Morgunblaðið - 02.12.1986, Síða 59
I
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1986
59
Afmæliskveðja:
* _____ •
Oskar Pétursson
— 80 ára
Kæri skátabróðir.
Það er mér mikill heiður og gleði
að færa þér kærar afmæliskveðjur
á áttatíu ára afrnæli þínu, fyrir
hönd stjómar Bandalags íslenskra
skáta. Kveðjan er að sjálfsögðu frá
öllum skátum á landinu, sem svo
margir eiga þér mikið að þakka
kæri vinur. Ég persónulega á þér
margt að þakka, fyrst og fremst
þína góðu fyrirmynd sem þú varst
mér sem ungum skáta. Mér fannst
þá að þú værir mesti skátinn, enda
barstu af fyrir gjörvuleika, fram-
komu og snyrtimennsku. Seinna
varstu skjól fyrir mig sem ungling,
þegar fyrirferð mín og félaga minna
keyrði um þverbak. Þú skildir vel
kraftmikla krakka með óendanlega
mikla lífsorku.
Þegar skátaflokkurinn minn,
Jötnar, hélt upp á afmæli sitt upp
á Hellisheiði í skálanum Jötni, þá
voru ekki allir fúsir til að gefa okk-
ur leyfí. En þá snerum við okkur
til þín. Við buðum þér í afmælið
einum fullorðinna. Við vissum það
að kæmir þú með fengjum við leyf-
ið til að halda afmælið. Allt færi
vel fram og engin hætta á öðru en
að þú yrðir einn af okkur. Við lögð-
um okkur fram við matargerð,
skreytingu á borðum og skemmtiat-
riði. Kvöldið tókst vel í alla staði
og síðan sváfum við í skálanum um
nóttina. Oskar, það voru rúmlega
ijörutíu unglingar sem vissu ekki
hvemig þeir áttu að þakka þér. Við
stungum saman ne§um og allir
voru sammála um að enginn átti
betri vin og félaga en þig. Óskar,
þakka þér fyrir.
Leiðir okkar hafa legið saman í
skátastarfi víða og ekki hefur vant-
að iðni þína við starfíð. Margir
hlutir bera merki handa þinna.
Glansandi fánatoppar á burðar-
stöngum skátafélaga, ýmist skraut
sem festist í huga og hjarta við
athafnir sem ilja, fagurgert merki
Gilwellskáta í litlu kirkjunni að Úlf-
ljótsvatni en Úlfljótsvatn er tengt
þér vegna margra verka þinna þar.
Ég sagði að þú hefðir verið góð
fyrirmynd. Nú síðast þegar þú slas-
aðist í bflslysi. Karlmennska þín og
æðruleysi var ótrúlegt og með
dugnaði þínum varstu mér aftur
áminning og fyrirmynd að æðrast
ekki. Mínir erfíðleikar urðu smáir
miðað við þína. Þegar svo sólin
skein á okkur í Viðey í sumar og
þú mættir á hækjunum og fórst um
alla eyjuna til að fylgjast með, þá
roðnuðu margir yngri yfír ódugnaði
sínum miðað við þig.
Kæri skátabróðir, ég óska þér til
hamingju aftur, við eigum því mið-
ur ekki eftir að eiga góða stund
saman í Jötni því hann er brunn-
inn, en við eigum eftir að vera
saman á ótal mótum og ferðum.
Lord Baden Powel sagði:
„Reyndu að gera eitt góðverk á
dag.“ Þú gerðir ótal góðverk á
hveijum degi án þess að óska eftir
þakklæti.
Agúst Þorsteinsson
skátahöfðingi.
í dag, 2. desember, þegar Óskar
Pétursson stendur á áttræðu, leita
minningar á hugann. Sú fyrsta frá
því um 1950 eða svo: Austurbæjar-
skólaportið; skömmu fyrir sumar-
daginn fyrsta. Gönguæfíng þar sem
Óskar Pétursson var að kenna okk-
ur stráklingum og stelpum að
ganga sæmilega í takt og verða
okkur ekki til skammar í skáta-
skrúðgöngunni á sumardaginn
fyrsta, sem þá var fastur liður í
bæjarlífinu. Þar var hvorki hik né
hálfvelgja. Síðan eru allar minning-
Ferðaminningar
af Vestfjörðum
STARFSMANNAFÉLAG Þjóð-
viljans hefur í tilefni sjötugs
afmælis Guðrúnar Guðvarðar-
dóttur starfsmanns Þjóðviljans
gefið út bókina „Kögur og Horn
og Heljarvík". Undirtitill bókar-
innar er „Ferðaminningar af
Vestfjörðum".
í formála að bókinni segir Kjartan
Ólafeson, fyrrum ritstjóri Þjóðvilj-
ans m.a. að Guðrún hafi í 16 sumur
gengið um byggðir Vestfjarða og
að frásagnir þær sem í bókinni eru
séu sýnishom af þeim ferðasögum
sem Guðrún hefur ritið um flestar
eða allar gönguferðir sínar um
Vestfirði. „I frásögnum og ferða-
sögum Guðrúnar fáum við ekki
aðeins að heyra um það sem fyrir-
bar í hennar eigin ferðum heldur
leiðir hún okkur bæ frá bæ til fund-
ar við mannlíf fyrri tíðar, gleði þess
og harma. Við leiðsögn Guðrúnar
er sem landið sjálft fái mál og líf
kvikni um sinn í fomum tóftum.
Það er gleðiefni að þessi Vestfjarð-
arkona hefur ekki gengið þær
grýttu og stundum hálfgleymdu
slóðir einungis fyrir sjálfa sig held-
ur líka fyrir okkur hin, sem nú
ar um Óskar Pétursson tengdar
skátastarfí í Reykjavík, Skátaheim-
ilinu sem var eiginlega heilt
braggahverfí við Snorrabrautina,
hvers saga verður vonandi einhvem
tíma skráð, skátamótum, hugsjón
og markmiði skátahreyfingarinnar.
Óskar Pétursson hefur nær alla
sína löngu ævi verið tengdur skáta-
hreyfíngunni á íslandi. Hann á þar
að baki langt dagsverk og dijúgt.
Vafalaust á hann eitt og annað
óunnið enn. Hann hefur gefíð skáta-
hreyfingunni ómælt og sitthvað
hefur skátastarfíð áreiðanlega veitt
honum til endurgjalds. Öðmm kosti
væri starf hans ekki slfld að vöxtum
sem raun ber vitni.
Persónulega þakka ég Óskari
Péturssyni löng og ævinlega
ánægjuleg kynni. Fyrir hönd Skáta-
sambands Reykjavíkur og fyrir-
rennara þess, Skátafélags
Reykjavíkur, þakka ég áratuga
óeigingjamt starf í þágu skáta í
Reykjavík og áma honum og hans
nánustu heilla á þessum merkis-
degi. Vonandi eigum við eftir að
eiga hann að enn um langa hríð.
Eiður Guðnason, formaður
Skátasambands Reykjavíkur.
í dag er elsti starfandi skáti á
íslandi 80 ára. Hann hefur verið
skáti jrfir 60 ár og telja margir, að
Guðrún Guðvarðardóttir.
eigum þess kost að njóta leiðsagnar
hennar og frásagna hennar á bók“.
Aftast í bókinni er niðjatal Þóm
Gunnlaugsdóttur frá Svarfhóli.
Bókin er 190 blaðsíður og er sett
í prentsmiðju Þjóðviljans.
hann eigi lengstan starfsaldur skáta
í heiminum. Er þá ekki lítið sagt.
Það er því margs að minnast frá
svo langri starfsævi, því Óskar hef-
ur verið virkur í skátastarfínu alla
tíð.
Ég minnist hans fyrst í Skátafé-
laginu Væringjum, sem alllengi
hafði aðsetur sitt í Betaníu-kjallar-
anum við Laufásveg. Óskar er hár
maður vexti og varð okkur yngri
skátum starsýnt á foringja fyrstu
deildar félagsins, því hann þurfti
víða að beygja sig þama inni, þar
sem svo lágt var til lofts.
Síðan em 50 ár, en í gær vom
50 ár frá því að ég vann mitt skáta-
heit og hef ég þekkt Óskar alla tíð
síðan. Öll þessi mörgu ár hefur
Óskar verið vð skátastörf og alltaf
þegar mikið hefur legið við kemur
Óskar og leggur síná gjörvu hönd
að verki.
I gamla daga var hann ávallt
fánavörður skáta í Reykjavík og
stjómaði fánaborginni við göngur
og önnur hátíðleg tækifæri. Mér
fannst ég geta um daginn greint
hann í fremstu fylkingu skáta á
myndinni af útför sjómannanna af
„Pourquoi pas?“, sem fómst 1936
og rifjað var upp nýlega. Síðan
hefur Óskar verið virkur í skáta-
starfí við skátastörf, á foringjanám-
skeiðum, við uppbyggingu Ulfljóts-
vatns og ótal margt fleira sem <jf
langt yrði upp að telja.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
ótal skáta þegar ég óska honum til
hamingju með aftnælið, en þó enn
frekar, hve vel hann heldur andleg-
um kröftum, og þann dug, sem
ávallt hefur einkennt hann og öll I
hans störf. Til merkis um það má
geta þess, að hann hyggur nú næsta
sumar á ferð til Englands á Al-
þjóðaþing Gildisskáta og iætur '
hann hvergi deigan síga.
Við óskum honum góðrar ferðar.
Óskar tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Neskirkju eftir kl.
20, í kvöld.
Páll Gíslason
HPGoodrích
Ný sending væntanleg f vikunni.
* Bjóðum áfram þessi frábæru kjör,
en aðeins meðan birgðir endast.
Mest seldu JEPPADEKKIN
A: Útborgun 15%.
B: Eftirstöðvar á 4-6 mánuðum.
C: Fyrsta afborgun eftir áramót.
LT235/75R15 31xl0.50R15LT 35X12.50R15LT
LT255/85R16 32xll.50R15LT 31xl0 50R16,5LT
30x9.50R15LT 33xl2.50Rl5LT 33xl2.50R16,5LT
/M4RTst
Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188.
4