Morgunblaðið - 27.11.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
39
Fasteignamarkaður í sjálfheldu víða um land:
Vegna lágs verðs íbúðarhúsnæðis
segja þingmenn
Alþýðubandalags
Frumvarp Þórðar Skúlasonar
og fleiri þingmanna Alþýðu-
bandalags um verðjöfnunarsjóð
fasteigna fékk snarpa andstöðu
í efri deild Alþingis í gær. Frum-
varpið gerir ráð fyrir því að
stofnaður verði sérstakur sjóður
við Húsnæðisstofnun ríkisins.
Ríkissjóður leggur fram stofnfé
hans, 30 m.kr. Hlutverk sjóðsins
er að stuðla að „verðjöfnun fast-
eigna í landinu", m.a. með því
að kaupa íbúðir þar sem húsnæði
hefur lækkað mjög í verði.
„Markmiðum sínum skal sjóður-
inn ná með kaupum og sölu
íbúðar húsnæðis".
Þórður Skúlason (Abl.-Nv.)
sagði óvissu og óöryggi í málefnum
landsbyggðarinnar. Jafnvel þar sem
atvinnuástand er gott sé íbúðarverð
óeðlilega lágt, hvort heldur sem
miðað sé við bvggingarkostnað á
landsbyggðinni eða söluverð hús-
næðis á höfuðborgarsvæðinu. Fólk
óttist að tapa miklum fjármunum
af þessum sökum, þar sem mark-
aðsverð er aðeins brot af bygging-
arkostnaði. Sá vandi blasi við víða
um land „að fasteignamarkaðurinn
er í algjörri sjálfheldu vegna lágs
verðs íbúðarhúsnæðis og þess að
fáir taka þá áhættu að byggja".
Þórður taldi hugmynd sína um sér-
stakan verðjöfnunarsjóð húsnæðis
í landinu, sem kæmi sem kaupandi
Verð í krónum á fermetra Söluverð eftir sveitarfélögum. Fjöldi Söluverð Hlutfall
Reykjavík 1107 25 624 100
Seltjarnarnes 13 27 656 108
Kópavogur 202 25 226 98
Garðabær 35 25 339 99
Hafnarfjörður 80 23 162 90
Mosfellssveit 25 23 969 94
Suðurnes 77 19 775 77
ísafjörður 20 19 383 76
Akureyri 163 17 823 70
Grindavík 10 17 173 67
Borgarnes 14 16 927 66
Vestmannaeyjar 20 16 624 65
Hveragerði 5 16 743 65
Selfoss 17 16 151 63
Húsavík 8 16 264 63
Sandgerði 5 15 720 61
Akranes 40 15 115 59
inn á stijálbýlismarkaðinn, stuðla
að verðhækkun húsnæðis þar og
verðjöfnun á landsmarkaðsmæli-
kvarða.
Meðfylgjandi tafla, sem fylgir þessu þingmáli, sýnir nafnverð á söl-
um íbúðarhúsnæðis í 17 sveitarfélögum, samkvæmt kaupsamningum
sem gerðir voru á tímabilinu okróber 1985 til júní 1986. í aftasta
dáli er söluverð í Reykjavík tilgreint með tölunni 100. Söluverð á
hinum stöðunum 16 er síðan sýnt í samanburði við þá viðmiðunar-
tölu. Það er hæst á Seltjarnarnesi, 108, lægst á Akranesi, 59.
STUTTAR ÞINGFRETTIR
Alþing-i í gær
Fundir vóru í báðum þingdeildum
í gær. í efri deild mælti mennta-
málaráðherra fyrir frumvöprum um
Kennaraháskóla íslands og Leiklist-
arskóla íslands. Kirkjumálaráð-
herra mælti fyrir frumvarpi um
veitingu prestakalla. Þórður Skúla-
son (Abl.-Nv.) mælti fyrir frum-
varpi um verðjöfnunarsjóð
fasteigna.
í neðri deild var fram haldið
fyrstu umræðu um stjómarfrum-
varp til breytinga á tekjuskattslög-
um (lækkun tekjuskatta 1987 um
300 m.kr.). Miklar umræður urðu
um málið. Þá mælti dómsmálaráð-
herra fyrir frumvarpi um fasteigna-
og skipasölu. Frumvarpi um fram-
leiðslu og sölu búvara var vísað til
landbúnaðamefndar.
Þingflokkafundir vóm síðdegis.
Bygging leiguhúsnæðis
Krístín Ástgeirsdóttir og fleiri
þingmenn Samtaka um kvennalista
flytja tillögu til þingsályktunar um
byggingu leiguhúsnæðis:
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjómina að beita sér þegar í stað
fyrir átaki í byggingu leiguhús-
næðis. Verði varið 250 m.kr. á
núgildandi verðlagi til þessa verk-
efnis á ári hveiju þar til þörfínni
hefur verið fullnægt".
Fyrirspurnir
Þjóðleikhús: Guðrún Helgadótt-
ir (Abl.-Rvk.) spyr menntamálaráð-
herra, hve hár hudraðshluta af
rekstrarkostnaði Þjóðleikhúss hafi
komið úr ríkissjóði sl. tíu ár. Hvers
vegna hefur halli á rekstri leik-
Stefán Benediktsson (A-Rvk.)
sagði fmmvarp af þessu tagi ekki
lagfæra eitt eða neitt, heldur mgla
hlutina enn meira. Hann benti á
að samkvæmt gögnum, sem fmm-
varpinu fylgdu, væri staðgreiðslu-
verð húsnæðis í Reykjavík 73%
áætlaðs byggingarkostnaðar og að
lög í landinu, af þessu tagi sem
öðm, hlytu að ganga jafnt yfír
landsmenn alla.
Stefán talaði um frumvarpið sem
■Jólagjafaaðferð" og „ölmusuleið",
sem ekki væri samboðin lands-
byggðinni. Þessi leið væri ófær
nema ef stefna ætti að því að allt
húsnæði á íslandi yrði þjóðareign.
Skúli Alexandersson (Abl.-
Rvk.) sagði auðheyrt á málflutningi
Stefáns að hann hyggði ekki á
framboð á næstunni. Andstaða
hans væri harðari en efni stæðu
til. Fmmvarpið markaði leið til að
mæta tilteknum vanda landsbyggð-
arinnar.
Eiður Guðnason (A.-Vl.) sagði
vanda þann, sem frumvarpið fjall-
aði um, til staðar, en leið sú út úr
vandanum, sem það geymdi, væri
hinsvegar óraunhæf. Hann minnti
t.d. á að hitunarkostnaður hús-
næðis í Borgamesi væri fímm
sinnum hærri en í Reykjavík. Það
væu aðstöðumunur af þessu tagi
sem leiddi til fólksflótta úr ódým
húsnæði á landsbyggð í dýrt í
Reykjavík. Vandamálið yrði að
nálgast úr annari átt en þetta
óraunhæfa fmmvarp gerði.
Valdimar Indriðason (S.-Vl.)
sagði fróðlegt að bera saman íbúð-
arverð, sem væri mjög mismunandi,
einnig milli staða á landsbyggðinni.
Þannig væri íbúðarverð á Isafírði
mun hærra en á Akureyri og vem-
lega hærra en á Akranesi. Sjálfsagt
væri að skoða þetta mál vel, en
sýnt væri þegar, að sú leið, sem
fmmvarpið tíundi, gangi ekki upp.
Kolbrún Jónsdóttir (A.-Ne.)
taldi framvarpið efla svokallaðan
fijálsan markað, ef fram gengi,
stuðla að hærra íbúðarverði en ekki
lægra.
Egill Jónsson (S.-Al.) sagði
ekki liggja fyrir heimildir um þróun
raungildisverðmætis fasteigna út á
landi liðna áratugi, þann veg að
hægt væri að bera saman þróun
þessara mála eftir ríkisstjómum.
Sér segði þó svo hugur um að sam-
ansafnaður vandi landsbyggðarinn-
ar, sem varðaði margs konar
aðstöðumun, væri ekki sízt arfur
frá ríkisstjómarámm Alþýðubanda-
lagsins.
Fleiri tóku til máls, þó ekki verði
frekar rakið. Þórður Skúlason,
flutningmaður frumvarpsins, sagð-
ist furðu lostinn yfír þeim móttök-
um, sem hugmyndir hans um
verðjöfnunarsjóð íbúðarhúsnæðis
hefðu fengið í deildinni. Menn hefðu
allt aðra skoðun á þessu máli hjá
Fasteignamati ríkisins.
hússins ekki fengist greiddur með
aukafjárveitingum? Hvenær má
búast við að nauðsynlegum viðgerð-
um og endurbótum á leikhúsinu
ljúki? Telur ráðherra að Þjóðleik-
húsið ráði við að fullnægja þeim
kröfum um listræna starfsemi á
ýmsum sviðum, sem lög standa til,
með þeim framlögum sem það fær
nú? Er nokkur efi um það hjá núver-
andi stjómvöldum að Þjóðleikhúsið
skuli áfram starfa samkvæmt lög-
um nr. 58/1978?
Rekstrarvörur bænda: Ámi
Johnsen (S.-Sl.) spyr fjármálaráð-
herra: 1) Hveijar era tekjur ríkis-
sjóðs af rekstrarvömm bænda á
árinu 1985? 2) Hver er uppsafnaður
söluskattur af landbúnaðarvöram á
árinu 1985?
Laun í hlunnindum og fríðindum:
Strangari ákvæði
um upplýsingaskyldu
samkvæmt nýju þingmannafrumvarpi
„Allir, sem hafa menn í þjón-
ustu sinni og greiða þeim
endurgjald fyrir starfa, þar með
talin ágóðaþóknun, ökutækja-
styrkur, húsaleigustyrkur og
hvers konar önnur fríðindi og
hlunnindi, efirlaun, biðlaun og
lífeyrir, skulu ótilkvaddir af-
henda skattstjóra eða umboðs-
manni hans skýrslu um greiðslur
þessar ókeypis og í því formi sem
ríkisskattstjóri ákveður í samr-
áði við kjararannsóknamefnd".
Þannig hljóðar fyrsta grein fmm-
varps til breytinga á skattalögum,
sem þingmenn úr öllum þingflokk-
um flytja (Jóhanna Sigurðardóttir,
Guðmundur H. Garðarsson, Guðrún
Helgadóttir, Jón Baldvin Hanni-
balsson, Kristín Halldórsdóttir,
Guðmundur J. Guðmundsson og
Guðmundur Bjamason).
Önnur grein frumvarpsins kveð-
ur á um að skattayfirvöld skuli
gefa Hagstofu íslands, Þjóðhags-
stofnun og kjararannsóknamefnd
skýrslur, í því formi er þeir aðilar
ákveða, um framtaldar tekjur og
eignir, álagða skatta og önnur at-
riði er varða skýrslugerð þeirra.
í greinargerð er tilgangur fmm-
varpsins sagður að „fljótvirk leið
verði valin til að fá úttekt á raun-
vemlegri tekjuskiptingu í þjóðfélag-
inu“.
Ný grafíkmappa
NÝLEGA kom út hjá félaginu
íslensk grafík mappa með 5
myndum eftir 5 listamenn.
Myndimar sem em ætingar —
dúkskurður og sáldþrykk em eftir
Björgu Þorsteinsdóttur, Guðmund
Ármann, Jón Reykdal, Sigurð Þóri
og Valgerði Hauksdóttur.
Grafíkmöppur félagsins íslensk
grafík hafa komið út annað hvert
ár. Þetta er 5. mappa félagsins, en
sú fyrsta kom út árið 1978.
Mappan er gefín út í 50 tölusett-
um eintökum og er örfáum eintök-
um enn óráðstafað segir í fréttatil-
kynningu frá félaginu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjórir af þeim fimm listamönnum sem verk eiga í nýrri möppu sem
íslensk grafík hefur gefið út.
M.C. Miker og D.J. Sven, sem réttu nafni heita Lucien Witteveen og Sven van Veen, skemmta í Evrópu
í kvöld, föstudags- og laugardagskvöld
M.C. Miker og D.J. Sven
skemmta í Evrópu
FYRSTA skemmtun hollensku
skemmtikraftanna M.C. Miker
og D.J. Sven verður í veitinga-
húsinu Evrópu i kvöld, fimmtu-
dagskvöld. Þeir félagar munu
einnig skemmta þar föstudags-
og laugardagskvöld.
Þeir félagar kynntust er þeir
unnu sem plötusnúðar í Hollandi
og hafa þeir gert saman plötuna
Holiday Rap, sem vinsæl varð í
Evrópu. Væntanleg er á markaðinn
önnur plata með þeim félögum og
á henni em m.a. lögin „We are
Family", sem Sisters Sledge gerðu
þekkt fyrir nokkmm ámm, og
„Celebration", sem Cool and the
Gang léku og sungu á sínum tíma.
Með í förinni til íslands er Hol-
lendingurinn Orlando van Vooren,
en hann er núverandi Evrópumeist-
ari í „scratchi". Hann vann þann
titil fyrr á þessu ári í Hippodrome-
diskótekinu í London.