Morgunblaðið - 24.02.1987, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
50
fclk í
fréttum
Freuuri röð frá vinstri: Kolbrún Harðardóttir, Birgir Stefánsson, Viktoría Guðmundsdóttir, Karl Viktor
Heimbiirger, Betsý Ágústsdóttir, Nikulás Heimbíirger og Viktoría Karlsdóttir. í aftarí röð frá vinstri eru
Esther Birgisdóttir, Karl Jóhann Birgisson, Kolbrún Stella Birgisdóttir, Ólafía Birgisdóttir, Davíð Þór
Óskarsson. Stella Gísladóttir, Jónas Ragnar Gíslason og Jónas Jónasson.
Fimm ættliðir
essi mynd var tekin fyrir tveimur árum af ættmóð-
urinni Viktoríu Guðmundsdóttur í fjölmennum
hópi fímm ættliða. Viktoría er frá Aðalbóli í Vest-
mannaeyjum, en er nú til heimilis að Kleppsvegi 32
í Reykjavík.
Þama á myndinni er Viktoría ásamt dóttur sinni,
tveimur dætrum hennar, bömum þeirra og bamaböm-
um. Frá því að myndin var tekin hafa síðan tvö böm
bættst í hópinn!
Þessi mynd er birt nú, í tilefni þess að Viktoría
átti 90 ára afmæli síðastliðinn sunnudag og er henni
óskað til hamingju með það.
Jerry Hall
sýkn saka
Jerry Hall, sambýliskona og
bamsmóðir Micks Jaggers,
söngvara Rolling Stones var sýknuð
af ákæru um fíkniefnasmygl til
Barbados á Karíbahafí. „Ég er
fegnust því að þetta skuli afstaðið",
sagði Jerry sigri hrósandi skömmu
eftir úrskurðinn. Hún vildi ekki
svara spumingum fréttamanna á
blaðamannafundi um helgina, þar
sem hún og Jagger skáluðu í
kampavíni við viðstadda frétta-
hauka.
„Þessi martröð kostaði mig
a.m.k. 200.000 dali, sem ég hefði
að öðrum kosti fengið fyrir fyrir-
sætustörf. Mér þætti gaman að vita
hver hyggst borga það. Undanfar-
inn mánuð hef ég ekkert getað verið
með bömunum okkar Micks eða
honum, hvað þá með sjálfri mér og
ég er mjög ánægð með að komast
loks héðan og aftur til Banda-
ríkjanna .... Ég hef alltaf haldið
fram sakleysi mínu og ég er mjög
fegin yfír því að það hefur verið
staðfest fyrir dómstólum", sagði
Hall að lokum.
Jerry Hall var handtekin hinn
21. síðasta mánaðar og ákærð fyrir
að hafa um níu kíló af marijúana
undir höndum. Hún hélt því statt
og stöðugt fram að umrædd eitur-
lyf væru alls ekki sín eign, heldur
hefðu þau komist í hennar hendur
fyrir misskilning.
Skýrði hún frá því að hún hefði
farið á flugvöll eyjarinnar til þess
að sækja sendingu, sem hún átti
von á og þá hefði henni verið feng-
inn pakki sér merktur. Við tollskoð-
un kom í ljós að í pakkanum var
ekki það sem hún átti von á heldur
fyrmefnd eiturlyf.
Við vitnaleiðslur bar flugvallar-
starfsmaður nokkur að hann hefði
merkt Jerry pakkann þar sem hann
hefði verið ómerktur, en starfsmað-
urinn vissi að Jerry vænti pakka
nokkurs.
í úrskurði dómarans sagði að í
máli þessu væri margt á huldu, en
ekki væri hægt að dæma fólk á
ótraustum líkum. Auk þess hrósaði
hann Hall fyrir að vera áreiðanlegt
vitni.
Þekkir
einhver
sjálfan
sig?
Blaðinu barst fyrir skömmu
gömul mynd, sem tekin var í
porti Austurbæjarskólans í upphafí
fjórða áratugarins. Myndin er af
hópi Reykjavíkurbama á Vomá-
mskeiði Isaks Jónssonar, sem haldið
var í eða við Austurbæjarskólann,
sennilega vorið 1931.
Sá sem kom með myndina fysir
að komast að nöfnum bamanna,
en þau em nú flest liðlega sextug.
Þessvegna fer hann nú fram á lið-
veislu lesenda blaðsins og biður þá
rýna í myndina og skrifa niður nöfn
þeirra, sem þeir þekkja. Við nöfn
þeirra skal setja tölu þá sem bömin
eru auðkennd með á teikningunni
hér við hliðina.
Er ekki að efa að einhverjir
þekkja þama sjálfa sig og bemsku-
vini, þó svo að myndin sé e.t.v. orðin
hrörleg. Þeir geta svo sent nafnskrá
sína til blaðsins merkt Fólki í frétt-
um, en póstfang blaðsins er:
Morgunblaðið,
P.o.box 1555,
121 Reykjavík.
Þekkir einhver sjálfan sig hér?