Morgunblaðið - 05.02.1987, Qupperneq 28
28______
Bretland
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
Stjórnin neitar afskiptum
af lögregluaðgerðunum
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
I sérstökum umræðum í neðri
málstofu breska þingsins sl.
þriðjudag neituðu forsætisráð-
herrann, Margaret Thatcher, og
innanríkisráðherrann, Douglas
Hurd, að hafa fyrirskipað að-
gerðir lögreglunnar gegn BBC
eða komið nálægt þeim að öðru
leyti. Stjórnarandstaðan sakaði
stjórnina um vanhæfni, hefndar-
hug og valdafíkn. Mikill órói var
í þinginu og leiðtogarnir mjög
æstir.
Douglas Hurd sagði í einhverjum
áköfustu umræðum á þessu þingi,
að enginn ráðherra hefði reynt að
hafa áhrif á rannsóknina og enginn
þeirra hefði vitað fyrirfram um að-
gerðir lögreglunnar gegn BBC.
Hann sagði, að stjómarandstaðan
hefði ekki nein rök eða gögn, sem
sýndu fram á afskipti forsætisráð-
herrans. Hann upplýsti, að haft
hefði verið samband við Alan Prot-
heroe, aðstoðarútvarpsstjóra BBC,
og hann spurður, hvort hann væri
reiðubúinn að afhenda spólumar
með þáttunum fimm í þáttaröðinni
„Secret Society", sem deilan stend-
ur um. Protheroe neitaði að gera
það vegna hugsanlegra brota á
höfundarrétti og ráðlagði lögregl-
unni að leita til dómstóla.
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sakaði Thatcher
um að bijóta niður lög og reglur í
landinu og virðingu fyrir lögregl-
unni með því að siga henni á BBC.
„Af hveiju er hún ekki nógu stór
í sniðum til að viðurkenna, að hún
er að reyna að dylja eigin vanhæfni
með þessu óréttlæti?“ bætti hann
við.
Thatcher svaraði því til, að
Kinnock hefði fallist á, að hér væri
um þjóðaröryggi að ræða og þess
vegna ætti hann líka að skilja, að
lögreglunni væri heimilt að grafast
fyrir um það, hvemig upplýsingum
hefði verið lekið til fréttamanna.
Þess í stað réðist hann enn einu
„sinni á mannorð lögreglunnar.
Tillaga stjómarandstöðunnar um
vítur á stjórnina vegna meðferðar
þessa máls var felld 351 atkvæði
gegn 220.
Bretland:
Göng undir Erma-
NEÐRI málstofa breska þingsins
samþykkti í gær frumvarp um
að leggja göng undir Ermasund.
Frumvarpið verður nú tekið til
umfjöllunar í lávarðadeildinni.
Fmmvarpið var samþykkt með
94 atkvæðum atkvæðum gegn 22.
David Mitchell aðstoðarsamgöngu-
ráðherra fagnaði þessum úrslitum
og sagði andstæðinga fmmvarpsins
vera „lítilla sæva, lítilla sanda“.
Sagði hann göngin vera metnaðar-
fyllstu mannvirkjasmíði í sögu
Evrópu.
Fyrirtækið „Eurotunnel", sem er
í eigu breskra og franskra aðilja,
hyggst he§a sölu á hlutabréfum til
almennings fyrir 750 milljónir sterl-
ingspunda í júlímánuði. Fullbúin
munu göngin kosta 2,3 milljarða
punda og áætlar fyrirtækið að verk-
inu verði lokið árið 1993.
Ekki em allir á eitt sáttir um
ágæti þeirra. Umhverfisvemdar-
sinnar telja að smíði þeirra muni
valda hinum mestu náttúmspjöllum
og er talið að sjónarmið þeirra njóti
nokkurs fylgis í lávarðadeildinni.
Er því spáð hörðum deilum þegar
fmmvarpið kemur til afgreiðslu.
Að auki munu göngin hafa í för
með sér tekjumissi fyrir íbúa í Suð-
ur-Englandi þar eð margir þeirra
hafa haft atvinnu af feijusam-
göngum yfir Ermasund. Ríkis-
stjómin telur á hinn bóginn að
göngin muni reynast lyftistöng fyr-
ir efnahagslífíð. Thatcher forsætis-
ráðherra hefur lýst því yfir að
göngin verði ekki byggð fyrir opin-
bert fé heldur verði „Eurotunnel"
að afla peninganna af eigin ramm-
leik. Þær raddir hafa heyrst að
þetta verkefni muni reynast fyrir-
tækinu ofviða þar eð peningamenn
í London hafa sýnt því takmarkaðan
áhuga.
NlDlSlV
N|U
N I N
og félagar í 15
stórhljómsveit
m.a. þeir Davi
holomew, Hert
esty, Lee Allen
hinir.
BROADWAY
Ath. Nú er hver síðastur til
að sjá súperstjörnuna
DOMING í Broadway í kvöld.
Ath. Uppselt í mat á laugardag
og kappinn fer heim á sunnudag.
fats og félagar slógo ^ mál manna að aldrei fyrr
svo sannarlega í gegn í skemmti.egir og þá. Fats og fólag-
hafi tónleikar á Island, venöjafn fjorug 9 koma þe.r aftur.
ar tóku miklu ástfóstn við land og þ)QO ó______
Fats Domino á Suðurnesjum
__bunlHuerður: Miða
.., __ Giæsileaur kvöldverður:
ts Domino og hljómsveit han Rækjukokteill
jnu halda hljómleika i Stapa, Gijáðurhamborgarhryggur
arðvík, föstudaginn 6. februar. Sérfy triffié
Miða- og borða-
pantanir daglega
í Stapa kl. 19—21
ísíma 92-2526
BCmiDWAy
Reuter
Símavandræði
Mikið fannfergi í New-Hampshire-fylki í Bandaríkjunum hefur
bakað íbúum þar ýmis vandræði. Meg Bradley frá bænum Con-
cord hefur víst sjaldan þurft að leggja á sig aðrar eins teygjur
til að hringja i síma og þegar hún fór i símaklefa á götu um
helgina.
Kóreska þotan sem Rússar skutu niður:
Flugfélagið dæmt
til að borga bætur
Seoul, Reuter.
DÓMSTÓLL í Suður-Kóreu
dæmdi flugfélagið Korean Air
Lines (KAL) á þriðjudag til að
greiða ættingjum eins þeirra 269
manna, sem fórust er sovézk
orrustuþota skaut þotu félagsins
niður, skaðabætur.
KAL var dæmt til að greiða ætt-
ingjum háskólaprófessorsins Oh
Jong-ju 56.000 dollara bætur.
Krafa ættingjanna hljóðaði upp á
222 milljónir dollara. Dómstóllinn
tók bótakröfuna til greina en féllst
ekki á upphæðina.
Fjölskyldur þeirra, sem fórust
með þotunni, sem Sovétmenn skutu
niður 1. september 1983, standa í
málaferlum heima og erlendis. Sov-
étmenn hafa neitað að greiða
skaðabætur og hafa þeir haldið því
fram að þotan, sem var af gerðinni
Boeing-747, hafi verið í njósnaflugi
fyrir Bandaríkjamenn. Hún var á
leið frá Alaska til Seoul og var
skotin niður yfir Sakhalineyju er
hún villtist útaf venjulegri flugleið.
Flutningabílnum var ekið yfir á ranga akbraut og beint framan á
áætlunarbifreiðina.
Danska vörubílstjóranum
haldið í Júgóslavíu
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
STJÓRNVÖLD í Júgóslaviu hafa danska langflutningabílsins, sem
lagt bann við því, að bílstjóra lenti í árekstri við áætlunarbif-