Morgunblaðið - 27.11.1986, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
„Beingreinir“ reyndur hjá
IJtgerðarféhigi Akureyringa
Starfsmaðurt danska fram-
leiðandans kynnir íslenzkum
frystihúsamönnum beingrein-
inn.
Morgunblaðið/Skapti.
MENN frá danska fyrirtækinu
Lumetech sýndu um 70 mönnum
frá íslenskum fiskframleiðend-
um í gær vél sem fyrirtækið
hefur framleitt - einhver nefndi
vélina beingreini í gær og það
virðist virkilega gott nafn á hana
vegna þess að hún greinir bein
í fiskflökum. Hópurinn var á
Akureyri; beingreimrinn hefur
verið settur upp hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa og þess vegna
var allur hópurinn staddur hér
nyrðra til að sjá hann vinna. Það
er Sölumiðstöð Hraðfrystihús-
anna sem keypti vélina og fékk
að setja hana upp hjá ÚA.
Lumetech fyrirtækið er dóttur-
fyrirtæki Sameinuðu bruggverk-
smiðjanna, eins og Carlsberg og
Tuborg bjórverksmiðjumar heita
eftir sameininguna. Lumetech er
ungt fyrirtæki, var stofnað í júlí á
þessu ári. Steen Reenberg er for-
seti fyrirtækisins og hann var
staddur hér nyrðra í gær. Blaða-
maður ræddi við hann og spurði
bvemig vélin virkaði. „Það er sér-
stakt ljós sem lýsir í gegnum flökin
- þegar það er notað á ákveðinni
bylgjulengd sjást beinin á skermi
sem er við vélina," sagði Reenberg.
Tveir bakkar era við enda vélarinn-
ar, í annan fara flök sem í era bein
eða of mörg bein eftir atvikum og
í hinn beinlaus flök. Tölvuskermi
sem tengdur er við vélina má skipta
í 2500 litla ramma og stilla má
vélina þannig að í „beinakassann"
fari flök sem í era bein sem grein-
ast í tveimur römmum eða þremur
römmum eða eins mörgum og vill.
Reenberg sagði að kalla mætti vél
þessa hátæknivel. Hún væri til mik-
illa bóta vegna gæðaeftirlits - í
þeim flökum sem færa í gegnum
hana ættu ekki að vera nema 6
bein í 100 kflóum, en í dag má
reikna með að um 10-20 bein séu
í jafn miklu magni sem unnið er í
höndunum.
I
Einn beinagreinir hefur verið
notaður í Færeyjum síðan í aprfl
síðastliðinum og sagði Reenberg
reynsluna af honum mjög góða.
„Ein vél hefur nú einnig verið í
notkun í Kanada í fimm vikur og
líkaði mjög vel - þar til allt í einu
að eitthvað bjátaði á. En það var
ekki sök vélarinnar því í ljós kom
að menn höfðu þvegið hana að inn-
an með vatni go það er ekki
heppilegt!“ Lumetech hefur þegar
selt 11 beinagreina. Sjö era í Fær-
eyjum, einn á íslandi, tveir í
Danmörki og einn í Kanada. Reen-
berg sagðist síðan eiga vona á að
einn yrði keyptur til Noregs fljót-
lega, og einig til Englands og
Bandaríkjanna. Reenberg sagði fyr-
irtæki sitt líklega koma fljótt á
markaðinn með vél sem fyndi bein
í kjúklingakjöti, svínum og nauta-
kjöti - einnig vél sem fyndi orma í
flski. „Ég vonast til að við náum
að koma þessu á markað á næsta
ári. En það era menn í fískvinnsl-
unni sem hafa sýnt þessu lang
mestan áhuga og þess vegna vinn-
um við á því sviði eins og er. Það
vora Færeyingar og íslendingar
sem sýndu beingreininum mestan
áhuga í fyrstu - Danir vora nokkuð
á eftir. Það var erfiðara að sann-
færa þá um ágæti hans. Mér var
sagt í gær að forsætisráðherrann
ykkar, sem er staddur í Svíþjóð,
hefði spurt starfsmenn ASEA þar
í landi, hvort þeir gætu ekki búið
til vélmenni sem gæti týnt bein úr
físki. Ég verð að segja að hann
hefði frekar átt að vera hér á Akur-
eyri en í Svíþjóð því það sem hann
er að tala um er ekki eins fjarlægt
og hann heldur. Við eram nefnilega
að hann vél sem týnir bein úr fiski
- ég vona að við verðum komnir
með hana á markaðinn innan
tveggja ára,“ sagði Reenberg.
Daninn var spurður um hve miklu
magni beingreinirinn gæti annað á
dag. „Það fer eftir því hve mikil
gæði menn fara fram á. Það á að
vera hægt að renna 8-10 tonnum
af flökum í gegnum hann á 8 tíma
vakt - þá á ég við til að fá hágæða-
vöra. Hver verksmiðja verður svo
að gera það upp við sig hve góða
vöra hún vill, hve mikið hún þarf
að vinna á dag.“ Reenberg sagðist
vonast til að íslendingar keyptu
15-20 beingreina af fyrirtæki sínu
á næstu tveimur áram. Hann sagði
þá íslendinga sem hann hefði sýnt
vélina mjög áhugasama og það
hefði verið mjög mikilvægt að geta
sýnt þeim vélina vinna. „Þeir era
mjög móttækilegir og hafa greini-
lega gríðarlegan áhuga á þessu
máli. Þeir spyrja mikils og það sýn-
ir að þeir hugsa um framtíðina og
vilja vinna sem besta vöra. Og ekki
skemmir að sýna vélina einmitt hér
hjá ÚA. Þessi er stórglæsileg verk-
smiðja sem þið getir verið mjög
stoltir af.“
Reenberg sagði það mjög mikil-
vægt fyrir fyrirtæki sitt að eiga
samvinnu við íslenska fiskframleið-
endur. „Fyrirtækið er ungt og því
er mikilvægt að á meðan það stígur
sín fyrstu skref geti framleiðendur
sagt okkur hvaða vandamál þeir
hafi mestan áhuga á að við leysum.
Þetta heldur lífi í fyrirtækinu.“
Hjalti Einarsson, forstjóri Sölu-
miðstöðvar Hraðfrystihúsanna, var
einn þeirra sem skoðaði beingrein-
inn hjá ÚA í gær. Eins og áður kom
fram var það SH sem keypti vélina
og fékk að setja hana upp hjá ÚA.
Hjalti sagði að hún yrði í notkun í
a.m.k. tvo mánuði og eftir þann
tíma hefði ÚA forkaupsrétt að
henni. þess má geta að vélin kostar
um 4,5 milljónir íslenskra króna.
„Þessi vél er eingöngu eftirlist-
vél. Hún framleiðir ekkert. En hún
ætti að stórfækka beinum í þeim
fiski sem seldur er sem beinlaust.
Margir af okkar helstu kaupendum
legga mikið upp úr þvf að fiskurinn
sé algjörlega beinlaus - sérstaklega
þeir sem kaupa blokkina," sagði
Hjalti í gær.
„Nú er að opnast möguleika til
að gera ýmis störf í vinnslusal sjálf-
virk og þá kemur þessi vél að miklu
gagni. Ef kemur vél á markaðinn
sem sker beingarðinn úr flökum
yrði þessi mjög góð þar á eftir til
öryggis. Hún myndi þá kasta frá
flökum þar sem bein væra eftir.
Það er vissulega öryggi í henni einni
en hún verður mun hagkvæmnari
ef hin kæmi.“
Hjalti sagði ekki nokkum vafa á
að íslensk frystihús ættu eftir að
kaupa beingreini - spumingin væri
aðeins sú hve fljótt það yrði. „Það
verður mikil breyting hjá íslenskum
frystihúsum á næstu 5-10 áram.
Okkar hús era mjög tæknilega full-
komin miðað við það sem gerist í
heiminum og það er því ekki óeðli-
legt að okkar hús verði í fararbroddi
hvað þetta varðar," sagði Hjalti.
Ungir Sjálf-
stæðismenn:
Fullveldis-
fagnaður
VÖRÐUR, félag ungra Sjálfstæð-
ismanna, heldur sinn árlega
fullveldisfaguað á laugardaginn,
29. nóvember, í húsnæði Sjálf-
stæðisflokksins í Kaupangi við
Mýrarveg.
Fagnaðurinn hefst kl. 21.00.
Þingmenn flokksins í kjördæminu
mæta á staðinn ásamt leynigesti,
sem afhjúpaður verður á staðnum.
Björn leikur í
Fríkirkjunni
í Reykjavík
BJÖRN Steinar Sólbergsson, or-
gelleikari í Akureyrarkirkju,
heldur orgeltónleika í kvöld i
Fríkirkjunni í Reykjavík. Þeir
hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni
eru verk eftir Bach, Lizst,
Franck, Durufle og Widor.
Hársnyrti-
stofan
Samson
opnarí
Sunnuhlíð
NÝ hársnyrtistofa opnaði ný-
lega i Verslunarmiðstöðinni
Sunnuhlíð á Akureyri. Heitir
hún Hársnyrtistofan Samsou.
Eigandi er Sólrún Stefánsdótt-
ir, hárskurðarmeistari. Sólrún
lærði á Rakarastofu Hafsteins
i Brekkugötu áður en hún opn-
aði sina eigin stofu. Hún sér
um alla almenna hársnyrtingu
og er stofan opin á venjulegum
verslunartíma - þegar verslun-
armiðstöðin er opin.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sólrún með ungan herramann i stólnum.