Morgunblaðið - 27.11.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
37
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambandsins og Dagsbrúnar:
Dagsbrún er ekkí að draga síg
út úr samningaviðræðunum
Ekki hægt að semja án Dagbrúnar segir Þórarinn V. Þórarinsson
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar og Verka-
mannasambands íslands, segir
að samþykkt stjómar Dagbrúnar
í gær, þar sem ítrekuð er sam-
þykkt almenns félagsfundar um
kjaramál frá því í haust, þýði
ekki að Dagbrún sé að draga sig
út úr þeim samningaviðræðum
sem nú standa yfir milli ASÍ og
VSÍ. Hins vegar kunni að koma
til þess að Dagbrún óski eftir
sérviðræðum við VSÍ verði þróun
samningaviðræðnanna með þeim
hætti að ekki verði rætt um upp-
stokkun núgildandi launakerfa.
Aðspurður kvað hann ekkert
hafa komið fram í viðræðunum
ennþá, sem gerði það að verkum
að Dagbrún óskaði eftir sérvið-
ræðum. Hins vegar hefði hann
aldrei verið trúaður á það að
samningar tækjust í þessari viku.
í samþykkt stjómar Dagsbrúnar,
segir: „Miðað við þá stöðu sem
samningaviðræður eru komnar í,
vill stjómin taka fram að hvorki
VMSÍ né ASÍ hafa umboð til þess
að gera samninga fyrir hönd Dags-
brúnar. Stjóm félagsins mun leiða
samningaviðræðumar fyrir hönd
félagsins í samráði við hina ýmsu
starfshópa þess.
Stjómin telur nauðsynlegt að al-
gjör uppstokkun á taxtakerfínu sé
forsenda þess að hægt sé að hækka
lægstu taxta verulega, svo full ein-
ing skapist um niðurstöður og heitir
á alla félagsmenn að fylkja sér fast
um félagið".
Guðmundur sagði að á stjómar-
fundinum hefði ekkert verið um það
rætt að ganga út úr samningavið-
ræðunum. Afstaða félagsfundar
hefði verið áréttuð varðandi það að
félagið færi sjálft með sín mál og
það hefði verið bókað á formanna-
fundi Verkamannasambandsins um
síðastliðin laugardag. Á formanna-
fundinum varð sú leið undir, sem
félagsfundur Dagbrúnar hafði sam-
þykkt, og ákveðið að ganga til
samninga í samfloti við önnur félög
innan ASÍ.
Guðmundur sagði að afstaða
Dagbrúnar til samninga hefði verið
þrautrædd í öllum stofnunum fé-
lagsins og stjómin hefði ekki umboð
til þess að breyta ákvörðun félags-
fundar. Dagbrúnarmenn muni hins
vegar standa með félögum sínum
úti um land.
Guðmundur sagði að í samþykkt
Dagsbrúnar annars vegar og form-
annafundar ASÍ hins vegar væm
dálítið ólíkar áherslur. Dagbrún
teldi að uppstokkun launakerfanna
ætti að vera i höndum aðildarfélaga
ASÍ, en heildarstefnumótun hvað
varðaði kauptreygginu og annað og
í komandi kjarasamningum.
Benedikt sagði ennfremur að
með þessari samþykkt fram-
kvæmdastjómar væri á engan hátt
verið að mótmæla þeirri stefnu sem
mörkuð hefði verið í komandi kjara-
samningum um hækkun lægstu
I launa umfram aðrar launahækkan-
ir. Samband byggingamanna myndi
það sem sneri að ríkisvaldinu á svið
heildarsamtakanna. Taxtakerfið
væri svo flókið og aðstæður ólíkar
að erfitt væri að framkvæma slíka
uppstokkun nema í félögunum.
Dagsbrún legði áherslu á að fækka
töxtum og samræma þá, en engin
ágreiningur væri um þá stefnumót-
un að lágu launin hefðu forgang í
samningunum.
Guðmundur og varaformaður fé-
lagsins, Haildór Bjömsson, hafa
tekið þátt í viðræðum ASÍ og VSÍ,
en þeir eiga báðir sæti í sambands-
stjóm Verkamannasambandsins.
Aðspurður um það hvort stjóm
fylgja þeirri kröfu eftir ásamt öðr-
um aðildarfélögum A.S.Í. Sam-
þykktin fjallaði hins vegar um
gmndvallaratriði í þeim kjarasamn-
ingum sem gerðir vom í febrúar
síðastliðinn. Vísaði Benedikt til
samþyktar framkvæmdastjómar
þar sem segir.
Dagbrúnar myndi koma inn í þessar
viðræður nú, sagði Guðmundur:
„Við verðum með stjómarfundi
nánast daglega".
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að væri
ekki full samstaða um stefnumörk-
un formannafundar Alþýðusam-
bandsins um að tryggja hag
lágtekjufólks og stöðugt verðiag,
þá væri það vandamál verkalýðs-
félagana, en hann gengi út frá því
að þessi ágreiningur risti ekki djúpt.
Hann sagði að samningar sem mót-
uðu heildarstefnuna í kaupgjalds-
málum væm ekki mögulegir án
„í kjarasamningum aðila frá 26.
febrúar sl. era ákvæði um að ef
verðlag hækkar umfram þau mörk
er þar vom sett, skuli nefndin
ákveða sérstaka launahækkun þess
vegna. Þessi ákvörðun á að liggja
fyrir eigi síðar en 25. nóvember.
Nú liggur fyrir, að vegna verð-
lagshækkana beri öllum launþegum
2,09% hækkun launa, umfram þau
2,5% sem kveðið er á um í samn-
ingnum, eða alls 4,59% hækkun
allra launa. Hér er um að ræða
fastmótað og umsamið ákvæði, sem
ekki er heimilt að breyta. Fram-
kvæmdastjóm Sambandsins
mótmælir sérstaklega því að ekki
var haft neitt samráð við Samband
byggingamanna um þessa ákvörð-
un og krefst framkvæmdastjómin
þess að launanefndin komi nú þeg-
ar saman og gangi frá endanlegri
ákvörðun eins og ber.
Þá minnir framkvæmdastjóm
þess að Dagsbrún ætti aðild að
þeim, félagið væri það sterkt og
væri í lykilaðstöðu hvað mjög mörg
fyrirtæki snerti.
„í samþykkt Dagsbrúnar em
áréttuð markmið sem samþykkt
vom á formannafundi ASÍ. í þess-
um samþykktum er einn og sami
tóninn," sagði Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ. Hann sagði að í
samþykkt Dagsbrúnar væri áréttað
að félagið hefði forræði um sína
samningagerð. Aðildarfélög ASÍ
hefðu endanlegt ákvörðunarvald
um samninga og það væri ljóst að
ef gangur samningaviðræðnanna
yrði með því móti að ekkert not-
hæft kæmi út úr þeim hljóti ASÍ
fyrr eða sfðar að ganga út. Hins
vegar hefði ASÍ talið rétt að láta
reyna á það hvort gmndvöllur væri
til samninga og það væri ekki
ágreiningur milli Alþýðusambands-
ins og Dagsbrúnar um markmið í
samningunum.
Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður Verkamannasambandsins
vildi ekki tjá sig um samþykkt
sijómar Dagsbrúnar. Sagðist hann
ekki vera tilbúinn til þess fyrr en
í dag, þegar hann hefði öðlast vitn-
eskju um hvaða ástæður lægju að
baki hennar.
Sambands byggingamanna einnig
á ákvæði 5. greinar kjarasamnings-
ins frá 26. febrúar sl. en þar segir
meðal annars að samningsaðilar
muni skipa sérstaka nefnd sem
hefji þegar störf (26. febrúar) og
móti tillögur um nýtt launaflokka-
kerfi. Tillögur nefndarinnar liggi
fyrir í sfðasta lagi 1. október n.k.
og á launaflokkakerfið að koma til
framkvæmda við gildistöku næstu
kjarasamninga.
Eitt meginmarkmið hins nýja
launakerfis skal vera að færa kaup-
taxta að greiddu kaupi. Eftir þvf
sem framkvæmdastjóm Sambands
byggingamanna veit best er engin
vinna hafin við gerð þessa nýja
launakerfis, en það má öllum vera
ljóst að ekki verður gerlegt að ljúka
næstu samningsgerð nema viðun-
andi lausn fáist á þessu máli,“ segir
í samþykkt framkvæmdastjómar
Sambands byggingamanna.
Samband byggingamanna:
Mótmælir frestun á ákvörðun
um launahækkun 1. desember
„Erum ekki að kljúfa okkur út úr
samstarfi við gerð kjarasamninga,“
segir Benedikt Davíðsson.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sambands byggingamanna samþykkti á
fundi sfnum i gær liarðorð mótmæli gegn þeirri ákvörðun að launa-
nefnd A.S.Í, V.S.Í. og V.M.S. fresti til 1. desember næstkomandi að
ákveða um sérstaka launahækkun sem koma á til framkvæmda þann
dag. Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingamanna, sagði
í samtali við Morgunblaðið að með þessari samþykkt væru bygginga-
menn ekki að kljúfa sig út úr samstarfi annarra aðildarfélaga A.S.
Erindi um
fuglalíf
FUGLAVERNDARFÉLAG ís-
lands heldur fyrsta fræðslufund
sinn á þessum vetri í kvöld kl.
20.30 f Norræna húsinu.
Að þessu sinni verður það fugla-
lífið vestur á Seltjamamesi sem er
viðfangsefnið. Áhugamaður um
fugla og fuglalíf, Jóhann Óli Hilm-
arsson ætlar að segja frá og mun'
hann bregða upp litskyggnum úr
fuglamyndasafni sínu. Fundurinn
er öllum opinn eins og venja er á
fræðslufundum félagsins. Þá mun
féhirðir félagsins lfka láta til sín
taka á fundinum og taka á móti
greiðslu félagsgjaldanna.
(Fréttatilkynmng).
Brotist inn á
bensínstöð
LÖGREGLUNNI f Reykjavík
barst f gærmorgun tilkynning
um að brotist hefði verið inn f
bensfnstöð Olfs við Skúlagötu.
Þjófurinn eða þjófamir höfðu á
brott með sér á annað hundrað
lengjur af vindlingum. Rannsóknar-
lögreglan vinnur að lausn málsins.
Rowenta FB 10
jr LITU SÆLKERAOFNINN
Tilvalinn, þegar matbúa þarf fyrir 1,2 eða fleiri.
Þú bakar, eldar, steikir «gratinerar», þíðir, hit-
ar upp, grillar, o.fl. o.fl. í sælkeraofninum
snjalla. Sjálfhreinsandi ofn fyrir heimilið,
sumarbústaðinn eða ferðalagið.
Margur er knár þótt hann sé smár!
Mál: 29x26,5x37,5 sm.
Rowenta
Heimilistækjadeild.
Eiðstorgi - s: 622-200.