Morgunblaðið - 02.12.1986, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.12.1986, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986 488.000 kr. er gott verð fyrir listilega hannaðan Citroén BX, framherja fransks hugvits. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Á myndinni eru frá vinstri: Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri, Halld- óra Friðjónsdóttir, Hermann H. Jónsson og Guðmundur Birgisson, sem öll eru nemendur í Menntaskólanum við Sund, Játvarður Jök- ull Júlíusson höfundur bókarinnar og Ólafur H. Torfason blaðafull- trúi Búnaðarfélagsins. Rokkurinn á myndinni var í eigu Guðlaugar Sakaríasdóttur, eiginkonu Torfa. Torfi smíðaði rokkinn eftir skoskri fyrirmynd og Ijáinn, sem er fremst á myndinni, hafði Torfi einka- leyfi á frá Skotlandi. Búnaðarfélag íslands: Saga Torfa Bjarna- sonar og Olafsdals- skóla komin út G/obus/ LAGMULA 5 SÍMI 681555 CITROEN aiena IÞROTT FATNA Aldrei verið meira úrval. ★ Leikfimi ★ Jassballett ★ Aerobik ★ Líkamsrækt ★ Fimleikaskór ★ Jassballettskór Einnig mikiÖ úrval af aiena sundbolum. Heildsala - Sími 10330. eScndum í e PÓSTKRÖFU SPORTVÖRUmSLUN JNGOLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 40. Á HORNIKLAPPARSTÍGS OG GRETTISGÖTU S:117S3 - eftir Játvarð Jökul Júlíusson ÚT ER komin Saga Torfa Bjarnasonar og Ólafsdalsskóla, ásamt nemendatali skólans eftir Játvarð Jökul Júlíusson bónda i Miðjanesi í Reykhólasveit. Út- gáfa bókarinnar er á vegum Búnaðarfélags íslands, en þegar 100 ár voru liðin frá stofnun skólans í Ólafsdal, 1980, fékk félagið Játvarð Jökul til að rita söguna. Búnaðarskólinn f Ólafsdal var fyrsti búnaðarskólinn á íslandi, stofnaður 1880 og starfaði til 1907. Þaðan brautskráðust hátt á annað hundrað búfræðingar. Frá skólan- um breiddust nýjar ræktunarað- ferðir út um landið og ný tæki og verkfæri, sem m.a. voru smíðuð í Ólafsdal, ruddu sér til rúms. Torfi Bjamason var einnig ötull forystu- maður í félagsmálum, bæði á verslunar- og búnaðarsviði og kom þar miklu til vegar. Torfi er einna frægastur fyrir ljáinn sinn, en á honum hafði hann einkaleyfí frá Skotlandi. Hann Iét smíða ýmis önnur verkfæri, sem á sínum tíma þóttu mikil nýjung í landbúnaðar- störfum. SIEMENS SiEMENS uppþvottavél LADY SN 4510 með Aqua- Stop vatnsöryggi. Vandvirk og hljóðlát. • 5 þvottakerfi. • Þreföld vörn gegn vatnsleka. • Óvenjulega hljóðlát og spar- neytin. Smith og Norland, Nóatúni 4, s. 28300. Jónas Jónsson, búnaðarmála- stjóri, sagði á blaðamannafundi er haldinn var í tilefni útkomu bókar- innar að komnar væru út bækur um þá íjóra bændaskóla sem komið hefði verið á fót hér á landi, auk Ólafsdalsskólans, hefur komið út saga Hólaskóla í Hjaltadal, bænda- skólans að Eiðum og búnaðarskól- ans að Hvanneyri. „Það sem er þó merkilegt við Ólafsdalsskólann er að hann var stofnaður og stjórnað af einum og sama manninum, sem jafnframt var einn af merkustu búnaðarfrömuðum þessa lands. Söguna hefur ritað bóndi á búi sínu sem fylgir ströngum kröfum fræði- mannsins. En, hann hefur þó ekki sína tíu fíngur til að vinna með vegna lömunnar heldur verður hann að beita öðrum brögðum," sagði Jónas. Játvarður Jökull hefur skrifað §ölda blaða- og tímaritsgreina, en saga Torfa í Ólafsdal er þriðja útg- áfubók hans. Faðir Játvarðar var fyrsti nemandinn, sem kom í Ólafs- dalsskóla. „Ég hefði ekki afrekað miklu hefði ég ekki notið aðstoðar- fólks heima fyrir og nemendatalið hefði ég aldrei getað unnið hefði ég ekki notið aðstoðar Tómasar Helgasonar frá Hnífsdal," sagði Játvarður. „Ég tók tölvutæknina í mína þjónustu fyrir tveimur árum síðan og hefur það ýmsa kosti í för með sér nema hvað ég get ekki skipt um disklingana upp á eigin spýtur. Hinsvegar gat ég sett blöð- in í ritvélina mína sjálfur." Um störf Torfa sagði Játvarður að hann væri a.m.k. fjögurra manna maki. „Torfí hefur á sinni lífstíð afrekað það sem fjórir menn gætu orðið þekktir fyrir í sögunni. í fyrsta lagi má nefna störf hans við skól- ann, þá Versunarfélag Dalasýslu, sem hann kom til leiðar og síðar náði yfír fímm sýslur. Smíðastarfið er ákaflega mikilsvert og í íjórða lagi var hann bæði mikill bóndi og ijölskyldufaðir. Hann annaðist kennslustörfín einn á fyrstu árum skólans og reyndar skilur það eng- inn hvemig hann fór að því að kenna tveimur bekkjum," sagði Ját- varður Jökull. Skólahúsið í Ólafsdal er nú notað sem skólasel Menntaskólans við Sund. Þangað eru famar nokkrar ferðir á hveiju ári, til náms og skemmtunar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.