Morgunblaðið - 08.01.1987, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
„Ljáið mér líka eyra“
eftírEinar
Olgeirsson
Þar sem nokkrar umræður hafa
verið um Hótel- og veitingaskóla
íslands síðastliðið ár leyfi ég mér
að leggja nokkur orð í belg, enda
málið mér varla óskyldara en öðrum
þeim er látið hafa ljós sitt skína.
Að tilstuðlan framsýnna fag-
manna og skilningsríkra ráða-
manna þjóðarinnar hóf Hótel- og
veitingaskóli íslands starfrækslu
fyrir u.þ.b. 30 árum.
Skólinn fékk inni í húsakynnum
Vélstjóra- og stýrimannaskóla ís-
lands, sem á þeim tíma var vel
viðunandi húsnæði. Þó fór svo að
skólanum var síðar bolað þaðan út
og honum komið fyrir í svokölluðu
bráðabirgðarhúsnæði á Suðurlands-
braut 2 (Hótel Esju húsinu). Þar
hefur starfsemi skólans farið fram
sl. 15 ár.
Með tilkomu nýrra hótela og veit-
ingahúsa hefur mjög þrengt að
nemum og kennurum í þessu bráða-
birgðahúsnæði, segja má að hver
skólanefndin af annarri hafi farið
bónleið til búðar ráðamanna skól-
ans. Sé litið í fundargerðir undan-
farinna ára er ljóst að allir
ráðamenn hafa sýnt erindunum
fullan skilning, en þar við hefur
setið, og þó.
Að tilstuðlan Kópavogsbæjar
hófst umfjöllun um almennan mat-
vælaskóla í tengslum við mennta-
skólann þar, sem breyta skyldi þá
í fjölbrautaskóla, með framan-
greindu sérsviði. Tillagan hlaut
fylgi og hafist var handa um hönn-
un og kostnaðaráætlun í fullu
samráði við þáverandi menntamála-
ráðherra og ýmsa ágæta embættis-
menn ráðuneytisins.
Mér er kunnugt um að nokkrir
embættismenn þessa ráðuneytis
hafa haft ríkan skilning á þörfum
skólans og lögðu mikla vinnu á sig
til að framfylgja framangreindum
breytingarhugmyndum.
Nú má spyija, hvað sé að. Er
þetta nokkuð frábrugðið gangi ann-
arra skólastofnana, sjálfsagt ekki,
en sagan er ekki öll, adf þeim sökum
skrifa ég þessi orð.
Seint í desember 1985 skipaði
núverandi menntamálaráðherra
mig formann nýskipaðrar skóla-
nefndar Hótel- og veitingaskólans.
Stuttu eftir tilskipunina kallaði ég
nefndina saman í samráði við skóla-
stjóra. Á fyrsta fundi kom í ljós að
engin skólanefnd hafði verið við
skólann um nokkurt skeið á undan
þessari og af þeim sökum engin
fundargerð til í hálft annað ár aftur
í tímann.
Almenn óánægja var hjá skóla-
stjóra og kennurum með núverandi
húsnæði, skólinn yfírhlaðinn nem-
endum, og nánast engin úrræði
framundan, því var ljóst að eitthvað
afgerandi varð að ske.
Núverandi skólanefnd er skipuð
dugmiklum fagmönnum, hveijum á
sínu sviði, sem hvorki nenna né
hafa tíma til að sitja lognmollu-
fundi, enda fullur skilningur
nefndarmanna á afstöðu skólastjóra
og kennara um aðstöðuleysi skól-
ans.
Á þessum tíma lá fyrir áðumefnd
tillaga um Matvælaskóla íslands
ásamt að okkur skildist staðfest
loforð f.v. menntamálaráðherra um
byggingu hans í Kópavogi, og ein-
hverju fjármagni hafði verið veitt
til hönnunar byggingarinnar.
Þá lá fyrir fjárlagafnjmvarp
ríkisstjómarinnar (ársins 1986). í
því frumvarpi var ekki gert ráð
fyrir einni krónu til byggingar áður-
Einar Olgeirsson
nefnds Matvælaskóla Islands. Skóla
sem áætlað er að kosti um 300
milljónir króna.
Við í skólanefndinni emm fylli-
lega meðvitandi um að þjónustu-
og matvælaiðnaðurinn í landinu á
þessar krónur skilið, þó fyrr hefði
verið, eins emm við meðvitandi um,
að þær verða ekki hristar úr ermum
íj'ármálaráðherra nú fyrir næsta eða
næstu skólaár, enda segja þeir sem
best til þekkja að hámarksfjárveit-
ing til handa sérskóla sé í dag 30
milljónir króna á ári.
Hvar á þá þessi skoli að vera til
húsa næstu 10 árin? Ég á bágt með
að trúa að þeir skólamenn og nem-
endur, sem lagt hafa svo mikið til
málanna á liðnu ári, eða þá þeir
þingmenn sem nú láta til sín heyra,
ætli skólanum að verða sú homreka
í skólakerfínu áfram, sem hann
hefur verið hingað til. Upp hafa
komið tillögur um að setja skólann
í eitt bráðabirgðahúsnæðið enn, og
nú í Kópavogi. Mér persónulega
fínnst sú tillaga fálmkennd og í
meira lagi Qárfrek, eins og reyndar
allar þær bráðabirgðatillögur, sem
upp hafa komið um húsnæði fyrir
skólann á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, og því fráleitt að slíkar lausnir
flýti fyrir uppbyggingu þess skóla
sem fýrirhugaður er.
Hinsvegar lét ég mig hafa það
ásamt öðrum skólanefndarmönnum
að standa ekki í vegi fyrir þeirri
lausn, að því tilskyldu að fjármagn
verði tryggt til þeirra framkvæmda,
þannig að skólinn geti hafíð kennslu
í húsnæðinu fullbúnu við upphaf
næsta skólaárs.
Meirihluti skólanefndarmanna er
hinsvegar ekki í vafa um skynsam-
legustu lausnina, bæði þjóðhags-
lega og fjárhagslega séð.
I rökræðum á einum fyrsta skóla-
nefndarfundi núverandi skóla-
nefndar kom upp tillaga hvort ekki
væri ráðlegt að flytja skólann aust-
ur að Laugarvatni, en mér hafði
þá borist til eyma að Hússtjómar-
skólinn þar yrði lagður niður. Okkur
tveim skólanefndarmönnum var fal-
ið af öllum skólanefndarmönnum,
og með fullu samþykki skólastjóra,
að kanna þennan möguleika hjá
menntamálaráðuneytinu, sem og
við gerðum.
Málaleitan okkar var ekki of vel
tekið í byfjun, en menntamálaráð-
herra sýndi fullan skilning, ekki
síst í ljósi þess aðstöðuleysis sem
skólinn á við að búa. -
Smám saman vann þessi tillaga
þó fylgi innan ráðuneytisins, að mér
fannst.
Hér er gott að staldra við, enda
komið að forsendum þeirra um-
ræðna sem átt hafa sér stað um
málefni skólans nú undanfarið,
góðu heilli.
Góðu heilli segi ég, því allar
umræður vekja upp spumingar, þó
engum hafí dottið í hug að beina
þeim til okkar skólanefndarmanna,
allir virtust vita betur og málið
okkur því óviðkomandi, en okkar
hlutverk er að leysa vandamál skól-
ans til að fullnægja þörfum þeirra
hótela og veitingahúsa sem útskrifa
nema frá honum. En látum nú stað-
reyndir tala:
í dag hefur skólinn til umráða
700 fermetra húsnæði á 2. hæð
* byggingu á Suðurlandsbraut 2
eins og áður segir. Innan þessara
veggja er eldhús, veitingasalir,
kennslustofur, kennarastofur,
skrif-
stofur og önnur nauðsynleg að-
staða. Það segir sig sjálft að þröngt
hlýtur sérhvert homið að vera fyrir
þá 110 nemendur sem stunda þar
nám á hverri ijögurra mánaða önn.
Hússtjórnarskólinn á Laug-
arvatni er hinsvegar 3500
fermetrar að flatarmáli, innan
veggja þess skóla er fullkomið veit-
ingaeldhús, auk aðstöðu til vinnslu
og skreytinga á köldum réttum, þá
kemur kennslueldhús með tug elda-
véla og tilheyrandi búnaði. í kjallara
undir eldhúsinu em frysti- og kæli-
klefar, auk annarrar nauðsynlegrar
aðstöðu. í anddyri er gestamóttaka,
þar innaf stór og bjartur veitinga-
salur með sviði, þá em í kjallara
herbergi, sem nota má til kennslu
við meðhöndlun kemískra efna, og
stofur sem nýta má til leiðsagnar
um þrif og tiltekt hótelherbergja.
Þá em þama innanveggja 3 stórar
kennslustofur og að auki litlar
kennaraíbúðir, og að sjálfsögðu
hótelherbergin 26 að tölu.
Húsið er að mér skilst í góðu
ásigkomulagi, nýbúið að endur-
gleija stærstu rúður, lagfæra þak
og fleira.
Þama stendur því Hótel- og veit-
ingaskóla fslands til boða eitt stykki
hótel með öllu. Um þetta húsnæði
sem slíkt er enginn ágreiningur,
bæði skólastjóri og fagkennarar em
sem lens1
nad eJtir
ntU‘
Stórkostlegur þríréttaður kvöldverður og meiri-
háttar kabarettskemmtun með þátttöku margra
okkar þekktustu skemmtikrafta svo sem Ragn-
ari Bjarnasyni, Ómar Ragnarsyni, Þuríði Sigurð-
ardóttur, Hermanni Gunnarsyni, auk hins
frábæra Tommy Hunt er lykillinn að ógleyman-
legri kvöldstund.
* Hinn frábæri Tommy Hunt skemmtir.
* Raggi Bjarna og Þuríður Sigurðardóttir
svngja nokkur lög.
* Ömar Ragnarsson aldrei betri en nú.
* Hemmi Gunn mætir til leiks.
* Santos sextettinn leikur.
Þórskabarett öll föstudags- og laugardags-
kvöld fyrir matargesti. Borðapantanir hjá
veitingastjóra i síma 23335.
Brautarholti 20.