Morgunblaðið - 26.02.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
49
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í_„íslenskum orðskviðum“ segir:
Á aldri tvítugs rikir viijinn,
þrítugs skarpleikinn
og fertugs skynsemin.
— „snilliyrði“ —
Þetta var mjög skarpleg athugun.
Menn ættu þó ekki að rökræða hana
alvarlega nema yfir hollum máls-
verði.
Lifur er svo næringarrík að hún
gæti, annarri fæðutegund fremur,
gert allt í senn: aukið viljann, örvað
skarpleikann og skerpt skynsemina
— hjá hvaða aldurshóp sem er. Þessu
til viðbótar er hún ódýr í innkaupum.
Hér fylgir því enn ein ágæt upp-
skrift með lifur.
lifur með lauk
400—500 gr lambalifur,
hveiti,
1 stór laukur,
4 msk. matarolía,
1 stór laukur,
1 bolli vatn,
1 lárviðarlauf,
salt og malaður pipar.
1. Laukur er skorinn í þunnar
sneiðar. Matarolía (2 msk.) er hituð
á pönnu og er laukurinn steiktur í
feitinni á pönnunni þar til hann hef-
ur fengið ljósbrúnan lit. Hann er
síðan settur til hliðar.
2. Á meðan laukurinn er að steikj-
ast er lifrin hreinsuð og skorin í
þunna strimla u.þ.b. 2 sm breiða.
3. Hveiti (‘/8 bolli) er sett í lítinn
plastpoka ásamt 1 tsk. af salti og
möluðum pipar. Lifrin er sett í pok-
ann og hrist með hveitinu þar til hún
hefur fengið þunnan hveitihjúp.
4. Matarolía (2 msk.) er hituð vel
á pönnu og eru lifrarstrimlamir
steiktir í feitinni. Þeim er snúið á
meðan þeir eru að steikjast þannig
að þeir nái að brúnast á öllum hlið-
um. Lifrin steikist á 1—2 mín.
5. Laukurinn er síðan settur með
lifrinni á pönnuna ásamt 1 bolla af
vatni, lárviðarlaufi brotnu í sundur
og 1 tsk. af ediki. Suðan er látin
koma upp og er lifrin soðin í u.þ.b.
1 mín.
Pannan er hrist á meðan sósan
er að jafnast, en hveitið af lifrinni
nægir til að þykkja á sósunni. Salti
er bætt í sósuna ef þurfa þykir.
Með lifrinni er ágætt að bera fram
soðnar kartöflur og hrásalat.
Verð á hráefni
Lifur (450 g) kr. 85,00
1 laukur kr. 7,00
500gkartöflur kr. 20,50
kr. 112,50
Sanitas
Eldur í barnavagni
SLÖKKVILIÐIÐ í Reylgavík
átti í talsverðum önnum á
þriðjudag vegna brunaútkalla.
Ekki var þó um mikinn eld að
Erindi um róman-
tísku stefnuna
og nútímann
HEIMSPEKIDEILD Háskóla ís-
lands stendur fyrir málstofu um
menningarbyltinguna 1880-1930
og hafa tvö erindi þegar verið
flutt. Næsta erindi verður
fimmtudaginn 26. febrúar kl.
16.15 í stofu 301 í Ámagarði.
Þórir Óskarssor. cand. mag. flyt-
ur þá erindi sem hann nefiiir
„Rómantíska stefnan og nútíminn".
Að loknu erindi verða umræður
og er öllum heimill aðgangur.
ræða í neinu þessara tilfella
og engin slys urðu á fólki.
A einum stað hafði pottur
gleymst á eldavél og á öðrum
hafði kviknað í bamavagni sem
var í hjólageymslu í fjölbýlishúsi
í Breiðholti. Þá brann mannlaus
sumarbústaður í nágrenni borg-
arinnar, en hann mun hafa staðið
lengi yfirgefínn og var talinn
ónýtur fyrir. Þá fór slökkviliðið
að Hótel Esju, þar sem viðvör-
unarkerfi hafði farið í gang, sem
orsakaðist af bilun í rafkerfí.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
jfHorgtmblabib
Gabriel
HÖGGDEYFAR
NÝ
STÓRSENDING!
SÖMU HAGSTÆÐU VERÐIN.
H Á. BERG ”
SKEI FUNN 1 5A, SÍMI: 91-8 47 88
FUÓTLEGRI, HREINLEGRI,
AUÐVELDARI!
Dulux innanhússmálning frá ICI er
nýjung á (slandi. Hún hefur ýmsa
kosti umfram aöra málningu.
TILBÚIN í BÖKKUM
Dulux málningu færðu tilbúna í
bökkum. Þú þarft hvorki aö hræra
hana upp né þynna.
SLETTIST EKKI
Minni undirbúning þarf t.d. viö aö
breiöa yfir húsgögn og gólf.
LYKTARLAUS
Dulux er lyktarlaus vatnsmálning.
Dulux fæst í 5 litum. Einnig er hægt
að fá sýnishorn af litunum, þaö
auðveldar þér valiö.
\
ÞEKUR VEL
Dulux þekur sérlega vel og er
snertiþurr á 30 mínútum.
Skúlagötu 42,125 Reykjavík
Pósthólf 5056, S (91) 11547
HARPA gefur lífinu lit!
NÝ MÁLNING SEM KEMUR JAFNVEL
FÆRUSTU MÁLURUM Á ÓVART
7
ÞÓRHILDUR/SlA