Morgunblaðið - 20.12.1986, Blaðsíða 63
MORGUNfíLAfiíb, LAUGÁRfiÁGUR 2’0. ÖÉSeMbER 1906
/
-Vs
%
*»**
í )K K GliRl MRl' dímíing I
Mtt
'*£$*&***
<* r
m
m-i
sf T,4f “v>>K? Cr- *,
S. -r -
1» &J*
Ko»
feK{
Hljómsveit Glenn Miller frá New York skemmtir i Broadway um
áramótin.
0
Aramótafaernaður á Broadwav:
OQf
kce*
leiKUí
Hljómsveit Glenn Miller
og íslenskir listamenn
Aramótadansleikur sjónvarpsins í
beinni útsendingu
HLJÓMSVEIT Glenn MUler er
væntanleg til landsins í lok ársins
og mun hún leika fyrir dansi i
veitingahúsinu Broadway á ný-
ársnótt og svo 1., 2. og 3. janúar
næstkomandi. Að sögn Björgvins
Halldórssonar, sem hefur umsjón
með skemmtanahaldi i Broad-
way, er hér um að ræða 20
manna hljómsveit frá New York,
sem leikur danstónlist i uppruna-
legum útsetningum Glenn Miller.
„Þegar Glenn Miller lést, í lok
seinni heimsstyijaldarinnar, var
hann á hátindi ferils síns og hljóm-
sveit hans og rekstur hennar var
þá þegar orðið stórfyrirtæki," sagði
Björgvin í samtali við Morgunblað-
ið. „Ættingjar hans ákváðu að
halda rekstri fyrirtækisins áfram
og höfðu einkarétt á plötuútgáfu
og útsetningum í nafni Glenn Miller
og þessi hljómsveit er rekin í nafni
fyrirtækisins „Glenn Miller
Produetion Corporation", og er eina
hljómsveitin í heimi, sem hefur leyfi
til að kenna sig við hinn látna hljóm-
sveitarstjóra. Hljómsveitin leikur
danstónlist eins og hún gerist best,
en stjómandi hennar undanfarin
átta ár er Dick Gerhart."
Að sögn Björgvins mun hljóm-
sveitin koma fyrst fram á áramóta-
dansleik sjónvarpsins, sem haldin
verður í Broadway á nýársnótt.
Dansleikurinn hefst að loknu ára-
mótaskaupi um miðnætti og auk
sérstakra boðsgesta sjónvarpsins
verður húsið opnað fyrir almenning
klukkan 01.15 og er aðgangseyrir
þá 1.200 krónur. íslenskir lista-
menn skemmta á dansleiknum og
auk hljómsveitar Glenn Miller mun
Tango-hljómsveit frá Argentínu
leika fyrir dansi. Dansleiknum verð-
ur sjónvarpað beint.
Á nýársdag verður efnt til
skemmtunar í Broadway. Húsið
opnar þá klukkan 19. Ingimar Ey-
dal, leikur undir borðum. Páll
Jóhannsson, tenorsöngvari, syngur
við undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar. Þá verður framfluttur nýr
dans frá Dansskóla Auðar Haralds.
Söngvaramir Björgvin Halldórsson
og Bubbi Morthens syngja nokkur
lög og skemmtikrafturinn Ómar
Ragnarsson skemmtir. Veislustjór-
ar verða Baldvin Jónsson og
Hermann Gunnarsson. Verð að-
göngumiða á nýársfagnaðinn er
5.800 krónur.
= ŒGÖ OB^ Ö3EÍB
<=> SiöMPÍifelMMkini
ínarri í þessu einstæða
smasagnasafni.
Magnþrungin bók sem
heldur fyrir manni
vöku.
Veið:
998,- **■
TÍMABÆR