Morgunblaðið - 26.02.1987, Side 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
47. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fer Opec-samkomulagið út um þúfur?
Olíuverðið farið að
Vestur-Beirut:
ORKUMLAMENN
Reuter
Níu afganskir skæruliðar komu í gær til Frankfurt í Vestur-Þýska-
landi þar sem þeir munu gangast undir læknisaðgerð vegna örkumla,
sem þeir hafa hlotið í stríðinu við sovéskan innrásarher í landi sínu.
í gær hófust einnig ,að nýju Genfarviðræðurnar um Afganistan og
er búist við, að þar verði lagðar fram nýjar tillögur um brottflutn-
ing sovéska hersins.
Noregur:
Tvísýnt um líf
Frydenlunds
Fékk alvarlegt heilablóðfall
á Fornebu-flugvelli
Ósló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsina.
KNUT Frydenlund, utanríkisráðherra Noregs, fékk í gær alvar-
legt heilabióðfall á Fornebu-flugvelli ( Ósló þegar hann var að
koma heim frá þingi Norðurlandaráðs í Helsinki. í gærkvöid var
hann í öndunarvél á Ullevál-sjúkrahúsinu en læknar sögðu, að
mjög’ tvísýnt væri um iíf hans.
Frydenlund kom til Fomebu
skömmu eftir kl. 10 í gærmorgun
en skömmu síðar hné hann niður
meðvitundarlaus. Nærstaddur
læknir veitti honum fyrstu hjálp
og sá strax, að alvara var á ferð-
um. Svo vel vildi til, að sjúkrabif-
reið var stödd fyrir utan
flugstöðina og tókst því að flytja
Frydenlund strax á Ullevál-
sjúkrahúsið í Ósló.
Erik Enger, læknir við sjúkra-
húsið, sagði í gærkvöld, að mjög
tvísýnt væri um líf Frydenlunds.
Hann hefði fengið mikla heila-
blæðingu og verið veill fyrir vegna
meðfædds æðagalla.
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra, sem nú er stödd í
Japan á vegum Náttúruvemdar-
á nýjan leik
Opec-ríkin, samtök oliuútflutn-
ingsrikja, hafa reynt að halda
verðinu í 18 dollurum en offram-
leiðsla sumra aðildarríkjanna er
nú farin að segja til sin á yfirfull-
um markaðnum.
í gær var olía af Brent-svæðinu
breska seld á 15,97 dollara fatið
og hafði þá lækkað um hálfan doll-
ar á einni nóttu. Hefur olíuverðið
verið að lækka allan þennan mánuð
og er meginástæðan sú, að menn
telja desembersamkomulag Opec-
ríkjanna um verð og framleiðslu
vera að renna út í sandinn. Með
samkomulaginu var verðið hækkað
úr 14,50 dollurum í 18 og einnig
skyldi framleiðslan minnkuð um 4%,
í 15,8 milljónir olíufata á dag. Olíu-
málasérfræðingar segja hins vegar,
að framleiðslan sé nú á milli 16,3
16,5 millj. fata og eru helstu söku-
dólgamir Kuwait, Sameinuðu
arabísku furstadæmin og Ecuador.
Margir telja, að nú verði Saudi-
Arabar að bjarga samkomulaginu
með því að minnka sína framleiðslu
eða horfast ella í augu við verðhrun
þegar eftirspumin minnkar í vor.
Tower-skýrslan um vopnasölumálið:
Búist við harð-
orðri gagnrýni
Washington. AP, Reuter.
SKÝRSLA, sem Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, ákvað, að tekin
yrði saman um vopnasöluna til írans, verður birt i dag og er búist við,
að í henni komi fram mikil gagnrýni á ríkisstjómina.
í Tower-skýrslunni eins og hún
kallast eftir formanni nefndarinnar,
John Tower, er Qallað um vopnasöl-
una til írans og um það hvemig
andvirði vopnanna var að nokkru
leyti komið í hendur skæruliða í Nic-
aragua. Er nú orðrómur um, að
Donald Regan, starfsmannastjóri,
muni verða að segja af sér vegna
málsins og telja sumir, að hann
muni gera það eftir birtingu skýrsl-
unnar.
Á fréttamannafundi í gær lét
Reagan forseti að þvi liggja, að hann
myndi ekki hvort hann hefði sam-
þykkt vopnasöluna þegar í ágúst
árið 1985 eins og Robert McFarlane,
fyrrum öryggisráðgjafi, heldur fram.
Sýrlendingar kunna að ná einhverjum gíslanna
Reuter
Skæruliðar Hizboliah-samtakanna, sem sýrlenskir hermenn felldu,
voru bornir til grafar í gær. Fylgdu þeim mörg þúsund manna, sem
báðu Sýrlendingum bölbæna og hrópuðu á hefnd.
lækka
London, New York. AP, Reuter.
ÞAÐ sem af er mánuðinum hefur
oliuverðið farið lækkandi og á
skyndimarkaðnum er það nú
komið niður fyrír 16 doilara.
Beirut. AP, Reuter.
Sýrlenskir hermenn girtu í gær af vigi Hizbollah-sveitanna i Vest-
ur-Beirut en i fyrradag felldu þeir 23 félaga þeirra í hörðum átökum.
Orðrómur er um, að Sýrlendingar ætli einnig að leggja undir sig
úthverfin i suðurhluta borgarinnar en talið er, að þar séu flestir
erlendu gisianna hafðir í haldi.
Eftir átökin í fyrradag hefur sýr-
lenski herinn aukið öryggiseftirlit í
Vestur-Beirut, einkum í miðborg-
inni þar sem allir, sem leið eiga um,
eru krafðir persónuskilríkja. Eftir
heimildum er haft, að Sýrlendingar
hyggist einnig sækja inn í úthverfin
í suðurhlutanum en almennt er tal-
ið, að þar séu flestir útlendu
gíslanna í haldi hjá skæruliðum
Hizbollah-samtakanna. Eru liðs-
menn þeirra af shíta-grein
múharheðstrúarinnar og aðhyllast
írani.
„Ef og þegar sýrlensku hermenn-
irnir fara inn í suðurhlutann má
búast við, að einhverja gíslanna
takist að frelsa," sagði einn heimild-
armannanna, sem ekki vildu láta
nafns síns getið, og eftir öðrum er
haft, að Teny Waite, sendimaður
ensku biskupakirkjunnar, sé haldið
þar.
Dagblaðið Al-Qabas í Kuwait
sagði í dag, að Hizbollah-skærulið-
amir hefðu flutt suma gíslana i
íranska sendiráðið í Beirut og aðra
til Suður-Líbanons í því skyni, að
Sýrlendingar gætu ekki náð þeim
á sitt vald. Fullyrti blaðið, að Terry
Waite væri meðal þeirra, sem nú
væru í íranska sendiráðinu, og að
Sýrlendingar hefðu sérstakan hug
á frelsa hann til að greiða götuna
fyrir bættum samskiptum við Breta
og Bandaríkjamenn.
íbúar í suðurhlutanum segja, að
Hizbollah-skæruliðamir þar séu
greinilega við öllu búnir og virðist
líklegir til að beijast ef sýrlensku
hermennimir láta til skarar skríða.
í gær báru þeir grafar þá félaga
sína, sem féllu í fyrradag, og höfðu
þá uppi heitstrengingar um að
hefna sín á Sýrlendingum.
m
Knut Frydenlund,
ráðs SÞ, ákvað strax að hætta
heimsókninni og er hún væntan-
leg heim á morgun, föstudag.
Frydenlund gegndi forsætisráð-
herraembættinu í fjarveru
Brundtlands en nú hefur Hallvar
Bakke, menningarmálaráðherra,
tekið við þar til Bmndtland kemur
aftur.
Fréttimar um veikindi Fryden-
lunds vom mikið áfall fyrir
margan manninn enda er utanrík-
isráðherrann einn vinsælasti
stjómmálamaður í Noregi og nýt-
ur mikillar virðingar í öllum
flokkum.
Stefnir í uppgjör
við skæruliðana?