Morgunblaðið - 20.12.1986, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 20.12.1986, Blaðsíða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986 - 1 t Móðir okkar, GRÍMHEIÐUR ELÍN PÁLSDÓTTIR, Miðstrœti 6, sem lést fimmtudaginn 18. desember sl. verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík á Þorláksmessu klukkan 15.00. Jónfna M. Gfsladóttir, Ingibjörg Gfsladóttir, Valgerður H. Gfsiadóttir, Magnús R. Gfslason, Gfsli Baldur Garðarsson, tengdabörn og barnabörn. Sigurbjörg Ebenesar- dóttír - Minning t Sonur okkar, bróðir og mágur, HILMAR ARNAR HILMARSSON, andaðist í Landakotsspítala miðvikudaginn 10. desember og fer útförin fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 22. desember kl. 13.30. HilmarÁrnason, Ásdfs Jónsdóttir, Jón Grétar Hilmarsson, Þórir Hilmarsson, Gunnar Arnar Hilmarsson, Knútur Arnar Hilmarsson. Þórhildur Helgadóttir, Sigrfður Sverrisdóttir, t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, DÝRFINNU INGVARSDÓTTUR frá Kirkjubœ, Vestmannaeyjum, Álftamýri 10, Reykjavík. Sórstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki á sjúkradeild Hrafnistu, Hafnarfirði, 3. hæð, fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. Ingunn Slgurðardóttir, SigurðurG. Sigurðsson, Þorsteinn B. Sigurðsson, Oddhildur Guðbjörnsdóttir, Snorri D. Halldórsson, barnabörn og barnobarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför sonar okkar, bróður, og föður, RAGNARS HEIÐARS EINARSSONAR, Kjarrmóum 22, Garðabæ. Jóhanna Ragnarsdóttir, Einar Björnsson, Sigrún Einarsdóttir, Ragnar Jónsson. Erla Margeirsdóttir, Rut Ragnarsdóttir, Rakel Ragnarsdóttir, Sérstakar þakkir til ættingja og vina á Siglufirði, fyrir ómetanlega aðstoð. Mér er hugleikið að koma á framfæri nokkrum fátæklegum þakkar- og kveðrjuorðum, nú þeg- ar elskuleg og gömul vinkona mín er öll. Það voru blandaðar tilfmningar sem hreyfðust í bijósti mínu við andlátsfregn Sigurbjargar Eben- esardóttur frá Rúeyjum. Hún er búin að vera um langan tíma í sjúkrahúsi í Stykkishólmi, en okk- ur öllum er það huggun og þakklæti, að hennar langa og stranga sjúkrastríði er lokið. Guð blessi minningu mætrar konu. Vafalaust hefði það ekki verið í anda hennar að vera margorður á hennar kveðjustund. Hún var lítið fyrir að flíka til- finningum sínum á meðan hún var í anda heilbrigð. Ég er aðeins að þakka henni vináttu og góðvild mér sýnda síðan við fyrst hitt- umst. Hún var mér mjög náin og kær. Hún átti mikla varfæmi í orðum en skemmtileg í samræðum, sér- staklega í þröngum hópi. Hún var afskaplega listhneigð í allri handavinnu og vandvirk með af- brigðum. Trygglyndi hennar og hennar fólks var einstakt. Bagga, eins og hún var alltaf kölluð, fæddist í Rúeyjum á Breiðafirði, dóttir sæmdarhjón- anna Margrétar Magnúsdóttur og Ebenesar Þorlákssonar sem þar bjuggu lengi en fluttu svo í Stykk- ishólm. Ættingja- og vinahópur- inn var eins og segull. Öllum stóðu opnar dyr hjá henni á meðan hún var heilbrigð. Það var óvissan hvenær yfir lyki hjá henni að síðustu. Hún minntist oft á uppvaxtar- árin sín í Rúeyjum. Henni þótti svo undurvænt um eyjamar sínar og þau gömlu góðu ár sem hún dvaldi þar. Skýr og tær er minn- ingin sem eftir er um hana Böggu mína. Viðmótið hennar allt bar með sér hóglæti og hlýju, og hlýtt var brosið. Hlutskipti okkar á lífsleiðinni er að hittast, mæta öðru fólki, frá vöggu til endadægurs mætumst við. En með ámnum fömm við að leggja mat á þennan eilífa „Prjóna Páll“ H Kjörin jólagjöf, jafnt handa börnum sem fullorðnum, og ekki síst henni Alúer prjona Knitting Pal er ný uppfinning frá ftalíu — einfalt prjónaáhald sem eykur mjög prjónahraðann. Með „Prjóna Páli“ er t.d. hægt að prjóna 2, 4, 6 eða fleiri umferðir í einu og Qölda prjónamynstra. Hægt er að blanda saman garntegundum, litum og mynstrum með ótrúlegum árangri. Skemmtilegt áhald fyrir unga sem aldna í smekklegum umbúðum. „Prjóna Páll“ fæst í eftirtöldum verslunum: Versluninni Ingrid, Hafnarstræti 9, Reykjavík, Handprjónabúðinni Enoss, Hafnarstræti 88, Akureyri, Versluninni Veroniku, Eyrarvegi 1, Selfossi, Verslunin Rósalind, Hafnargötu 24, Keflavík. Versluninni Dís, Austurmörk 4, Hveragerði. Verslunarfélagið Asgeir,Siglufirði Heildsölubirgðir, Furstinn sími 91-10302 og 28031. straum manna og mörgum gleym- um við, suma óskum við að hafa aldrei hitt en svo eru hinir sem við viljum ekki gleyma. Það er langt síðan ég hitti Böggu í fyrsta sinn, hún hnjóðaði ekki í nokkum mann. Undir yfír- borðinu ríktu hlýja, glaðværð og einlægni og fölskvalaus tryggð þess aðnjótandi sem jafnframt einkenndist af einstökum heiðar- leika. Ég hefí oftar en einu sinni tek- ið eftir því að þjáning verður oft til þess að fólk metur lífíð meira en ef allt er slétt og fellt, þá miss- ir fólk hæfíleikann til þess að greina á milli þess sem er gott og illt. „Ég er sannarlega ánægð með það að örlögin hafí ekki ofdekrað mig,“ varð henni einu sinni að orði við mig þó langt sé síðan. Hún var ein af þessum hvers- dagshetjum sem að margra mati eru ekki þær mikilvægustu í þjóð- félaginu. Það hanga ekki á þeim neinar orður en samt eru þær þessar konur sem geyma lykilinn að góðu og farsælu lífí á heimilum og utan þeirra. Ég minnist þess að hún sagði einu sinni: „það eina sem maður á er það sem maður hefur gefíð,“ Hún hafði ríkt skopskyn og skemmtilega frásagnargáfu. Henni varð tveggja bama auð- ið. Drenginn sinn missti hún ungan en dóttir hennar lifír móður sína og býr í Stykkishólmi. Ég votta öllum ástvinum henn- ar mína dýpstu samúð. Minning um góða og óvenjulega konu það allt skal þakkað. Ég vona að vegur hennar hinum megin sé blómum stráður, hún var svo mikil blómakona. Megi Guð taka á móti henni og leiða um eilífð. Ingibjörg Líndal Þorsteinsdóttir Blómabúöin Hótel Sögu sími12013 Blóm og skreytingar gjafavörur heimsendingar- þjónusta t Móðir mín, tengdamóöir og amma, ÞÓRDÍS ÓFEIGSDÓTTIR, lést 17. desember 1986. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju á Þorláksmessu, þriðjudaginn 23. desember, kl. 13.30. Arnljótur Björnsson, Þórdís Arnljótsdóttir, Sigurður Arnljótsson, Lovfsa Sigurðardóttir, Edda Arnljótsdóttir, Ingibjörg Arnljótsdóttir. t Bróöi okkar og mágur, HJALTIJÓNSSON, veröur jarösunginn mánudaginn 22. desmber kl. 15.00 frá Foss- vogskirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Helga Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Guðfinna Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Jóel Jónsson, Karl Frfmannsson, Sigurður Guðmundsson, Arinbjörn Steindórsson, Kristfn Nóadóttlr. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. 'temit ð. Luktir á leiði Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, sími 91-620809
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.