Morgunblaðið - 05.02.1987, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987
Morgunblaðið/Ámi
Verkstæðishúsið sem nú er ónotað er á góðum stað, við aðalgötu
og innkeyrslu í bæinn.
Hólmara vantar
bifvélavirkja
Stykkishólmi.
EINS og annarsstaðar á landinu
fjölgar fólksbifreiðum í Stykkis-
hólmi og nágrenni og auðvitað
um leið vörubílum og öðrum
vélknúnum tækjum. Frá árinu
1944 hefir alltaf verið hér bif-
reiðaverkstæði og á timabili voru
þau stundum tvö. Var yfirleitt
nóg að gera og unnu við þessi
störf stundum allt að tugur
manna.
Með aukinni tækni drógust þessi
bifreiðaverkstæði saman og nú er
svo komið að þetta bifreiðaverk-
stæði sem síðast stóð upp úr varð
af ýmsum ástæðum að hætta
rekstri, gefast upp. Erfítt var sein-
ustu árin að fá faglærða menn til
að annast þjónustu og svo hitt að
menn skiptu oft um starf, bæði
komu og fóru.
Það er bagalegt að hafa hér ekk-
ert almennt bifreiðaverkstæði.
Fyrirtækin hér hafa orðið að grípa
til þess ráðs að hafa hvert um sig
aðstöðu til að geta gert allra nauð-
synlegustu viðgerðir við vélar, en
sú þróun getur aldrei staðið til
lengdar.
Eins og áður er sagt, hætti Nýja-
Bílaver hf. störfum á sl. ári vegna
fjárhagsörðugleika og voru verk-
stæði og vélar boðnar upp í haust
og bauð útibú Búnaðarbankans í
eignina og á hana nú. Það er vitað
mál að bankinn verður að selja
þessa eign og heldur fyrr en seinna
og nú vantar bara starfsmann, góð-
an í rekstri fyrirtækja og um leið
í þjónustu, til að setja þessa starf-
semi af stað á ný og mun bankinn
gera sitt til að þetta megi takast.
Viðgerðir fara nú mest fram í
Reykjavík eða annars staðar, tals-
verðan spöl frá Stykkishólmi.
— Arni
Minningaræður
í messukaffi
Jónshúsi.
GÍSLI Sigurbjömsson forstjóri
Elli- og hjúkmnarheimilisins
Gmndar bauð öllum kirkjugest-
um til kaffidrykkju í félags-
heimilinu í Jónshúsi eftir
íslensku guðsþjónustuna sl.
sunnudag í Skt. Pálskirkju. Var
Skreytum
við öll tækifæri
IMM.4. Reykjavikurvegi 60, *ími 53848. ^ Alfheimum 6, simi 33978.
SE.ÓMI*
HAFNARSTRÆT115.
Skreytingar við
hvert tækifæri.
Opiðfrá kl. 09-21 alla
daga nema sunnudaga
frákl. 12-18.
Sími21330.
boðið til minningar um fjóra
merka íslandsvini og íslendinga
og var þeirra minnst í samsætinu.
Dr. theol. Alfred Jörgensen, sem
stofnaði De Samvirkende Menig-
hedsplejer og flutti dóttursonur
hans, Otto Norgaard cand. polyt.
greinargott erindi um hinn merka
kennimann og félagsmálafrömuð.
Um prófessor Skúla Guðjónsson í
Árósum talaði dóttir hans, Katla
Skúladóttir Hannibal, og las m.a.
hugljúfa bemskuminningu föður
síns frá Vatnskoti í Hegranesi. Pró-
fessor Skúli var mjög þekktur hér
í landi sem læknaprófessor og fyrir
brautryðjendastörf á sviði mengun-
arvama og neyslurannsókna.
Þannig vill til, að 25. janúar er ein-
mitt dánardagur hans. Ekkja Skúla
Guðjónssonar, frú Melita Guðjóns-
son, og tvær aðrar dætur þeirra
hjóna, Lóa Castenskjöld og Elín
Mortensen ásamt tengdasyni, Jörg-
en Hannibal, voru einnig viðstödd.
Hinir tveir, sem minnst var við
þetta tækifæri, voru prestamir séra
Sigurbjöm Ástvaldur Gíslason í Ási
og séra Finn Tuiinius, sem enn er
á lífí háaldraður. Gat hann ekki
tekið þátt í þessum minningardegi
vegna hrumleika, en hann og kona
hans, frú Ulla, sendu kveðjur á
samkomuna. Sagði dótturdóttir
séra Sigurbjöms frá afa sínum og
séra Finni og las minningargrein
séra Finns um vin sinn séra Sigur-
bjöm, sem birtist í bókinni um hann,
Afkastamikill mannvinur. Varð
tietta hátíðisdagur hjá hinum mörgu
slendingum, sem viðstaddir voru,
og skal þeim þakkað, sem að stóðu.
G.L.Ásg.
„Lengi býr að
fyrstu gerð“
eftirJóhönnu
Eyþórsdóttur
Mig langar til að fjalla hér um
einn þátt uppeldis, sem er málupp-
eldi, frá sjónarhóli fóstru. Að sjálf-
sögðu mæli ég ekki fyrir munn allra
fóstra. Ég hef ekki langa reynslu
í starfí, en hef lengi haft áhuga_ á
bamauppeldi og skólamálum. Ég
vil að hugað sé meira að fyrirbyggj-
andi aðgerðum, að byrgja branninn
áður en bamið er dottið í hann.
Uppeldisáætlunin
Nýlega er komin út frá mennta-
málaráðuneytinu Uppeldisáætlun
fyrir dagvistarheimili. Hún er mjög
góð að mörgu leyti og bætir úr
brýnni þörf. En mér fínnst ekki
nægileg áhersla lögð á máluppeldi
í þessari áætlun. Töluvert er fjallað
um söng og tónlist og gildi þess
að byija snemma að örva tónnæmi
bama. Það er vissulega mjög mikil-
vægt, en jafnframt þarf að kenna
rétta öndun og framburð. Þetta
þarf allt að haldast í hendur ef
góður árangur á að nást. Allt yrði
þetta gert að leik, að sjálfsögðu.
Böm hafa sjálf mikinn áhuga á
allskonar hljóðum. Þau gera oft til-
raunir með hljóð og njóta þess að
láta heyrast í sér (því hærra, því
betra). Þess vegna er mjög auðvelt
að vekja áhuga þeirra á að mynda
hljóðin rétt, og það fínnst mér að
eigi að gera á dagvistarheimilum.
Til er mjög hentugt hjálpargagn
með myndum af hveiju hljóði fyrir
sig, sérhljóðum og samhljóðum,
Hljóðstöðumyndir Jóns Júl. Þor-
steinssonar. Böm era mjög hrifin
af myndum og era fljót að læra
með aðstoð þeirra.
Vantar meiri þjálfun
í að koma fram
Nauðsynlegt er að byija snemma
að þjálfa böm í framburði. Einnig
þurfa þau að byija sem fyrst að
koma fram fyrir aðra og tala,
syngja, leika og fleira. Þá verður
það sjálfsagður og eðlilegur hlutur
og ekkert vandamál síðar á ævinni.
Ég veit um margt fólk, sem hefur
margt að miðla öðram og langar
til að tjá sig opinberlega. Þetta fólk
mundi samt ekki vilja vinna sér það
til lífs að standa upp á fundi og
segja svo mikið sem nafnið sitt.
Eitthvað er um það núorðið að
framhaldsskólar séu með ræðunám-
skeið og ræðukeppnir. Það er bara
of seint að byija ekki fyrr en þá.
Mér sýnist nú vera lögð megin-
áhersla á það á þessum ræðunám-
skeiðum að þjálfa unglingana í að
tala þvert um hug sér. Það er sjálf-
sagt ágætis þjálfun fyrir pólitíkina,
eins og hún er í dag.
Góður undirbúningur
fyrir skólann
nauðsynlegur
Ef böm koma vel undirbúin í
skólann, bæði andlega og líkam-
lega, og era vel talandi, með góðan
orðaforða era þau mjög fljót að til-
einka sér lestur. Jafnvel geta þau
verið orðin læs 5—6 ára eða yngri
án þess að vera beinlínis kennt
það. Þau uppgötva sjálf hvemig
hljóðin tengjast saman og það verð-
ur skemmtilegur leikur að lesa.
Þannig á allt nám að vera. Ef áhug-
inn er fyrir hendi er gaman að læra
og námið gengur miklu betur, það
vitum við öll.
Of langur tími
í lestrarnámi
Nú hugsa eflaust sumir. Eiga
fóstrar þá að kenna bömunum að
lesa? Era þær ekki að taka fram
fyrir hendumar á kennuram, að
ganga á rétt þeirra? Nei, alls ekki.
Þetta er ekki lestrarkennsla, heldur
undirbúningur undir allt nám. Hann
felst í mörgu, m.a. er hreyfiþroskinn
Jóhanna Eyþórsdóttir
„Foreldrar, fóstrur og
kennarar verða að sam-
einast um að byggja
grunninn betur. Ekki
bíða eftir því að vanda-
málin hrannist upp og
fá þá sérkennara og
sérfræðinga til að
bjarga málunum.“
mjög mikilvægur í þessu sambandi.
En líka er mjög gott að bömin séu
búin að fá þjálfun í réttum fram-
burði á öllum hljóðunum. Æskileg-
ast fyndist mér auðvitað að böm
kæmu læs eða næstum læs í skól-
ann. Alltof langur tími fer oft í
lestrarkennslu, allt upp í 3—4 ár,
stundum lengri. Hægt er að kenna
flestum bömum sem era vel undir-
búin að lesa á nokkram mánuðum,
af góðum kennara, helst sérmennt-
uðum í lestrarkennslu. Ef lestrar-
kennarar hefðu almennt sérmennt-
un þyrfti varla svona marga
sérkennara og talkennara og nú er
raunin. Þegar bömin era orðin læs
er hægt að snúa sér að öðra námi,
því eins og allir vita felst nám að
miklu leyti í lestri námsbóka.
Mér fínnst of litlar kröfur gerðar
til yngri skólabama, 6—10 ára.
Einnig er ekki nógu mikil áhersla
Smábátahöfnin sem er í byggingu á Fáskrúðsfirði. Morgunbiaðið/Aibert Kemp
Fáskrúðsfjörður:
Unnið við smábátahöfn
Fáskrúðsfirði.
Á FÁSKRÚÐSFIRÐI er unnið af
fullum krafti við byggingu smá-
bátahafnar en bygging hennar
hefur verið mikið áhugamál smá-
bátaeigenda hér á staðnum.
Mikil fjölgun opinna báta hefur
orðið hér, sérstaklega á síðasta ári.
Nú fyrst sér fyrir endann á þessu
verki, því í fjárlögum ríkisins eru
áætlaðar 2,6 milljónir kr. til þess.
Unnið verður fyrir rúmar 3 milljón-
ir á árinu með framlagi hafnarsjóðs.
Þessa dagana er unnið að útkeyrslu
garða og er gert ráð fyrir að því
verki ljúki fyrir miðjan febrúar. Þá
er eftir að dýpka höfnina og ganga
frá flotabryggjum. Er þess vænst
að vinnu við höfnina verði lokið í
vor.
- Albert.