Morgunblaðið - 27.11.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur! Eg
hef fylgst reglulega með
skrifum þínum í Morgun-
blaðið og haft ánægju af,
enda lengi haft áhuga fyrir
þessum vísindum. Mig langar
nú til að forvitnast dálítið um
sjálfa mig, skapgerð, hæfi-
leika o.þ.h. Þætti mér vænt
um ef þú gætir orðið við ósk
minni. Ég er fædd kl. 3.30 á
páskadagsmorgun, þann 1.
apríl 1956 í Reykjavík. Með
fyrirfram þökk.“
Svár:
Þú hefur Sól og Merkúr í
Hrút, Tungl og Rísandi í
Bogmanni, Venus [ Nauti,
Mars í Steingeit og Sporð-
dreka á Miðhimni.
Grunneðli
í grunneðli þínu ert þú lif-
andi og kraftmikil hugsjóna-
manneskja. Til að viðhalda
lífsorku þinni þarft þú líf og
hreyfíngu og þarft stöðugt
að fást við nýjar athafnir.
Þú ert hreinskilinn, einlæg,
hrein og bein og bjartsýn að
eðlisfari. Þú ert ör í skapi og
átt til að vera óþolinmóð og
fljótfær. Þú þarft að varast
að gleyma öðrum og vaða
yfír tilfínningar fólks í hugs-
unarleysi. Hrútum hættir til
að vera eigingjamir án þess
að ætla sér það.
Hugsun
Sól og Merkúr í Hrút táknar
að hugsun þín er kraftmikil
og lifandi. Þú ert leitandi og
vilt komast að kjama hvers
máls. Þú getur átt til að vera
óþarflega hreinskilin.
Tilfinningar
Tungl í Bogmanni táknar að
þú ert tilfínningalega hress
og jákvæð, ert létt í lund.
Þú hefur ríka þörf til að vera
sjálfstæð, bæði í tilfinninga-
málum og sömuleiðis í
daglegu lífí. Störf sem hafa
með hreyfmgu og einhver
ferðalög að gera eiga því vel
við þig. Þér hentar ekki of
föst dagleg vanabinding.
Veikleikar geta verið fólgnir
í eirðarleysi, því að þér hætt-
ir til að tapa áhuga á við-
fangsefnum þínum og fara
úr einu í annað.
Starfsorka
Mars í Steingeit táknar að
þú ert skipulögð og vandvirk
í vinnu, samviskusöm og
dugleg. Þú hefur stjómunar-
og framkvæmdahæfíleika.
Ástamálin
Þá komum við að því sem
kannski er flóknast í korti
þínu og einna mikilvægast
að þú skiljir. Það er Venus
sem er táknrænn fyrir ást,
vináttu og samskipti. Venus
í Nauti táknar einn sér stöð-
ugleika á ástasviðinu, þörf
fyrir varanleika og gott
líkamlegt samband. Vegna
90 gráða spennu við Plútó
er einnig fyrir hendi þörf fyr-
ir djup sálræn tengsl. Það
táknar að ef sambönd þín eru
ekki sálrænt þroskandi og
leiða til þekkingar fínnur þú
þig knúna til að brjóta þau
niður eða losa þig úr þeim.
60 gráða tengsli við Úranus
tákna að sambönd þín verða
einnig að gefa þér svigrúm
og ákveðið frelsi.
FerÖ og miölun
Þau störf sem henta þér tel
ég helst vera sjálfstaað stjóm-
unar- og skipulagsstörf sem
t.d. tengjast ferðamálum, eða
fela í sér fjölbreytileika og
hreyfingu. Tungumál, upp-
lýsingamiðlun og fjölmiðlun
koma einnig til greina vegna
Sólar og Merkúr í 3. húsi.
47
X-9
"OrAan:á&n c/rafdöllum rajátk/am cývá/um áe/>ns
ay <dnap á, pyrdce 7%/Zs, - /ýpctr / eý/3/ata.í
nancíar) u/e/ /rc/msAróa/r)/?■..
» ‘Kwy— ---------------rjTi
> £MOM '^fof//HHfWAÓW
ÍSömniW/\/ff7cn /ö/tAVr&y
■ l/M r ) Af/W £/rA7.'5s/f£>e/
DRATTHAGI BLYANTURINN
—r
É6ER, HOST/
’OKéI... HÓST/
'•'HAMN
KKAAIPI
ALLAN V/INP
0P Mé&!
TOMMI OG JENNI
/ JÚHÓ! ,
f TOAWU f Í//LTU
L/ZfZA AP
LESA?
I Hi/AD SrEND!
U£HD ÉG f>A
LflCA A£> éta
A Hi/OLF/
?
LJOSKA
SJÁ&Ú
EH pETTA
EIOÍI
SÚSAMNA
) EKKI SÉE>
'hAMA ! MÖRG
\HvAÐSBG~(É&VEFn/ÁNPM\
1 IRPUAF' , —• /MALOAA UPP i
! SrALFRI t?E&7\ Fyeifj HAUS
FERDINAND
SMAFOLK
UtlHATS he
5AYIN6
NOU)?
HE 5AYS THERE ARE
PEOPLE OUT THERE WHO
UJANT TO PESTROY
OUR UUAYOF LIFE...
Hvað er hann nú að segja?
Það sama og hann sagði í
gær.
Hann segir að fullt af fólki
vilji spilla Hfsmáta okkar.
Ég treysti honum ekki ...
Meinarðu þetta? Af hveiju
ekki?
Ég treysti engum!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Yfírslagir eru dýrmætari en
gull í tvímenningum. Hins vegar
er ekki allt gull sem glóir, eins
og sagnhafí í eftirfarandi spili
fékk að kenna á:
Norður ♦ Á4 ¥74 ♦ ÁDG865
Vestur ♦ K72 Austur
♦ 1065 ♦ G873
¥ DG953 II ¥ K83
♦ 102 ♦ K4
♦ D83 ♦ G954
Suður ♦ KD92 ¥ Á106 ♦ 973 ♦ Á106
Suður vakti á einu grandi,
sem norður hækkaði í þrjú. Vest-
ur kom út með hjartadrottningu.
Gráðugir sagnhafar myndu
drepa strax á ásinn og svína í
tíglinum. Ef svíningin heppnast
em 12 slagir öruggir og sá 13.
gæti komið á kastþröng. Mis-
heppnist svíningin er hins vegar
hætt við að spilið tapist. Því
myndu varkárir spilarar gefa
hjartað tvisvar til að slíta samn-
inginn.
Okkar maður var í hópi þeirra
varkáru. En féll þó fyrir bragði
austurs. Hann lagði nefnilega
kónginn strax á drottningu
makkers í fyrsta slag. Það gerði
hann til að telja sagnhafa trú
um að kóngurinn væri annar.
Suður lét því duga að dúkká-
hjartað einu sinni. Og brá í brún
þegar austur drap þriðja slaginn
á tígulkóng og laumaði hjarta-
tvistinum á borðið. Einn niður.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Wuppertal
i V-Þýzkalandi í haust var þessi
stutta skák tefld. Alþjóðlegi
meistarinn Johansen frá Astralíu
hafði hvítt, en V-Þjóðveijinn
Budde svart. 1. b3 — Rf6, 2. Bb2
- d5, 3. e3 - e6, 4. f4 - g6, 5.
g4 - Bg7, 6. Be2T?
6- — Rxg4! og hvítur gafst upp,
því 7. Bxg7 gengur auðvitað ekki
vegna 7. — Dh4+ og mátar í
næsta leik. Eftir 7. Bxg4 — Bxb2
tapar hvítur a.m.k. skiptamun og
peði, alveg bótalaust.