Morgunblaðið - 27.11.1986, Síða 32
32
MORGUNBLASIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Leiðtogafundurinn í Reykjavík:
Tillaga Reagans forseta
var ekki könnuð til hlítar
- að sögn forseta herráðsins
Washington, Reuter, AP.
YFIRMENN herafla Banda-
rikjanna könnuðu ekki til hlitar
tillögu þá sem Ronald Reagan
Bandarikjaforseti lagði fram á
Reykjavíkurfundinum um að öll-
um langdrægum kjamorku-
flaugum skyldi útrýmt innan tiu
ára, að því er William Crove,
aðmiráll, forseti herráðs Banda-
ríkjanna, sagði í gær. Kvaðst
hann jafnframt hafa lýst yfir
áhyggjum sínum vegna tillög-
unnar á fundi öryggisráðsins,
sem haldinn var skömmu eftir
að viðræðum leiðtoganna lauk.
Crowe lét þessi orð falla er hann
svaraði spumingum hermálanefnd-
ar öldungadeildarinnar í gær.
Nefndinni er m.a. ætlað að fjalla
um stefiiu Bandaríkjastjómar í af-
Suður-Afríka:
Playtex
hættir
Jóhannesarborg, AP.
BANDARÍSKA fyrirtækið Play-
tex, sem er stórframleiðandi á
nærfatnaði, hefur selt dótturfyr-
irtæki sitt í Suður-Afríku til
inniendra aðila þar i Iandi. Fram-
leiðslu á vöram fyrirtækisins
verður þó haldið áfram i Dur-
ban. Var þetta haft eftir Bill
Quinn, talsmanni hins nýja
fyrirwtækis i gær.
„Fyrirtæki okkar hefur verið breytt
frá því að vera útibú í eigu Playtex,
í verksmiðjfyrirtæki, sem verður
alfarið í eigu innlendra aðila í Suð-
ur-Afríku,“ sagði Quinn.
ERLENT
vopnunarmálum. Crowe kvað
herráðið hafa samþykkt að stefna
skyldi að eyðingu langdrægra
kjamorkuflauga innan ótilgreinds
tíma. Því hefði það komið yfirmönn-
um heraflans á óvart þegar tillaga
Reagans var gerð opinber því þeim
hefði ekki verið falið að kanna hana.
Að sögn Crowes er nú unnið að
því rannsaka hvaða áhrif útrýming
langdrægra flauga muni hafa á
ógnaijafnvægið og munu niðurstöð-
ur liggja fyrir í janúar á næsta ári.
í herráðinu sitja yfirmenn landhers,
flughers og flota Bandaríkjamanna.
Crowe kvaðst jafnframt vilja
geta þess að fulltrúi herráðsins
hefði tekið þátt í fundahöldunum í
Reylgavík og lagði áherslu á að
enginn forseti hefði sýnt sjónarmið-
um herráðsins jafnmikinn skilning
og Ronald Reagan.
Norðmenn eyðslu-
glaðir á jólunum
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgungfiladsms.
NORÐMENN eru góðir við sjálfa sig þegar nær dregur jólum. Að
meðaltali eyða Norðmenn 19,6 mil^jörðum norskra króna (um hundr-
að milljörðum ísl. kr.) í neysluvarning í desembermánuði.
í skýrslu frá tölfræðistofnun þó hæst mat, drykk, fot og leikföng.
norska ríkisins segir að Norðmenn Tölur sýna áð „vísitölufjölskyld-
verji um 400 milljónum króna meira an“ eyðir 12.922 norskum krónum
í desember en aðra mánuði ársins. í gjafír og sjálfa sig í desember.
Sala eykst á velflestum vörutegund- Það er 2.700 krónum meira en venja
um í jólamánuðinum, en þar ber er.
P Ö S TS O G S í M AMÁLAÍT O E N U N I N
LÝSINGA
Undirbúningur vegna prentunar
á næstu símaskrá stenduryfir.
Gögn varðandi pantanirá auglýs-
ingum hafa verið send flestum
fyrirtækjum landsins. Þau fást
einnig á póst- og símstöðvunum.
Vinsamlega athugið að allar
pantanir, endurpantanir eða af-
pantanir eiga að vera skriflegar
og hafa borist ísíðasta lagi um
mánaðamótin nóvember—des-
ember 1986.
ALLAR NÁNARIUPPL ÝSINGAR
MEÐPÓSTIEÐA ÍSÍMA.
SÍMASKRÁIN — AUGLÝSINGAR
PÓSTHÓLF 31 1 — 121 REYKJAVÍK SÍMI 91-29140
Líkan af Treblinka-útrýmingarbúðunum.
AP/Símamynd
Stríðsglæparéttarhöldin í ísrael:
Ég er ekki
Ivan grimmi
- hrópaði Demjanjuk fram í réttarsalinn
Jerúsalem, AP, Reuter.
JOHN Demjanjuk, sem nú er fyr-
ir rétti í ísrael sakaður um
stríðsglæpi, neitaði þvi í gær, að
hann væri fangabúðavörðurinn
ívan grimmi, sem myrt hefði
hundruð þúsunda gyðinga. Demj-
anjuk, sem er af úkraínskum
ættum, settist að í Bandaríkjun-
um eftir strið en var sviptur
borgararéttindum og framseldur
til Israels.
„Ég skil ákærana og veit, að þið
viljið hengja mig en ég er ekki ívan
grimmi," hrópaði Demjanjuk á
úkraínsku fram í réttarsalinn, sem
var troðfullur af fólki. Málflutning-
urinn fór ffarn á ensku og hebresku
en þótt Demjanjuk hafi dvalist í
Bandaríkjunum í áratugi er hann
illa mæltur á aðra tungu en móður-
málið. Virtist hann því eiga erfítt
með að skilja það, sem fram fór.
Málinu var síðan frestað fram til
19. janúar en þá mun verjandi
Demjanjuks, Bandaríkjamaðurinn
Mark O’Connor, leggja fram gögn
til stuðnings því, að Demjanjuk sé
ekki sá illræmdi hrotti, sem kallað-
ur var ívan grimmi í Treblinka-
útrýmingarbúðunum í Póllandi.
O’Connor heldur því fram, að ívan
grimmi hafi verið drepinn árið 1943
þegar fangamir í Treblinka-búðun-
um gerðu uppreisn.
Réttarhöldin yfir Demjanjuk era
fyrstu stríðsglæparéttarhöldin í
John Demjanjuk í han^járaum.
ísrael í 25 ár eða síðan Adolf Eich-
mann var dæmdur til dauða fyrir
að hafa skipulagt útrýmingu sex
milljóna gyðinga. Ákæran á hendur
Demjanjuk er reist á framburði átta
manna, fyrram fanga í Treblinka,
sem segja, að Demjanjuk og ívan
grimmi séu einn og sami maðurinn.
Þeir era þó margir, sem telja, að
erfitt geti orðið að sanna þessa full-
yrðingu því að rúmlega 40 ár eru
liðin síðan vitnin sáu manninn, sem
kallaður var ívan grimmi.
Hryðjuverkamenn dæmdir í Berlín:
Bróðir annars þeirra
stóð fyrir tilræðinu
Lýst eftir sýrlenskum embættismanni
Berlin, AP, Reuter.
TVEIR palestínumenn voru í gær fundnir sekir um að hafa komið
fyrir sprengju f höfuðstöðvum Þýsk-Arabíska-vináttufélagsins f
Berlin. Jafnframt var gefin út alþjóðleg handtökutilskipun á hendur
sýrlenskum embættismanni, sem sagður er hafa útvegað mönnunum
tveimur sprengiefnið.
Ahmed Nawar Hasi var dæmdur
í 14 ára fangelsi og félagi hans
Farouk Salameh í 13 ára fangelsi.
Mennirnir játuðu að hafa staðið að
baki sprengjutilræðinu 29. mars
sfðastliðinn. Kváðust þeir hafa
fengið sprengiefnið frá sýrlenskum
embættismanni f Austur-Þýska-
landi. Níu manns særðust f spreng-
ingunni.
I máli ákæravaldsins kom fram
að Jórdaníumaðurinn Nezar
Hindawi, bróðir Hasis, hefði skipu-
lagt tilráeðið en hann var nýlega
dæmdur til fangelsisvistar í Bret-
landi fyrir að hafa reynt að koma
sprengju um borð í ísraelska far-
þegaflugvél í London. Einnig kom
fram að Hindawi hefði reynt að
byggja upp hreyfingu hryðjuverka-
manna og leitað liðsinnis Líbýu-
stjómar en þeirri bón hefði verið
hafnað. Þá mun hann hafa snúið
sér til Sýrlendinga. Verjendur
mannanna tveggja lögðu áherslu á
þátt Hindawis og sögðu skjólstæð-
inga sína ekki vera þjálfaða hryðju-
verkamenn heldur pólitíska
einfeldinga, sem hann hefði fært
sér í nyt.
í gær var gefín út handtökutil-
skipun á hendur háttsettum sýr-
lenskum embættismanni Haytham
Saed að nafiii. Tilræðismennimir
kveðast hafa fengið sprengiefnið
frá honum er hann starfaði í sendi-
ráði Sýrlands í Austur-Þýskalandi.
Sýrlandsstjóm hefur neitað allri
aðild að sprengjutilræðinu.