Morgunblaðið - 26.02.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
17
Phil Fearon &
Galaxy í Evrópu
hefur þá gjaman verið til þess vitn-
að að einhver endurskoðun væri í
gangi og svo er reyndar enn.
Úr því að málið hefur ekki náð
fram að ganga á Alþingi liggur
beinast við að ganga úr skugga um
stuðning almennings við málið í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þess vegna
var tillaga okkar sú í vetur einmitt
um það. Ef Alþingi vill taka á mál-
inu og afgreiða það þarf ekki
þjóðaratkvæði. Ef ekki, er eðlilegt
að skjóta því til þjóðarinnar. Dómi
hennar ætti Alþingi að vera tilbúið
að lúta og framkvæma þann vilja
sem þjóðin léti þannig í ljós.
Niðurlagsorð
Tillögur okkar alþýðuflokks-
manna miða að því að tryggja
öruggan rétt allra og virða rétt-
ar- og kjarastöðu allra eins og
hún er i dag. Við viljum að komið
verði á fót sameiginlegum lífeyris-
sjóði af því að kostir þess fyrir-
komulags eru ótvíræðir, m.a. í
minni tilkostnaði og þá meiri
greiðslugetu sjóðanna. Þetta viður-
kennir Þorsteinní reynd þegar hann
segir að sjóðunum megi þó fækka
til hagræðis. Það hagræði á auðvit-
að að nota til fulls, þ.e. að fækka
sjóðunum í einn sjóð.
í annan stað heldur Þorsteinn
því fram að tillaga okkar muni soga
Q'ármagn suður. Sannleikurinn er
sá að það er húsnæðislánastefna
hans og fjármögnun á halla ríkis-
sjóðs (sem hann hefur komið upp)
sem sogar fjármagn suður. Okkar
tillaga miðar hins vegar að deilda-
skiptum sjóði með sjálfstasði deilda
um ávöxtun til að tryggja hlut
byggðanna öndvert við það sem nú
er.
Loks heldur Þorsteinn því fram
að tillögur okkar gangi þvert á vilja
eigendanna, aðila vinnumarkaðar-
ins. Ég skal ekkert segja um áhuga
núverandi sjóðsstjóma, en eigend-
ur sjóðanna eru fólkið í landinu,
sem í þá hefur greitt. Tillaga okkar
gengur einmitt út á það að þessir
eigendur, fólkið í landinu, fái að
segja hug sinn og ákveða hvað það
vill í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Höfundur er annar af alþingis-
mönnum Alþýðuflokks fyrir
Reykjaneskjördæmi.
eflaust sómt sér vel í flutningi
áhugaleikhúss.
Ég varð ekki var við neinn leik
sem skipti máli nema helst bams-
lega túlkun Guðrúnar Jóhönnu
Ólafsdóttur í Gættu þín. Andrés
Sigurvinsson í hlutverki Nonna í
sama þætti lék vel og þyrfti að fá
að spreyta sig oftar. Það var líka
gaman að fá að kynnast leikrænni
túlkun Bryndísar Pétursdóttur í
sama þætti, en hún er leikkona sem
býr yfir miklum þroska og getur
með hljóðlátum hætti speglað örlög.
Elfa Gísladóttir var líka góð. Sigur-
jóna Sverrisdóttir reyndi án árang-
urs að blása lífsanda í sitt hlutverk.
Um Drauma á hvolfi og hina fáu
leikara þar gildir að allir léku þeir
vel. Amór Benónýsson hefur mikla
leikhæfileika og fær vonandi að
glíma við eitthvað veigameira en
hina gufulegu karlmannsímjmd sem
kallast Ámi hjá Kristínu Ómars-
dóttur. Ragnheiður Steindórsdóttir
er að mínu viti ein af okkar bestu
leikkonum, en ætti skilið eitthvað
betra en Matthildi í Draumum á
hvolfi. Ellert A. Ingimundarson er
galvaskur leikari og á eflaust eftir
að sýna hvað í honum býr.
Tónlist, lýsing og leikmynd und-
irstrikuðu tómleikann, sérstaklega
var leikmyndin markverð.
Ég verð að segja eins og er að
þessi sýning á Litla sviði Þjóðleik-
hússins veldur því að ráðamenn
hússins þyrftu að fá góð ráð áður
en þeir láta sviðsetja leikþætti af
líku tagi. Því miður virðist sumt
leikhúsfólk vera að fjarlægjast
raunverulegar leikbókmenntir, en
ég tel mjög nauðsynlegt að náin
samvinna verði tekin upp meðal
leikhúss- og bókmenntafólks.
DAGANA 26., 27. og 28. febrú-
ar nk. mun breski söngvarinn
Phil Fearon ásamt Galaxy
skemmta gestum veitingahúss-
ins Evrópu, Borgartúni 32.
Phil Fearon & Galaxy hafa á
undanfomum árum átt vinsældum
að fagna í heimalandi sínu sem
og vfða annars staðar, þ. á m. á
íslandi. Hann var aðalmaðurinn
og reyndar eini fasti meðlimurinn
í hljómsveitinni Galaxy sem kom
þremur lögum á topp tíu í Bret-
landi á ámnum 1983 til 1984. Það
voru lögin „Dancing Tight" og
„What do I do“, sem reyndar voru
meðal þeirra fimm efstu um tíma,
og „Everybody’s Laughing". Lög-
in náðu öll vinsældum á íslenskum
dansstöðum. Galaxy er nú, auk
Fearons, skipuð tveimur söng-
konum sem báðar koma með
honum hingað til lands.
Auk hljóðfæraleiks og söngs er
Phil Fearon liðtækur upptöku-
stjóri og þess má geta að hann
stjómaði upptökum á laginu „He-
artache" með Pepsi & Shirley sem
nú situr í öðru sæti breska vin-
sældalistans.
Fyrsta skemmtun Phil Fearon
& Galaxy hér á landi verður í
Evrópu í kvöld. Þau skemmta
síðan á sama stað á föstudags-
Phil Fearon
og laugardagskvöld. Phil Fearon
& Galaxy skemmta einnig í
Glaumbergi í Keflavík á laugar-
dagskvöldið og verður það síðasta
skemmtun þeirra hér á landi.
(Úr fréttatílkynningu)
• B«r