Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
MULTIPLAN
Vandað námskeið í notkun töflureiknisins Multiplan.
Þátttakendur fá góða æfíngu í að nota kerfíð og ýmis
gagnleg útreikningslíkön, t.d. víxla, verðbréf o.fl.
* Almennt um töflureikna
* Töflureiknirinn Multiplan
* Æfingar í notkun allra algengustu skip-
ana i kerfinu
* Stærðfræðiföll i Multiplan
* Fjárhagsáætlanir
* Notkun tilbúinna likana til að reikna út
víxla, verðbréf, skuldabréf o.fl.
* Ath. Með námskeiðsgögnum fylgir diskl-
ingur með ýmsum gagnlegum útreikn-
ingslikönum.
Tími: 19.—22. janúar kl. 13—16.
Innritun í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, Reykjavík.
IBM —PC
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun
IBM-PC. Tilvalið námskeið fyrir alla not-
endur einkatölva, ekki síst þá sem búa úti
á landi.
★ Grundvallaratriði í notkun einkatölvunnar frá
IBM.
★ Prentarar og önnur jaðartæki.
★ Stýrikerfið MS-DOS.
★ Ritvinnsla.
★ Ritvinnslukerfíð Orðnsilld, æfíngar.
★ Töflureiknirinn MULTIPLAN, æfíngar.
★ Gagnasafnskerfið d-BASE III, æfíngar.
★ Fyrirspumir og umræður.
Ath.: Innifalin í námskeiösgjaldinu er
IBM-pc handbók Tölvufræðslunnar.
Tími: 17. og 18. janúar kl. 10—17.
Innritun í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, Reykjavík.
Ritvinnsla erfið
VVORD
ítarlegt og vandað námskeið í notkun rit-
vinnslukerflsins Word.
Dagskrá:
★ Grundvallaratriði við notkun PC tölva.
★ Almennt um ritvinnslu með tölvum.
★ Ritvinnslukerfið WORD.
★ Æfíngar í notkun kerfisins.
★ Helstu atriði við skrárvinnslu.
★ Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 19. — 22. janúar kl. 17—20.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, Reykjavík.
Áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands 8.janúar 1987:
Verk eftir Jón Leifs,
Szymanowski og Borodin
Elzbieta Zajac-Wiedner, pianóleikari
Sinfóníuhljómsveit íslands tekur
aftur til við áskriftartónleika sína,
að loknu jólale}rfi, á fimmtudags-
kvöldið kemur í Háskólabíói. Þetta
verða sjöundu áskriftartónleikar
starfsársins og hinir næst síðustu
á fyrra misseri. Á efnisskrá sveitar-
innar að þessu sinni verða eftirtalin
verk: Þrjú óhlutræn málverk op.
44 fyrir hljómsveit eftir Jón Leifs,
Symphonie Concertante fyrir píanó
og hljómsveit op. 60 eftir Karol
Szymanowski og Sinfónía nr. 2 í
h-moll op. 5 eftir Alexander Borod-
in.
Einleikari í verki Szymanowskis
verður pólski píanóleikarinn Elz-
bieta Zajac-Wiedner. Stjómandi
tónleikanna verður Páll P. Pálsson.
Brautryðjandinn
Jón Leifs
Fyrsta verkið á tónleikunum er
„Þrjú óhlutræn málverk" eftir Jón
Leifs. Þetta eru þrír örstuttir þætt-
ir og samdi Jón hinn fyrsta þeirra
á árunum 1955—1956, en tvo hina
síðari í desember 1960. Jón Leifs
var afkastamikið tónskáld, sem fór
sínar eigin leiðir í tónsmíðum sínum.
Hann mótaði sinn eigin tónlist-
arstíl, sérkennilegan og umdeildan.
íslenskir tónlistarunnendur hafa að
mestu leitt hann hjá sér, sem best
sést af því, að ýmis stærstu og
umfangsmestu verk hans hafa aldr-
ei verið flutt opinberlega. Tónlist
hans vinnur hins vegar á við hlust-
um, er mjög sérstök og athyglis-
verð.
Jón Leifs (1899—1968) fæddist
í Sólheimum í Svínavatnshreppi í
Austur-Húnavatnssýslu. 17 ára
gamall hvarf hann frá námi í
Menntaskólanum í Reykjavík, hélt
tii Þýskalands og stundaði tónlist-
amám í Leipzig á árunum
1916—1922. Hann dvaldist að
mestu í Þýskalandi í nær 30 ár, þar
sem hann starfaði að tónsmíðum,
auk þess sem hann stjómaði hljóm-
sveitum í ýmsum Evrópulöndum.
Eftir síðari heimsstyrjöldina var
hann búsettur hér á landi. Jón Leifs
stofnaði Bandalag íslenskra lista-
manna árið 1928, Tónskáldafélag
íslands 1945 og STEF, Samband
tónskálda og eigenda flutningsrétt-
ar, árið 1948. I þessum samtökum
öllum vann hann mikilsverð braut-
ryðjendastörf. Jón Leifs safnaði
íslenskum þjóðlögum og rannsakaði
þau. Hann ritaði ýmislegt um rann-
sóknir sínar og byggði á þeim
sérkennilegan tónlistarstfl sinn.
Verk tileinkað
píanósnillingnum
Arthur Rubinstein
Karol Szymanowski
(1882—1937) samdi Symphonie
Concertante fyrir píanó og hljóm-
sveit op. 60 á árunum 1931—1932
og tileinkaði verkið vini sínum,
píanósnillingnum Arthur Rubin-
stein, sem var af pólskum ættum
eins og tónskáldið.
Szymanowski samdi tónverk af
ýmsu tagi, svo sem óperur, balletta,
hljómsveitar- og kammerverk og
mikið af tónlist fyrir píanó. Meðal
hljómsveitarverkanna eru tveir
fiðlukonsertar og fjórar sinfóníur,
en hin fíórða þeirra, sem Sinfóníu-
hljómsveit íslands flytur að þessu
sinni, er í rauninni píanókonsert
fremur en sinfónía.
Form fyrsta þáttar líkist mjög
hefðbundnu sónötuformi og yfir-
bragð hans er glaðlegt. Annar
þáttur er ljóðrænn framan af, með
píanóið næstum í bakgrunni, en
brátt aukast átökin og verða dra-
matísk. Þegar ró færist aftur yfir
er aðalstef fyrsta þáttar rifjað upp
og síðan tekur þriðji þátturinn við
án þess að hlé verði á milli. Hann
er hraður og gáskafullur og er nið-
urlagið einkum glæsilegt.
Einleikari í þessu verki verður
pólski píanóleikarinn Elzbieta
Zajac-Wiedner. Hún kom síðast
fram hérlendis haustið 1985, er hún
hélt tvenna tónleika með fagottleik-
aranum Wemer Sculze. Hún hefur
margsinnis hlotið verðlaun og viður-
kenningu á alþjóðavettvangi fyrir
píanóleik sinn og hefur oft komið
fram með hinum fremstu hljóm-
sveitum víða um lönd. Hún er nú
kennari við Tónlistarháskólann í
Vínarborg.
Eitt öndveg'isverka
tómstunda-
skáldsins Borodins
Alexander Borodin (1833—1887)
var í hópi atkvæðamestu tónskálda
Rússlands á 19. öld, ásamt þeim
Tsjaikofski, Balakirev, César Cui,
Mússorgski og Rimski-Korsakov.
Þó var Borodin ekki tónskáld að
Hótel Borg:
Hljómsveitirnar Grafik og
Rauðir fletir halda tónleika á
Hótel Borg í kvöld. Gestir þeirra
verða Hljómsveitin Ofris og Tríó
Oddnýjar.
Nýir menn hafa gengið til liðs
við Grafík og mun hljómsveitin
flytja nýtt efni sem væntanlegt er
aðalstarfí, heldur læknir og eðlis-
fræðingur, sem nýtti tómstundir
sínar til tónlistarstarfa. Hann samdi
tvær sinfóníur og er sú nr. 2 í
h-moll, sem nú verður flutt, talin
til meistaraverka á þvf sviði. Kam-
mertónlist hans, sérstaklega
strengjakvartettarnir, njóta enn al-
mennra vinsælda. Á síðustu æviár-
um sínum vann Borodin að óperunni
Igor fursta, sem vafalítið er merk-
asta verk hans. Erfiðleikar með
óperutextann ásamt önnum við
vísindastörf og kennslu ollu því hins
vegar að þessu höfuðverki Borodins
varð ekki lokið. Það voru þeir
Rimski-Korsakov og Glazúnov sem
ráku á það smiðshöggið að höfund-
inum látnum. Andríki Borodins og
frumleiki þykir hvergi koma skýrar
fram en í Igor fursta, en það verk
hans sem oftast er flutt, a.m.k. á
Vesturlöndum, er vafalaust sinfóní-
an nr. 2 í h-moll.
(Vilhelm G. Kristinsson tók
saman.)
á hljómskifu á þessu ári. Rauðir
fletir eru um þessar mundir að ljúka
upptökum á nýrri tveggja laga plötu
sem væntanleg er í febrúar. Hinar
hljómsveitinar tvær, Ofris og Tríó
Oddnýjar, eru að stíga sín fyrstu
spor á hljómlistarsviðinu.
(Úr fréttatilkynningu.)
Fjórar hljómsveit-
ir á tónleikum