Morgunblaðið - 26.02.1987, Qupperneq 55
55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
Minning:
Birgir Guðjóns-
son verslunarmaður
Fæddur 26. október 1920
Dáinn 19. febrúar 1987
Lífið er margslungið og háð lög-
málum, er nútíma þekking og
vísindi kunna ekki skil á nema að
hluta til, að því er varðar upphaf
þess og lok. Kom mér þetta í hug,
við fráfall vinar míns, Birgis Guð-
jónssonar.
Saga íslenskrar þjóðar hefir að
geyma frásagnir og margvíslegar
mannlýsingar um sonu sína. Kennir
þar ýmissa grasa, getið er hetju-
dáða þeirra, hreystleika, drenglynd-
is og drengskapar og uppruni þeirra
oft rakinn til víkinga og hefir því
víkingablóð farið um þeirra æðar.
Birgir, eða Bommi eins og hann
var almennt kallaður, var sannur
og ósvikinn • afkomandi þessara
hetja, frumheija íslands byggðar,
með víkingablóð í æðum í þess orðs
sönnu merkingu. Hann reyndist
mikill drengskaparmaður, hafði
ávallt að leiðarljósi þær dyggðir og
þá mannskosti, er góðan dreng
prýðir. Þessi eiginleikar dugðu hon-
um vel á glæstum ferli hans á
vettvangi knattspymuíþróttarinn-
ar. Þar vann hann þrekvirki og var
um tíma einn þekktasti knatt-
spymumaður okkar og sem Vest-
urbæingur traustur liðsmaður KR.
Mér em ógleymanleg tilþrif hans
og frábær leiktækni á knattspymu-
vellinum.
Birgir hóf lífsstarf sitt ungur að
árum og var sívinnandi til hinsta
dags. Hann bar virðingu fyrir vinn-
unni, skóla lífsins og reyndist hollur
og gegn sínum húsbændum alla tíð.
Hann vann verzlunarstörf sín, er
hann helgaði starfskrafta sína, af
alúð og samviskusemi, og komu þar
að góðu gagni þeir eðlislægu þætt-
ir í dagfari hans, er einkenndust
af rósemi og ígrunduðu jafnvægi.
Honum var einkar lagið að um-
gangast fólk og var hann vinsæll
og dáður af þeim, er til hans sóttu
og hann hafði samskipti við.
Birgir var gæfumaður í lífi sínu.
Gimsteinn hans var eiginkonan,
Gréta, mikilhæf sæmdarkona, er
reyndist honum traustur og hollur
lífsfömnautur til hins síðasta. Eign-
uðust þau 4 mannvænleg böm, þau
Jóhann, Hönnu Dóm, Ólínu og
Grétu, sem öll era uppkomin.
Að leiðarlokum er mér efst í
huga tregi og djúpstæður söknuður
við brottkvaðningu Bomma, langt
fyrir aldur fram. Hann skilaði sínu
dagsverki með sæmd og reisn.
Æðmleysi var hans aðalsmerki.
Það er hollt að minnast góðra
drengja sem Bomma. Fyrir fölskva-
lausa vináttu hans, drenglyndi og
einlæg samskipti í minn garð og
ijölskyldunnar, skal gjalda skuld
þakklætis og virðingar.
Grétu, bömunum og öðmm ást-
vinum votta ég einlæga samúð á
kveðjustund.
„Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjálfr it saraa,
en ordstrirr
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getr.“
Gunnar Helgason hrl.
Sumir menn hafa til að bera svo
mikla lífsorku að samferðafólk
þeirra vill helst ekki trúa því að
nokkuð fái grandað þeim nema há
elli. En þegar dauðinn leggur sína
köldu hönd á menn er ekki spurt
um líkamlega hreysti né andlega
orku. Hinir sterkustu jafnt og hinir
veikustu hníga að velli þegar kallið
kemur. Dauðinn fer ætíð með sigur
af hólmi, en þó auðnast mönnum
stundum að vinna þann sigur að
deyja með reisn.
Birgir Guðjónsson, mágur minn,
fæddist þann 26. október 1920, í
Hildibrandshúsi, sem nú er nr. 13
við Garðastræti. Foreldrar hans
vom Guðjón Jónsson, jámsmiður,
og Halldóra Hildibrandsdóttir, kona
hans. Birgir var bam að aldri þegar
hann missti foreldra sína, fyrst föð-
ur sinn og síðar móður sína. Hann
var yngstur af 13 bama systkina-
hópi. Eldri systumar héldu hópnum
saman og ólu hann og systur upp
af mikilli umhyggju og fómfysi, en
þó varð hann snemma að fara að
vinna fyrir sér, fyrst sem sendill
og síðar sem verslunarmaður, sem
varð hans ævistarf. Hann vann all-
lengi við verslun Helga Magnússon-
ar & Co. í Hafnarstræti og eftir að
sú verslun hætti var hann hjá J.
Þorlákssyni & Norðmann hf.
í lok §órða áratugarins og í byij-
un þess fimmta var ég, sem þetta
skrifa, nemandi við Háskóla ís-
lands. Einhver besta dægradvöl mín
þá var að fara upp á Melavöll og
horfa á knattspymu. Þá var að
koma fram ný stjama í knatt-
spymu, Bommi í KR, eða réttu
nafni Birgir Guðjónsson, sem hér
er minnst. Hann hljóp manna hrað-
ast og úthaldið var ótrúlegt. Ég
dáðist að tækni hans og það gerðu
margir. Vera kann þó að hún hafi
ekki fyllilega jafnast á við það, sem
best þekkist nú meðal knattspymu-
manna okkar, enda var minna um
leiðbeiningar og æfingatíminn mun
skemmri. Þegar Birgir var 17 ára
komst hann í úrvalslið fullorðinna
í KR og þótt ungur væri urðu KR-
t
Jaröarför bróöur míns,
ÞORVALDAR SIGURGEIRSSONAR
frá fsafiröi,
veröur gerö fró Fossvogskapellu föstudaginn 27. febrúar kl. 10.30.
Jarðaö veröur í Gufuneskirkjugaröi.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélag (s-
lands.
Fyrir hönd aöstandenda,
Karvel Sigurgeirsson.
ingar ekki fyrir vonbrigðum með
hann. Auk þess að vera sterkur og
hæfur leikmaður var hann góður
drengur og félagi.
Eftir að Birgir kvæntist eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Grétu Jó-
hannsdóttur, hætti hann að stunda
knattspymu, en þá var hann trúlega
á toppnum. Öll orka hans fór nú í
að skapa konu sinni og bömum
fagurt og hlýlegt heimili. Böm
þeirra sem lifðu urðu fjögur. Þau
hjónin vom samtaka að láta böm
sín njóta alls hins besta, veita þeim
þá menntun sem hugur þeirra stóð
til og hjálpa þeim með ráðum og
dáð til að skapa sér góða framtíð.
Lengi áttu þau hjónin fagurt heim-
ili að Lindarbraut 4 á Seltjamamesi
og þar átti hann heima þegar hann
var kvaddur héðan.
Fyrir nokkmm ámm fór Birgir
að kenna sér þess meins, sem að
lokum dró hann til dauða. Hann
gekkst þá undir uppskurð og virtist
allt hafa tekist vel og við, vinir
hans og frændur, trúðum því að
aðgerðin hefði borið tilætlaðan ár-
angur, en svo fór sjúkdómurinn
aftur að gera vart við sig og af
meiri ofsa en áður. Þótt hann væri
kvalinn vann hann störf sín þar til
orkan bilaði. Meðan hann lá bana-
leguna var hann hrókur alls
fagnaðar og lét gestina, sem komu
að heimsækja hann, gleyma því að
þeir vom við dánarbeð. Þó vissi
hann vel til hvers dró.
Hjá J. Þorlákssyni & Norðmann
hf. fékk hann að vinna fram undir
það síðasta þótt kraftar væm að
þverra. Ég veit að honum þótti
vænt um þessa tillitssemi, þar sem
hann þoldi illa aðgerðarleysi. En
að lokum; þegar mátturinn var
þorrinn lagðist hann inn á Landa-
kotsspítala og þar dó hann með
reisn 19. febrúar sl. Með Birgi
Guðjónssyni fellur í valinn góður
drengur, afburða knattspymumað-
ur og góður verslunarmaður, en
umfram allt ástríkur faðir, eigin-
maður, bróðir og vinur. Við sem
eftir lifum hefðum svo gjaman vilj-
að njóta návistar hans lengur, en
örlögin ráða. Ég votta eiginkonu
hans og bömum sérstaka samúð
og bið guð að blessa minningu hans.
Jón Eiríksson
SIEMENS
Siwamat580þvotta-
vélin frá Siemens
fyrirvandláttfólk
• Frjálsthitaval.
•Áfangaþeytivinding fyrir allan
þvott. líka ull. Mesti vindu-
hraði: 1100 sn./mín.
•Sparnaðarkerfi þegar þvegið
er í hálffylltri vél.
•Skyndiþvottakerfi fyrir íþrótta-
föt, gestahandklæði og annaö
sem lítið er búið aö nota.
• Hagkvæmnihnappur til að
minnka hita og lengja þvotta-
tíma: Sparar rafmagn.
• Hægt er að fá þurrkara með
sama útliti til að setja ofan á
vélina.
• Allar leiðbeiningar á íslensku.
Hjá SIEMENS eru gæðl, endlng
og fallegt útllt ávallt sett á
oddinn.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
t
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
BIRGIS GUÐJÓNSSONAR,
verslunarmanns,
Lindarbraut 4,
Seltjarnarnesi,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 26. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Gréta Jóhannsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Móðursystir mín,
GUNNFRÍÐUR RÖGNVALDSDÓTTIR
frá Uppsölum,
Seyöisfiröi viö ísafjaröardjúp,
veröur jarösett frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn 27. febrúar
kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Hrefna Samúelsdóttir Tynes.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö við fráfall og útför
MATTHÍASAR KJARTANSSONAR,
Sólheimum 30.
Jóhanna Matthíasdóttir,
Matthildur Ólafsdóttir, Ingólfur Guðbrandsson,
Vilhjálmur Georgsson, Lilja Guöbrandsdóttir.
t
Alúöarþakkir fyrir auðsýnda samúö viö fráfall og jaröarför fööur
okkar, tengdafööur og afa,
KRISTINS ÁRNASONAR,
fyrrum skipstjóra
frá Geröum.
Eyjólfur Kristinsson, Sigrföur Ólafsdóttir,
Þorsteinn Kristinsson, Helga Þorkelsdóttir,
Guörún Kristinsdóttir, Vilhelm Andersen
og barnabörn.
Lokað
Vegna útfarar BIRGIS GUÐJÓNSSONAR verða verslun
og skrifstofa okkar lokaðar frá kl. 14.00-17.00 í dag.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Birting a fmælis- og
minningargreina
Morgnnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stj'órn blaðsins á 2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásöum Moggans!