Morgunblaðið - 02.12.1986, Síða 48

Morgunblaðið - 02.12.1986, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986 48 Jöfnun atkvæða eftir Stefán Jón Frið- riksson Við íslendingar höfum talið okk- ur búa við jafnrétti enda er kveðið á um slíkt í lögum. Þar segir að jafnrétti skuli vera einn af hom- steinum íslensks þjóðfélags og stjómskipunar. En allt fer þetta eftir því hvemig maður lítur á hlut- ina. Jafnrétti getur birst í ýmsum myndum, svo sem jafnrétti milli kynja, jafn réttur frammi fyrir lög- um, jafnrétti til náms og svo mætti lengi telja. Þessa þætti teljum við góða og gilda enda flokkast þeir undir sjálfsögð mannréttindi. Sumir telja þó að jafnrétti leiði ekki til góðs. Er í því sambandi átt við kjördæmaskipunina sem er ein stærsta brotalömin í stjómskipun landsins, þar eð minnihluti getur haft meiri áhrif í skjóli óréttlátrar skiptingar atkvæða og sumir lands- hlutar eða kjördæmi hafa þannig fengið forskot fram yfír önnur. I 21. grein mannréttindayfirlýs- ingar Sameinuðu þjóðanna segir meðal annars: „Vilji þjóðarinnar skal vera grundvöllur að valdi ríkis- stjóma. Skal hann látinn í ljós með reglubundnum, óháðum og almenn- um kosningum, enda sé kosninga- réttur jafn og leynileg atkvæða- greiðsla viðhöfð, eða jafngildi hennar að frjálsræði." Þessi yfírlýs- ing, sem ísland samþykkti á sínum tíma, verður ekki skilin öðmvísi en svo, en að atkvæði allra landsmanna eigi að vega jafn þungt óháð bú- setu. En þessi kafli yfirlýsingarinn- ar, þ.e. að kosningaréttur sé jafn, hefur verið hundsaður. Er þetta ekki brot á almennum mannréttind- um? Ef borin em saman hlutföllin á fjölda atkvæða á þingmann í Vest- fjarðakjördæmi og Reykjavík verður útkoman u.þ.b. 1 á móti 5. Þ.e.a.s. hver þingmaður á Vest- ljörðum þarf einungis 1.200 atkvæði en þingmaður í Reykjavík yfír 6.000 atkvæði til þess að ná kjöri á Alþingi. Reykjaneskjördæmi og Austurland sitja einnig á hakan- um hvað þetta varðar. í Reykjavík og á Reykjanesi búa rúmlega 62% kjósenda alls landsins og sam- kvæmt því ættu þessi tvö kjördæmi að hafa 40 þingmenn af 63, en í næstu kosningum hafa þau aðeins 29 (sjá skífurit). Það er því ljóst að hér vantar mikið á að réttlætið nái fram að ganga. En atkvæðamisvægi er samt engin ný bóla. Við höfum í áratugi búið við meingallað kjördæma- skipulag. Sem dæmi um það má neftia kosningar árið 1931. Þá fékk Framsóknarflokkurinn, sem sækir fylgi sitt aðallega til sveitanna, 35,9% atkvæða og 21 þingmann kjörinn af 36, en Sjálfstæðisflokk- urinn 43,8% atkvæða en einungis 12 þingmenn kjöma. Skv. atkvæða- magni hefði átt að vera: Sjálfstæð- isflokkurinn 20 þingmenn og Framsóknarflokkur 11. Margir andstæðingar jöfnunar kosningaréttar hafa haldið því fram, að þessi tilhögun sé eina ráð- ið til að spoma við fólksflótta úr sveitum landsins til höfuðborgar- svæðisins. En raunin þarf ekki að vera sú. Vandann mætti leysa með því, að færa vald þingmannanna í málefnum sveitarfélaganna til sveitarstjómanna, m.ö.o. að auka sjálfsforræði byggðarlaganna yfír þeim fjármunum sem þau skapa og jafnframt að láta sveitarfélögin sjálf sjá um þætti hvað varðar heil- brigðismál, félagsmál, menntamál, íþrótta- og æskulýðsmál. í Kanada fer fram regluleg end- umýjun á kjördæmaskipaninni og það tryggt að allir hafí þar jafnt vægi atkvæða óháð búsetu. í stjóm- arskrám sumra ríkja Vestur-Evrópu er jafnvel ákvæði um þetta. Sem dæmi um þetta má nefna Aust- urríki, Liechtenstein, Sviss og Vestur-Þýskaland. Hér þarf Island ekki að vera nein undantekning. Það er svo aftur annað mál hvort stjómmálamenn hafa kjark til að setja slík ákvæði í stjómarskrá ís- lands. í nýjum kosningalögum sem samþykkt hafa verið á Alþingi er gert ráð fyrir að þingmönnum fjölgi Stefán Jón Friðriksson „Hlutverk þinginanna er einfaldlega að setja landsmönnum lög, en ekki að standa í hags- munapoti fyrir einstök byggðarlög og lands- hluta með krukki í sjóði landsmanna.“ um 3, til þess að leiðrétta örlítið þetta misvægi sem aukist hefur frá því að jöfnun var seinast gerð árið 1959. Það er ljóst að þessi ráðstöf- un nær ekki langt og leysir engan vanda, heldur veltir honum einung- is á undan sér. Alþingismenn em þegar allt of margir og 63 þing- menn fyrir 240 þúsund manna þjóð er út í hött ef miðað er við fjölda þingmanna nágrannaþjóða okkar. Viturlegra væri að fækka þeim stór- lega líkt og gert var í borgarstjóm Reykjavíkur. Eins og áður var getið em þing- menn sífellt að vasast í málum sem í raun koma þeim ekkert við. Má þar nefna áhrif þeirra á íjárveiting- ar úr hinum ýmsum sjóðum og þá í leit að atkvæðum (gæluverkefni), en þá er ekki hugsað um hag fjöld- ans eins og eðlilegast væri. Þetta samræmist einfaldlega ekki því stjómkerfí sem við íslendingar höf- um tileinkað okkur, þ.e. þrískipt- ingu valds (löggjafarvald, framkvæmdavald, dómsvald). Hlut- verk þingmanna er einfaldlega að setja landsmönnum lög, en ekki að standa í hagsmunapoti fyrir einstök byggðarlög og landshluta með kmkki í sjóði landsmanna. Það má ekki endalaust ganga í sjóði lands- manna til að niðurgreiða búsetu. Þá er ráðlegra að efla atvinnustarf- semi í stærri bæjar- og sveitarfélög- um og gera þeim kleift að ráðstafa eigin íjármunum í stað þess að það sé í höndum misviturra þingmanna og sjóðakerfísins. Höfundur á sæti í umræðuhópi HeimdaJlar um úrbætur íþjóð- félagsmálum. Betri tímar.. ? ■eftir Hólmstein Brekkan Bráðum kemur Frá því að ísland byggðist og allt til dagsins í dag hefur saga lands og þjóðar verið vörðuð stór- brotnum náttúmhamfömm og veraldlegri þján ýmiss konar. Vissu- lega hefur sérstæð saga þjóðarinnar mótað fólk hvers tíma misjafnlega en þó em vissir þættir sem allir íslendingar á öllum tímum virðast eiga sameiginlega, það er stolt af uppmnanum, þolgæði og óbilandi tm á betri tíma. Em komnir betri tímar? Koma einhvem tíma betri tímar eða verð- um við að sætta okkur við þann tíma er við höfum? Kannski vantar okkur bara fmmkvæðið að því að gera okkar tíma að betri tímum. Tímasóun Fyrir stuttu var útvarpað og sjón- varpað frá Alþingi eftirmála þingmanna um stefnuræðu forsæt- isráðherra. Þessar umræður mætti í fáum orðum kalla síendurtekið efni. Þótti mér hjákátlegt að hlusta á þingmenn flytja sama pistilinn, hver á eftir öðmm, nákvæmlega eins. Það málefnalegasta er fram kom í umræðunni vom ein eða tvær kjúklingasögur sem hnýttar vom við „nákvæmlega eins“ pistilinn. Hvílík tímasóun! Finnst mér til há- borinnar skammar að háttvirtir þingmenn þjóðarinnar skuli leyfa sér að bjóða fólki upp á svo óupp- byggilegt sjónvarps- og útvarpsefni sem þessar umræður vom. Feiknastjörnur farsældar Það er alveg einstaklega athygl- isvert að fylgjast með baráttu- og athafnafólki komast inn á þingsam- kundu þjóðarinnar. Undantekn- ingalaust verður allt þetta fólk eins, talar eins, gengur eins, klæðir sig eins. Karlmenn í stíf jakkaföt og konur fá sér silkiklút um hálsinn (sem er aðalsmerki kúrríer konunn- ar). Þama breytist það úr athafna- og baráttufólki, með hugsjónir, í feiknastjömur farsældarinnar. Mottó númer eitt er að farsælast sé að sitja í fjarska, gagnrýna og rífa niður, heldur en að leghgja hönd á plóginn og dæma verkið eftir að upp er staðið. Fláræði eða samtrygging' Nýverið var fjallað um siðgæðis- vitund þingmanna í hinum ýmsu Qölmiðlum og þótti mörgum tími til kominn að blása rykinu af þeirri hillu. En af einhverri undarlegri ástæðu komst aldrei neinn botn í það mál. Það eina er fram kom var að þingmenn eru fríaðir af að taka ábyrgð af rangri ákvarðanatöku og að það væri ekki hefð fyrir því að þingmaður segði af sér. Hvað er siðgæði? Hvað er heiðarleiki? Hvað er fals? Hvar draga menn mörkin? Hið eina sem getur svarað þessum spumingum er samviskan. Það yrði of langt mál að telja upp það sem ég tel vera fyrir neðan „normal" siðgæðisvitund hjá háttvirtum þing- mönnum en þó þykir mér rétt að minnast á nokkur atriði. Þegar Alþingi kemur saman eftir sumarfrí þá hefur Alþýðuflokkur bætt við sig þingmönnum án þess að hafa fyrir því kjörfylgi. Er það heiðarleg framkoma gagnvart kjós- Hólmsteinn Brekkan „Það samtrygginganet er bindur þingmenn þessarar þjóðar verður að rjúfa. Þingmenn verða að koma heiðar- lega fram gagnvart þjóðinni og segja af sér þingmennsku séu þeir ekki starfi sínu vaxnir.“ Pórunn Vbldimarsdóttir AF HALAMIÐUM Á HAGATORG Ævisaga Ðnare Óiafssonar f Laekjarhvammi Ævisaga Einars Ólafs- sonar í Lækjarhvammi ÚT ER komin hjá Erni og Örlygi bókin Af Halamiðum á Hagatorg sem er ævisaga Einars Ólafssnar í Lækjarhvammi, skráð af Þór- unni Valdimarsdóttur sagnfræð- ingi, sem skráði einnig bókina Sveitin við sundin sem kom út á liðnu sumri. í fréttatilkynningu útgefanda segir m.a. „Ævisaga Einars í Lækjar- hvammi er fyrir margar sakir hin sérstæðasta. Hann er af aldamóta- kynslóðinni, sonur leiguliða eins og flest aldamótaböm, alinn upp í torf- bæ undir norðurhlíð Esjunnar við frumstæða atvinnuhætti. Einar vann á unglingsárum í eyrarvinnu í Reylqavík og var á togara í ára- tug. En togarasjómaðurinn Einar taldi sig til bændastéttar og ætlaði sér að verða bóndi. Hann giftist heimasætunni í Lækjarhvammi í Reykjavík 1925 og tók þar við búi skömmu síðar. Áður en varði var Einar flæktur í félagsmál sinnar stéttar og kunni því svo vel að hann kom víða við í félagssamtökum bænda næstu 50 árin. Saga Einars Ólafssonar spannar því tímabil frá því hann vaknar til vitundar um tilveru sína í torf- bænum undir hlíðum Esjunnar þar til hann er orðinn einn síðasti bónd- inn á mölinni í Reykjavík, sem sé frá moldarkofum til marmara- halla." Bókin er gefín út í tilefni af níræðisafmæli Einars 1. maí sl. Bókin er sett og prentuð í prent- stofu G. Benediktssonar en bundin hjá Anrarfelli hf. Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson. endum? Er það sanngjamt gagnvart vinnandi fólki þessa lands að þing- menn segjast ekki getað lifað af fjórföldum launum verkamanns. Margt fleira væri hægt að minnast á og eflaust hægt að skrifa um þetta efni heila bók. Það er Kröflu- ævintýri í hveiju kjördæmi landsins og enginn ábyrgur. Það samtrygginganet er bindur þingmenn þessarar þjóðar verður að ijúfa. Þingmenn verða að koma heiðarlega fram gagnvart þjóðinni °g segja af sér þingmennsku séu þeir ekki starfí sínu vaxnir.Að skýla sér á bak við að það sé hefð á ís- landi að þingmaður segi ekki af sér er fólskulegur þumbaraháttur. Mér fínnst hræðilegt til þess að hugsa að einhvem tíma verður fært á spjöld sögunnar, að það sé hefð á Islandi að vera óheiðarlegur. Að leggja hönd á plóginn Sá akur sem ísland er og íslensk- ir stjómmálamenn hafa farið höndum um undanfama áratugi er löngu kominn í órækt. Sífellt hefur gullkomum þjóðarinnar verið sáð í arfafullan akurinn. Þar hafa þau dáið og orðið að næringu fyrir arf- ann. Ekki hefur verið hirt um að reyta burt illgresið. Heldur hafa okkar ágætu „stjómmálagarðyrkju- menn“ eytt allri sinni orku í að rífast um það. hver eigi að sá og hver eigi að njóta uppskerunnar þ.e.a.s. ef einhvem tíma einhver uppskera verður. Það er endalaust hægt að sá í óræktarakur nýju komi, en meðan engin er uppskeran þá sveltur fólk- ið. Til þess að gróðurreitur geti gefíð af sér ríkulegan ávöxt þarf að plægja hann reglulega, reyta burt illgresi jafnóðum og það lætur á sér kræla og hlúa að honum með alúð. Já, það er kominn tími til að plægja akurinn og sá upp á nýtt. En til þess að uppskeran verði ein- hver verður að ráða til verksins nýja garðyrkjumenn sem stunda akurinn með natni og nærgætni. Ef... Ef lífið væri aðeins draumur um hamingjuna, þá dreymdi mig með. Höfundurhefur starfað viðhval- skurði sumrin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.