Morgunblaðið - 05.02.1987, Qupperneq 47
lögð á að efla sköpunargáfu barn-
anna. Það verður til þess að þeim
leiðist mörgum í skólanum og læra
þar jafnvel að slæpast. Erfitt getur
reynst á seinni árum skólans, þegar
námið þyngist, að bæta úr því.
Lítið samstarf milli
fóstra og kennara
Allt of lítil samvinna er á milli
kennara og fóstra. Ég hef mikið
velt því fyrir mér hvemig á því
standi. Er kannski hvor stéttin um
sig að bíða eftir því að hin hafi
frumkvæðið? Það er helst á skóla-
dagheimilunum, sem eru auðvitað
alltof fá. Margt væri hægt að gera
til að bæta úr þessu sambands-
leysi. Mjög gott væri t.d. að almennt
væru 2 kennarar í fyrstu bekkjum
grunnskólans, annar þeirra fóstra.
Eitthvað hefur verið gert af því, en
mætti vera meira.
Abyrgð foreldra mikil
Foreldrar bera mikla ábyrgð á
uppeldi bama sinna, þar á meðal
máluppeldi. Þeir mega ekki velta
henni að öllu leyti yfír á kennarann
eða fóstmna, eins og því miður em
dæmi um. Foreldramir verða að
tala mikið við böm sín, og þá rétt
mál, ekki bamamál. Einnig lesa
mikið fyrir þau góðar bækur og
vekja þar með áhuga þeirra á góð-
um bókmenntum. Síðast en ekki
síst verðum við að hlusta á bömin
okkar og taka þau alvarlega. Ekki
hæðast að þeim ef okkur fínnst þau
segja einhveija vitleysu. Það getur
orðið til þess að þau hreinlega hætti
að þora að opna munninn af ótta
við að verða hafnað. Því miður verð-
ur oft misbrestur á samskiptum
foreldra og bama á þessum „síðustu
og verstu" tímum. Bæði vegna
óhóflegrar vinnu foreldra, og svo
er það sjónvarpið á kvöldin. Ég
ræði ekki hér um sjónvarps- og
myndbandagláp bama og unglinga
og geigvænleg áhrif enskunnar á
íslenska tungu, það væri efni í ann-
að erindi.
Foreldrar þurfa margir aðstoð
við að ala upp böm sín. Sjónvarpið
er mjög sterkur miðill og tilvalið
að nota það til að gera skemmtilega
fræðsluþætti, sem böm og foreldrar
geta horft á saman og talað um
eftirá. Ýmislegt fleira er hægt að
MORGUNBIAPIÐ, FIMMTUDAGUR 5, FEBRÚAR 1987
■>47
gera, eins og að halda námskeið
fyrir foreldra, t.d. í tengslum við
ungbamaeftirlitið.
Fóstrustarfið lítils
metið
Mörg böm dveljast nú á dag-
heimilum mikinn hluta dagsins
fyrstu ár ævinnar, aðallega böm
einstæðra foreldra og námsmanna.
Okkur fóstrum stendur það næst
að sjá um máluppeldi þessara
bama, foreldramir hafa einfaldlega
fæstir tíma eða orku til þess vegna
brauðstritsins.
Við fóstmr verðum að fá meiri
menntun og þjálfun í máluppeldi
og hljóðfræði. Annaðhvort með
bættri kennslu í Fóstmskólanum
eða með námskeiðum fyrir útskrif-
aðar fóstmr.
Fóstmstarfíð er lítilsmetið í þjóð-
félaginu, bæði í launum og áliti,
eins og önnur störf sem hafa með
fólk og umönnun þess að gera.
Kennarar em einnig í þessum hópi.
Þó virðast þeir vera í meira áliti
en fóst'mr. Oft er talað um að bæta
þurfí samskipti foreldra og kenn-
ara, fóstmr em aldrei nefndar í því
sambandi.
Mér fínnst að fóstmr og kennar-
ar ættu að fá að einhverju leyti
sameiginlega menntun og sömu
laun að sjálfsögðu. Ég ætla ekki
að fjalla um launamálin hér, við
vitum öll um þann smánarblett á
þjóðfélaginu. Við megum samt ekki
láta launamálin tmfla okkur svo í
starfí að það komi niður á bömun-
um.
Meiri samvinnu
Við Islendingar búum í lýðræð-
isríki. Þess vegna þörfnumst við
frjálsra og sjálfstæðra einstaklinga,
sem þora að segja hug sinn og
standa fyrir máli sínu hvar og hve-
nær sem er, og við hvem sem er,
og láta ekki stjómast af almenn-
ingsálitinu.
Foreldrar, fóstmr og kennarar
verða að sameinast um að byggja
gmnninn betur. Ekki bíða eftir því
að vandamálin hrannist upp og fá
þá sérkennara og sérfræðinga til
að bjarga málunum. Þá er verið að
fást við afleiðingar vandans, ekki
orsakimar.
Munum, að „lengi býr að fyrstu
gerð“.
Höfunduir er fóstra og í kjördæm-
isráðiFlokk mannsins íReykjavík.
Listi Framsóknar í
Reykjaneskjördæmi
Á FUNDI í fulltrúaráði fram-
sóknarfélaganna í Reykjanes-
kjördæmi 19. janúar sl. var
framboðslisti Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjördæmi
til alþingiskosninga 1987 ákveð-
inn.
Listann skipa:
1. Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, Garðabæ, 2. Jóhann
Einvarðsson, aðst.m. ráðherra,
Keflavík, 3. Níels Árni Lund, rit-
stjóri, Hafnarfírði, 4. Elín Jóhanns-
dóttir, kennari, Kópavogi, 5. Valdís
Kristinsdóttir, kennari, Grindavík,
6. Gylfi Guðjónsson, ökukennari,
Mosfellssveit, 7. Hilmar Þ. Hilmars-
son, viðskiptafræðinemi, Njarðvík,
8. Ema K. Kolbeins, verkstjóri,
Seltjamamesi, 9. Soffía Guðmunds-
dóttir, fóstra, Garðabæ, 10. Inga
Þyrí Kjartansdóttir, snyrtifr., Kópa-
vogi, 11. Erla Þorsteinsdóttir,
hjúkmnarfr., Garði, 12. Bergsveinn
Auðunsson, skólastjóri, Vogum, 13.
Stefanía Jónsdóttir, húsfreyja,
Sandgerði, 14. Guðbrandur Hann-
esson, bóndi, Kjósarhreppi, 15.
Hilmar Eiríksson, verslunarstjóri,
Hafnarfírði, 16. Drífa Sigfúsdóttir,
bæjarfulltrúi, Keflavík, 17. Helga
Jónsdóttir, aðst.m. ráðherra, Kópa-
vogi, 18. Guðmundur Einarsson,
forstjóri, Seltjamamesi, 19. Hilmar
Pétursson, skrifst.m., Keflavík, 20.
Margrét Sveinsdóttir, fulltrúi,
Bessastaðahreppi, 21. Willard F.
Ólason, skipstjóri, Grindavík, 22.
Ragnheiður Sveinbjömsdóttir,
húsfr., Hafnarfirði.
Almennur kynningarfyrirlestur í kvöld
í Odda (nýbyggingu félagsvísindadeildar
Háskólans), stofu 104, kl. 20.30.
ALÞJÓÐA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
SÍMI 28791.
Einföld leið
til
betra lífs
tæknin
Maharishi
Mahesh Yogi
WORKS
Fjölnotakerflð Works frá Microsoft er
nú að verða mest notaða forritið á Macin-
tosh. Á námskeiðinu er farið rækilega í
þá möguleika sem forritið býður upp á.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun Macintosh.
* Ritvinnsla, æfíngar.
* Gagnagrunnur, æfíngar.
* Tölvureiknir, æfíngar.
* Flutningur gagna á milli þátta forritsins.
* Umræður og fyrirspurnir.
Leiðbeinandi:
Guðmundur Karl Guðmundsson,
sölumaður hjá Radíóbúðinni.
Tími: 9.-12. febrúar kl. 18.15-21.15.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
OKEYPIS
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
Á BLEIUM
Mothercare býður
ókeypis heimsendingar-
þjónustu á bleium á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Bleiurnar hafa þótt afburða góðar
enda er það sérgrein Mothercare
að láta börnum líða vel.
Bleiurnar fást í þremur
stærðum:
Fyrir börn undir 5 kg . kr. 2.000
Fyrir börn 5-12 kg . . . kr. 2.500
Fyrir börn yfir 12 kg . kr. 3.000
í hverjum heimsendingarpakka
eru 168 bleiur, en minni
pakkningar eru fáanlegar í
versluninni.
Pantanasíminn er 91-26560,
frá kl. 9.00-18.00 alla virka daga.
Mothercare-Laugavegi 13-simi 26560