Morgunblaðið - 26.02.1987, Síða 4

Morgunblaðið - 26.02.1987, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987 Launanefnd ASÍ, VSÍ og VMS: Launahækkun 1. mars skal vera 2 prósent LAUNANEFND ASÍ, VSÍ og VMS er sammála um þann úr- skurð að launahækkun 1. mars nk. skuli vera 2%, samanber ákvæði kjarasamninga frá 6. des- ember sl. Nefndin vísar til þess að vísitala framfærslukostnaðar hafi í febrúarbyrjun nánast reynst á viðmiðunarmörkum kjarasamnings, eða einungis 0.04% fyrir ofan þau. Launanefndin hefur endurskoðað verðlagsspá sína frá því í desember- mánuði og eru nokkur frávik í þessari spá frá nýrri verðlagsspá Þjóðhagsstofnunar. Launanefndin reiknar með að hækkun fram- færsluvísitölu frá 1. janúar 1987 til 1. janúar 1988 verði 8-9%, en spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir 10.5% hækkun framfærsluvísi- tölunnar á sama tíma. Launanefnd- in spáir því að meðalhækkun vísitölunnar frá 1986 til 1987 verði 12.5-13.5%, en spá Þjóðhagsstofn- unar gerir ráð fyrir 14.5% hækkun á milli ára. „í verðlagsspá samningsaðila frá desember var reiknað með því að á síðasta ijórðungi ársins yrði hraði verðlagsbreytinga um 4%, miðað við heilt ár,“ segir í frétt launa- nefndarinnar, „í fyrsta skipti um áratugaskeið eygðu menn vonir um að verðlagsþróun hér á landi yrði komið á svipað stig og í helstu nágranna- og viðskiptalöndum ís- lendinga. Enn eru allar forsendur til þess að þetta markmið geti náðst, ef saman fer almennur vilji sterkra hagsmunaaðila í þjóðfélag- inu og ákveðin og markviss stefna í efnahagsstjóm." í niðurlagi fréttarinnar segir: „Ekki þarf að fjölyrða um hvemig mikil og stöðug verðbólga hefur leikið efnahag heimila og fyrirtækja á liðnum árum. Öllum er ljóst hvaða þýðingu það getur haft fyrir efna- hagslegar framfarir í landinu, og þar með efnahag alls almennings, ef því marki verður náð að verð- bólga verði ekki meiri en í grann- löndunum. Ekkert bendir bendir til annars en að það sé nú fullkomlega í eigin hendi okkar sjálfra hver nið- urstaðan verður.“ Dr. Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar: Akureyringar gætu selt sinn hlut í Landsvirkjun DR. Jóhannes Nordal, formaður stjóraar Landsvirkjunar, segir stjórnina enga afstöðu hafa tekið til hugleiðinga Akureyringa þess efnis að Laxárvirkjun gangi út úr Landsvirkjun, enda hafi VEÐUR r r r r ÍDAGkl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær) I/EÐURHORFUR I DAG: YFIRLIT á hádegi f g»n Yfir norðaustartverðu Grænlandi er 1046 millibara hæð sem þokast austur. Milli Jan Mayen og Noregs er 1006 millibara djúp lægð sem fer norðaustur. Langt suðvestur í hafi er önnur lægð, mjög víðáttumikil og 950 millibara djúp, og hreyfist norðaustur. SPÁ: Allhvöss (7 vindstig) austan- og suöaustanátt á landinu með rigningu eða slyddu um sunnan- og vestanvert landið en éljum á annesjum norðanlands. Hiti nálægt frostmarki um norðanvert landið en á bilinu 2 til 5 stig sunnanlands. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Allhvöss austanátt víða um land. Vægt frost og sums staðar dálítil snjókoma um noröanvert landið en hiti á bilinu 2 til 4 stig og skúrir sunnanlands. LAUGARDAGUR: Suðaustanátt og heldur hlýnandi veður. Skúrir sunnanlands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands. TAKN: Heiðskírt s, Norðan, 4 vindstig: v Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V E1 — Þoka = Þokumóða Súld ? OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður stjórninni ekki borist neitt erindi í þá veru. Hann bendir á að eig- endur Laxárvirkjunar hafi á sínum tíma óskað sjálfir eftir að ganga inn í Landsvirkjun og gert samning þar að lútandi. „Eigendur Laxárvirkjunar höfðu sjálfír frumkvæði að því á sínum tíma að ganga inn í Landsvirkjun og gerðu samning þar um,“ sagði Jóhannes í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði að ef þetta yrði eindregin niðurstaða norðanmanna, þá yrðu þeir auðvitað að semja við hina eignaraðilana um það. „Þetta er að mínu mati, ekki raunhæfur möguleiki," sagði Jó- hannes, „og ég tel að Akureyringar ættu fremur að hugleiða hvort ekki sé rétt að þeir selji sinn hluta í Landsvirkjun og afla sér þar með fjármagns til þess að leysa hita- veituvandamál sín.“ Jóhannes sagði að auðvitað væri þetta mál á milli eignaraðila fyrir- tækisins og engar beiðnir í þessa veru hefðu borist stjóm Landsvirkj- unar. Ljóst væri að Laxárvirkjun væri skipulagslega og rekstrarlega hluti af Landsvirkjun. F m. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri -2 snjóél Reykjavík 2 snjókoma Bergen 3 súld Helsinki -12 léttskýjað Jan Mayen -17 rennlngur Kaupmannah. 2 skýjað Narssarssuaq -2 snjókoma Nuuk -19 léttskýjað Osló -5 alskýjað Stokkhólmur -9 léttskýjað Þórshöfn 6 alskýjað Algarve 16 skýjað Amsterdam 2 hálfskýjað Aþena 6 alskýjað Barcelona 8 rlgning Berlín 1 mistur Chicago -1 léttskýjað Glasgow 3 skýjað Feneyjar vantar Frankfurt -1 ióttskýjað Hamborg 2 léttskýjað Las Palmas vantar London S skýjað LosAngeles 7 léttskýjað Lúxemborg -1 skýjað Madrid 11 súld Malaga 19 láttskýjað Mallorca 12 rigning Mlami 22 alskýjað Montreal -13 léttskýjað NewYork -2 léttskýjað París 3 akýjað Róm vantar Vín 1 léttskýjað Washlngton vantar Winnipeg 0 snjókoma Gústaf Adolf Ólafsson. Morgunblaðið/Björn Blöndal Sævar Lýðsson, fulltrúi lög- reglusfjórans á Keflavikur- flugvelli, með báðar stærðimar af skotheldu plöt- unum, sem era út fíber og keramiki. Skotheldu plöturnar: Komu frá Dubai, en eru fram- leiddar í Banda ríkjunum SKOTHELDU hlífðarplötura- ar, sem fundust í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli, eru framleiddar i Bandaríkj unum, en lögreglan telur að þær séu hingað komnar frá Dubai við Persaflóa. Plötumar fundust í byrjun febrúar í herbergi sem starfs- menn, er þrífa farþegarými flúgvéla, hafa undir hreingem- ingarvörur. Herbergi þetta er í svokölluðum „fíngri", sem er sá hluti flugstöðvarinnar sem far- þegar koma fyrst inn í þegar þeir koma frá borði. Að sögn Sævars Lýðssonar, fulltrúa lög- reglustjórans á Keflavíkurflug- velli, voru plötumar í merktum innkaupapoka frá Dubai. Þorgeir Þorsteinsson, lög- reglustjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði að enn væri óljóst hvemig plötumar hefðu komist á þennan stað. „Þessar plötur getur hver sem er keypt í Bandaríkjunum og eru þær notaðar í skotheld vesti. Við vitum ekki hver eig- andi þeirra er eða hvers vegna hann hefur ákveðið að losa sig við plötumar á þessum stað,“ sagði lögreglustjórinn. Gústaf Adolf Ólafs- son hrl. látinn Gústaf Adolf Ólafsson hæsta- réttarlögmaður lést síðastliðinn mánudag á Landspítalanum í Reykjaví, 82 ára að aldri. Gustaf Adolf Ólafsson fæddist 20. júní 1905 í Stóraskógi í Dölum, sonur hjónanna Ólafs Jóhannesson- ar bónda þar og konu hans, Guðbjargar Þorvarðsdóttur. Hann lauk stúdentsprófí frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1928 og lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1933. Strax eftir það opnaði Gústaf lögfræðistofu í Reykjavík og rak hana til ársins 1978. Gústaf fékk málflutningsréttindi fyrir héraðs- dómi 1939 og fyrir hæstarétti 1957. Jafnframt málflutningsstörfum hafði Gústaf með höndum um- fangsmikla byggingastarfsemi frá 1941 og var formaður byggingafé- lagsins Atla hf. um langt skeið frá 1941. Eftirlifandi eiginkona Gústafs Adolfs Ólafssonar er Ágústa Sveinsdóttir og eignuðust þau þijú böm.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.