Morgunblaðið - 02.12.1986, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986
Kj arasamningarnir
Samþykkt V erkamannasambandsins eftir útgöngu Dagsbrúnar:
Við erum sterkastir þegar við stöndum saman, segir
Asmundur Stefánsson, forseti ASI
Osætti má ekki koma í veg
fyrir hækkun lægstu launa
„ÞAÐ var tekin ákvörðun um það á st|órnarfundi í Dagsbrún í dag
að félagið drægi sig út úr þeim viðræðum sem hér standa yfir. I
kjölfar þess hefur verið fundað í hópi samninganefndar Verkamanna-
sambandsins og niðurstaða þess fundar er að það sé rétt að halda
viðræðunum áfram og gagnaðilar okkar hafa samþykkt að boða til
samningafundar klukkan níu i kvöld,“ sagði Asmundur Stefánsson,
forseti ASI, á blaðamannafundi með Karli Steinar Guðnasyni, vara-
formanni Verkamannasambandsins, eftir að Dagsbrún hafði tilkynnt
um þá ákvörðun sína að draga sig út úr viðræðum ASÍ og VSI um
nýja kjarasamninga.
Karl Steinar sagði að Verka-
mannasambandið hefði samþykkt
eftirfarandi á fundi sínum: „Samn-
inganefnd Verkamannasambands-
ins hefur rætt þá nýju stöðu, sem
upp er komin í samningaviðræðun-
um við útgöngu Dagsbrúnar.
Samninganefndin hefur einróma
samþykkt að halda viðræðum
áfram. Telur nefndin höfuðnauðsyn
að reyna af öllum mætti að ná fram
sérstakri hækkun lægstu launa.
Hagur þeirra, sem nú búa við
lægstu laun, er slíkur að sundur-
lyndi og ósætti innan verkalýðs-
hreyfingarinnar má ekki verða til
þess að markmiðum þessum verði
ekki náð“.
- Hver telur þú að sé ástæðan
fyrir því að Dagsbrún gengur út?
„Dagsbrúnarmenn hafa væntan-
lega skýrt ykkur frá þeim ástæðum
og ég get ekki annað en vísað til
þess,“ sagði Karl Steinar.
- Eiga Dagsbrúnarmenn ekki
samleið með öðrum verkamönnum?
„Það er spuming sem við spuij-
um okkur sjálf eins og þið, en
eðlilegast er að þeir svari því sjálf-
ir“.
Ásmundur Stefánsson var spurð-
ur hvort það væri rétt, sem
Guðmundur J. Guðmundsson segði,
að hugmyndir Alþýðusambandsins
um uppstokkun taxtakerfísins væru
þokukenndar: „Ég held að það sé
efnislega alveg hárrétt. Það er hins
vegar rétt að bæta því við að á
fundum okkar í gærkveldi og í nótt,
var rætt hvort rétt væri að reyna
að losna við þokuna — ef þannig
má þá að orði komast á móti —
með því að reyna að fá skýrari nið-
urstöður og setja fram ákveðnar
tölur. Niðurstaðan í okkar hópi var
sú, að það væri skynsamlegra að
reyna að fínna fyrst hvaða aðferðir
dygðu til þess að stokka upp taxta-
kerfíð, og um þetta atriði var ekki
ágreiningur við Dagsbrúnarmenn.
Það er rétt að taka það fram til
þess að fyrirbyggja misskilning.
Það er rétt að það era ekki komnar
fram skýrar niðurstöður, en við
höfum verið að ræða leiðimar, sem
dygðu til þess að hækka lægstu
laun, og endurskoða taxtakerfíð,"
sagði Ásmundur.
„Samningar verða til með við-
ræðum. Við eram í miðjum viðræð-
um. Það má vissulega segja, að
allt hafí ekki verið ljóst og skýrt,
eins og er þegar menn era í miðjum
viðræðum, en ég vænti þess að
Morgunblaðið/Einar Falur.
Karl Steinar Guðnason, sem tekur hefur við forystu i samninga-
nefnd Verkamannasambandsins og Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ skýra blaðamönnum sjónarmið sín í gær.
Spáð í stöðuna.
þokunni létti, eins og alltaf er þeg-
ar menn hafa komið sér saman um
hlutina," sagði Karl Steinar. Hann
bætti því við að þetta væra mjög
óvenjuleg vinnubrögð hjá Dagsbrún
að draga sig út úr miðjum viðræð-
um.
Aðspurður um hvort niðurstaðan
í forvali Alþýðubandalagsins hefði
haft áhrif á útgöngu Dagsbrúnar,
kvaðst Ásmundur alls ekki geta
ímyndað sér það. „Við eram sterk-
astir þegar við stöndum saman,"
sagði hann aðspurður um hvort
útganga Dagsbrúnar veikti Al-
þýðusambandið.
„Það hefur ekkert komið fram
af hálfu Dagsbrúnar um það að
þeir hafí önnur markmið í þessum
samningum, en hér hafa verið uppi
á borðum," sagði Ásmundur. „Ég
held að það sé eðlilegast að Dags-
brúnarmenn geri grein fyrir
ástæðum sínum með útgöngunni.
Sérhvert félag hlýtur á hveijum
tíma að meta stöðu sína og hvemig
þ'að telur hagsmunum sínum best
borgið. Dagsbrún hefur gert það
og hefur ákveðið að vera ekki með
í þessum viðræðum hér núna,“
sagði hann ennfremur.
HLAÐBORÐ
Nú bjóðum við í hádeginu glæsilegt jólahlaðborð með úrvals- hráefni frá Kjötmiðstöðinni fyrir virkilega gott verð. Aðeins kr. 595,-
Skinkusúpa, jöklasalat, grafsilungur, reyktur lax, fiski- paté, 4 tegundir af sild, köld salöt, grísakæfa, svína- sulta, grisarúllupylsa, fiskréttur „au gratin", sjávarréttir i sitrónuhlaupi, saltfiskur, skata og hamsar. Jólabrauð, svartpönnubrauð, munkabrauð, 3ja korna brauðhleifar, rúgbrauð. Reyktur og saltaður grísakambur, léttsaltað grísalæri og skankar, Bæjonnesskinka, kokteilpylsur, hangikjöt, heitar og kaldar sósur, 6 tegundir af meðlæti.
Heitur réttur dagsins
Súr-sæt grisarif með hrísgrjónum. Uppskrift fylgir.
Allar þessar kræsingar eins og þú getur í þig látið fyrir aðeins
kr. 595.-
Allt áðurnefnt hráefni færó þú í Kjötmið-
stððlnnl.
ARMARIÍÓLL
Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.
Borðapantanir í sima 18833.
>oWester
a rrt'vs^-