Morgunblaðið - 27.11.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfuultrúar Sjálfstœðlsflokksins
verða til viðtals í Valhöll Háaleitis-
breut 1, á laugardögum frá kl. 10-12.
Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
spurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfœra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 29. nóvember verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir formaður atvinnumálanefnd-
ar, Guðmundur Hallvarösson formaður hafnarstjórnar og Ingólfur Sveinsson í stjórn heilbrigðisráðs
og Sjúkrasamlags Reykjavíkur.
meiriháttar
/TIGB.
BRUNSLEDI
tryllitæki!
með stýri og öryggisbremsum og þú
getur sveigt, beygt og bremsað að vild. Stiga
brunsleðinn er níðsterkur: Hann ber jafnt börn
sem fullorðna.
Með stýrisskfðinu nærðu krappri beygju. örugg handbremsa við
Skíðin eru úr þrælsterku Etan-piasti og allar aðstæður og varn-
renna þvi mjög vel. argrind fyrir framan
fæturna.
Með sérhönnuðum útbúnaði
sveigir sleðinn til hliðar og
stöðvast sjálfkrafa ef þú missir
hann.
ÖRNINN
Spítalastíg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888
Frá Barnaspítala Hringsins
Kvenfélagið Hringnrinn
með kaffisölu og happ-
drætti á Broadway
eftir VikingH.
Amórsson
Mig langar til að vekja athygli á
kaffísölu og happdrætti Hrings-
kvenna á Broadway nk. laugardag
29. nóvember kl. 1—5. Venjulega
hafa þessar kaffiveislur Hringsins
verið haldnar 1. sunnudag í aðventu
en af sérstökum ástæðum varð nú
að breyta til.
Hringskonur hafa látið sig mál-
efni bama miklu varða allt frá því
að þær einsettu sér í kringum 1940
að koma upp bamaspítala í
Reykjavík. Raunar kemur sérstök
umhyggja fyrir bömum fram í
starfsemi félagsins allt frá stofnun
þess 1904. Konumar hafa leitað
ýmissa leiða til fjáröflunar, s.s. með
skemmtisamkomum, merkjasölu,
bösurum, útgáfu jólakorta o.s.frv.,
og til margra ára hafa þær í bytjun
aðventu boðið upp á kaffi og glæsi-
legt happdrætti eins og nú er gert.
Desemberkaffí Hringskvenna hefur
alla tíð verið rómað mjög enda
meðlætið ekki af verri endanum.
Allan undirbúning, bakstur og til-
reiðslu óteljandi brauðterta og
krása annast þær eigin hendi og
ganga sjálfar um beina.
En hvað gera þær við alla þá
peninga sem inn koma? Það er eðli-
legt að spurt sé og að fólk sem
styrkir félagsskapinn vilji verða
nokkurs vísari.
Bamadeild Landspítalans, sem
kennd er við Hringinn og varð til
árið 1957 beinlínis að tilstuðlan
þessa félagsskapar, hefur á hvetju
ári er mér óhætt að segja notið
aðstoðar hans til kaupa á ýmsum
nauðsynjum til starfsemi sinnar s.s.
lækningatækjum, húsbúnaði, leik-
föngum o.fl., sem hún hefði ella
orðið að vera án vegna fjárhagsörð-
ugleika ríkisspítalanna. Sem dæmi
má nefna að á því ári sem nú er
að líða hefur Hringurinn lagt út til
Bamaspítalans kr. 1168.000 til
kaupa á lækningatækjum, að þessu
sinni fyrst og fremst til gjörgæslu
nýbura á vökudeild. Öll þessi tæki
em dýr en ganga úr sér við mikla
notkun og þurfa því sífelldrar end-
umýjunar við. Til viðbótar þessu
veittu þær kr. 284.000 á móti fram-
lagi frá Rauða krossi íslands og
Krabbameinsfélaginu til kaupa á
lítilli íbúð í nágrenni spítalans. Þessi
íbúð er ætluð til skammtíma dvalar
aðstandendum veikra bama, venju-
legast utan af landi, sem ekki eiga
annars staðar athvarf.
Hringskonur hafa komið víðar
við og miðlað öðrum stofnunum af
söfnunarfé sínu, venjulega til kaupa
á lækningatækjum eða húsbúnaði.
Má þar til nefna geðdeild Bamaspít-
ala Hringsins, barnadeild Landa-
kotsspítala og Borgarspítalann.
Það er ótrúlegt hvað konumar
leggja mikið á sig til að afla ijár
fyrir góðgerðarstarfsemi sína og
þær verðskulda vissulega að við
sinnum kalli þeirra. Því hvet ég
unga sem aldna að koma í kaffí til
þeirra á Broadway á laugardaginn.
Góðir happdrættisvinningar ættu
ekki að spilla fyrir. Og því má ör-
ugglega treysta að þeim peningum
sem þar safnast verður varið til
nytsamlegra hluta og ekki á glæ
kastað.
Höfundur er forstöðumaður
Bamaspítala Hringsins.
Síldarréttir:
Norskt fyrirtæki stofnað
um sölu íslenskra matvæla
FYRIRTÆKIÐ Síldarréttir í
Kópavogi, sem er í eigu Egils
Thorarensen, stendur nú í við-
ræðum við norska fyrirtækið
Arctic Quality products um sölu
á sUdarréttum, harðfiski og öðr-
um islenskum matvælum. Arctic,
sem er nýstofnað og að hluta til
í eigu íslendinga, hyggst einbeita
sér að þvi að selja rétti frá ís-
iandi, sem neytendavörur og til
veitingahúsa, sjúkrahúsa og
mötuneyta. Að sögn Egils er óvíst
um hversu mikið magn verður
að ræða.
Norðmennimir hafa áhuga á því
að selja sfld í pækli í umbúðum
merktum Sfldarréttum. Harðfiskinn
hyggjast þeir selja í bitum, pakkað-
an í dósir sem „snakk", eins og
salthnetur eða kartöfluflögur. Að
sögn Egils hefur lausleg könnun
hér á landi leitt í ljós að mikill áhugi
er hjá fískframleiðendum á þessum
útflutningi. Eftirspum innanlands
eftir harðfiski er hinsvegar það
mikil að óvíst er hvort takist að
anna eftirspum. Verðið sem Arctic
bíður er sambærilegt við það sem
tíðkast á innanlandsmarkaði.
„Að Arctic standa fagmenn úr
hótelrekstri og sérfræðingar í mat-
vælaiðnaði. Með því teljum við
okkur hafa nokkra tryggingu fyrir
öruggri markaðssetningu," sagði
Egill. „Hugmyndin er að þreifa fyr-
ir sér með þessum fiskréttum, en
bæta fleiri islenskum vörum við.
Þar mætti til dæmis nefna hangi-
kjöt, sem lítið hefur verið selt af
til útlanda, ekki síst vegna strangs
heilbrigðiseftirlits."