Morgunblaðið - 27.11.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Tekjuskattur
einstaklinga
eftirBjörn Björnsson
Tekjuskattur einstaklinga er að
líkindum umtalaðasti og óvinsælasti
tekjustofn ríkisins. Umtalið og fyr-
irhöfnin við skattinn er tvímæla-
laust í öfugu hlutfalli við þýðingu
skattsins fyrir það opinbera. Þegar
af þessari ástæðu væri löngu tíma-
bært að taka þennan skatt og þá
um leið aðra beina skatta til ræki-
legrar umQöllunar og endurskoðun-
ar. Einnig er ljóst, að víða um lönd
hefur að undanfömu átt sér stað
mikil umræða um tekjuskattinn.
Ljóst er að ýmsir þættir þeirrar
umræðu eru nánast alþjóðlegir.
Tekjuskattskerfið var til þess
búið að stuðla að jöfnuði meðal
launamanna. Undandráttur og und-
anþágur hafa beyglað þetta kerfi
svo mjög að engu tali tekur. Þeir
sem hæstar hafa tekjumar nýta sér
götin í kerfínu. Þeir sem hafa að-
stöðu til þess að svíkja em líka
þeir sem ætlað er að bera þyngstu
skattana. Dæmi um þetta em bif-
reiðastyrkir og bifreiðahlunnindi. A
framtölum í ár em þessir liðir á
annan milljarð króna. Að stærstum
hluta er hér um hreinan undandrátt
að ræða. Réttlætið hefur þannig
snúist í argasta óréttlæti. Þær
umræður sem urðu í kjölfar álagn-
ingar tekjuskatts nú í sumar
endurspegla þá djúpstæðu óánægju
sem ríkir með tekjuskattskerfíð.
Hvemig eigum við að breyta því?
Skattakerfið á að vera einfalt.
Það er forsenda skattasiðgæðis,
sem kannski er svo dautt að ekki
takist að blása lífí í. Núverandi
kerfí er þannig upp byggt, að eitt
prósent þjóðarinnar skilur það og
hálft prósent hefur atvinnu af því
að segja hinum 99 prósentunum
hvað í því felist. Þessu skulum við
breyta og helst gera þannig úr
garði, að hvert barn geti skilið.
Þetta er hægt að gera með einföldu
staðgreiðslukerfí, jafnvel þannig að
ekki verði nauðsynlegt fyrir launa-
fólk að telja fram. Til þess að þetta
sé mögulegt verður að grisja undan-
þágu- og frádráttarfmmskóginn,
meginreglan verður að vera að frá-
dráttarliðir falli niður.
í stað fmmskógarins eiga að
koma skattaafslættir, sem verða að
vera sem fæstir, en fjóra má nefna:
1. Almennur afsláttur, að stærst-
um hluta millifæranlegur til
maka, nýti hann ekki eigin frá-
drátt.
2. Afsláttur vegna bama.
3. Húsnæðisafsláttur.
4. Sjómannaafsláttur.
í stað skattstigans er að líkindum
hægt að kómast af með eitt skatt-
hlutfall. Forsenda þess er að nýr
tekjuskattur sameini í einum skatti
núverandi tekjuskatt, útsvar,
sjúkratryggingargjald, kirkjugarðs-
gjald, sóknargjald og framlag til
Framkvæmdasjóðs aldraðra.
í nýjum skattalögum og/eða í
lögum um tekjustofna sveitarfélaga
verður að kveða á um skiptingu
skattsins milli ríkis og sveitarfélaga
og á önnur þau verkefni, sem núver-
andi skattar standa undir. Þau
sveitarfélög, sem ekki kjósa að nýta
sér að fullu sinn hluta skattsins,
hafa ótal möguleika á að skila þegn-
Björn Björnsson
unum til baka því sem er umfram
álagningarþörf.
En getur verið að þetta sé hægt?
Gengur dæmið upp? Já, það gerir
það. Við getum rætt kerfí af þessu
tagi alveg burt séð frá því hvort
við teljum að beinir skattar eigi að
lækka mikið, litið eða ekki neitt.
Málið er svo einfalt, að núverandi
kerfí með öllum þess flækjum skilar
okkur engu umfram það, sem ekki
er hægt að ná með miklu einfald-
ara kerfí.
Tökum dæmi. Ef við skoðum ein-
stakling sem einungis nýtur
almenns afsláttar og gefum okkur
eftirfarandi forsendur:
Skattahlutfall = 40%. Almennur
afsláttur kr. 12.000 á mánuði.
Niðurstaðan, m.v. almennar
tekjubreytingar frá 1985 til miðs
árs í ár er eftirfarandi, í þús. króna.
Mánaðar- fekjur í Áætl. gjöld ámán. Nýr Skatta- lækkun
júli '86 1986 skattur ámán.
20 0,0 0,0 0,0
30 2,3 0,0 2,3
50 8,8 8,0 0,8
100 28,5 28,0 0,5
Einfaldi skatturinn þýðir hækkun
skattleysismarka sem verður að
vera eitt markmiðanna með breyt-
ingunni. Um miðjan og efri hluta
tekjustigans er breytingin lítil sem
engin. Einfaldar forsendur skila
nánast sömu niðurstöðu og það
margflókna kerfi sem við búum við
í dag.
Auðvitað verða ekki allir endar
hnýttir fastir í stuttu máli um þetta
efni. Aðalatriðin sem stefna á að
eru einföldun og staðgreiðsla.
Ástæðan fyrir því að við höfum
ekki fengið staðgreiðslukerfi, eftir
áratuga viðleitni, er að menn hafa
leitast við að yfírfæra flókið eftirá-
greiðslukerfi yfír í staðgreiðslu.
Þetta er ekki hægt.
Verkalýðshreyfíngin á að taka
frumkvæðið að upptöku einfalds
staðgreiðslukerfis skatta. Áhuginn
á því nær tvímælalaust langt út
fyrir hennar raðir. Við getum leitað
liðsinnis um þetta þrifnaðarmál alls
staðar í þjóðfélaginu.
Spurningin er sú hvort stjórn-
málamenn þekki sinn vitjunartíma
í þessu efni.
Goð o g hetj-
ur í heiðn-
um sið
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur hf. hefur gefið út bókina Goð
og hetjur í heiðnum sið, en eins
og segir í undirtitli bókarinnar
er hér um að ræða fornan
islenskan menningararf. Höf-
undur bókarinnar er Anders
Bæksted en þýðandi Eysteinn
Þorvaldsson lektor.
í frétt frá útgefanda segir: „Bók-
in Goð og hetjur í heiðnum sið er
stærsta og vandaðasta rit um goð-
sögur og hetjusögur sem komið
hefur út á íslensku. Hér er brugðið
upp skýrum myndum af heiðnum
átrúnaði og stórbrotinni veröld goð-
sagnanna. Jafnframt er sýnt fram
á hvernig hin heiðnu lífsviðhorf birt-
ast ljóslifandi í hetjum forsagnanna,
einkalífí þeirra, framgöngu og ör-
lögum. Raktar eru helstu goðsögur
norræna manna og sagt frá hlut-
verki þeirra í daglegu lífí forfeðra
okkar. Einnig eru hér endursagðar
norrænar hetjusögur miðalda sem
byggja á ævagömlum sagnaarfi þar
sem hin fomu goð eru jafnan í
námunda við róstusamt mannlíf.
Bókin er ríkulega myndskreytt
og í rauninni listaverkabók á sínu
sviði. Þar á meðal er fjöldi litmynda
úr íslenskum handritum.
Þýðandinn segir í formála sínum
Harmaminn-
ing Leonóru
Kristínar
MÁL OG menning hefur sent frá
sér Harmaminningu Leonóru
Kristínar í Blátumi i þýðingu
Björns Th. Björnssonar.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „Leonóra Kristín var dóttir
Kristjáns IV. Danakonungs og eig-
inkona Korfítz Ulfeldt greifa. Hún
var dæmd til fangavistar í Blá-
tumi, þeirri illræmdu prísund í miðri
Konungshöllinni í Kaupmannahöfn
sem margir íslendingar urðu líka
að gista, fyrir drottinsvik og sat
þar í meira en tvo áratugi. Meðan
hún dvaldi í fangelsinu ritaði hún
Harmaminningu, þar sem hún segir
frá meinlegum örlögum sínum,
jafnframt því sem hún lýsir á áhrif-
amikinn hátt lífí sínu í fangelsinu,
meðföngum sínum og samskiptum
við yfírvöld. 1685 veitti Kristján
V. henni loks frelsi, og hún lauk
ævi sinni í Maribo-klaustri 13 árum
síðar. Handrit hennar að Harma-
minningu var gleymt og grafíð í
hartnær tvær aldir, en eftir að það
fannst aftur og var gefíð út í Dan-
mörku 1869, hefur það komið út æ
Tæknilega ætti ekkert að vera
því til fyrirstöðu að taka upp nýtt
skattakerfi þegar um mitt næsta
ár. Hægt er að hugsa sér að fyrir-
framgreiðsla skatta fari fram skv.
gildandi kerfí, en nýja kerfið taki
við á miðju ári. Skattar ársins 1987
yrðu síðan endanlega gerðir upp
skv. framtali á árinu 1988.
Samtímis endurskoðun tekju-
skattsins geta aðrir þættir skatta-
mála komið til uppskurðar og nýju
kerfí verður líka að fylgja virkt og
stóreflt skattaeftirlit. Starfsmenn
skattyfirvalda, sem nú vinna baki
brotnu við að elta uppi tittlingaskít
hjá launafólki eru miklu betur
komnir í eftirlit með skattskilum
fyrirtækja og einstaklinga í at-
vinnurekstri. Skattsvikurum á að
refsa með fjársektum, sviptingu
atvinnu-, iðnaðar-, og verslunar-
leyfa eftir atvikum og gróf brot á
að fara með sem hreinan fjárdrátt,
setja menn í tugthús fyrir og láta
þá greiða fyrir gistingu.
Höfundur er hagfræðingur Al-
þýðusambands Islands.
AflOtRS SÆKSTeO
QOÐ HETJUR
í HEIÐMUM 5IÐ
UndirstöðuverH um foman
íslenshan menningararf
Alþýðtegt fraeðmt um goð«- og he^usögur
m.a.: Bæksted var gjörkunnugur
norrænni menningu og ekki síst
íslenskum fombókmenntum enda
metur hann þær mikils og þær eru
ein helst undirstaða þessa verks.
Þetta er ítarlegasta rit sem komið
hefur út á íslensku, bók sem tengir
svo skýrlega saman fræðslu um
heiðinn átrúnað og heiðin lífsvið-
horf sem birtast í fornum, norræn-
um hetjusögum. Mörkin milli
goðsagna og hetjusagna eru oft
óljós og stundum hefur blandast
efni milli þeirra.“
Bókin Goð og hetjur í heiðnum
sið er sett og prentuð í prentstofu
G. Benediktssonar og bundin í Am-
arfelli hf. Kápu hannaði Sigurþór
Jakobsson.
ofan í æ og verið þýtt á fjölmörg
tungumál."
Auk þess að þýða verkið ritar
Bjöm Th. Bjömsson að því söguleg-
an inngang og hann hefur einnig
útbúið _ skýringar sem verkinu
fylgja. í bókinni eru jafnframt hart-
nær fjörutíu myndir frá samtíma
höfundar, sem fengnar em að láni
úr dönskum söfnum. Harmaminn-
ing Leonóru Kristínar er 340 bls.
að stærð, unnin í Prentsmiðjunni
Odda hf. Hilmar Þ. Helgason gerði
kápu.