Morgunblaðið - 26.02.1987, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1987
Equitana ’ST:
Disneyland
hestamannsins
HESTAR
Valdimar Kristinsson
Heimssýning hestanna hefur hún
verið kölluð „Equitana“-sýningin í
Essen, en hún verður haldin dagana
H.—17. mars næstkomandi. Sýn-
ingar þessar hafa verið haldnar frá
1972 og hefur umfang þeirra auk-
ist með hverri sýningu og nú er
stærð salanna sem sýninguna hýsir
um 70.000 fermetrar og búist er
við að um 300.000 manns muni
sækja sýninguna að þessu sinni.
Þá er reiknað með að um 650 aðil-
ar frá 25 löndum muni taka þátt í
sýningunni.
Þáttur íslands eða öllu heldur
íslenska hestsins hefur verið mikill
í þessari sýningu og nú í fyrsta
skipti er íslendingur við stjómvölinn
hjá íslandsdeildinni. Er það Herbert
„Kóki“ Ólason fyrrum búhöldur á
Falkenhorst, en honum var falin
stjóm deildarinnar eftir að hann
hafði haldið vel heppnað „Meistara-
mót Þýskalands" á Falkenhorst
síðastliðið haust eins og kunnugt
er af fréttum.
Var Kóki á ferðinni hér á íslandi
fyrir stuttu og náði umsjónarmaður
„Hesta" tali af honum. Sagði hann
að íslandsdeildin fengi til umráða
500 fermetra og væri í ráði að
skipta því niður í 20 bása. Sagði
Kóki þetta helmings aukningu frá
því sem verið hefur áður enda taldi
hann að nú væru óvenju góðar að-
stæður til að auglýsa landið á allan
hátt; fólkið, hestinn og íslenskar
vörur. „Hreint og ómengað land er
það sem fólk vill í dag,“ sagði Kóki.
En erindi Kóka hingað til lands
var að kynna íslenskum fyrirtækj-
um og ýmsum aðilum möguleika
til auglýsinga á sýningunni. Sagðist
hann hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum með undirtektir, að vísu
hafí mönnum litist vel á þetta en
síðan þegar á reyndi var viðkvæðið
að ekki væra til penigar til að
standa straum af þátttöku að þessu
sinni. Benti Kóki á að reiknað væri
með að daglegt gegnumstreymi í
íslensku deildinni yrði um 70.000
manns. Þá sagði hann að í ráði
væri að bjóða upp á íslenskan mat
og yrðu fengnir matreiðslumenn
héðan svona til að tryggja að ekk-
ert færi úrskeiðis við matseldina.
Þess má geta að Kóki bauð upp á
íslenskan mat á mótinu á Falken-
horst í haust og féll það mótsgest-
um vel í geð.
íslenski hesturinn slær
ávallt í gegn
Allt frá því að íslenskir hestar
komu fram á þessum sýningum
hafa þeir verið vinsælasta atriðið á
svokölluðum „Hot Top Show" sem
Kjarkur og æðruleysi þýsku lögregluhestanna er með ólíkindum og
hér stökkva tveir þeirra í gegnum logandi ramma.
ingargesta. Má helst líkja því við
þá tilfínningu sem allir þekkja þeg-
ar „landinn" vinnur góða sigra í
handboltanum eða öðram íþrótta-
greinum.
En það er fleira sýnt en íslenskir
hestar og skal hér reynt að telja
upp sitthvað af því sem fyrir augu
ber. í stóram dráttum má skipta
þessari sýningu í tvo meginhluta,
annarsvegar hestar og reiðmennska
og hinsvegar vörasýning. Þessir
tveir meginhlutar eiga það svo sam-
eiginlegt að þar er sýnt bókstaflega
allt sem hugsast getur í heimi
hestamennskunnar. Öll helstu
hestakyn heimsins koma þama
fram, og má þar nefna Andalúsíu-
hesta, Haflinger, Frisian, Fjarðar-
hestar, Connemara, New Forrest,
Welsh-pony’s, Lusitano-hestar,
Pasofíno-töltarar og að sjálfsögðu
Arabar.
Segja má að flestar ef ekki allar
tegundir reiðmennsku sjáist á Equ-
itana og má þar nefna hindrana-
stökk, Westem-reiðmennsku,
söðulreið hefðarkvenna að fyrri
tíma hætti, kerraakstur ýmiskonar,
þá era ungversku staðgenglamir
ógleymanlegir þar sem þeir sýna
glæfrareið á beislis- og hankklaus-
um hestum og enda svo með því
að láta hestana stöðva snarlega í
miðjum spretti og henda sér niður
sem dauðir væra og knapinn stend-
ur á síðum hans og hneigir sig
auðmjúklega fyrir áhorfendum.
Þýskir lögreglumenn hafa jafnan
verið með ekki síður eftirminnilegt
atriði þar sem þeir sýna kjark og
æðraleysi hesta sinna. Meðal ann-
ars láta þeir hestana stökkva í
gegnum eld og vegg og slcjóta úr
byssum. Hér er fátt eitt nefnt en
ekki má sleppa því að nú í fyrsta
skipti verður haldin þama heims-
meistarakeppnin í dressur eða
hlýðnikeppni eins og það kallast á
íslensku. Má þar búast við stjömum
eins og Anne Grethe Jenssen núver-
era á kvöldin og era þar bestu sýn-
ingaratriðin frá deginum. Hafa
verið notaðir sérstakir mælar til að
kanna undirtektir áhorfenda, vænt-
anlega klapp og annan hávaða sem
fólk sýnir til að láta í ljós hrifningu
sína og hafa íslensku hestamir þar
jafnan verið á toppnum. All nokkur
hópur íslendinga hefur farið á þess-
ar sýningar í gegnum árin og ber
öllum saman um að það sé ólýsan-
leg tilfínning sem grípi um sig
meðal íslendinganna þegar fslensku
hestamir vinni hug og hjörtu sýn-
Andalúsíu-hestarnir hafa veitt (slensku hestunum harða samkeppni
um vinsældir sýningargesta. Snilli spænsku reiðmannanna virðist
ekki eiga sér nein takmörk og hér hefur einn þeirra látið hestinn
setjast á afturendann og sjálfur stendur hann í hnakknum.
MorgunblaðiðAT aldimar Kristinsson
Og þeir minnstu ná ekki fullvaxnir eðlilegri stærð folalda af islensku
kyni og að sjálfsögðu eru þeir ekki notaðir til reiðar.
í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI
Sunnudaginn 1. mars í Laugardalshöll
^etta er stórviðburður sem enginn unn- MBk, andi samkvæmisdansa ætti að missa af. jjBfc ISLANDSMEISTARAKEPPNI Bp ,Æmr í samkvæmisdönsum Bolludagskaffi — um kvöldið „allar veit- ingar'1. Komið og sjáið hrífandi og spennandi keppni. DansráA íslands