Morgunblaðið - 05.02.1987, Síða 60
STERKTKOKT
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
þátt í stækkun
„VIÐ fengnm það svar frá for-
svarsmönnum Alusuisse á fundi
í gær að þeir myndu ekki standa
að stækkun álversins í
Straumsvík. Hinsvegar var rætt
um hugsanlega möguleika á sam-
starfi ef nýir aðilar eru tilbúnir
til að fjármagna stækkun álvers-
ins og ljóst er að Alusuisse er
reiðubúið til sliks samstarfs,"
sagði Albert Guðmundsson, iðn-
aðarráðherra, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld.
Albert sagði að nú þegar ljóst
væri að endanlegt svar Alusuisse
lægi fyrir, væri næsta skref
íslensku nefndarinnar að finna er-
lenda Qármagnsaðila þar sem engir
peningar væru til á íslandi. Fulltrú-
ar Alusuisse báru fyrir sig að
álmarkaðurinn í heiminum stæði
höllum fæti og álverksmiðpum hefði
víða verið lokað.
Sendineftid á vegum íslenskra
stjómvalda hélt utan til Sviss í
fyrradag til viðræðna við fulltrúa
Alusuisse um hugsanlega stækkun
álversins í Straumsvík og var um
að ræða framhaldsviðræður sem
ákveðnar voru á síðasta viðræðu-
fundi þessara aðila í nóvember sl.
Leitað verður að þriðja
aðila til samstarfs
Álverið í Straumsví]
Alusuisse vill
ekkitaka
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Sigltinn til Grindavíkur
Innsiglingin til Grindavíkur getur verið ógnvænleg í vondum til hafnar. Skúmur GK-22 strandaði sem kunnugt er í innsigling-
veðrum og má ekki mikið út af bregða svo ekki fari illa. Þessi unni sl. þriðjudag eftir að bilun hafði orðið í stýri. í gærmorgun
mynd var tekin í vikunni er Þorsteinn Gíslason GK-2 var að koma náðist Skúmur á flot og segir frá því í máli og myndum á bls 34.
Farmannadeilan:
Enginn sameigin-
legur fundur í viku
17 undanþágubeiðnir hjá Sj ómannafélaginu, 7 óafgreiddar
ísland vann Flugleiðamótið
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik tryggði sér sigur í Flugleiða-
mótinu í handknattleik í gærkvöldi er það vann Svisslendinga
17:15 S síðasta leik mótsins.
Sjá bls. 59.
ENGINN fundur var þjá ríkis-
sáttasemjara í farmannadeilunni
I gær og hafa deiluaðilar ekki
hist formlega á fundi frá þvi á
fimmtudaginn í síðustu viku er
miðlunartillaga ríkissáttasemj-
ara var felld af báðum aðilum.
Deiluaðilar hafa rætt við rikis-
sáttasemjara hvorir í sínu lagi
Ihuga að senda Sigl-
fírðing í loðnufrystmgu
Kom að landi með verðmætasta farm íslensks fiskiskips
Siglufirði.
FRYSTITOGARINN Siglfirðing-
ur er kominn til hafnar á Siglu-
firði með verðmætasta afla
islensks fiskiskips til þessa. Verð-
mæti aflans er 31,2 miljjónir kr.
en eldra metið átti Akureyrin
sem landaði fiski að verðmæti
30,1 milljón kr. i ágúst siðastliðn-
um.
Siglfírðingur kom til hafnar á
mánudag, en í gær var ekki byijað
að landa úr honum. Afli togarans
^r allur frystur um borð, en hann
er 190 tonn af frystum flökum og
60 tonn af heilfrystum físki. Afla-
verðmæti Siglfírðings á síðasta ári
var 112 milljónir kr. alls.
Eigendur Siglfírðings eru nú að
huga að því að senda skipið á loðnu-
miðin til að frysta loðnu um borð.
Loðnan yrði þá keypt beint frá
loðnuskipunum og dælt um borð í
Siglfirðing, annaðhvort úr lestum
skipanna eða nótum. Ástæða þessa
er meðal annars sú, að Siglfírðingur
er á sóknarmarki og þarf að hætta
bolfiskveiðum í um 20 daga eftir
þennan túr.
í gær var danskt flutningaskip
að landa 1.400 tonnum af loðnu-
mjöli hjá Sfldarverksmiðjum ríkis-
ins. Mun ekki af veita þar sem farið
var að þrengjast um hjá verksmiðj-
unni. Þijú eða fjögur loðnuskip voru
væntanleg til Siglufjarðar í gær.
Eftir að þau hafa tekið olíu fer að
verða lítið eftir fyrir togarana.
Matthías
og búist er við að af sameiginleg-
um fundi geti orðið fljótlega.
Sjómannafélag Reykjavíkur
veitti í gær undanþágu fyrir olíu-
skipin Kyndil og Stapafell til að
dreifa olíu um landið. Leggja þau
af stað í dag. Birgir Björgvinsson
formaður undanþágunefndarinnar
sagði að nefndin hefði fengið 17
undanþágubeiðnir til þessa og hefði
þegar afgreitt 10 þeirra jákvætt.
Ekki yrði tekin ákvörðun um hvort
orðið yrði við hinum fyrr en eftir
næsta samningafund deiluaðila.
Meðal undanþágubeiðna sem liggja
óafgreiddar eru óskir um útflutning
á mjöli, saltfíski, frystum físki til
Grimsby og saitsfld. Birgir sagði
að nefndin hefði ekki fengið beiðni
um undanþágu til útflutnings á
steinull.
„Ástandið fer versnandi dag frá
degi hjá útflutningsfyrirtækjun-
um,“ sagði Ólafur Davíðsson
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda. Hann sagði að einnig
væru að verða vandræði hjá iðnrek-
endum vegna hráefnisskorts, en
ekki vissi hann um bein dæmi þess
að framleiðsla væri að stöðvast
þess vegna. Magnús Tryggvason
framkvæmdastjóri Ora sagði að
farið væri að styttast í vandræði
hjá fyrirtækinu vegna hráefnis-
skorts. Sagðist hann vita af feng-
inni reynslu að vandræða gætti
mest eftir að verkfallið leystist því
það tæki sinn tíma fyrir skipin að
komast út og heim aftur.
í gær var fundur mest allan dag-
inn hjá ríkissáttasemjara með
Sleipni, félagi hópferða- og lang-
ferðabflstjóra, og viðsemjendum.
Sleipnir hefur boðað verkfall 9. og
10. febrúar. Félag starfsfólks í hús-
gagnaiðnaði var einnig á fundi hjá
ríkissáttasemjara og hefur nýr
fundur verið boðaður á föstudaginn
kl. 13. Sama dag verður fundur
með Vélstjórafélagi Suðumesja og
viðsemjendum, en félagið hefur
boðað verkfall frá 8. febrúar.
Siglufjörður:
Skjöídur með Þor-
lák helga 1 togi
Siglufirði. ^
RÆKJUBÁTURINN Þorlákur
helgi SI fékk i skrúfuna djúpt út
af Sléttunni f gærkvöldi. Rækju-
togarinn Skjöldur SI 101 tók hann
í tog og er með hann á leið f land.
Bátamir, sem báðir eru frá Siglu-
fírði, eru væntanlegir hingað í dag.
Þorlákur helgi er 146 tonn að stærð
og Skjöldur 203 tonn.
Matthías