Morgunblaðið - 27.11.1986, Page 56
56
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBÉR 1986
fclk f
fréttum
ÞÓr Eldon Morgunblaðið/Einar Falur
Eftirmæli Eldons
Bóka- og plötuútgáfan Smekk-
leysa mun í lok mánaðarins
gefa út bókina „taktu benzín elsk-
an“ eftir Þór Eldon. Fréttst hefur
að bók þessi verði hinsta gönguför
Þórs um ritvöllinn og að hann hygg-
ist snúa sér alfarið að bifvélavirkjun
í staðinn. Af þessu tilefni var Þór
tekinn tali.
Hvað ertu að yrkja Þór?
Ég segist yrkja til þess að bjarga
heiminum, en í raun er ég bara að
fjölga sjálfum mér með ljóðlistinni,
því ég kemst ekki yfír hið líffræði-
lega ferli. Það tekur bæði tíma, á
sál og líkama. Ég er eins og aðrir
í leit að ódauðleika. — Síðan vona
ég náttúrulega að lesendur auðgi
sjálfa sig með lestrinum, en það
skal tekið fram að ég geri ekki
miklar kröfur til lesenda.
Geta skáldin lifað á listinni?
Jájá, það vel hægt, þó svo að það
sé ekki erfiðleikalaust. Póesían er
í sjálfu sér ekki það eina sem skáld
getur fengist við, það er vel hægt
að beita sér á fleiri vígstöðvum þar
sem e.t.v. er betur borgað. Hitt er
hins vegar víst, að ljóðlistin er ekki
og getur ekki verið tómstunda-
gaman, eigi hún að vera einhvers
virði. Það sést alltaf þegar menn
eru að yrkja um helgar og á kvöld-
in — einhvemveginn verður alltaf
bílskúrabragur á því.
Nú yrkir þú um bíla og hyggst
fara út í bifvélavirkjun; af hveiju
bílar?
Því skyldu skáld ekki hafa ánægju
af bflum? Bflar eru t.d. mun áhuga-
verðari en bókmenntafræði, sem
sum skáld þykjast stunda.
Hvernig þá?
Það er hægt að gera við bfla og
gera þá sem nýja, gangfæra og
gljáandi.
Nú yrkir þú um bíla, ekki yrkja
hin skáldin um bókmenntafræði?
Þorsteinn frá Hamri er með við-
stöðulausar vísanir í bókmennta-
söguna, en ef þú vilt getur þú sett
orðið „kona“ í staðinn fyrir orðið
„bfll“; ljóðin standa og verða mín
eftirmæli — kannske.
En á þjóðin e.t.v. það á hættu
að þú byrjir að yrkja aftur?
Ég vona að íslenska þjóðin eigi sem
flest á hættu hvað ljóðlistina áhrær-
ir, en ef ég verð með eitthvert
„come-back“, þá get ég lofað því
að það verður á góðum bfl.
■
Nýtt tyrkjarán?
Einhveijir vegfarendur um miðbæ Reykjavíkur
kunn að hafa talið að Tyrkir hefðu enn gert
strandhögg hér á landi og hygðust nú enn stunda
Tyrkjarán. Ekki var þó svo slæmt í efni, heldur var
aðeins um dimission nemenda í Fjölbrautaskóla
Breiðholts að ræða og undir márísku yfírbragðinu
leyndist ísiensk æska.
Þessi glaðværi hópur lagði leið sína inn í Morgun-
blaðshúsið s.l. þriðjudag og fögnuðu því að geta nú
senn tekist á við bækumar af fullum krafti, því stúd-
entspróf eru á næsta leyti.
Við vonum svo bara að lesturinn gangi að óskum.
Þetta er framtíð íslands.
„Tyrkjastóðið" friðmælist við ljósmyndara.
Morgunblaðið/Þorkell
Hin mörgn
andlit Tinu
Síðasta smáskífa Tinu Tumer
kann að heita Two People, en
í myndbandinu, sem fylgirþví, leik-
ur hin síunga 47 ára gamla rokk-
söngkona, hvorki fleiri né færri en
níu persónur!
Myndbandið var gert af David
Mallet, þeim hinum sama og gerði
myndræmumar við lögin China Girl
og Let’s Dance með David Bowie.
Þar skiptir Tina býsna ört um
gervi, í einni andrá er hún indíáni,
því næst Egypti, svo kvikmynda-
stjama af fímmta áratugnum og
svo framvegis. Hermt er að Tina
hafí haft gaman af gervunum.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
hef getað gert tilraunir með nýja
búninga og ný gervi á þennan máta
— Það er nokkuð gaman að hafa
nýja og nýja grímu að hlaupa á bak
við.“
„David Mallet er hálfgerður
harðstjóri að vinna með. Hann hélt
mér hlaupandi inn og út úr förðun-
arvagninum allan daginn. Einu
sinni vom teknar fímm mismunandi
þættir á tveimur klukkustundum.
Ég held að enginn á staðnum hafi
tekið þátt í öðru eins.“
Hinir ýmsu búningar sem Tina
var í komu frá hinum og þessum
tískuvöruverslunum, en yfirumsjón
með útliti myndbandsins hafði Jenni
nokkur Boulton, en hún hafði sama
starfa í myndinni Mad Max III—
Beyond The Thunderdome, sem
Tina lék annað aðalhlutverkið í.
Myndbandið með Tinu er vænt-
anlegt í loftið skömmu fyrir jól.
Sem sjá má eru gervi Tinu mörg og margvísleg.
COSPER
— Nei, vinur minn, en ef þú hefðir gáfur Jóns Baldvins og út-
lit Ólafs Ragnars hefði það komið til mála.