til að
nálgast anda
gnmnskólalaganna
- segir Pétur Þorsteinsson skólastjóri
Þ AÐ er myrkur, enda er sólin ekki
komin á fætur frekar en aðrir. Klukk-
an er rúmlega sex að morgni og
blaðamaður staddur í litlum japönsk-
um bíl á leið frá Akureyri norður á
Melrakkasléttu. Ferðinni er heitið á
fámennan stað skammt suður undan
heimskautsbaug, Kópasker, þar sem
búa um 200 íbúar. Þar er skóli sem
einnig er mjög fámennur, nemendur
ekki nema 31, en það er einmitt þessi
skóli sem er þess valdandi að ferðinni
er heitið svo að segja á hjara verald-
ar. Á Kópaskeri er að sögn Harðar
Lárussonar í Menntamálaráðuneytinu
einn helsti tilraunaskóli landsins.
„Þetta er sérkennilegt hús og
þrælágætt." Pétur Þorsteinson
skólastjóri grunnskólans á Kópa-
skeri tekur á móti blaðamanni og
sýnir honum húsakynni skólans
sem teiknuð eru af dr. Magga
Jónssyni, skólahúsnæðið er þrý-
hymt. Hann telur húsnæðið nýtast
mjög vel, homin ekki síður en
aðrir hlutar, og segir að eina
ástæða þess að fólki finnist þetta
skrýtið sé sú að menn séu vanir
ferhymdum húsum. En það er ein-
mitt þessi vanahugsun sem Pétur
er þekktur fyrir að reyna að bijóta
upp innan veggja skólans, svo
segja má að það sé vel við hæfí
að hann sé í svona „skrýtnu" húsi.
Hugmyndir Péturs um skólann
eru ólíkar því sem flestir þekkja.
„Það má segja að við séum hér
að gera tilraun til að nálgast anda
grunnskólalaganna" segir hann
þar sem hann situr inni í skóla-
stjóraherberginu, eina herberginu
sem ekki er reyídaust, að lokinni
skoðunarferð um húsið. Hann seg-
ir að það hljóti að vera möguleiki
að sinna hveijum nemenda á þann
hátt sem kveður á í 2. grein lag-
anna, en eflaust verra að eiga við
þetta í stærri skólum. Kennarar
við skólann eru fímm, þrír í fullu
starfí og tveir kenna hlut úr degi.
„Við höfum 108 kennslutíma til
ráðstöfunar og skiptum þeim á
milli okkar" segir hann. Sem
stendur veit hann ekki hvort hann
fái launin sín útborguð um næstu
mánaðarmót, því hann sér í vetur
um sérkennslu, en sérkennslan var
skorin niður í haust.
„Málið á sér iangan aðdrag-
anda, við fengum hingað sér-
kennslufulltrúa s.l. vor og hann
mat þá þörf sem við höfum fyrir
sérkennslu, en það reyndust vera
30 stundir á viku. Tímafjöldinn
var skorinn niður í 6 stundir í
haust, en ég var þá búinn að ráða
kennara í starfíð. Ég ákvað þá að
„Held að skóla-
leiði sé ekki
útbreytt vanda-
mál hjá okkur “
kenna þetta sjálfur og hugsaði sem
svo að ef ég væri læknir með sjúkl-
ing myndi ég reyna að neita allra
bragða til að lækna hann. Það var
ekki hægt að bjóða kennurum upp
Þóra Pétursdóttir heitir þessi önnum kafna 11 ára stúlka sem sagði
að allt væri skemmtilegt í skólanum.
Skólastjórinn leiðbeinir í tölvunáminu. í horninu til hægri má sjá
teikniforrit af bíl sem einn nemandinn var að vinna.
á að vinna kauplaust, svo ég ák-
vað að taka þetta að mér og
athuga hvað gerðist."
Grunnskólinn á Kópaskeri er
svokallaður opinn skóli, húsið er
opnað klukkan átta á morgnanna
og lokað 7 á kvöldin. Kennsla
hefst klukkan níu og er lokið um
hálf fjögur á daginn. Nemendur
geta þó verið í skólanum allan
þann tíma sem skólahúsnæðið er
„Sumir segja að
skólinn útskrifi
ekkertannað en
ólæsa lista-
menn“
opið, geta komið klukkan átta og
farið klukkan sjö og ef þeir þurfa
að gera eithvað á kvöldin er alltaf
hægt að fá lykil hjá Pétri. Hann
segir þau ganga vel um húsnæðið
og ekki síður vel á þeim tíma sem
enginn er þar nema þau. A hveij-
um degi að loknum skólatíma eru
þau ábyrg fyrir tiltekt á ákveðnum
svæðum hússins, sem er skipt nið-
ur á nokkra hópa.
Réttindalausasti skól-
inn á landinu?
Kennsla er að hefjast þennan
mánudagsmorgun. Kennaramir
sitja inni á kennarastofunni og
skipta með sér verkum. Þetta er
sjöunda ár Péturs sem skólastjóri
á staðnum, en hann hefur kennt
í 14 ár og verið skólastjóri megnið
af tímanum, fyrst var hann í
Grímsey. Kennaramir eru flestir
búnir að vera lengi við skólann,
tveir nýir komu þó í haust þar sem
einn kennarinn var að hætta eftir
margra ára starf og þennan dag
er hann einmitt að kveðja nemend-
ur.
„Kennslan fór fyrst fram í
gömlu húsi skammt utan við þorp-
ið“ segir Pétur, „en fluttist í þetta
húsnæði fyrir fímm árum.“ Pétur
er ekki með kennsluréttindi og
enginn kennaranna við skólann.
„Ég vona að þetta sé réttinda-
lausasti skólinn á landinu" segir
hann, og er hann er spurður hvort
það skjóti ekki skökku við að einn
aðaltilraunaskóli landsins skuli
skipaður réttindalausu fólki svarar
hann því til að skólinn væri ef til
vill alls ekki svona eins og hann
er ef kennaramir væm með kenn-
araréttindi. „Við höfum pijónað
þessa leið sjálf sem við notum hér
í skólanum, en fólkið sem kennir
hér hefur allt mikla reynslu og
margskonar menntun." Sjálfur
segist hann hafa lesið eina bók,
Summerhillskólann, áður en hann
varð skólastjóri í Grímsey, en þar
var hann fyrir 14 árum. „Ég ætl-
aði í fyrstu að hafa stundatöflu
og hringja út eins og tíðkast í
venjulegum skólum, því þannig
voru þær hugmyndir sem ég hafði
um skólann. Ég sá þó fljótt að það
átti ekki við á þessum stað, og sá
tími sem ég var í Grímsey lagði
að nokkm undirstöðuna að því
starfi sem ég hef unnið hér.“
í skólanum em þijár deildir
þumlungadeild, miðlungadeild og
öldungadeild. í þumlungadeild em
krakkar á aldrinum 6-8 ára, hinar
deildimar em saman í vetur og í
þeim em böm á aldrinum 9-12
ára. Skólavikan hefst á miðviku-
dögum en þá fá bömin dagbækur
fyrir næstu viku og gera vinnu-
samning um hvað þau ætli að
gera þá vikuna. í lok samnings-
tímabilsins metur nemandinn
hvernig til hafí tekist með kennur-
um og gerir sér grein fyrir ýmsu,
svo sem hvað hafí verið skemmti-
legast í vikunni, hvað leiðinlegast,
í hveiju hann þurfí að herða sig
o.s.frv. Námið byggist upp á
sjálfsnámi, hver og einn er á þeim
námshraða sem honum er eðlileg-
ur, en sameiginlegir tímar em í
nokkmm greinum svo sem tungu-
málum, tölvu, smíðum, eðlisfræði
og handavinnu.
Ýmsar sögusagnir hafa spunn-
ist um þennan skóla, meðal annars
að krökkunum fínnist svo gaman
í skólanum að þau vilji helst vera
í skólanum allan sólarhringinn.
Og ekki er annað að sjá en bömin
séu mjög áhugasöm, í tölvutíman-
um er t.d. einn 10 ára að búa til
teikniforrit til að teikna bíl og
annar jafnaldri hans að skrifa inn
á tölvuna fmmsamda sögu sem
hann hefur ritað í stílabók og
myndskreytt með miklum glæsi-
brag. Pétur er spurður hvað hæft
sé í þessum sögum. „Það ei* rétt,
það tekur oft langan tíma að telja
þau á að fara heim í hádeginu og
þegar við kennararnir emm á leið
í mat em þau sem fóru fyrst að
„Heffarið
nokkrum sinn-
um ípílagríms-
ferðir til
Bretlands“
koma aftur í skólann. Ég held að
skólaleiði sé ekki mjög útbreitt
vandamál hjá okkur. En við höfum
líka orðið vör við ýmsa fordóma,
sumir segja að skólinn útskrifí
ekkert nema ólæsa listamenn."
Sextán þúsund titlar
Fimm ár em síðan skólinn tók
til starfa í þrýhymda húsinu en
áður var hann til húsa í gömlu
húsi skammt fyrir utan þorpið.
Þar hefur nú verið komið upp veg-
legu bókasafni sem sameinað var
úr bókakosti þriggja lestrarfélaga,
Lestrarfélagi Utbæinga Austur-
sléttu, Vestursléttunga og Núps-
sveitunga, en auk þess gáfu þau
Helgi Kristjánsson og Andrea
Jónsdóttir í Leirhöfn safn sitt árið
1952. Mikil vinna hefur verið lögð
í að skipuleggja safnið, en um það
sáu þær Kristín H. Pétursdóttir
og Andrea Jóhannsdóttir. í safn-
inu em um 16000 titlar, það er
opið tvisvar í viku, en safnið er í
umsjón Helgu Helgadóttur og góð
þjónusta við fróðleiksfúsa nem-
endur í skólanum sem aðra íbúa
á Kópaskeri.
En skólinn fluttti í nýtt hús-
næði fyrir fímm ámm, og vantaði
þá ýmis kennslugögn. Nemendur
og kennarar tóku höndum saman
og ákváðu að safna fyrir tækjum.
Þorpsbúar vom hjálplegir og §ár-
ins var aflað með því að rækjubát-
ur fór á veiðar eftir að hafa veitt
upp í kvótann og gaf skólanum
aflann. Rækjuvinnslann vann
rækjumar ókeypis og þær voru
svo seldar, en ágóðinn um 350
þúsund krónur fóm í tækjakaup
til skólans. Þetta var svo endurtek-
ið næsta ár og á þennan hátt hefur
skólinn eignast öll tækin í smíða-
stofunni og fúllkominn tölvubún-
að. „Þetta er miklu árangursríkara
en kaffísala," segir Pétur og bros-
ir út í annað. í dag hefur skólinn
þvi yfír að ráða ágætum tækjum,
og nemendumir em óðum að til-
einka sér tölvutæknina, búa til
forrit á tölvumálinu Logo. Pétur
sér um tölvukennsluna og er
greinilega mjög áhugasamur um
þess tækni, þennan dag sem blaða-
maður staldrar við í skólanum er
-----------------------------'mJr
Skólabjöllunni hringt til leiks klukkan 9 um morguninn.
|