Morgunblaðið - 26.02.1987, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HEINRICH KARLSSON, Brekkubæ 20, Reykjavfk, lést í Landakotsspitala þriðjudaginn 24. febrúar. Guðný Hinriksdóttir, Lúðvfk Andreasson, Ásta Heinrichsdóttir Hampton, Gene Hampton, Haraldur Heinrichsson, og barnabörn.
t Eiginmaður minn og faðir okkar, GÚSTAF ÓLAFSSON, hæstaráttariögmaður, lést að kvöldi 24. febrúar í Landspítalanum. Ágústa Sveinsdóttir, Sigrfður Gústafsdóttir, Ólafur Gústafsson, Gústaf A. Gústafsson.
t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR KRISTNÝ STEFÁNSDÓTTIR BUTHEL lést 23. febrúar sl. í San Diego í Kaliforníu og veröur jarðsungin þar föstudaginn 27. febrúar nk. Karl Buthe, Örn Reynir Levfsson, Ásdfs Ragna Valdimarsdóttir, Karl Saevar Benediktsson, Helga St. Hróbjartsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Eiginkona mín og móðir okkar, ÁSDÍS PÉTURSDÓTTIR, Vfðimel 63, andaöist aðfaranótt 25. febrúar. Ólafur Þorgrímsson, Erna Ólafsdóttir, Kjartan Reynir Ólafsson.
t Móöir mín og amma, JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, fyrrverandi starfsmaður Sundhallar Reykjavfkur, Bergþórugötu 56, lést í Hafnarbúðum þriðjudaginn 24. febrúar. Erla Benediktsdóttir Bedinger, Benedikt Jónsson.
t Föðurbróðir minn, BALDVIN ODDSSON frá Grænuborg, Vogum, er látinn. Fyrir hönd vandamanna, Guðrún Elfsabet Vormsdóttir.
t Eiginkona mín, SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, lést í Landspítaianum að morgni 23. þ. mán. Fyrir hönd aöstandenda, Sigtryggur Jónatansson.
t Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og barnabarn, JÓHANNES BALDUR STEFÁNSSON, Kleifum, Gilsflrði, verður jarðsunginn frá Garpsdalskirkju laugardaginn 28. febrúar kl. 14.00. Sigrún Gunnarsdóttir, Stefán Jóhannesson, Trausti Pétursson, Brynja Bernharðsdóttir, Ellert Þorkelsson, Hjörtur Stefánsson, Heiða M. Stefánsdóttir, Unnar Stefánsson, Sigrfður Sigurðardóttir, Arnar Kristinsson, Jóhannes Stefánsson, Unnur Guðjónsdóttir.
Minning:
Sigurlaugur Jón
S. Þórðarson
Fæddur 15. júlí 1931
Dáinn 18. febrúar 1987
í dag fer fram í Fossvogskirkju
útför Sigurlaugs Jóns Sævars Þórð-
arsonar.
Sigurlaugur Jón Sævar eða Diddi
frændi, eins og við kölluðum hann,
fæddist í Reykjavík 15. júlí 1931.
Foreldrar hans voru Bjömey Jóns-
dóttir, sem lést árið 1956, og Þórður
Bjamason, sjómaður, sem lést árið
1983.
Diddi var yngstur þriggja systk-
ina. Elstur er Pálmi, kvæntur
Guðbjörgu Eyjólfsdóttur (látin), og
Hjördís, gift Vilhjálmi Ólafssjmi,
foreldrar undirritaðra.
Tveggja ára lenti hann í bílslysi.
Hann beið þess aldrei bætur og
háði það honum allt hans líf. Diddi
var fn'ður sýnum og hið mesta ljúf-
menni. Þegar við systkinin vora lítil
var Diddi á togara. Það var alltaf
mikið tilhlökkunarefni fyrir okkur
krakkana að fara niður að höfn og
taka á móti honum. Oft kom hann
færandi hendi. Hann keypti handa
okkur hjól, föt, leikföng og ýmislegt
sem gladdi bamssálina. Kom þá vel
fram hversu stórtækur og smekk-
legur hann var í vali sínu.
En svo kom að því að Diddi eign-
aðist sína eigin fjölskyldu. Og má
þá segja að við krakkamir höfum
verið orðir heldur eigingjöm á hann
Didda okkar, vildum hafa hann fyr-
ir okkur. En að sjálfsögðu eltist það
af okkur. Hann kvæntist 31. des-
ember 1964 Maríu Jakobsdóttur
eða Míu eins og hún er alltaf köll-
uð, færeyskri dugnaðar- og
myndarkonu. Áttu þau ásamt Kim
syni Míu heimili sitt á Hringbraut
97. Þar hafði Diddi búið ásamt afa.
Var nú allt í einu orðið mannmargt
á Hringbrautinni hjá afa. Nú var
hafist handa við að breyta og bæta.
Allir lögðust á eitt að gera heimilið
sem fallegast. Árið 1965 eignuðust
Diddi og Mía sitt fyrsta bam. Það
var Jóhann Jakob, sem býr með
Unni Þormóðsdóttur, og síðan árið
1973 eignuðust þau dótturina
Bjömeyju. Hún býr í foreldrahúsum
og á að fermast í vor.
Kim er kvæntur Sesselju Jóns-
dóttur og eiga þau eina dóttur.
í nóvember 1983 lést afí og var
það mikill missir. Hann hafði reynst
Didda, Míu og krökkunum alveg
einstaklega vel og verið þeirra stoð
og stytta. 1. desember 1964 hóf
Diddi störf hjá Olíuverslun fslands
í Laugamesi, og vann þar til dauða-
dags. Hann lést í Borgarspítalanum
að kvöldi 18. febrúar eftir stutta
legu.
Við systkinin viijum með þessum
línum minnast góðs frænda með
þakklæti fyrir allt. Blessuð sé minn-
ing hans. Við vottum fjölskyldu
hans samúð okkar.
Bima, Laula, Óli og Öddi.
Tómas Sigurgeirs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 18. apríl 1902
Dáinn 17. febrúar 1987
Einn af síðustu hugsjónamönn-
um dreifbýlisins hefur lokið hlut-
verki sínu meðal okkar.
Tómas fæddist að Stafni í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu
og ólst þar upp í stóram systkina-
hópi. Hann var búfræðingur frá
Hólum 1926. Kvæntist Steinunni
Hjálmarsdóttur 1929. Fyrst var
hann bóndi á Miðhúsum og síðar á
Reykhólum og kenndur við þann
stað.
Að Tómasi standa traustir þing-
eyskir stofiiar og til þeirra eiga
margir Austfirðingar ættir sínar að
rekja.
Tómas er minnisstæður þeim er
honum kynntust um margt. Hann
var greiðvikinn nágranni og gest-
risinn. Félagshyggjumaður var
hann mikill. Tómas var samvinnu-
maður og framsóknarmaður, en
mat þó ekki fólk eftir pólitískum
litarhætti.
Starf hans við Reykhólakirkju
verður seint metið að verðleikum,
en kirkjan var fastur punktur í til-
vera hans. Hann var einn af
stofnendum Kirkjukórs Reykhóla-
kirkju og meðhjálpari síðustu 19
árin.
Tómas vann mikið að kaupfé-
lagsmálum. Lengi útibússtjóri á
Reykhólum við erfíðar aðstæður.
Póstafgreiðslumaður í áratugi og í
sveitarstjóm. Einnig var hann í
stjóm búnaðarfélags Reykhóla-
hrepps og heiðursfélagi þess félags.
Hér er ekki ætlunin að skrifa
æviskrá Tómasar, en einn þátt má
þó minnast á. Hann gekk 5 bömum
Steinunnar í föðurstað og það eitt
út af fyrir sig er stórt og mikið
hlutverk.
Þau Tómas og Steinunn eignuð-
ust tvö böm, Sigurgeir bónda á
Mávavatni og Kristínu Ingibjörgu,
yfirljósmóður á Landspítalanum.
Útförin var mjög fjölmenn og
einn af færastu organleikuram
landsins, Máni Siguijónsson kvaddi
tengdaföður sinn með því að leika
á orgel við athöfnina, sem fór fram
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og sambýlismaður,
SAMÚEL TORFASON
frá Kollsvik,
Bólstaðarhlíð 7,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. febrúar
kl. 13.30.
Hlff Samúelsdóttir, Pótur Stefánsson,
Árni Samúelsson, Guðný Á. Björnsdóttir,
Torfhildur Samúelsdóttir, Guðmundur Ágústsson,
Sigurlaug Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Lyngheiði 13,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 28. febrúar kl.
15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent Selfosskirkju.
Sigurgeir Gunnarsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
í Reykhólakirkju laugardaginn 21.
þessa mánaðar.
Öllum var boðið til erfidrykkju í
Reykhólaskóla. Fyrir hönd stéttar-
félags okkar bændafólks hér, það
er Búnaðarfélags Reykhólahrepps,
sendi ég Steinunni Hjálmarsdóttur
og bömum þeirra og stjúpbömum
og öðram venslamönnum samúðar-
kveðjur.
Sveinn Guðmundsson
Skreytum
við öll tækifæri
Reykjavikurvegi 60, •imi 53848. Alfheimum 6, sími 33978.
ILONNl
HAFNARSTRÆT115.
Skreytingar við
hvert tækifæri
Opið frá kl. 09—21 alla
daganemasunnudaga
frá kl. 12-18.
Sími 21330.