Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAG.UR. 20. DESEMBER 1986,
Afnotagjaldið
Iforystugrein Morgunblaðsins í
gær var rætt um þann vanda er
ríkisútvarpið stendur nú frammi fyrir
þá það berst gegn stormhviðum sam-
keppninnnar, en einsog alþjóð veit
hefir Bylgjan höggvið stórt skarð í
hinn fyrrum lögvemdaða „auglýs-
ingamarkað" ríkisútvarpsins, eða
einsog segir í greininni: Bylgjan, fá-
menn útvarpsstöð í einkaeign, sem
nær enn sem komið er aðeins til
Reykjavíkursvæðisins, hefur slegið
hinu rótgróna ríkisútvarpi við og
auglýsingatekjur þess hafa stór-
minnkað. Til að reyna að halda sínum
hlut sá ríkisútvarpið sig knúið til að
lækka auglýsingaverð á rás 1 um
12,5% . í Morgunblaðsviðtali í gær
segir Markús Öm Antonsson, út-
varpsstjóri, síðan, að ríkisstofnunin
verði að hækka afnotagjöldin til að
bæta sér upp lækkun á auglýsinga-
verði."
Svo sannarlega er vandlifað í hörð-
um heimi samkeppninnar og ekki
hægt að ætlast til þess að menn sitji
þar við sama borð — eða hvað? A
Bylgjunni annast einn maður morg-
undagskrána frá klukkan 9-12
nefnist sá Páll Þorsteinsson. Lítum
næst á morgundagskrá stöðvar tvö
þar sjá þau Kolbrún Halldórsdóttir
og Kristján Siguijónsson alla jafna
um að fylla þögnina milli 9 og 12.
Vart er nú hægt að óskapast yfir
bruðli á þeim bæ frekar að ég furði
mig á langlundargeði hlustenda er
sætta sig við Pál fimm daga vikunn-
ar en veldur hver á heldur. Þá er
bara eftir að kíkja á morgundagskrá
rásar 1. Fyrir valinu varð föstudagur-
inn 19. desember, sá hinn sami og
færði okkur hina ágætu forystugrein:
9:03 Jólaalmanakið. „Brúðan hans
Borgþórs", saga fyrir böm á öllum
aldri. Jónas Jónasson les sögu sína
(15). Jólastúlkan, sem flettir alman-
akinu, er Sigurlaug M. Jónasdóttir.
9:20 Morguntrimm. Tilkynningar.
9:35 Lesið úr fomstugreinum dag-
blaðanna. 9:45 Þingfréttir. 10:10
Veðurfregnir. 10:30 Ljáðu mér eyra
Umsjón: Málmfríður Sigurðardóttir.
(Frá Akureyri.). 11:03 Samhljómur.
Umsjón: Sigurður Einarsson.
Engin furða að Markús Öm út-
varpsstjóri fari fram á 30% hækkun
á afnotagjöldum frá og með 1. jan-
úar næstkomandi. Það kostar sitt að
halda úti jafn viðamikilli dagskrá og
hljómar á rás 1. Raunar er sú dag-
skrá svo miklu flóknari en til dæmis
dagskrá Bylgjunnar að vart er hægt
að bera þessar rásir saman. Samt
hlustar fólk á Bylgjuna og auglýs-
ingapeningamir streyma í kassann.
Hvað er til ráða? Fyrstu viðbrögð
Markúsar Amar eru að lækka auglýs-
ingaverðið á rás 1 um 12,5 % en
hækka að sama skapi afnotagjaidið.
Hefir ekki hvarflað að útvarpsstjóra
að máski hafi dagskrá rásar 1 safnað
á sig full mikilli ónauðsynlegri fitu í
tímans rás? Að nú væri máski kominn
tími til að bræða spikið af gripnum
svo hann mætti hoppa frískur og
frjáls á þúfubörðum markaðarins í
kapp við lambhrútinn á Snorrabraut-
inni. Það eru gömul sannindi að
heimalningar verða oft frekir á fóðr-
unum. Ef ríkisútvarpið ætlar í raun
og veru að beijast við einkastöðvam-
ar á auglýsingamarkaðnum þá verður
það að fara að leikreglum. Ef í harð-
bakkann slær verða menn á þeim bæ
að draga saman seglin og hagræða
rekstrinum. En hvað gerist? Fjár-
málastjórar ríkisútvarpsins hverfa
aftur í heimahagana í skjól gömlu
góðu einokunarinnar eða einsog segir
í forystugreininni: Opinber fyrirtæki
virðast oftast sjá þá leið eina, þegar
þau lenda í fjárþröng, að hækka hin-
ar opinberu gjaldskrár, sem borgar-
amir verða að fara eftir hvort sem
þeim líkar betur eða verr.
Sá er hér ritar hefir löngum haldið
því fram að ríkisútvarpið ætti ekki
að taka þátt í darraðardansi auglýs-
ingamarkaðarins. Það á að varðveita
sérstöðu sína og sinna sínu mikils-
verða menningar- og öryggishlut-
verki í friði fyrir kröfum auglýsenda
um skyndivinsældir. Borgaramir
munu glaðir greiða fyrir slíka þjón-
ustu en það er vart hægt að ætlast
til þess að hinn almenni maður bæti
ríkisútvarpinu missi auglýsinga-
tekna. Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
RÚV Sjónvarp:
Draumur á
jólanótt
■i í sjónvarpinu í
45 kvöld verður
bresk kvikmynd
frá 1970, sem gerð er eftir
hinni frægu jólasögu
Charles Dickens, „A
Christms Carol", eða Jóla-
draumur.
Sagan fjallar um nirfíl
nokkum, Ebenezer
Scrooge að nafni, sem er
ekkert heilagt vegna fé-
græðgi sinnar og kals á
hjarta. Þar sem hann situr
einn heima á jólanótt fær
hann í heimsókn til sín
vofu fyrrum viðskiptafé-
laga síns og segir hann
Scrooge frá því að um nótt-
ina muni koma til hans
þrír jólaandar og að líf
hans velti á breytni hans
gagnvart þeim. Koma þeir
þá í röð jólaandamir og
gera honum ljósa grein fyr-
ir nauðsyn náungakærleik-
ar og mannelsku.
Valinn maður er í hveiju
LAUGARDAGUR
20. desember
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur"
Pétur Pétursson sér um
þáttinn.
Fréttir eru sagðar kl. 8.00,
þá lesin dagskrá og veður-
fregnir sagðar kl. 8.15. Að
þeim loknum er lesiö úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.30Í morgunmund.
Þáttur fyrir börn í tali og tón-
um. Umsjón: Heiödís
Norðfjörð. (Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir
10.25 Morguntónleikar
Píanósónata nr. 15 í D-dúr
op. 28 eftir Ludwig van
Beethoven. Emil Gielels
leikur.
11.00 Vísindaþátturinn.
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá
Stiklað á stóru í dagskrá
útvarps og sjónvarps um
helgina og næstu viku.
Umsjón: Trausti Þór Sverris-
son.
12.00 Hér og nú
Fréttir og fréttaþáttur í viku-
lokin í umsjá fréttamanna
útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
15.00 Tónspegill. Þáttur um
tónlist og tónmenntjr á
líðandi stund. Umsjón:
Magnús Einarsson og Ólaf-
ur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Jólaföng. Dagskrá m.a.
úr miðbæ Reykjavikur, þar
sem fólk er tekið tali við jóla-
innkaupin, litið er inn á Hótel
Borg þar sem Léttsveit
Ríkisútvarpsins tekur lagið
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
20. desember
14.55 Enska knattspyrnan
Bein útsending.
Charlton — Liverpool
16.45 Barnahjálp Sameinuöu
þjóðanna
Fræðslumynd.
17.15 (þróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
18.30 Ævintýri frá ýmsum
löndum
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Helga
Jónsdóttir.
18.65 Auglýsingar og dagskrá
19.00 Gamla skranbúðin
(The Old Curiosity Shop) 3.
þáttur.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur f tíu þáttum, gerður
eftir samnefndri sögu Char-
les Dickens.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Smellir
20.00 Fréttir og veöur
20.40 Lottó
20.46 Undir sama þaki
Milli hæða
Endursýndur þáttur úr gam-
anmyndaflokki Sjónvarpsins
frá 1977.
21.16 Fyrirmyndarfaðir
(The Cosby Show) 1. þáttur
Bandarískur gamanmynda-
flokkur, framhald fyrri þátta
í sjónvarpinu með Bill Cosby
í titilhlutverkinu.
Þýðandi Guöni Kolbeins-
son.
21.46 Draurnur á jólanótt
(Sorooge)
Bresk bíómynd með söngv-
um, gerð árið 1970 eftir
þekktri sögu Charles Dic-
kens um nirfilinn sem sér
að sér eftir að vofur sækja
að honum á jólanótt.
Leikstjóri Ronald Neame.
Aðalhlutverk: Albert Finney,
Alec Guinness, Michael
Medwin, Edith Evans og
Kenneth More.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
23.35 Afmæliskveöja
(Tatort: Geburtstaggrússe)
Þýsk sakamálamynd gerð
fyrir sjónvarp.
Leikstjóri Georg Tressler.
wm STÖD7VÖ
^LAUGARDAGUR
20. desember
16.00 Hitchcock. Bandarískur
sakamálaþáttur.
16.46 Matreiöslumeistarinn.
Meistarakokkurinn Ari Garð-
ar Georgsson kennir þjóð-
inni af sinni alkunnu snilld
matreiðslu.
17.10 Myndbandalistinn.
Sýndur verður sameiginleg-
ur vinsældalisti Stöðvar tvö
og Bylgjunnar.
17.40 Undrabörnin (Whiz
Kids). Bandarískur unglinga-
þáttur.
18.30 AÍIt í grænum sjó (Love
Boat). Bandarískur
skemmtiþáttur um líf og fjör
um borð f skemmtiferða-
skipí.
19.30 Fréttir.
19.65 Undirheimar Miami
(Miami Vice). Crockett og
Tubbs telja sig þurfa að
rannsaka eiturlyfjahring
sem á upptök sin í Kol-
umbiu. Tveir ungir viðvan-
ingar, sem taka að sér að
smygla eiturlyfjum til
Ameriku, koma þeim á spor-
ið.
20.40 Verðlaunaafhending
fyrir bestu kvikmyndirnar og
bestu sjónvarpsmyndirnar
1986 (The Golden Globe
Awards).
Rás 2:
Léttsveit
Ríkisútvarpsins
Charles Dickens.
rúmi í þessari mynd, en
Albert Finney leikur
Scrooge, en auk hans fara
þau Sir Alec Guinness,
Dame Edith Evans og
Kenneth More með helstu
hlutverk.
Myndinni er leikstýrt af
Ronald Neame og tekur
113 mínútur í sýningu.
■I í dag verður
30 bein útsending
”' frá Hótel Borg á
dagskrá Rásar tvö. Þar
mun léttsveit Ríkisútvarps-
ins leika jólalög úr ýmsum
áttum og önnur dægurlög.
Einnig verður útvarpað
víðar úr miðborginni eftir
því sem tök verða á og
rabbað við góða gesti, sem
líta munu inn.
Vegna útsendingar þess-
arar fellur þáttur Svavars
Gests, „Tveir gítarar, bassi
og tromma" niður og verð-
ur næst á dagskrá klukkan
17.00, laugardaginn 27.
desember.
ÚTVARP
og ef til vill verða kórar á
vegi útvarpsmanna syngj-
andi jólalög. (Dagskránni er
einnig útvarpað á rás tvö.)
18.00 fslenskt mál
Ásgeir Blöndal Magnússon
flytur þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar
19.35 „Hundamúllinn", gam-
ansaga eftir Heinrich Spoerl
Guðmundur Ólafsson les
þýðingu Ingibjargar Berg-
þórsdóttur (13).
20.00 Harmoníkuþáttur
Umsjón: Siguröur Alfons-
son.
20.30 Bókaþing. Gunnar Stef-
ánsson stjórnar kynningar-
þætti um nýjar bækur.
21.00 fslensk einsöngslög
Þorsteinn Hannesson syng-
ur lög eftir Bjarna Þorsteins-
Leikendur: Manfred Heid-
mann, Amadeus August,
Uta Maria Schútze og
Gabriella Scheer.
Tilræði við rannsóknarlög-
reglumann mistekst en
bitnar á saklausu barni.
Lögreglan leggur allt kapp
á að finna ódæöismanninn
áður en hann lætur aftur til
skarar skríða.
Þýðandi Veturliði Guðna-
son.
01.10 Dagskrárlok.
22.10 Spéspegill (Spitting
Image). Breskur gamanþátt-
ur.
22,35 Bústaðurinn í Wetherby
(Wetherby). Bresk ■ sjón-
varpskvikmynd með Van-
essa Redgrave, lan Holm,
Judi Dench, Stuart Wilson,
Tim Mclnnerny og Suzanna
Hamilton i aðalhlutverkum.
Jean Travers (Redgrave)
heldur matarveislu í sumar-
bústað sínum og býður
vinum sinum. Fyrir misskiln-
ing kemst maður að nafni
John Morgan í veisluna
óboðinn. Maður þessi kem-
ur aftur næsta dag eftir
veisluna og eftir samtal við
Jean setur hann byssu að
höfði sínu og hleypir af.
Leikstjóri er David Hare,
sem jafnframt er höfundur
handrits.
00.15 Einkatímar (Private
Lessons). Bandarísk kvik-
mynd frá 1981 með Silvia
Kristel (Emmanuelle), How-
ard Hesseman og Eric
Brown í aðalhlutverkum.
Mynd þessi fjallar um fjár-
kúgun og fyrstu kynni
fimmfán ára unglings af ást-
inni og kynlífinu. Eric Brown
fær tilsögn hjá þjónustu-
stúlku (Kristel) foreldra
sinna hvernig hann eigi að
hegða sér í samskiptum viö
gagnstæða kynið.
01.45 Myndrokk. Hundraövin-
sælustu lögin f Evrópu.
Stjórnandi er Eric De Svart.
04.00 Dagskrárlok.
son, Björgvin Guömunds-
son, Jón Laxdal, Sigvalda
Kaldalóns og Hallgrim
Helgason. Fritz Weisshapp-
el leikur með á píanó.
21.20 Guðað á glugga. Um-
sjón: Pálmi Matthíasson.
(Frá Akureyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
LAUGARDAGUR
20. desember
9.00 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Morgunþáttur í umsjá
Ástu R. Jóhannesdóttur.
12.00 Fréttir
12.03 Hádegisútvarp með
léttri tónlist í umsjá Margrét-
ar Blöndal.
13.00 Listapopp i umsjá
Gunnars Salvarssonar.
22.20 Mannamót
Leikið á grammófón og litið
inn á samkomur. Kynnir:
Leifur Hauksson.
24.00 Fréttir
00.05 Miðnæturtónleikar
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
1.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
15.00 Við rásmarkið. Þáttur
um tónlist, iþróttir og sitt-
hvað fleira. Umsjón: Sigurð-
ur Sverrisson ásamt
íþróttafréttamönnunum Ing-
ólfi Hannessyni og Samúel
Erni Erlingssyni.
16.20 Jólaföng
Dagskrá, m.a. úr miðbæ
Reykjavikur, þar sem fólk
er tekið talið við jólainn-
kaupin, litið er inn á Hótel
Borg þar sem Léttsveit
Ríkisútvarpsins tekur lagið
og ef til vill verða kórar á
vegi útvarpsmanna syngj-
andi jólalög. (Dagskránni er
einnig útvarpað á rás eitt).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin. Gunnlaug-
ur Sigfússon.
23.00 Á næturvakt með Ás-
geiri Tómassyni.
3.00 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR
20. desember
08.00—12.00 Valdls Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, lítur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tékur á
móti gestum.
Fréttir kl. 8.00, 9.00 og
10.00.
12.00-15.00 Jón Axel á Ijúf-
um laugardegi. Jón Axel í
góðu stuði enda með öll
uppáhaldslögin ykkar. Aldr-
ei dauður punktur.
Fréttir kl. 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson kynnir 40 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00-18.30 Vilborg Hall-
dórsdóttir á laugardegi.
Vilborg leikur notalega helg-
artónlist og les kveðjur frá
hlustendum. Síminn hjá Vil-
borgu er 611111.
Fréttir kl. 18.00.
18.30—19.00 í fréttum var
þetta ekki helst. Edda Björg-
vinsdóttir og Randver
Þorláksson bregða á leik.
(Þessi dagskrá er endurtek-
in á sunnudegi.)
19.00-21.00 Rósa Guö-
bjartsdóttir lítur á atburði
síöustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti.
21.00—23.00 Anna Þorláks-
dóttir í laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir kvöld-
ið með tónlist sem engan
ætti að svíkja.
23.00—04.00 Þorsteinn Ás-
geirsson og Gunnar
Gunnarsson. Nátthrafnar
Bylgjunnar halda uppi
stanslausu fjöri.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint f háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
ALFA
Krlstileg átnrpufM.
FM 102,9
LAUGARDAGUR
20. desember
13.00—18.00 Við brunninn.
Tónlistarþáttur í umsjá Jóns
Þórs Eyjólfssonar.
16.00—18.00 Léttir sprettir
með John Hansen.
18.00—20.00 Á rólegu nótun-
um. Umsjón Eiríkur Sigur-
björnsson.
20.00—22.00 Ölafur Ásgeirs-
son spilar létta tónlist.
22.00—24.00 Kvöldstund
með Jón Þóri.
24.00—03.00 Næturhrafnarn-
ir. Þáttur I umsjón Hafsteins
Guömundssonar og John
Hansen.