Morgunblaðið - 20.12.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
53
Lokatölur fjárlaga að koma í ljós:
Heildarútgj öld ríkis-
sjóðs 1987 46.000 m.kr.
Fjárlagahalli 2.800 m.kr.
Nái breytingartillögur fjár-
veitinganefndar og meirihluta
fjárveitinganefndar við fjárlaga-
frumvarp 1987 fram að ganga á
Alþingi i dag, sem allar líkur
standa til, hækkar gjaldabálkur
frumvarpsins um 3,800 m.kr.
Áætluð útgjöld ríkissjóðs 1987
verða þá 45,834 m.kr. - Breyting-
artillögur meirihluta fjárveit-
inganefndar gera hinsvegar ráð
fyrir hækkun ríkissjóðstekna
sem svarar rúmum 3,000 m.kr.,
þ.e. að heildartekjur ríkissjóðs
verði 43,029 m.kr. - Samkvæmt
framansögðu verður rekstrar-
halli fjárlaga komandi árs um
2,805 m.kr.
Pálmi Jónsson, formaður fjár-
veitinganefndar, gerði grein fyrir
breytingartillögum nefndarinnar og
breytingartillögum meirihluta
nefndarinnar [stjómarliða] í Sam-
einuðu þingi í gær. Framangreindar
upplýsingar, sem og þær sem hér
fara á éftir, eru efnislega teknar
úr ræðu hans. Atkvæðagreiðsla um
fjárlögin og mikinn fjölda breyting-
artillagna fer fram í Sameinuðu
þingi í dag. Að atkvæðagreiðslum
loknum halda þingmenn í jólafrí.
Framvinda efnahags-
þróunar
Formaður fjárveitinganefndar
vitnaði fyrst til álits fulltrúa Þjóð-
hagsstofnunar um framvindu
efnahagsþróunar í landinu:
* 1) Ofan á 8% aukningu þjóðar-
tekna 1986 er spáð 4% hagvexti
1987.
* 2) Kaupmáttur atvinnutekna
eykst um 7-8% milli áranna
1986-87 og hefur þá aukist um 30%
frá 1984.
* 3) Horfið verður frá álagning-
ur orkuskatts, 600 m.kr., og kröfu
á hendur Pósti og síma um 200
m.kr. arðgreiðslu í ríkissjóð, sem
gert var ráð fyrir í frumvarpi að
fjárlögum, er það var lagt fram.
Hækkanir ríkisútgjalda
Hækkanir ráðgerðra ríkisút-
gjalda 1987, frá framlagningu
fjárlagafrumvarps í haust, eiga
þijár meginskýringar.
* A) Hækkanir, sem rætur eiga
í ákvörðun fjárveitinganefndar, 315
m.kr.
* B) Ákvarðanir ríkisstjómar f
tenglsum við nýgerða kjarasamn-
inga 915 m.kr.
* C) Uppfærsla verðlags og
launa, samkvæmt nýjum forsendum
í kjölfar kjarasamninga 2,569 m.kr.
Varðandi lið B ber hæst hækkun
lífeyrisbóta, hækkun niðurgreiðslna
á rafhitun, framlag til Áburðarverk-
smiðju til að draga úr hækkun
búvöru, endurgreiðslu ríkissjóðs á
greiðslum Alþjóðaflugmálastofnun-
arinnar til Pósts og síma.
Varðandi lið C vegur þyngst
hækkun launa, bæði vegna verð-
lagsbreytinga á síðustu mánuðum
ársins 1986 og vegna áætlaðra
launabreytinga 1987. 1348 m.kr.
hækkun má rekja til ákvæða í ný-
gerðum kjarasamningum og þess
sem líklegt er talið að væntanlegir
hliðstæðir samningar við opinbera
starfsmenn leiði til.
Erlendar lántökur
Þrátt fyrir fyrirsjáanlegan halla á
fjárlögum 1987 (2,800 m.kr.) er
ekki gert ráð fyrir auknum erlend-
um lántökum, samkvæmt frum-
varpinu, en þær eru 1,700 m.kr.
Hinsvegar er gert ráð fyrir auknum
lántökum hjá lífeyrissjóðum sem
nemur 1,300 m.kr. Lánsijárþörf
ríkissjóðs á árinu er áætluð 6,3
milljarðar króna.
„Eg tel enga ástæðu til að draga
dul á þá skoðun mína“, sagði form-
aður fjárveitinganefndar, „að hér
er um alvarlegan rekstrarhalla að
ræða“.
Kjarasamningar og
ríkissjóðsútgjöld
Formaður fjárveitinganefndar
sagði að ríkissjóður hefði orðið að
axla byrðar í tengslum við kjara-
samninga í febrúarmánuði sl. sem
svari til 1,800 m.kr. Þeir kjara-
samningar, sem nýlega vóru undir-
ritaðir, „hafa neikvæð áhrif á tekjur
og gjöld ríkissjóðs á næsta ári um
eða yfir 3 milljarði króna“. Þetta
kemur fram í því að hverfa frá orku-
skatti 600 m.kr., arðgreiðslum frá
Pósti og síma 200 m.kr.,auknum
útgjöldum sem ríkissjóður tekur á
sig 915 m.kr, auk hækkunar út-
gjalda í tengslum við verðlag og
laun.
„Á móti þessu vega þeir kostir
kjarasamninganna, sem felast í
hófsömum kauphækkunum og
auknum launajöfnuði".
Bætur almanna-
trygginga
Samkvæmt hækkunartillögum
fjárveitinganefndar, m.a. vegna
hækkunar bóta almannatrygginga
í kjölfar kauphækkana á almennum
vinnumarkaði, verða framlög
ríkissjóðs til Tryggingarstofnun-
ar ríkisins 1987 10,887 milljónir
króna eða um 23,8% af heildarút-
gjöldum fjárlaganna.
B-hluta stofnanir
Lánasjóður íslenzkra náms-
manna fær hækkað ráðstöfunarfé,
frá upphaflegum tillögum, sem
svarar 113 m.kr.
Rikisútvarpið fær að halda tekj-
um af innflutningsgjöldum,
130-140 m.kr. 1986, sem tryggir
sem næst jöfnuð í rekstri þess í ár.
Gert er ráð fyrir að afnotagjöld
hækki um 20% frá næstu áramót-
um. Fjárvoitinganefnd leggur
áherzlu á að RÚV dragi úr ráðgerð-
um innkaupum á tækjum og búnaði
og hagræði rekstri svo spara megi
í launakostnaði.
Þjóðleikhús fær 27 m.kr. hækk-
un á ráðgerður framlagi ríkissjóðs,
sem þá verður 110 m.kr.
Áburðarverksmiðja ríkisins
fær 120 m.kr. framlag úr ríkis-
sjóði. Þannig er stefnt að því að
áburðarverð hækki aðeins um 7%
1987.
Framlag ríkisins til bygingarsjóð-
anna tveggja nemur 1,300 m.kr.
1987.
Áfengis og tóbaksverzlun
rikisins á að skila 2,650 m.kr. í
ríkissjóð 1987.
Póst- og simamálastofnunin
fær 16% hækkun símaþjónustu og
20-25% hækkun póstbúrðargjalda.
Skipaútgerð ríkisins fær 147
m.kr. framlag.
Sementsverksmiðja ríkisins
stendur rekstrarlega vel. Fær 7%
verðhækkun á sementi á komandi
ári.
Ramagnsveitur rikisins fá
10,5% hækkun taxta.
Gerð verður grein fyrir málflutn-
ingi stjómarandstöðu síðar.
TV-VIDEO -86
rilrtsKin mcA HmIm
líM c*-n Mj('»nv:ll (fjlrtjþ in ÍIHíð H.-ll:)
I jMiuml (mu íinn?:K niVnlv li .-iinliA.-u
jníivm | f:lnrs|«. i < mj cm nu InnnlfMj v’ I *'
WPmm
Verð:
21 tomma 53.982,-
24 tommur 66.404,-
28 tommur 73.516,-
Hljómbær tryggir gæði og greiðslukjör
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Umboðsmenn: PortiðAkranesi. Bókaskemmankktanesi. Kaupfélag Borgtirdinga. Ser/oísafirdi, Kauptélag Skagfii
Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héradsbúa Egilsstödum, Myndbandaleiga Reyðarfjordar Reyðarfirði.
Hornabœr Hornafirði. Kaupfélag Rangœmga Hvolsvelli. M.M. búðin Selfossi. /