Morgunblaðið - 02.12.1986, Side 16

Morgunblaðið - 02.12.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986 Mannssonurinn Bókmenntir Ævar R. Kvaran Kahlil Girbran: Mannssonurinn Þýðandi: Gunnar Dal. Útg.: Víkurútgáfan, Rvk. Aldrei skrifar hið ágæta skáld Jón úr Vör neitt svo opinberlega, að sá sem þetta hripar láti það framhjá sér fara. Einkum er honum minnisstæð grein eftir Jón úr Vör, sem hann birti í Lesbók Morgun- blaðsins fyrir nokkrum árum. Þar lýsti skáldið með miklu þakklæti þeim gífurlegu áhrifum, sem ljóða- þýðingar -Magnúsar Ásgeirssonar höfðu á hann ungan og önnur samtímaskáld. Margir ungir menn, sem á þeim tímum voru bláfátækir og þess vegna lítt lærðir í erlendum tungumálum áttu, eins og Jón, eft- ir að setja mark sitt í íslenska ljóðagerð. Jón skýrði frá því í þess- ari athyglisverðu grein hvernig þessar frábæru ljóðaþýðingar hefðu bókstaflega opnað ungum mönnum gersamlega nýja útsýn, nýja and- lega heima. Það er líka áreiðanlegt, að seint verður skáldinu Magnúsi Ásgeirssyni fullþakkað fyrir þau stórkostlegu áhrif sem hann með ljóðaþýðingum sínum hafði á ung íslensk skáld. Hafí Magnús Ásgeirsson verið aflvaki nýs skáldskapar á sínum tíma, þá leyfi ég mér að halda því fram, að skáldið Gunnar Dal hafí okki síður orðið aflvaki nýrrar and- legrar vakningar meðal Islendinga með frábærum þýðingum sínum á Spámanninum og Mannssyninum eftir hið stórkostlega skáld Kahlil Gibran. Spámaðurinn mun þegar vera orðin mest selda ljóðabók á íslandi og svo mun einnig fara um Manns- soninn, sem nú er kominn á markaðinn. Það er Víkurútgáfunni til mikils sóma, að hafa gefið út tvær jafnfrábærar bækur og þær sem hér hafa verið nefndar. Eg hef stundum sagt, að viskan og kærleikurinn væru systkin. Aðr- ir kynnu að láta sér koma til hugar, að þar væri um að ræða tvær hlið- ar á sama gimsteini. En hvemig sem menn nú vilja orða þetta, þá vita flestir, að viska án kærleiks er lítils virði, eins og Páll postuli sýnir framá í Biblíunni. En hvað kærleikann snertir má víst fullyrða, að kærleiksríkur maður sýnir ein- mitt mikla visku með góðvild sinni. Ekkert skáld hef ég lesið, sem sam- einar betur en Kahlil Gibran þetta tvennt sem öllu er mikilvægara: kærleik og visku. En það er ein- mitt þetta sem einkennir þessar tvær stórkostlegu bækur, sem hér að framan hafa verið nefndar og skáldið Gunnar Dal hefur nú kynnt okkur á eigin móðurmáli. Hvert mannsbam hér á landi ■ þekkir vitanlega sögnna af Jesú frá Nazaret. En það tel ég mig geta fullyrt, að aldrei hefur þessi saga verið riíjuð upp á jafn heillandi hátt og hér er gert í Mannssynin- um. Gibran leyfir sér nefnilega að segja hana með orðum samtíðar- manna Krists. Hann lætur þá segja álit sitt á þessum helga manni. Hann verður því að bregða sér í gervi þessara persóna samkvæmt skilningi sínum á þeim. Það liggur í augum uppi hvílíkar feiknarann- sóknir það hefur kostað skáldið. Hvemig því hefur tekist að gera þessar fomu persónur, sem við könnumst margar við úr Biblíunni, lifandi fyrir okkur nútímamönnum eða hve sennilegar þær eru geta menn mér fróðari dæmt um. En fyrir mér sem lesanda reyndust þær gæddar ríku lífi og einhvem veginn fannst mér, að einmitt með þessum hætti hefðu þær talað. Sá mikli fjöldi persóna, sem Gi- bran gefur orðið í þessari bók sinni, á hinsvegar ríkán þátt í því að gæða hana miklu og sönnu lífi. Það era ekki einungis aðdáendur Jesú, sem hér taka til máls, heldur einnig. þeir sem reyndust féndur hans og jafnvel hötuðu hann. Þeir færa einnig rök fyrir afstöðu sinni. Ég held að lestur þessarar bókar láti engan góðviljaðan mann ósnortinn. Hér gætir margra radda. Við heyram þannig Önnu móður Maríu, Maríu Magdalenu, Símon Pétur, Kaifas æðsta prest, Lúkas, Matt- eus, og þannig má lengi telja. Hér er þessi margsagða saga af Jesú sögð með nýjum og alveg ógleym- anlegum hætti. Enda leynir það sér ekki, að hér heldur stórskáld á penna. Þannig er að finna í þessari bók ljóð sem ógleymanleg verða sökum fegurðar og mannvits. Betri jólagjöf en Mannssoninn eftir Kahlil Gibran getur enginn maður óskað sér. Loks er fram komin bók, sem á það skilið að hljóta sæti við hlið hinnar frægu bókar Spámannsins. Þessar tvær bækur munu ávalt teljast meðal afreka Gunnars Dal, sem skálds og þýðanda. Einnig skal Víkurútgáf- unni þökkuð þessi bók. Undanfarna mánuöi höfum við átt í erfiðleikum með að útvega nægilegt magn af bílum frá SAAB verk- smiðjunum vegna feikilegrar eftirspurnar á heims- markaði. - Nú höfum við þær góðu fréttir að færa, að við eigum von á 20-30 SAAB 90 til landsins nú í nóvember og desember. SAAB 90 TIL AFGREIÐSLU NÚ Á AÐEINS 496 ÞÚSUND KRÓNUR. TRYGGÐU ÞÉR EITT STYKKISTRAX. TÖGGUR HF. BÍLDSHÖFÐA 16. SÍMI: 681530 BEINN SÍMI SÖLUMANNS: 83104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.