Morgunblaðið - 02.12.1986, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986
Forseti FIDE endurkjörinn
Florencio Campomanes frá Filippseyjum (til hægri) þakkar andstæð-
ingi sínum, Brasilíumanninum Lincoln Lucena, eftir að sá siðarnefndi
dró til baka framboð sitt til forseta Alþjóðaskáksambandsins (FIDE).
Gerðist þetta aðeins nokkrum mínútum áður en atkvæðagreiðsla
skyldi hefjast um forsetaembættið. Campomanes var því endurkjör-
inn forseti FIDE. Sem kunnugt er af fréttum fór forsetakjörið fram
í tengslum við Ólympíuskákmótið í Dubai.
Gulusóttarfaraldur
herjar í Nígeríu
Hundruð manna hafa látist á þremur vikum
Lagos, AP.
HUNDRUÐ manna í Nígeríu
hafa dáið úr gulusótt undanfarn-
ar vikur. Hefur veikin aðallega
geysað í miðhluta landsins, en
er nú tekin að breiðast hratt út
í austurhluta landsins. Skýrði
Gottlieb Lobe Monekasso, yfir-
maður Alþjóða heilbrigðisstofn-
unnarinnar (WHO) frá þessu í
gær.
Fjöldi látinna, sem vitað er um, var
orðinn 470 í lok síðustu viku. í
Benuefylki einu saman höfðu 300
mans dáið úr gulusótt, en þar kom
veikin fyrst upp fyrir þremur vikum.
I öðrum hlutum landsins austan-
verðu höfðu 170 manns látizt úr
veikinni.
Það hefur tekið margar vikur að
finna það út, að þessi faraldur var
gula, en sá sjúkdómur berst m. a.
með moskitóflugum frá öpum til
manna á frumskógasvæðum Afríku
og á Amazonsvæðinu í Suður-
Afríku.
Stjómvöld í Nígeríu áforma að
verja 1,5 millj. dollara til kaupa á
bóluefni í þeirri herferð gegn gulu-
sóttinni, sem þegar er hafín í
landinu. WHO hefur hins vegar
ákveðið að leggja til 500.000
skammta af bóluefni.
Síðasta bólusetningarherferð
gegn gulusótt í Nígeríu fór fram
árið 1974. Er haft eftir sérfræðing-
um, að það sé einkum ungt fólk,
sem orðið hafi illa úti í gulusóttar-
faraldrinum nú og sé skýringin sú,
að sennilega hafí þetta fólk misst
af bólusetningunni 1974.
Einn skammtur af bóluefni skap-
ar ónæmi gegn gulusótt allt að 10
ár og er slíkrar bólusetningar að
jafnaði krafízt af öllum útlending-
um, sem heimsækja Nígeríu.
Byggingavöruverslanir
— Hurðasmiðjur
Við bjóðum hina viðurkenndu
TOTAL-fellilista
fyrir hurðir á eftirfarandi verðum miðað við gengi
norskrar krónu 28. nóvember 1986:
Hurðarspjald: Verð án söluskatts: Verð með söluskatti:
60 sm kr. 520 kr. 650
70 sm kr. 540 kr. 675
80 sm kr. 560 kr. 700
90 sm kr. 580 kr. 725
100 sm kr. 600 kr. 750
110sm kr. 620 kr. 775
120 sm kr. 640 kr. 800
TOTAL-fellilistar eru úr áli og fylgja leiðbeiningar og allur festibúnaður.
TOTAL-fellilistar gera þröskulda óþarfa, hindra trekk og eru viður-
kenndir fyrir B-30 eldvarnarhurðir.
Einkaumboð á fslandl fyrlr TOTAL
SKANIS HF. norræn viðskipti,
Laugavegi 59,101 Reykjavík. Sími: 21800.
Noregur:
Cary Grant látinn:
Einn fremsti leikari
gullaldaráranna
Davenport, Iowa, Reuter, AP.
HINN þekkti Hollywood-leikari
Cary Grant lést aðfararnótt
sunnudagsins 82 ára ára að
aldri. Ferill hans hófst árið
1932 og alls lék hann í 72 kvik-
myndum. Framámenn í kvik-
myndaiðnaðinum minntust
hans með hlýju í gær og sögðu
margir að með honum væri
einn fremsti leikari „gullaldar-
áranna“ horfinn af sjónarsvið-
inu.
Grant var staddur í Davenport
í Iowa-fylki þar sem hann hugðist
koma fram í sýningu honum til
heiðurs og svara fyrirspumum.
Hann veiktist á meðan unnið var
að undirbúningi hennar og lést í
sjúkrahúsi skömmu síðar. Bana-
mein hans var hjartaslag.
Cary Grant hét réttu nafni
Archibald Leach. Hann fæddist á
Bretlandi árið 1904 og var af fá-
tæku almúgafólki kominn. Allt frá
bamæsku dreymdi hann um
frægð og frama og fór komungur
til New York til að sigra heiminn.
Ferill hans hófst árið 1932 og
sama ár lék hann í „Blond Ven-
us“ á móti Marlene Dietrich.
Crant lék í fjölmörgum frægum
kvikmyndum og var óumdeilan-
lega einn fremsti Hollywood-leik-
arinn á fjórða og fímmta Cary Grant og Sophia Loren dansa „Cha-Cha“ á meðan unnið
áratugnum. Hann var útnefndur var að töku kvikmyndarinnar „The Pride and The Passion“ árið
til Oscar-verðlauna árið 1945 fyr- 1956.
ir leik sinn í „None But the Lonely
Heart", sem var eitt af fáum al-
varlegum hlutverkum hans. Hann
hlaut ekki verðlaunin fyrr en eftir
að ferli hans var lokið þegar hann
fékk sérstök heiðursverðlaun fyrir
framlag sitt til kvikmyndaiðnað-
arins.
Cary Grant varð einkum þekkt-
ur sem gamanleikari og þótti
ávallt bestur þegar hann lék glað-
lyndan fjallmyndarlegan heims-
borgara, sem átti mestu
vandræðum að veijast ásókn
kvenna. A ferlinum gafst honum
tækifæri til að leika á móti mörg-
um þekktustu leikkonum kvik-
myndasögunnar og nægir þar að
nefna Marlene Dietrich, Mae
West, Ingrid Bergman, Grace
Kelly, Katherine Hepbun, Irene
Dunn og Rosalind Russell.
Grant kvæntist fímm sinnum,
síðast árið 1981 þegar hann gekk
að eiga Barböru Harris en hún
var þá þrítug að aldri. Hann eign-
aðist eina dóttur með fjórðu
eiginkonu sinni, leikkonunni Dyan
Cannon, árið 1966 en þau skildu
ári síðar.
Árið 1966 lék Grant í sinni
síðustu kvikmynd, „Walk dont
run“ en sama ár ákvað hann að
Mynd þessi var tekin er Cary Grant hélt áttræðisafmæli sitt hátí- daga sig í hlé og gerðist forstjóri
ðlegt árið 1984. Fabergé-ilmefnafyrirtækisins.
Flóttamannaleiðtogi
biður um lögregluvernd
Ósló. Frá Jan Erik Laure. fróttaritára Morgunblaðsins. ^ Æ
ANNETTE Thommessen, leið-
togi samtaka flóttamanna i
Noregi, þarf nú á lögregluvernd
að halda allan sólarhringinn, þar
sem norskir kynþáttahatarar
hafa hótað henni öllu illu.
Samtök Thommessen aðstoða
flóttamenn, sem koma til Noregs,
og hafa þau gagnrýnt stjómina
fyrir stefnuleysi í málefnum þeirra.
Samtökin halda fram, að stjómvöld
hafí gert of lítið fyrir flóttamennina
og leyfí ekki nógu mörgum að flytj-
ast til landsins.
„Eftir að ég gagnrýndi stjóm-
völd, hefur mér hvað eftir annað
verið ógnað símleiðis. Nú er þetta
orðið svo þétt og ógnanirnar svo
alvarlegar, að ég gat ekki meira,
og þess vegna bað ég um lögreglu-
vemd,“ sagði Thommessen.
Um helgina kom 61 flóttamaður
til Fomebu-flugvallar fyrir utan
Osló og hefur illa gengið að anna
þörfum þeirra og hinna sem fyrir
em. Fólkið verður að búa í skólum
og á hótelum, sem lögð hafa verið
niður. Hefur flóttafólkið kvartað
yfír ófullnægjandi aðstæðum og
skorti á norsku-kennslu.
Um þessar mundir fara fram við-
ræður milli ríkis og sveitarfélaga.
Sveitarfélögin hafa reynst ófús til
að taka á móti flóttafólki án nauð-
synlegra fjárstyrkja frá ríkinu.